Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 39 fyrirmynd. í huganum er ég þakklát fyrir þessa handleiðslu vegna þess að fyrir ungling er ákaflega auðvelt að villast af braut. En af hverju gaf Pétur unglingi þessa fyrirmynd? Jú, hann var lífsglaður, hann var bind- indismaður á vín og tóbak, var íþróttamaður eða hlaupari og hafði áhuga á búskap. Eitt það fyrsta sem ég man eftir Pétri var þegar hann var að reka féð sitt til Loðmundarfjarðar. Þá kom hann gjarnan við hjá frændfólk- inu í Hvannstóði. Hann var alltaf svo hress og opinn að það var ein- hvern veginn svo þægilegt að vera í návist hans. Stuttu seinna trúði ég bræðrum mínum fyrir því að ég ætlaði að reka Mosu mína til Loð- mundarfjarðar, þess ævintýraheims. Þar lágu leiðir okkar seinna saman í smalamennsku. Minnist ég Péturs í góðum hópi smala frá Borgarfirði. Glaðværð hans og uppátæki settu ætíð skemmtilegan blæ á hópinn. Eitt haustið, í kalsarigningu, var hópurinn staddur á hlaðinu heima í Hvannstóði. Pabbi hafði einhveijar áhyggjur af því að mér yrði kalt og hefur sennilega spurt mig oftar en einu sinni um regnfötin. Eftir því tók Pétur. í þessari göngu og í slátur- húsinu þá um haustið mátti ég oft heyra áminningu frá Pétri: „Gunna mín, passaðu að þér verði ekki kalt, geska, hvar eru regnfötin?" Svo kom viðeigandi hlátur á eftir. Við Pétur unnum saman í slátur- húsinu tvö haust. Þá sem endranær átti hann til að bregða fyrir sig glensi. Hjá Pétri snerist lífið ekki ein- göngu um búskap en í smala- mennsku og með hlaupum á eftir ánum upp um fjöll og firnindi styrkt- ust skrefin. Pétur var íþróttamaður og besti langhlaupari Austfirðinga um árabil. A sviði íþrótta- og æsku- lýðsmála lagði Pétur á sig mikið og óeigingjarnt starf bæði fyrir litlu sveitina sína og U.Í.A. Oft urðu heybaggarnir hans að bíða dreifðir um túnin á meðan hann liðsinnti æskunni á íþróttamótum víðs vegar um landið. En það var allt í lagi, svo notuð séu orð Péturs, íþróttamótin höfðu forgang. Sjálf átti ég því láni að fagna að vera í hópi þeirra ungmenna sem Pétur studdi og hvatti á hlaupa- brautinni. Man ég hversu mikið mér var niðri fyrir þegar ég sagði mömmu að Pétur hefði hringt í mig og beðið mig um að keppa á Eiðum. Þau voru þung og erfið síðustu skref- in í 400 m hlaupinu en hvatningar- hróp Péturs héldu huganum frá sárs- aukanum og það var hægt að gera aðeins betur. Pétur vissi og skildi hversu erfitt þetta var fyrir tólf ára barn og þegar hann lagði hendurnar yfir axlirnar á mér, var eins og sárs- aukinn og hugsunin um að gera þetta aldrei aftur, leystust upp. Strax voru gerð drög að næsta hlaupi. Mér er það minnisstætt að á Landsmótinu á Selfossi 1978 hlutu Borgfirðingar, þessi fámenna sveit, níu verðlaun, þar af þrenn gullverð- laun. Þar er ég viss um að verka Péturs hefur notið við. Störf Péturs í þágu íþrótta- og æskulýðsmála verða seint fullþökkuð. Eitt af síðustu verkum Péturs var að gleðja Borgfirðinga þegar hann fór með hlutverk Halldórs Hómers í leikritinu „Margt er það í steininum sem mennirnir ekki sjá“. Erfitt verð- ur að hlaupa í skarðið fyrir Pétur á afmælishátíðinni í sumar. Allir sem þekktu Pétur hafa misst mikið. Megi minningin um góða og glaða drenginn sem alltaf var tilbú- inn að leggja sitt af mörkum, í leik og starfi, varpa birtu á litla staðinn ineð fallegu fjöllin. „Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Eg er svo nærri, að hvert eilt tár ykkar snertir mig og kvelur, en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í móti til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég þótt látinn sé. tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.“ (Ók. höf.) Elsku Magga, Gummi, Oddný, Ríkey, systkini og aðrir aðstandend- ur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún Sveinsdóttir. EDDA PÉTURSDÓTTIR + Edda Pétursdóttir var fædd á Akureyri 23. október 1931. Foreldrar hennar voru hjónin Pétur Þorvaldsson og Krisljana Steinþórsdóttir. Systkini Eddu eru: María, Þor- valdur, Stella Bryndís og Guð- mundur Rafn, öll búsett á Akur- eyri. Börn Eddu eru: 1) Inger L. Jónsdóttir, sýslumaður, gift Davíð Baldurssyni, prófasti og eiga þau þijú börn, Drífu Krist- jönu, Margréti Hlín og Þorvald. 2) Kristján Ólafur Jónsson, verkstjóri hjá Pósti og síma og hljómlistarmaður, sambýlis- kona hans er Sigurbjörg Ein- arsdóttir og eiga þau tvær dætur, Svanhildi Eddu og Ey- rúnu Sif. 3) Sigurlaug Jónsdótt- ir, snyrtifræðingur, sambýlis- maður hennar er Baldur Skjaldarson, flugvirki, og eiga þau dótturina Eddu Karitas. Edda starfaði sem matráðs- kona við elliheimilið í Skjaldar- vík á þriðja áratug. Útför henn- ar fór fram frá Akureyrar- kirkju hinn 6. júní síðastliðinn. VIÐ sviplegt fráfall móður minnar er stórt skarð höggvið í fjölskyld- una. Áfallið er enn meira, þar sem veikindi höfðu ekki hijáð hana. Hraustleg og þróttmikil var hún til hinstu stundar. Það má með sanni segja að hennar skapadægur rann upp fýrirvaralaust. Margs er að minnast um góða og fómfúsa konu. Hún ólst upp í Fjörunni á Akureyri í einkar sam- heldinni fjölskyldu. Æskuárin liðu við leik og sumarstörf í sveit. Um- hverfið var fagurt og þarna léku stórir hópar barna, áhyggjulaus, þrátt fyrir skugga kreppunnar miklu, atvinnuleysisins. Ég sé hana fyrir mér unga ríðandi eftir Leirun- um á einum af gæðingum föður síns, reista og tigulega. Eg sé hana fyrir mér ganga í salinn á Hótel Norðurlandi og hljómsveitina taka til við að leika lagið hennar, þegar hún birtist. Hún hafði allt til að bera, glæsileika, dugnað og glað- værð. Trúlega hefur hún á morgni lífsins átt væntingar um annað en það sem hennar beið. Aldrei varð þó vart beiskju í fari hennar, enda var hún afar dul um sinn innri mann. Fjölskyldan reisti sér stærra hús er árin liðu. Þar bjuggu saman þtjár kynslóðir í áratugi. Foreldrar og þijú systkini ásamt mágkonu og börnum. Þarna var miðpunktur fjöl- skyldunnar og óvenju gestkvæmt. Heimilið bar vitni um smekkvísi HERMANNIA SIGRÍÐUR ANNA MARKÚSDÓTTIR + Hermannía Markúsdóttir fæddist í Fagurhól í Landeyjum 5. nóv- ember 1901. Hún lést 19. maí síðast- Iiðinn að Kumbara- vogi. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Helga- dóttir og Markús Sigurðsson tré- smiður. Hún var elst af sjö systkin- um. Hermannia giftist Karli Moritz, en hann lést 1944. Börn hennar eru. Arni Bæron, sem býr í Reykjavík, Hlín, bú- sett í Bandaríkjunum, og Krist- ín Anna í Hafnarfirði. Eftir að Hermannía missti mann sinn starfaði hún við sauma og aðr- ar hannyrðir. Útför hennar fór fram frá Fossvogskapellu 2. júlí sl. MEÐ nokkrum orðum vil ég minn- ast hennar ömmu minnar, sem nýverið kvaddi þennan heim. Mín fyrsta minning um ömmu mína er minning lítillar fjögurra ára stúlku. í bítið einn bjartan vor- morgun fór lítil stúlka á fætur. Hún læddist léttum fótum fram í eldhúsið með stóran, rauðan kon- fektkassa undir hendinni. í honum geymdi hún dýrustu gullin sín. „Amma mín,“ sagði hún lágt við sofandi konuna á eldhúsbekknum. Og amma mín opnaði augun, sett- ist upp og tók við að skoða og dásama gersemarnar í rauða konf- ektkassanum. Og við hlið hennar sat ég og horfði á þessa grann- leitu, bjarteygu konu, með allri þeirri aðdáun og virðingu sem býr í bijósti lítils barns. Og alla morgna, á meðan hún amma mín úr Reykjavík dvaldi í heimsókn hjá okkur, vakti ég hana á þennan hátt. Alrei kvartaði hún eða ávítaði mig, þó ég vekti hana löngu á und- an hinu fólkinu í húsinu. Þetta voru góðar stundir með henni ömmu minni í gamla eldhúsinu á Eiðum í Vestmannaeyjum. Seinna kynntist ég ömmu minni á annan hátt. Þá bjó ég hjá ömmu fyrstu tvö árin, er ég sótti nám í mennta- skóla í Reykjavík. Amma var ákveðin og stjórnsöm kona, og átti það til að vera hvöss í orði við mig, jafnt sem aðra. Lífið hafði verið henni erf- itt, en hún var sterk persona og lét aldrei bugast. En mótlætið hafði gefið henni ákveðni og hörku. Alltaf var hún sívinn- andi. Hún saumaði, pijónaði og vann lista- verk í höndunum af hárfínni ná- kvæmni. Vinnu sína seldi hún með- al annars til vefnaðarvöruverslunar VBK í mörg ár. Stórar myndir teiknaði hún uppi eftir póstkortum og saumaði út. Slík listaverk gaf hún gjaman fjöl- skyldu og vinum. Alltaf var amma að gefa. Og öll nutum við góðs af gjafmildi ömmu, böm, bamabörn og barnabama- böm. Það var kannski hennar leið til að sýna okkur, hve vænt henni þótti um okkur. Amma var ekki mikið fyrir að ræða tilfínningar sín- ar, hún lét verkin tala. Þau tvö ár sem ég var hjá ömmu sagði hún mér margt um ævi sína. Að hafa ung og ógift eignast þijú börn og orðið að gefa eitt þeirra 9 daga gamalt. Seinna giftist hún Karli Moritz slökkviliðsmanni og þau ættleiddu síðan móður mína, þá litla 9 mánaða gamla stúlku. Arin með Karli vom góðu árin henn- ar ömmu. Móðir mín var aðeins 6 ára þegar amma missir Karl eftir slys. Og aftur varð lífsbaráttan erf- ið hjá henni ömmu minni. En þrátt fyrir þröng kjör og mikla vinnu, átti amma líka góðar stundir og góðar minningar. Og á þeim stundum var stutt í kímnina hjá henni, sérstaklega þegar góðir vinir komu í heimsókn. Amma varð göm- ul kona. Síðustu þijú árin var hún ekki heilsugóð, en ætíð fylgdi henni reisn og virðing. Og minningin um ömmu mun lifa í bijóstum okkar, sem hana þékktu, alla tíð. Sigríður Sigurðardóttir, Þorlákshöfn. mæðgnanna. Börnin sín þijú ól hún upp í skjóli foreldra og systkina. í þessu húsi var gott að alast upp, umönnun okkar var ávallt í fyrir- rúmi, fylgst var náið með þroska okkar og námsárangri. Hún elskaði ungbörn, þess nutu börn okkar um lengri eða skemmri tíma svo og barnaböm systkinanna. Þarna átti dóttir okkar, Drífa Kristjana, sitt annað heimili. Aldrei var talið eftir sér að fóstra barnabarn, ef aðstæð- ur kröfðust. Slík var unun hennar af heimilisstörfum og bamauppeldi, að hún kvaðst mundu hafa viljað helga sig því alfarið. En hún átti ekki val. Hún starfaði við matseld utan heimilis, enda listakokkur. Áratug á bamaheimili staðarins, sem þá var rekið yfir sumartímann og á þriðja áratug sem matráðskona við elliheimilið í Skjaldarvík. Þar starfaði hún sinn hinsta dag og hafði undirbúið þann næsta. Lét hún sér mjög annt um vistmenn og hafði átt frábært samstarf við svo marga á langri starfsævi. Nokkurr- ar beiskju gætti síðustu árin yfir auknu vinnuálagi í kjölfar breytinga á rekstri heimilisins, sem hún hafði vakið athygli á án árangurs. Hún var félagslynd kona, en störf innan og utan heimilis tóku tíma hennar allan. Góðra stunda naut hún með saumaklúbbnum sínum og daglegan samgang höfðu systum- ar, hún og Stella. Nánast alla tíð hélt hún heimili með bróður sínum, Þorvaldi. Nutu þau stuðnings hvort annars alla tíð. Nú þegar bjartir sumardagar eru loks komnir stöndum við eftir hníp- in. Gestaboðinu er lokið án þess að nokkur fengi að þakka fyrir sig. Við gerum það nú. Minningin lifir um konu sem helgaði líf sitt þjón- ustu við aðra. Konu sem átti svo mikilvægu hlutverki að gegna í lífi okkar allra að erfitt verður fyrir sum okkar að takast á við það án hennar. Við minnumst hennar bros- mildrar, umkringda fjölskyldunni, veitandi af rausn. Guð blessi minn- ingu elskulegrar móður okkar. Inger. Það sem ég man helst um ömmu er það að hún var alltaf glaðvær og mjög gestrisin og hafði alltaf tíma fyrir alla. Fyrir tveimur árum fór hún með mig til Mallorca í þijár vikur og áttum við þar góðar stund- ir saman. Við fórum í verslunarferð- ir, á ströndina og út að borða á kvöldin. Hún var alltaf svo góð við mig og aðra og hafði alltaf eitthvað fyrir stafni. En svo gerðist það sem enginn átti von á. Þessi glaðlynda kona, sem var öllum svo kær, dó. í fyrstu vildi ég ekki trúa því að kona á besta aldri hefði dáið á einni nóttu, en ég lærði að lifa við það næstu daga. Hún var barngóð, sívinnandi, félagslynd og dugmikil manneskja og mjög góð amma. Þannig vil ég muna hana. Hvíl í friði. Margrét Hlín. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT BJARNADÓTTIR, Dalbraut 27, verður jarðsungin frá Áskirkju mánu- daginn 3. júlí kl. 13.30. Kristinn Jónsson, Sigríður Garðarsdóttir, Jón Orvar Kristinsson, Hrönn Harðardóttir, Maren Brynja Kristinsdóttir, Helena Rut Örvarsdóttir. t Móðir okkar, SÓLVEIG EYJÓLFSDÓTTIR, Miðleiti 7, Reykjavík, er látin. Sigríður Eysteinsdóttir, Eyjólfur Eysteinsson, Jón Eysteinsson, Þorbergur Eysteinsson, Ólöf Eysteinsdóttir, Finnur Eysteinsson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðs- ins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarn- ar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðs- ins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfílega línulengd - eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskling- ur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í dag- legu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.