Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Viðgerðir skipa stærri sess hjá byggingarfyrirtækjnm Aukin VIÐGERÐIR eru orðnar stærri hluti af verkefnum byggingarfyrirtækja á Islandi, jafnframt því sem vaxandi óvissa er með verkefni hjá fyrirtækj- unum. Þetta kemur fram í könnum sem Samtök iðnaðarins gerðu um ástand og horfur í byggingariðnaði. í könnuninni kom fram að fyrir- tækin sjá yfirleitt ekki langt fram í tímann með verkefni. Þannig höfðu tæp 50% fyrirtækjanna verkefni til eins eða tveggja mánaða og aðeins 4% fyrirtækjanna höfðu verkefni ovissa meira en ár fram í tímann. Miðað við sambærilega könnun sem gerð var fyrir ári hefur verkefnastaða fyrirtækjanna versnað nokkuð. Einnig kemur fram að um helm- ingur allra verkefna á síðasta ári reyndist hafa verið viðgerðarverk- efni samanborið við 38% árið 1993 og 29% árið 1992. Helsti samdrátt- urinn virðist vera í félagslegu- og opinberu húsnæði, en framkvæmdir á þessu sviði hafa dregist saman um nær helming frá árinu 1992. LAU G ARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 17 1 11" .......... I Vel þekktur þýskur framleiðandi greiningarefna og -áhalda til notkunar í læknis- fræðilegum rannsóknum hefur áhuga á að bæta íslandi í hóp alþjóðlegra viðskipta- vina sinna. Af þessum ástæðum leitum við á Islandi að einkaumboðsmanni fyrir greiningarefni og -kerfi Fyrirtæki, erstarfa sem birgjar fyrir rannsóknastofur og sjúkrahús, helst með greiningarefni eða -áhöld og reynslu á því sviði, sendi umsókn, merkta: „M 1410“, til umboðsskrifstofu okkar(skrifaða á þýsku eða ensku): Peter Emrich WERBUNG, P.O. Box 1805, D-55008 Mainz, simbéf 00 496131/687021. ú> Flugfélög samþykkja aukna skaða- bótaskyldu Toronto. Reuter. FLUGFÉLÖG heims eru reiðubúin að stórhækka hámarksupphæð þá sem þau greiða þegar farþegar slas- ast eða týna lífi að sögn Alþjóðasam- taka flugfélaga (LATA) Undirritaður hefur verið í Wash- ington samningur 67 flugfélaga, sem miðar að því að afstýra gífurleg- um fjárútlátum á borð við margra milljóna dollara skaðabætur, sem bandarískir dómstólar dæmdu eftir sprenginguna í farþégaþotu Pan Am yfír Lockerbie í Skotlandi 1988. Samkvæmt samningnum mun hámarksupphæð sú sem hægt verð- ur að neyða flugfélög til að greiða, ef slys ber að höndum, hækka í um 382.000 dollara. Þessi nýju ábyrgð- armörk taka líklega gildi 1996. Núverandi mörk í millilandaflugi eru misjöfn eftir löndum - á bilinu 10-153.000 dollarar. Fyrirhuguð mörk eiga aðeins við í millilandaflugi. I mörgum löndum eru engin fyrir hendi, ef um slys á innanlandsleiðum er að ræða. Málaferlum afstýrt? Þrátt fyrir úreltar alþjóðlegar reglur geta dómstólar dæmt auknar skaðabætur, ef þeir telja flugfélag eiga sök á mistökum eins og í Lock- erbie-slysinu. Síðustu bætur, sem voru dæmdar í því máli, námu 19 milljónum dollara. Með því að færa út ábyrgðarmörk- in vonast flugfélög til að stöðva lög- sóknir og draga úr tryggingakostn- aði. Stefnendur fá verulegar skaða- bætur á skemmri tíma en ef þeir fara í mál, að sögn lögfræðinga IATA.. ------»-» ♦ Verð The Times hækk- ar um 5 pens London. Reuter. VERÐIÐ á The Times verður óvænt hækkað um fimm pens í 25 pens 3. júlí vegna hækkunar á verði dag- blaðapappírs. The Times er helzta dagblað fjölmiðlakóngsins Ruperts Murdochs og hratt af stað verðstríði vandaðra blaða í Bretlandi fyrir tveimur árum. Keppinauturinn The Daily Telegraph kostar 30 pens. Þrátt fyrir hækkunina hélt Peter Stothard ritstjóri því fram í yfirlýs- ingu að verðlækkunarstefna The Times hefði borið árangur og nýjum lesendum mundi ekki, fækka. Verð á dagblaðapappír hækkaði um 15% 1. janúar og hækkar um 30-33% 1. júlí. Búizt er við fleiri hækkunum á næsta ári. The Times selst í 680.000 eintök- um á dag samanborið við 354.000 eintök í september 1993 þegar verð- ið var lækkað í 30 pens úr 45. IMIS5AN aðeins krónur 1.171.000.- fyrir nýjan 4ra dyra Sunny Með öllum Nissan bílum fylgir frítt þjónustueftirlit í eitt ár eða, 22.000. km. / Islensk ryðvörn °g hljóðeinangrun auk verksmiðjuryðvarnar Við verðum með bílasýningu á hjólreiðahátíð á Hvolsvelli 1. og 2. júlí. Nissan Sunny 4ra dyra • 16 ventla vél m/beinni fjölinnsprautun • Vökva- og veltistýri • Samlœsing á hurðum • Hitanlegsæti • Utvarþ og segulband • Stillanleg hœð öryggisbelta í framsætum • Stillanlegir höfuðpúðar í aftursœtum 1— Pp Ingvar Helgason hf. Sævarhöföa 2 sími: 525 8000 NIS5AIM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.