Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Lýst er eftir hrauni
Finnandi vinsamlegast skili því til Hafnarfjarðar
UMHVERFISMAL
eru í brennidepli, lan-
deyðing hér á landi er
með því mesta sem
þekkist í heiminum og
stöðvun gróðureyðing-
ar er afar brýnt verk-
efni. Þjóðin er að vakna
til vitundar um ástand-
ið, það sýnir áhugi al-
mennings á hverskyns
ræktun og uppgræðslu.
Mörg fyrirtæki hafa
lagt lóð á vogarskál-
arnar, sala á burðar-
pokum gerir sitt gagn
og ekki má gleyma
íjölda félagasamtaka
sem vinna þrotlaust
starf á þessu sviði. í okkar harð-
býla landi þarf lítið að fara úrskeið-
is til að röskun verði á lögmálum
náttúrunnar. Um aldir gekk þjóðin
ótæpilega á gæði landsins eins og
óþijótandi nægtarbrunn. Það var
því mikið gæfuspor þegar Skógrækt
ríkisins var stofnuð samkvæmt lög-
um árið 1907. Hlutverk hennar er
m.a. að vernda, friða og rækta
skóga og skógarleifar, græða upp
skóga þar sem henta þykir og leið-
beina um meðferð skóga og kjarrs
svo nokkuð sé nefnt. Starfsemi
skógræktarfólks hefur leitt til mik-
illa framfara í ræktunar- og upp-
græðslumálum þjóðarinnar og víða
hefur útliti landsins verið breytt úr
auðn í græna reiti. Það skýtur því
skökku við að í landi Skógræktar
ríkisins í Kapelluhrauni á sér nú
stað gríðarleg landeyðing. Fyrir
nokkrum áratugum fékk skógrækt-
in um 2.000 ha lands úr Kapellu-
hrauni að gjöf til ræktunar. Svæðið
telst hluti af Almenningi og utan
skipulags. Þar hefur ræktunarstarf
skapað myndarlega lundi á falleg-
um reit sem á eftir að gleðja kom-
andi kynslóðir. í hluta gamallar
hraunnámu á sömu slóðum var ral-
lykross-braut komið fyrir uppúr
1990, með leyfí skógræktarinnar
og bæjaryfirvalda í Hafnarfirði.
Náman átti að vera aflögð, en 6.
febrúar 1992 gerði Skógrækt ríkis-
ins samning við Borgartak og seldi
fyrirtækinu 1.000.000 m3 (eina
milljón rúmmetra) af hraunfyllingu
í Kapelluhrauni. Vinnslusvæðið er
í miðju hrauninu, sem er mosagróið
apalhraun með stökum birkihrísl-
um, burknum, lyngi og
öðrum hraungróðri á
stangli í skjólgóðum
gjótum. Hraunið rann
á sögulegum tíma, árið
1151, úr eldstöð í
Undirhlíðum, yfír eldra
hraun og er því stund-
um nefnt Nýjahraun.
Þarna má lesa jarð- og
gróðursögu á mjög
glöggan og skýran
máta.
Samningurinn við
Borgartak færði skóg-
ræktinni 12.000.000,-
krónur í nettó tekjur
eða kr. 12 án vsk. á
rúmmetra. Borgartak
selur síðan hvern m3 af unnu efni
á 104 krónur án vsk. í ársbyrjun
1995 komu fram upplýsingar um
að búið væri að vinna '/4 efnisins
eða 250.000 m3, en í maílok, aðeins
5 mánuðum síðar, kemur í ljós að
Borgartak hefur nú þegar unnið
helming umsamins efnis, 500.000
rúmmetra. Verktakinn hefur Iíkast
til fjórfaldað kaupverðið og hagnast
um tugi milljóna, enda gerði hann
einkar hagstæðan samning við
skógræktina. Ef eingöngu hefði
verið unnið frekara efni úr gömlu
námunni, hún t.d. dýpkuð og jarð-
efni unnin nokkra metra niður í
hraunæðina hefði mátt réttlæta
vinnsluna. En verktakinn er fyrst
og fremst að yfírborðsvinna mosa-
gróið hraun upp á eina milljón fer-
metra. Það er unnið hörðum hönd-
um við að ryðja burt gróðurþekj-
unni á sem skjótastan hátt. Efsta
laginu af grónu landi er rutt burt,
en samkværnt stefnumörkun bæjar-
yfírvalda í Hafnarfírði er alfarið
lagst gegn slíkri yfirborðsvinnslu á
óröskuðu hrauni. Þessu mikla jarð-
raski virðist ætlað að tryggja frek-
ari námavinnslu þarna í framtíð-
inni. Aðeins er farið einn til tvo
metra niður þar sem dýpst er unnið
ofan í hraunæðina, auðvinnanleg-
asta efnið skafið ofan af og landið
skilið eftir í sárum.
Það kom íbúum Hafnarfjarðar í
opna skjöldu að verið væri að aka
tugþúsundum tonna úr Kapellu-
hrauni á sama tíma og Umhverfis-
nefnd og bæjarverkfræðingur voru
að móta stefnu um efnistökumál í
bsejarlandinu. Samningurinn virðist
Auðvinnanlegasta efnið
er skafið ofan af, segir
Jónatan Garðarsson,
og landið skilið
eftir í sárum.
hafa verið gerður án vitundar bæj-
aryfírvalda og komst málið nýverið
í hámæli. Náttúruverndarráði Is-
lands var heldur ekki tilkynnt um
þessar fyrirætlanir skógræktarinn-
ar. Nú hefur ráðið blandað sér í
málið og reynir að leita samninga,
en tíminn vinnur með verktakanum.
Á meðan heldur gegndarlaus efnis-
taka áfram af fullum krafti. Flest
bendir til að reynt hafi verið að
láta samningsgerðina fara hljótt.
Almennt var álitið að landspjöll
vegna yfirborðsvinnslu hrauns
heyrðu sögunni til. I greinargerð
sem Þóroddur F. Þóroddson jarð-
fræðingur vann fyrir bæjaryfirvöld
27. október 1986 um „Hagnýt jarð-
efni í landi Hafnarfjarðar" mælir
hann eindregið gegn slíkri vinnslu
í Kapelluhrauni og víðar: „Efnis-
taka úr apalhrauni er yfirleitt til
mikilla lýta í landinu,“ segir í
greinargerðinni. Þá segir Þóroddur
einnig: „Efnistaka eins og tíðkast
hefur t.d. meðfram Krísuvíkurvegi
og Bláíjallavegi er óverjandi frá
sjónarmiði umhverfisverndar. Mikið
efni má fá af svæðum sem „búið“
er að vinna með því að hirða upp
hrúgöld og ganga betur frá námu-
svæðum." Hraunvinnslu í bæjar-
landinu var að mestu hætt þegar
skýrslan kom fram, en um langt
árabil hafði Landgræðslusjóður
leyft umfangsmikla vinnslu í landi
sínu sunnan Straumsvíkur og haft
um 50 milljónir á núvirði í tekjur
af efnissölunni. Hraunvinnsla á
vegum Hafnarfjarðarbæjar var
einnig að mestu aflögð á þessum
tíma, en sú vinnsla var þó marg-
falt minni í sniðum en í landi Land-
græðslusjóðs. Á þessum tíma var
einhugur að skapast um að opna
ekki nýjar námur til vinnslu, heldur
nýta betur „gamlar námur“ að und-
angenginni skipulegri úttekt á efn-
isgæðum námanna.
Það hefur verið merkilegt að
fylgjast með viðbrögðum Jóns
Loftssonar skógræktarstjóra við
málinu. í frétt sem birtist í DV 22.
apríl sl. vegna mótmæla skotveiði-
manna á malarnáminu í Kapellu-
hrauni er haft eftir Jóni: „Ég átta
mig ekki á því hvað mennirnir eru
að fara. Þarna var náma sem ekki
var nógu vel gengið frá. Þá er gert
ráð fyrir samkvæmt skipulagi að
þarna rísi iðnaðarbyggð. Þess
vegna var gengið til þessara samn-
inga og gerðar strangar kröfur um
frágang. Þegar þetta verður búið
verða tilbúnar þarna lóðir og þá
geta Hafnfirðingar tekið til við að
byggja þarna einhverjar Ijótar verk-
smiðjur." Skógræktarstjóri heldur
í það haldreipi að svæðið sé skipu-
lagt fyrir iðnað og því þarft að ryðja
það. Þetta er alrangt. Hið sanna í
málinu er að árið 1990 var lögð
fram tillaga að aðalskipulagi Hafn-
arfjarðar 1988-2008. Þar var m.a.
sýnt iðnaðarsvæði sem gæti komið
til álita eftir 40-50 ár. Tillögunni
var hafnað hjá skipulagsstjórn rík-
isins og fór aldrei í kynningu og
auglýsingu í samræmi við skipu-
lagslög. Hún hefur því ekkert laga-
legt gildi. Samkvæmt gildandi aðal-
skipulagi Hafnarfjarðar 1980-2000
er gert ráð fyrir framtíðariðnaðar-
byggð einum kílómetra suður af
núverandi iðnaðarsvæði eða um tvo
kílómetra frá umræddu hrauntöku-
svæði. Það er því ljóst að ætlunin
var alls ekki að hreyfa neitt við
hrauninu í landi skógræktarinnar.
í ársbyijun 1992 sótti Skógrækt
ríkisins til bæjaryfirvalda um leyfi
til að skipuleggja iðnaðarbyggð á
þessu svæði, en málið var ekki sam-
þykkt. Þrátt fyrir það fór stórfelld
jarðvinnsla í gang. Stærð vinnslu-
svæðisins sem skógræktin seldi er
milljón rúmmetrar og jafnast það á
við 150-200 fótboltavelli á stærð
við Laugardalsvöllinn. Ef mið er
tekið af íbúðarbyggð má reisa 15
einbýlishús á ha, en svæðið er 100
ha og gætu 1.500 einbýlishús rúm-
ast á því. Samkvæmt núgildandi
staðli búa 3,5 íbúar í hveiju einbýl-
ishúsi sem þýðir 5.200 íbúa byggð
og mun það teljast eitt og hálft
skólahverfi. Námaréttindi á þessu
svæði seldi skógræktin fyrir 12
milljónir króna, sem er u.þ.b. verð-
gildi eins einbýlishúss.
Jónatan
Garðarsson
Gráglettni alþingis
um mannréttindamál
Á LIÐNU hausti,
nánar tiltekið 24. nóv-
^ ember 1994, var í
Hæstarétti íslands
kveðinn upp dómur í
máli mínu nr.
385/1992. Var meg-
inniðurstaðan sú að
fella málið niður fyrir
Hæstarétti.
I forsendum dóms-
orðsins segir:
„Samkvæmt þessu
verður ekki komist hjá
því að beita ákvæðum
6. mgr. 17. gr. laga nr.
91/1991 í máli þessu
^ og fara þannig með það
eins og ekki hafi verið
sótt þing við munnlegan flutning
þess af hálfu áfrýjenda. Með vísan
til 2. mgr. 157. gr. sömu laga, sbr.
11. gr. laga nr. 38/1994, verður
mál þetta fellt niður fyrir Hæsta-
rétti.“
Ólögfróðum til upplýsingar skal
‘ greint frá að með þessum forsendum
Hæstaréttar og dóms-
orði var verið að dæma
mig, Jóhönnu Tryggva-
dóttur, vanhæfa til að
flytja eigið mál fyrir
Hæstarétti og var málið
því fellt niður eins og
enginn hefði mætt í því
af minni hálfu.
Einnig skal upplýst
að þessi niðurstaða
Hæstaréttar Islands um
vanhæfi mitt kom án
þess nokkur hefði gert
kröfu um hana, nokkur
gögn um meint vanhæfi
mitt hefðu verið lögð
fram eða nokkuð um
það fjallað við munnleg-
an flutning málsins nr. 385/1992.
Líklega fer hér og nú best á því að
ég hafí sem fæst orð um meint van-
hæfí mitt. En ég hafði vegna ábend-
ingar beint SOS auglýsingu í Morg-
unblaðinu 12. nóvember 1994 til
hæstaréttarlögmanna um aðstoð við
flutning þessa máls, án árangurs.
Mér skilst að fátítt sé, nánast með
eindæmum, að máli fyrir Hæstarétti
sé lokið eins og málinu nr. 385/1992
var lokið 24. nóvember 1994. Og
það er ekki þægileg staða að þurfa
að flytja mál fyrir dómi gegn manni
sem maður telur að eigi alls ekki
réttmæta kröfu en vera hindraður í
því að flytja málið sjalfur og búa
jafnframt við það að enginn hæsta-
réttarlögmaður vilji aðstoða mann.
Við þær aðstæður dugar jafnvel
ekki að fá í hendur yfirlýsingu lögg-
ilts endurskoðanda um að sá sem
fjárkröfuna gerði, ætti í raun enga
kröfu. Hann hefði oftekið fé. Og
vanhæfísdómurinn getur í raun verið
býsna víðtækur. Að formi til er hann
aðeins um eitt tiltekið hæstaréttar-
mál, en hann getur haft þýðingu í
öðrum dómsmálum, jafnvel þótt þar
hafi dómarafulltrúi farið ólöglega
með dómsvald. Vanhæfísdómurinn
vekur ýmsar spurningar, svo sem
hvort maður sem dæmdur hefur
verið vanhæfur til að flytja eigið
mál sé hæfur til að ráða sér lög-
Ég hef verið dæmd
vanhæf til að flytja eig-
ið mál fyrir Hæstarétti,
segir Jóhanna
T ry ggvad óttir. Það
var gert án þess að
nokkur gögn um meint
vanhæfi hafi verið
lögð fram.
mann, ef einhver slíkur væri nú til
sem þyrði að leggja mál mitt fyrir
Hæstarétt Islands. Liggur nærri að
þessar aðferðir Hæstaréttar íslands
og lögmannastéttarinnar séu nokk-
urs konar réttarlag útskúfun úr lýð-
veldinu íslandi.
Það var við þessar aðstæður að
ég leitaði með símskeyti eftir stutt-
um fundi með forseta og varaforseta
Alþingis. Svar Alþingis, dags. 8.
júní, undirritað af Friðriki Ólafs-
syni, skrifstofustjóra Alþingis, f.h.
forsætisnefndar Álþingis, er þannig:
„Hinn 2. júní sl. barst Alþingi sím-
skeyti sem undirritað er: Jóhanna
Tryggvadóttir forstjóri Evrópu-
ferða. Skeytið er svohljóðandi:
Skógræktin og Landgræðslusjóð-
ur hafa unnið mikið gagn við erfið-
ar aðstæður þrátt fyrir rýra sjóði.
Það réttlætir samt ekki allar gerðir
þeirra. Þeim hafa einfaldlega verið
mislagðar hendur hin síðari ár í
þessum efnissölumálum. Sjónar-
miðin voru vissulega önnur á árum
áður, þegar augu fólks voru lokuð
fyrir málefninu. En svona vinnu-
brögð eiga ekki að tíðkast í dag.
Það er ekki óraunhæf krafa, að
stjórnendur Skógræktar ríkisins og
Landgræðslusjóðs ígrundi málin vel
og leiti utanaðkomandi álitsgerða
áður en ákvarðanir af þessu tagi
eru teknar. Að sjálfsögðu verða
þeim á mistök eins og öðrum, það
er mannlegt. En tímarnir breytast
stöðugt og kröfurnar með og þess
vegna er nauðsynlegt að líta öðru
hvoru .yfír farinn veg og leiðrétta
mistök sem kunna að hafa verið
gerð. Þetta á jafnt við um menn
og málefni, stofnanir og stjórnvöld.
Nú er Náttúruverndarár Evrópu
og megináhersla er lögð á náttúru-
vernd utan friðlýstra svæða. „Til-
gangur Náttúrverndarársins er að
opna augu almennings, landeig-
enda, landnotenda, skipulagsyfir-
valda og bæjar og sveitarstjórna
fyrir því að það er ekki nóg að
vernda náttúruna á ákveðnum frið-
lýstum svæðum, svo sem þjóðgörð-
um, friðlöndum eða fólkvöngum.
Eigi náttúruvernd að vera virk og
árangursrík er jafnframt nauðsyn-
legt að hlúa að náttúrunni utan
slíkra svæða," segir Sigurðar Á.
Þráinssonar, starfsmaður umhverf-
isráðuneytis, í grein sem birtist í
Morgunblaðinu 20. apríl sl. í ljósi
þessa er óskiljanlegt að skógrækt-
arstjóri skuli reyna að veija gerð
samningsins við Borgartak. Hann
yrði maður að meiri ef hann viður-
kenndi einfaldlega að um mistök
hafí verið að ræða, rifti samningn-
um og stöðvaði efnistökuna áður
en meiri spjöll verða unnin á svæð-
inu. Hraunið tilheyrir fornum Al-
menningi Álftneshrepps, sem nú er
með réttu í lögsögu Hafnaríjarðar,
og ég leyfi mér að efast um rétt
skógræktarinnar eða annarra aðila,
til að selja, gefa eða ráðstafa þessu
landi með einum eða öðrum hætti.
Skógræktarstjóri hefur slæman
málstað að veija og framganga
hans í málinu hingað til hefur að-
eins grafið undan því trausti sem
fólk hefur borið til Skógræktar rík-
isins um áratugaskeið. Skógrækt-
inni ber að bæta land, ekki eyða
því eins og nú er verið að gera í
Kapelluhrauni.
Höfundur er útgáfustjóri og
áhugamaður um umhverfismál
„Óska eftir áríðandi stuttum
fundi við forseta og varaforseta
Alþingis. Efni: Mannréttindabrot
íslenska lýðveldisins á undirrit-
aðri.“
Erindið hefur verið rætt á fundi
forsætisnefndar Alþingis og lítur
hún svo á að hún sé ekki rétti
aðilinn til að fjalla um slík mál. Á
hinn bóginn má benda á að dóm-
stólaleiðin stendur öllum opin og
einnig má leita til umboðsmanns
Alþingis að uppfylltum vissum skil-
yrðum.“
Ég var þakklát fyrir forsætis-
nefndinni fyrir að hafa tekið mál
mitt fyrir á fundi sínum, en óneitan-
lega vöknuðu efasemdir um vinnu-
brögð nefndarinnar, þar sem hún
afgreiddi erindi mitt án þess að taka
nokkru sinni við því eða gögnum sem
því tengdust. Símskeytið var ósk um
fund án þess greint væri frá hvert
hið meinta mannréttindabrot væri.
Alþingi er gráglettið þegar það
bendir mér á dómstólaleiðina, þar
sem dómur Hæstaréttar íslands, um
vanhæfi mitt, er viðfangsefnið og
löglærðir forseti, varaforseti og
skrifstofustjóri Alþingis vita það án
efa að Umboðsmaður Alþingís hefur
ekki umboð til að fjalla um dómsmál.
Höfundur er forstjóri
Evrópuferða.
í
i
I
i
<
:
0
<
í
4
i
i
i
i
í
i
i
i
(
(
(
(
i
i