Morgunblaðið - 01.07.1995, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
rBesti breski tryllirinn í mörg ár...fyrsta ómissandi mynd ársins!
Caroline Westbrook,JEMPIR£ ^
SHALLOW
GRAVE 1i
„Pulp Fiction-
|l áhugamenn,
takið
‘ H eftir! Hér
-JV er mynd
fyrir ykkur.
W Fyndnir
f skúrkar, of-
beldi, Ijótt
orðbragð, kynlíf
og kolsvartur
húmor".
„Illkvittin tryilir frá Bretlandi med|
hrollvekjandi áhrif.Draugalegt
sambland samansafnaðs hryllings
og illgjarnrar kímnigáfu."
jeTT Lraig, Jack Matnews,
---0ND í GRUNNRI GRÖF NEWSDAY
Hvað er smá morð á milli vina?
Sýnd kl. 5, 9 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6.55. í A sal.
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
ENDIÐ LANGAN LAUGARDAG A FRABÆRU
BÍÓTILBOÐI. 350 KR. Á ALLAR MYNDIR í DAG.
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!!
Sýnd kl. 4.45 og 11.15. B.i. 16.
Sýnd í HÁSKÓLABÍÓI V |
STJORNUBÍÓLÍNAN Sími 904 1065.
ÆÐRI MENNTUN („Higher Learning") kvikmyndagetraunin. Þú getur
unnið þér inn miða á forsýningu á Æðri menntun í næstu
viku. 50 bíómiðar í boði. Verð 39.90 mínútan. Geislaplötur
frá Músík og myndum, derhúfur og 12” pizzur með 3
áleggsteg. og kók frá Hróa hetti, sími 554-4444.
Tónleikar
Sálin snýr aftur
í TILEFNI útkomu geislaplöt-
unnar Sól um nótt hélt Sálin
hans Jóns míns útgáfutónleika
í Tunglinu síðastliðið fímmtu-
dagskvöld. Sálin lagði upp laup-
ana fyrir nokkrum árum, eftir
að hafa verið ein vinsælasta
hljómsveit landsins í áraraðir.
Félagamir em hins vegar byrj-
aðir á ný, eins og sannaðist
rækilega í Tunglinu á fímmtu-
dagskvöld.
Morgunblaðið/Halldór
EVA Guðmundsdóttir, Magnea Ólafsdóttir og
Dóra Eyland sýndu gamla takta á fimmtudags-
kvöldið.
ERLENDUR Einarsson, Haukur Hauksson og
Regin Þór Guðmundsson létu Ijúfa tóna Sálar-
innar ylja sér um hjartaræturnar.
Elsti bróðirinn
skilinn útundan
►BRÆÐURNIR Noel og
Liam Gallagher í hljómsveit-
inni Oasis eru ekki einu af-
kvæmi foreldra sinna. Þeir
eiga eldri bróður, Paul, sem
er atvinnulaus og býr heima
• hjá móður sinni. Hann segist
elska bræður sína, „vegna
þess að þeir hafa rétta við-
horfið, rétta útlitið og bestu
tónlistina“. Paul segist hafa
fengið ýmiss konar tilboð eft-
ir að bræður hans urðu fræg-
ir og skyndilega hafi hann
orðið mjög vinsæll. Hann hafi
til dæmis einu sinni verið
plötusnúður í klúbbi nokkr-
um, en verið lát-
inn flakka þegar
hann neitaði að
spila danstónlist.
Honum hafi ný-
lega verið boðinn
starfinn aftur, en
neitað stolts síns
vegna, þrátt fyrir
að vera á atvinnu-
leysisbótum.
NOEL og Liam
Gallagher, með-
limir vinsælustu
hljómsveitar
Bretlands, Oasis.
PAUL svipar óneitan-
lega til bræðra sinna.
Loren fær
kínverskan
kennara
SOFFÍA Loren, leikkonan
góðkunna, er gefín fyrir kín-
verskan mat. Fyrir skömmu
borgaði hún kínverskum
kokki eina milljón króna fyrir
að ferðast frá Kína til heimil-
ís hennar í Genf og kenna
henni að elda á kínverskan
máta. Einnig fær hún kennslu
í að borða með pijónum, sem
jú hlýtur að vera grunnurinn
að góðri kínverskri máltíð.
Murphy
reynir að
endurvekja
frægðina
►LEIKARINNlangleggjaði,
Eddie Murphy, mun leika í
spennumyndinni „Metro“, sem
emmyverðlaunahafinn Thom-
as Carter leikstýrir. Murphy
er um þessar mundir að vinna
að myndinni Brjálaði prófess-
orinn, eða „The Nutty Pro-
fessor“.
I „Metro“ leikur Murphy
sjálfumglaðan lögreglumann
sem reynir að frelsa gísla úr
höndum mannræningja.
Handritshöfundur er Randy
Feldman, en hann gerði meðal
annars handritið að myndinni
„Tango and Cash“. Áætlað er
að tökur hefjist í marsmánuði.
Eddie Murphy varð frægur
af leik sínum í lögreglumynd-
inni „48 hours“ árið 1982, þar
sem hann lék glæpamann í
leit að réttlæti. Árið 1984 lék
hann svo svipað hlutverk, en
í þetta sinn lögreglumann, í
spennu/gamanmyndinni „Be-
verly Hills Cop“. Þátttaka
hans í „Metro“ táknar aftur-
hvarf hans til svipaðs hlut-
verks, en ferill Eddies hefur
verið á niðurleið í nokkur ár.
Vonast hann væntanlega til
að nú verði breyting þar á.
MURPHY í nýlegri mynd
sinni, „Boomerang", sem varð
ekki mjög vinsæl.
LEIKARINN á hátindi ferils
síns, í myndinni „Beverly Hills
Cop“.
Súkkulaði
í felubúningi
►ÞEGAR styrjöldin á
Balkanskaga hófst fyrir fjór-
um árum tók sælgætisfram-
leiðandi nokkur sig til og
breytti umbúðum súkkulaði-
stykkis síns. Það ber nú nafn-
ið „Cro Army“ og er klætt í
felubúning.