Morgunblaðið - 09.07.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1995 15
LISTIR
GEIR Rafnsson slagverksleikari og Arna Kristín
Einarsdóttir flautuleikari.
Listasumar á Akureyri
Flautuseiður og áslátt-
ur í Listasafninu
I LISTASAFNINU á Akureyri fá
tónlistarunnendur að kynnast sam-
hljómi flautu og ýmissra slagverks-
hljóðfæra í kvöld, sunnudagskvöld.
Arna Kristín Einarsdóttir flautuleik-
ari og Geir Rafnsson slagverksleik-
ari munu leika nokkur verk eftir
Niel DePonte, Paul Smadbeck, Alice
Comez, Claude Debussy, Andre Jolt-
vet og V. Chenovith.
Arna Kristín segir að ekki sé al-
gengt hér á landi að þessi hljóðfæri
séu leidd saman á tónleikum. „Það
hafa hins vegar verið samin fjölmörg
verk fyrir þessi tvö hljóðfæri og við
höfum getað sett saman mjög fjöl-
breytta efnisskrá fyrir tónleikana.
Það er svo miklar andstæður í flaut-
unni og slagverkinu að það er hægt
að leika sér með þessa samsetningu
endalaust."
Geir segir að þessi hljóðfæri hljómi
mjög vel saman. „Slagverkshljóðfær-
in eru auðvitað fjölmörg og marg-
breytileg eftir því en flautan á sér-
lega vel við marimbuna og víbrafón-
in.“
Ama Kristín lauk einleikaraprófi í
flautuleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1990. Hún stundaði fram-
haldsnám við Indiana University í
Bloomington og lauk þaðan Perform-
ance Diploma með láði 1992. Hún
stundar nú ennfrekara nám við Royal
Northem College of Music í Manc-
hester á Englandi. Geir lauk prófí í
slagverksleik frá tónlistarskóla FÍH
1994. Hann hyggur á framhaldsnám
í Royal Northem College of Music á
næsta ári. Bæði hafa þau tekið virkan
þátt í tónlistarlífí hér á landi.
Tónleikamir eru hluti af dagskrá
Listasumars á Akureyri og hefjast
kl. 20.30.
Fyrsta þýska sérsafnið
um steinda glerlist
í bænum Linnich er að rísa fyrsta
safnið sem eingöngu er reist fyrir
steinda glerlist fyrr og síðar. Allstór
gömul myllubygging stendur þar yfír
á, sem rennur í gegn um bæinn, og
við gömlu bygginguna er verið að
reisa viðbyggingu. Ætlunin er að
safnið verði opnað haustið 1996.
Safninu er þannig fyrir komið að
áin, sem sneri mylluhjólinu fyrrum,
heldur áfram að renna gegn um safn-
ið. Hæðin á nýbyggingunni er um
17 metrar og hún er 40-50 metra
löng. A framhlið nýbyggingarinnar
verður 10X10 m gluggi, þar sem
koma má fyrir steinum gluggum sem
eru til sýnis inni hveiju sinni.
í Linnich er glerlistaverkstæði Oidt-
mansbræðra, sem hafa unnið mikið
af íslenskum listaverkum, svo sem
mosaikmyndina á Tollstöðinni, Skál-
holtsgluggana og altaristöfluna svo
og steinda glugga í fjölda kirkna og
er staðsetning safnsins, sem mun
heita „Das Deutsche Glasmalerei-
Museum Linnich" staðsett þar vegna
þessa gamla virta verkstæðis, sem
verið hefur i sömu ættinni í 140 ár,
nú rekið af bræðrunum Fritz og
Ludovikus, ásamt sonum þeirra.
Til nýja safnsins gefur Fyrirtæki
Oidtmanns 90 milljón króna virði af
steindum listaverkum, bæði kla'ssísk
nútímalistaverk og kopíur og teikn-
ingar af steindum gluggum úr mið-
aldakirkjum, sem þeir hafa gert við,
alls um 65 steinda glugga. Einnig
leggja þeir sérstöku skjalasafni til
plögg um gömui verk og þessa listiðn
. En þarna verður einnig sýning á
handverkinu frá upphafí.
Stjómin í Nordrhein-Westfalen
stendur fyrir þessari byggingu, og
hafa ýmis fyrirtæki veitt stuðning
við bygginguna og reksturinn. M.a.
hefur PKL pökkunarfyrirtækið
tryggt 200 þúsund marka rekstrar-
styrk á ári. Og í Linnich hefur verið
stofnuð „Félag stuðningmanna
Linnichsafnsins", sem mun styðja við
bakið á því með framlögum. Aætlað-
ur kostnaður viðbyggingar og við-
gerða er um 320 milljónir kr. Arki-
tekt er Schmit í Aachen og fram-
kvæmdaaðili Verkfræðstofa Carpus
& Co.
Þú sparar allt að 20 þúsund
Verðlækkun
Auk þess bjóðum við upp á lengri ábyrgð á
okkar tækjum.
ZANUSSI
Uppþvottavél
12 manna.
Breidd 60 cm.
4 kerfi, lekavörn.
Ííí-Í
ZANUSSI
þvottavél
3ja ára ábyrgð.
800 sn. á mín.
ZANUSSI
þurrkari
2 hitastig
ZANUSSI
kæliskápur
190/40 I.
Hæð 141 cm.
ÁBYRGÐ
ZANUSSI
kæliskápur
120/61.
Hæð 85 cm
ZANUSSI
Kuppersbusch
kæliskápur
207/59
Hæð 165
ZANUSSI
2 mm),-
SUÐURLANDSBRAUT 16 SIMI 5880500
/ /
á morgun • Utsalan hefst á morgun • Utsalan hefst
V V
nug'iom á ig'fori nBlnaíU • nugiom á igfori nuÍBgiU
a morgun