Morgunblaðið - 01.07.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ1995 41
OSKAR
ÞORSTEINSSON
+ Óskar Þor-
steinsson fædd-
ist í Vestmannaeyj-
um þann 22. mars
1908. Hann lést á
Elliheimilinu
Hraunbúðum
Vestmannaeyjum
22. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Þorsteinn Sig-
urðsson, verslunar-
maður frá Odda-
koti í Vestur- Lan-
deyjum, f.
1875, d. 5.8. 1935
og Kristín Vigfús-
dóttir fædd í Skálakoti undir
Vestur-Eyjafjöllum, 19.7. 1874,
d. 23.7. 1936. Óskar átti tvö
hálfsystkini, Sigurbjörgu, f.
1915, d.1990 og Huldu, f. 1927.
Þau voru samfeðra og öll fædd
í Vestmannaeyjum. Óskar eign-
aðist einn son fyrir hjónaband,
Anton Einar sjómann f. 1935.
Óskar kvæntist Þórdísi Jó-
hannesdóttur 29. maí 1937. Hún
var f. 14.10. 1913
að Stóra-Dunhaga í
Hörgárdal. Þau
eignuðust saman
tvo drengi, Viðar
rafvirkjameistara,
f. 1938 og Jóhannes
rafvirkjameistara,
f. 1940. Viðar er
kvæntur Sigur-
björgu Jónasdóttur
frá Grundarbrekku
í Vestmannaeyjum.
Þau eiga tvo syni,
Jónas Rúnar og
Hafþór Óskar. Jó-
hannes er kvæntur
Asgerði Margréti Þorsteins-
dóttur frá Reykjavík. Þau eiga
þijá syni, Þorstein, Óskar Þór
og Jóhannes. Þorsteinn á tvær
ungar dætur. Elsti sonur Ósk-
ars, Anton Einar, er ókvæntur.
Hann á eina dóttur, Lindu. Hún
á fjögur börn og tvö barnabörn.
Óskar verður jarðsunginn frá
Landakirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 15.30.
„Er árin færast yfir, vaxa sviði og sár.
Með hverri nótt sem nálgast, falla fleiri
tár..
(Davíð.Stef.)
Elskulegur móðurbróðir minn,
Óskar Þorsteinsson, er látinn 87
ára að aldri. Hann var tilbúinn að
deyja, af hveiju er ég þá að gráta?
Jú, vegna þess að við sitjum öll
uppi með þá afstöðu að það sé í
raun óásættanlegt að kveðja hjart-
fólgna vini. Þess vegna er það, að
þeir sem hafa náð svo háum aldri
eru tilbúnir að deyja. Þeir eru bún-
ir að fella of mörg tár.
Þorsteinn afi minn átti þijú börn,
Óskar, móður mína Sigurbjörgu og
Huldu sem var talsvert yngri en
þau. Systkinin ólust upp hvort í sínu
lagi enda áttu þau ekki sömu móð-
ur. Þegar Óskar kom með yndislega
konu sína, Dísu okkar, til Vest-
mannaeyja, kynnti hann hana fyrir
móður minni. Þá mynduðust þau
tengsl á milli systkinanna sem
gerðu fjölskyldur okkar ekki að
tveim, heldur einni.
Óskar kynntist Dísu þegar þau
unnu bæði í Reykjavík. Hann rifjaði
það upp með okkur systrunum fyr-
ir nokkrum árum. Hún vann á
matstofu sem frænka hennar rak,
hann var þar í fæði. Þetta var árið
1936, árið eftir að hann missti föð-
ur sinn, en sama ár og hann missti
ástkæra móður sína Kristínu. Krist-
in og Þorsteinn afi minn skildu
þegar Óskar var drengur. Hann
hafði því verð einn með móður sinni
lengi. Þau voru mjög samrýnd og
hann saknaði hennar mikið. „Eg
held að Dísa hafi bara vorkennt
mér til að byijað með.“ Sagði hann
við okkur systur. Við brostum að
athugasemd frænda okkar. Við
vissum betur. Satt að segja hef ég
sjaldan eða aldrei séð fallegra sam-
band á milli hjóna.
Á hverju ári sem þau áttu saman
fór hann með hana norður á Akur-
eyri. Þar voru systkini hennar. Hún
hafði sjálf misst móður sína 14 ára
gömul, þá sorg bar hún alla ævi.
Þau skildu hvort annað, voru góð
hvort við annað.
Hún var mikil blómakona, ilmur-
inn úr garðinum hennar á Brimhóla-
brautinni er enn í vitum mér, nætur-
fjólurnar, yndislegur ilmur nætur-
fjólunnar. Garðurinn var þeirra líf.
Þar var sáð og uppskorið, hlúð að
og verndað. Þar lærði ég fyrst á
blómin. Þar var þessu fræi sáð í
sál mína, það að rækta garðinn
sinn. Eg var bara lítil þegar ég fékk
að planta út með þeim því sem hún
var búin að koma til yfir veturinn.
Hann snerist í kringum elsku kon-
una sína, málaði grindverk utanum
beð og smíðaði vermireiti. Sam-
heldni þeirra er svo falleg í minning-
unni.
Óskar frændi minn var ekki bara
frændi sem sagði halló og bless.
Hann var fændi sem sýndi mér og
systkinum mínum í orði og verki
að honum þótti vænt um okkur.
Við rifjum upp hvemig hann lánaði
okkur verkfærin sín og kenndi okk-
ur að nota þau, leyfði okkur að
hjálpa til í garðinum, leika okkur á
háaloftinu, treysti okkur fyrir fína
kíkinum sínum og fór með okkur í
bíltúr á stóra vörubílnum sínum.
Eldri systkini mín, Helga og Fiddi,
muna enn eftir því þegar hann kom
með þann einkennilega ávöxt, ban-
ana, og færði þeim í fyrsta sinn.
Þau eiga ómetanlegar minningar
frá því, þegar Óskar og Dísa bjuggu
á Vesturveginum, þar sem dreng-
irnir þeirra, Viðar og Jóhannes,
fæddust. Viðar, Jóhannes, Helga
og Fiddi fæddust öll með tveggja
ára millibili. Ég kom ekki í heiminn
fyrr en 1949 og lítli bróðir minn
Sigþór, fjórum árum síðar.
Áfi minn var einn af eigendum
í útgerðar- og verslunarfélagi í
Vestmannaeyjum sem hét Fram. Á
yngri árum vann Óskar hjá þessu
fyrirtæki. Síðar keypti Einar Sig-
urðsson Fram og rann það saman
við Hraðfrystistöðina. Óskar rak
síðar og átti ásamt Þorsteini Lofts-
syni tvo vörubíla. Sennilega hafa
þeir verið á meðal stofnenda Vöru-
bílastöðvar Vestmannaeyja.
Stærstan hluta ævi sinnar vann
hann þó við vörubílaakstur fyrir
Hraðfrystistöðina en síðar við neta-
gerð.
Þegar ég var lítil stúlka í Vest-
mannaeyjum voru einu bílarnir í
Eyju vörubílar. Einni „drossíu" man
ég þó eftir. Hana fengum við leigða
þegar litli bróðir okkar var skírður
og keyrðum við í kringum Helga-
fellið í tilefni dagsins. Ég er ekki
frá því að okkur hafi fundist stóri
vörubillinn hans Óskars mun tign-
arlegri. Hann átt sinn stað við hús-
ið á Brimhólabrautinni. Húsið sem
+
Systir okkar,
BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 28. júní.
Kristín Pálsdóttir,
Guðrún Ullsten,
Jóhann Pálsson.
hann byggði fyrir Dísu sína.
Ég man ekki hvað ég var gömul
þegar ég fór með vinkonum mínum
frá Reynisstað, Ernu og Maddý, í
leiðangur til að sína þeim fína hús-
ið hennar Dísu á Brimhólabraut-
inni. Við höfðum að sjálfsögðu ekki
fengið leyfi til að taka okkur svo
langa ferð á hendur. Það var grenj-
andi rigning og við vorum dregnar
inn. Ég man að fólkið hagaði sér
eins og það hefði heimt okkur úr
helju, skildi ekkert í því, eins og
þetta var góð ferð.
Fjölskylda mín fluttisfy frá Vest-
mannaeyjum árið 1955. Ég var svo
lánsöm að fá að vera hjá þeim Ósk-
ari og Dísu á sumrin næstu árin.
Þau tóku mig oft með sér þegar
þau komu að norðan. Bernskuminn-
ingar mínar úr fína húsinu á Brim-
hólabrautinni eru hver annarri fal-
legri. Þar voru margar ævintýraleg-
ar vistarverur. Við rifjum enn upp
systurnar, þegar Óskar tók til í
kartöflugeymslunni á vorin, bara
fyrir okkur. Ég hélt reyndar að
hann hefði bara gert þetta fyrir
mig. Nei, hann hafði líka gert þetta
fyrir systur mína. Þessi geymsla
var ekki með venjulega lofthæð en
passaði sem dúkkuhús fyrir okkur.
Systir mín rifjar upp um leið og
hún hlær að búskapurinn hafi
greinilega ekki verið eins myndar-
legur hjá henni. „Þegar þú varst
þarna að leika þér spurði fólk Viðar
að því, hvort einhver væri farinn
að búa í kjallaranum," og við hlæj-
um báðar.
Mjög margar fallegar minningar
á ég frá þessum árum, en við feng-
um að eiga elsku frænda okkar þar
til hann var 87 ára gamall og minn-
ingarnar urðu fleiri. Þær blandast
saman við létta lund, örlitla stríðni
og gott skopskyn. Það er gott að
vera samvistum við fólk sem á auð-
velt með að hlæja. Áttatíu og fímm
ára gamall fór hann í sína fyrstu
utanlandsreisu með Jóhannesi og
Maggí. Þau vildu stöðugt hlífa hon-
um, töldu sig vera að leggja of
mikið á hann. Hann var aldeilis
ekki á því, vildi sjá meira og meira
og áfram var keyrt, alla leið til ítal-
íu. Systir mín tók á móti þeim á
Keflavíkurflugvelli. Hún sagði mér
að hann hefði verið eins og ung-
lamb, hressari en allir hinir til sam-
ans.
Þrátt fyrir þennan háa aldur hélt
frændi minn ætíð sinni reisn. Hann
naut þeirra forréttinda að hafa góða
líkamlega og andlega heilsu lengur
en flestir. Afburða snyrtimennska
einkenndi hann alla ævi. Hún færði
honum og því umhverfi sem hann
annaðist, blæ virðuleika. Heimilislíf
hans og Dísu hafði reyndar yfír sér
sérstakan blæ sem bæði ég og aðr-
ir báru mikla virðingu fyrir. Það
var sá blær sem mestu máli skiptir
hér á þessari jörðu. Blær trúarinnar.
Á fyrstu árum sínum í Vest-
mannaeyjum gekk Dísa í Betelsöfn-
uðinn. Hún var afar sterktrúuð
kona. Hjá henni spruttu fræ sem
aldrei deyja. Óskar fylgdi konu sinni
í trúnni, en hélt þó tryggð við þjóð-
kirkjuna. Við sem þekktum þau
verðum aldrei söm. Á síðustu jólum
sagði annað barna minna þegar við
settumst að jólaborðinu, „mig lang-
ar að fara með borðbæn eins og
gert var hjá Dísu,“ og við báðum
Guð að blessa máltíðina og stundina
sem við áttum saman.
Fjölskyldan á Brimhólabraut
stækkaði. Þau eignuðust tengda-
dætur, barnabörn og barnabarna-
börn. Tengdadætur þeirra Sigur-
björg og Maggí voru þeim ómetan-
lega góðar. „Þær gætu ekki verið
betri við mig þótt þær væru dætur
mínar,“ sagði hann oft við mig.
Hann var þakklátur þeim og drengj-
unum sínum fyrir ást þeirra og
umhyggju.
Móðir mín og Óskar bróðir henn-
ar áttu margt sameiginlegt. Hún
var besta mamma í heimi. í gegnum
lífið, frá því ég var lítil stúlka, var
það mamma mín sem tók í hönd
mín og sagði, „Stella mín þú ert
svo ..., mér þykir svp ...“. Eftir
að hún dó, var það Óskar bróðir
hennar sem gerði nákvæmlega eins
og systir hans, aftur og aftur,
„Stella mín, þú ert svo ..., mér
þykir svo..."
Aldrei get ég þakkað Guði nóg-
samlega fyrir samfylgd þessarra
ástvina minna. Ég kveð þau með
tárum og árin færast yfír...
„Margt er það, og margt er það,
sem minningamar vekur
og þær em það eina,
sem enginn frá mér tekur."
(Davíð.Stef.)
Ég vil, fyrir hönd systkina minna,
votta elskulegri móðursystur okkar
Huldu, Antoni, Viðari, Jóhannesi
og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu
samúð við skilnaðarstundina og bið
Guð að blessa minningu Óskars
Þorsteinssonar.
Stella Óskarsdóttir.
Fimmtudaginn 22. júní bárust
mér þær fréttir að afi minn væri
dáinn þrátt fyrir að ég hafí haft
töluverðan tíma til að undirbúa mig
undir þessa fregn, þá stakk hún
mig gífurlega og ég fann fyrir mikl-
um tómleika. Amma mín var vön
að vitna í Job þegar eitthvað bját-
aði á og sagði þá: „Drottinn gaf
og Drottinn tók, lofað veri nafn
Drottins." Þessi orð vil ég nú gera
að mínum. Ég mun sakna afa míns
mikið en er þó fyrst og fremst þakk-
látur' fyrir þann tíma sem ég hef
fengið að eiga með honum.
Þegar ég var að vaxa úr grasi,
leið varla sá dagur að ég færi ekki
í heimsókn til ömmu og afa á Brim-
hólabrautinni. Ég var þá vanur að
setjast hjá afa og spjalla við hann
um daginn og veginn. Mesta sport-
ið var þó þegar afi var að skera
af netum og ég fékk að hjálpa til.
Þá var ég aldeilis stór karl. Þegar
fram liðu stundir og ég fékk bíl-
próf, fórum við afi að stunda
bryggjurúntinn í auknum mæli og
var þá oft mikið spjallað og velt
vöngum. Nú er hann afí farinn, en
við eigum minninguna eftir. Bless
afí, ég mun sakna þín.
Jónas Rúnar Viðarsson
4ra herbergja 7.300.000
Viö undirritun samnings 200.000
Húsbréf 5.110.000
Lán frá seljanda 1.000.000*
Við afhendingu 990.000
*Gegn traustu
fasteignaveði
álftáróshfI
SMIÐJUVEG 11 - 200 KOPWOGI • S: 5641340
PERMAFORM
Til sölu Permaformíbúðir
verðfrákr.E
PERMAPORM
- BYGGINGARMÁTI
NÚTÍMANS
3ja herbergja 6.800.000
Við undirritun samnings 200.000
Húsbréf 4.760.000
Lán frá seljanda 1.000.000*
Við afhendingu 840.000