Morgunblaðið - 01.07.1995, Síða 23

Morgunblaðið - 01.07.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 23 Qttast að tala látinna í rústum verslunarmiðstöðvar í Suður-Kóreu fari yfir 200 „Erfiðast að hætta leit en heyra hróp úr rústunum“ Seoul. Reuter. BJÖRGUNARMENN í Seoul í Suð- ur-Kóreu búast við hinu versta er þeir hefjast handa við að fjarlægja stærstu hlutana úr braki verslana- miðstöðvar sem hrundi í fyrradag. Hafa sumir þeirra giskað á að yfir 200 manns hafi farist. í gær höfðu 63 lík fundist en 246 manna var saknað. Ríkissjónvarpið fullyrðir hins vegar að 95 lík hafi fundist og um 1.000 manns hafi slasast. Vitað var um sex manns á lífi í rústunum, 30 stundum eftir að húsið hrundi. Fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leitinni að fólki sem kann að vera á lífi í rústum Sampoong-verslana- miðstöðvarinnar en helmingur hennar hrundi á háannatíma á fimmtudag. Notast leitarmenn m.a. við háþróaðan tækjabúnað frá Bandaríkjaher við leit að fólki á lífi. S-kóreönsk yfirvöld staðfestu í gær að sex manns, að minnsta kosti, væru á líf! og lögðu björgun- armenn höfuðáherslu á að ná fólk- inu. Alls náðust 58 manns úr rústunum í gær, þar af 36 á lífi. Nokkrir þeirra létust hins vegar á sjúkrahúsi. Talið er að einn þeirra sem liggja grafnir í rústunum sé Frakki. Leit stöðvuð um tíma í gær voru níu kranar notaðir til þess að lyfta brakinu ofan af kjallara verslanamiðstöðvarinnar, þar sem talið er að mörg lík séu. Reuter KRANI lyftir hluta úr braki verslanamiðstöðvarinnar sem hrundi á fimmtudag. Ottast er að yfir 200 manns hafi farist. Hins vegar er vonast til þess að einhverjir séu á lífi á hæðinni sem turn verslanamiðstöðvarinnar hvíldi á. Stöðva varð leitina um tíma af ótta við að sá hluti hússins sem eftir stendur myndi hrynja. Skömmu síðar var tilkynnt að ekki væri hætta á ferðum. „Erfiðast var þegar við urðum að hætta leitinni um stundarsakir vegna hættu á frekara hruni, en við heyrðum hróp fólks sem enn var á lífi,“ sagði byggingaverkamaðurinn Lee Chang-hwan. „Þegar við snerum aftur voru hrópin þögnuð.“ Borgarstjórinn í Seoul, Choi By- ung-yul, lét af embætti í gær í kjöl- far borgarstjórnarkosninganna. Sagði hann að lögreglurannsókn benti til þess að ástæða þessa skelfilega slyss væri fúsk við bygg- ingu hússins og slælegt eftirlit með öryggismálum. Að sögn björgunarmanna komu eftirlitssveitir hins opinbera í versl- unina eftir að húsvörður hafði tek- ið eftir djúpum sprungum í súlum og þakstoðum á efstu hæð. Var gasið tekið af húsinu nokkrum stundum áður en slysið varð. Starfsmaður í húsinu hefur fullyrt að yfirmenn þess hafi verið látnir vita af sprungunum en að þeir hafi ekki gripið til neinna ráðstaf- ana. Yfirheyrði lögregla forstjóra verslanamiðstöðvarinnar og tvo undirmenn hans. Leiðtogakjör breska Ihaldsflokksins Aukin harka í mál- flutningi frambjóðenda Lundúnum. Reuter. Selurinn heldur niðri fisk- stofnum Ottawa. Reuter. STJÓRNVÖLD í Kanada hafa birt skýrslu um vöxt selastofnsins við austurströndina og áhrif hans á fiskstofnana. Kemur þar fram, að selafjöldinn hafi tvöfaldast frá því á áttunda áratugnum þegar um- hverfisverndarsinnar hófu baráttu gegn veiðunum og fullyrt er, að selurinn komi í veg fyrir, að fisk- stofnarnir nái að rétta úr kútnum. „Þrátt fyrir afar stranga veiði- stjórn og veiðibann sjást þess lítil merki, að fiskstofnarnir séu að ná sér,“ sagði Brian Tobin, sjávarút- vegsráðherra Kanada, þegar hann kynnti skýrsluna. Sækir í smáfiskinn „Vöðuselnum hefur fjölgað mikið og hann tekur til sín gífurlegt magn af smáfiski. Hann og útselurinn eiga verulegan þátt í að fiskstofn- arnir ná sér ekki á strik,“ sagði Tobin en í skýrslunni kemur fram, að hver selur éti 1,4 tonn á ári en það gerir samtals 6,9 milljónir tonna. Sækir hann mikið í smáfisk- inn, sem er undirstaðan undir end- urreisn stofnanna. Áætlað er, að 4,8 milljónir vöðu- sela séu nú við Austur-Kanada og er nú verið að íhuga að auka sel- veiðikvótann þótt hann hafi raunar ekki verið tekinn nema að hluta á síðustu vertíð. Á þessu ári hafa aðeins verið drepnir 60.000 selir af 186.000, sem veiða mátti, en talið er, að veiða verði 270.000 seli til að þeim hætti að fjölga og fleiri ef á að fækka þeim. AUKIN harka færðist í baráttuna um embætti leiðtoga breska íhalds- flokksins í gær þegar áskorandinn, John Redwood, lýsti yfir því að John Major forsætisráðherra gæti aldrei leitt flokkinn til sigurs í næstu þing- kosningum. Þessu svaraði Major með yfirlýsingu í þá veru að flokks- menn þyrftu ekki að velkjast í vafa um að þeir myndu láta í minni pokann fyrir Verka- mannaflokknum yrði skipt um leiðtoga. Redwood, sem sagði af sér embætti ráðherra mál- efna Wales áður en hann tilkynnti um framboð sitt gegn Major, vísaði einnig á bug fullyrðingum um að um afturhvarf til Thatcher- tímabilsins yrði að ræða næði hann kjöri. „Sem leið- togi mun ég innleiða nýjan stjórnunarstíl og boða breyttar áherslur. Ég ætla mér að endurlífga breska íhaldsstefnu, skapa spennu og trú á því sem við erum að gera,“ sagði Redwood. í bréf sem dreift var til þeirra 329 þingmanna sem taka munu þátt í kjörinu sagði m.a: „Valið er einfalt. Viljir þú bjarga sæti þínu, flokki og þjóð skaltu kjósa John Redwood." Frekara andóf ekki liðið John Major Ieitaði hins vegar út fyrir veggi þinghússins en þar inni er andrúmsloft sagt rafmagnað og átti fundi með flokksmönnum í Chat- ham og Rochester í Suður-Eng- landi. Hann lýsti yfir því í viðtali að hann myndi ekki líða undirróðurs- starfsemi andstæðinga sinna innan flokksins eftir leiðtogakjörið. Vantraust eða afgerandi sigur? Samkvæmt reglum breska íhalds- flokksins mun Major fara með sigur af hólmi í kosningunni á- þriðjudag fái hann stuðning meirihluta þing- manna og 50 atkvæðum betur. Á hinn bóginn er almennt litið svo á að kjósi 100 þingmenn annaðhvort að styðja Redwood eða sitja hjá verði um að ræða svo alvarlega van- traustsyfirlýsingu að Major muni neyðast til að draga sig í hlé. Er þá talið líklegt að þungavigtarmenn í íhaldsflokknum komi fram á sjón- arsviðið og hafa nöfn þeirra Michael Heseltine viðskiptaráðherra og Mic- hael Portillo atvinnuráðherra eink- um verið nefnd í því viðfangi. Þá þykir ekki óhugsandi að Nor- man Lamont, fyrrum fjármálaráð- herra, sem Major vék úr embætti hugsi honum þegjandi þörfina 'og reynist tilbúinn til að stuðla að falli hans og eins hefur því verið haldið fram að Ken- neth Clarke fjármálaráðherra geti vel hugsað sér að gerast leiðtogi breskra íhaldsmanna. John Major hefur þráfald- lega lýst yfir því á undanförn- um dögum að hann muni vinna sigur í fyrstu umferð og hann þykir hafa sýnt auk- ið sjálfstraust. Frammistaða hans á þingi á fimmtudag vakti mikla athygli og þótti forsætisráðherrann þar af- sanna að hann sé maður lit- laus og laus við kímnigáfu. Staða Heseltines styrkist Major varð hins vegar fyr- ir nokkru áfalli í gær þegar skoðanakönnun sem birt var í tímaritinu The Economist leiddi í ljós að Michael Heselt- ine væri líklegastur til að geta unn- ið upp þann mikla mun sem er á fylgi stóru flokkanna tveggja, Ihaldsflokksins og Verkamanna- flokksins. I könnuninni kom fram að forskot Verkamannaflokksins yrði 24% ef Major væri við völd en einungis 18% væri Heseltine leiðtogi flokksins. Major og Redwood vara þingmenn við því að sæti þeirra séu í húfi Reuter JOHN Major ásamt Normu, eiginkonu sinni, er vígður var fyrsti grunnurinn í nýju íbúða- hverfi í Chatham. Ríkið ræð- ur meiri- hluta FARI svo að Den norske Bank kaupi fjármálastofnunina Vital og Norgeskreditt kaupi Kredit- kassen, verður rúmlega helm- ingur fjármálamarkaðarins í Noregi kominn undir yfirstjórn fjármálaráðuneytisins. Den norske bank og Norgeskreditt hafa heyrt undir ríkið síðan bönkunum var komið til bjargar eftir að þeir römbuðu á barmi gjaldþrots fyrir um tveim árum síðan. Lana Turner látin BANDARÍSKA leikkonan Lana Tumer lést í fyrradag á heimili sínu í Century City af völd- um krabba- meins í hálsi. Hún var á 76. aldursári. Hún var með- al dáðustu leikkvenna hvíta tjaldsins en hvert hneykslismálið á fætur öðru í einkalífi hennar varpaði annars skugga á leikferil henn- ar. Tumer lék í sinni fyrstu kvikmynd, Love Finds Andy Hardy, árið 1938 og vom mót- leikarar hennar Mickey Rooney og Judy Garland. Hún lék í fjölda kvikmynda, allt fram á níunda áratuginn. Unnið allt sumarið SÚ venja að loka sænskum fyrirtækjum á meðan starfs- menn tóku sér sumarfrí virðist nú vera á undanhaldi. Þannig hefur fjarskiptafyrirtækið Ericsson. ákveðið að ekkert verði lokað í sumar, heldur ein- ungis dregið úr afköstum. Náðst hefur samkomulag við verkalýðsfélög um þetta. Ástæðan er sú, að mörg sænsk fyrirtæki hafa haslað sér völl á alþjóðavettvangi og þess vegna þykir ófært annað en hafa allar deildir opnar allt árið. . Samið um úran o g vopn í Moskvu RÚSSAR og Bandaríkjamenn náðu í gær samningum í Moskvu um takmarkanir á vopnasölu til annarra landa og aðgerðir til að flýta eyðingu kjarnavopna Sovétríkjanna gömlu. AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna og Víktor Tsjemomýrdín, forsætisráð- herra Rússlands, skýrðu frá samkomulaginu á blaðamanna- fundi og sagði Gore að tryggt yrði að Rússar fengju strax greiðslu fyrir úran úr vopnum sem flutt hefur verið vestur um haf. Svartahafs- ríki huga að efnahags- samstarfi LEIÐTOGAR ríkja sem eiga land að Svartahafi og nokkurra nálægra ríkja áttu fund í Búk- arest í gær og ræddu leiðir til að efla samstarf í efnahagsmál- um. Ion Uiescu, forseti Rúm- eníu, sagði að mikilvægast væri að ríkin bættu samgönguleiðir og fjarskipti auk þess sem þau efldu samvinnu í orkumálum. Blóðugar deilur milli sumra ríkjanna valda því að erfitt get- ur reynst að ná samkomulagi, ekki síst stríð Armena og Azera um héraðið Nagorno-Karabak. Turner

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.