Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ1995 23 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR IGREIN hér í blaðinu í gær segir Bergþór Halldórsson, yfirverkfræðingur Pósts og sima:„í þeirri umræðu, sem átt hefur sér stað um einkarekstur og opinberan rekstur heyrist því sjónarmiði oft haldið fram að rík- ið eigi ekki að skipta sér af hlut- um sem aðrir geti séð um og opinber fyrirtæki eigi ekki að standa í samkeppni við einkaað- ila. Með þessum fullyrðingum er ekki litið á aðalatriði málsins, sem hlýtur að vera á hvern hátt hægt sé að veita bezta þjónustu á hag- stæðustu verði.“ Hvað í ósköpunum á yfirverk- fræðingur Pósts og síma við? Þessar umræður snúast einmitt um og hafa alltaf snúizt um, hvernig hægt sé að veita neytend- um bezta þjónustu á hagstæðustu verði! Það verður erfitt, ef ekki ómögulegt, að finna dæmi þess að þjónusta við neytendur hafi versnað, hafi ákvörðun verið tek- in um að hætta opinberum af- skiptum af einhverri atvinnu- eða þjónustugrein. Fyrir nokkrum árum birtist stórmerkur greinaflokkur í brezka dagblaðinu Financial Tim- es, sem er eitt virtasta dagblað í heimi. í þessum greinaflokki, sem fjallaði m.a. um kostnað við símtöl á milli landa var sýnt fram á með óyggjandi rökum, að syst- urfyrirtæki Pósts og síma um heim allan stunduðu með samráði og samstarfi sín í milli og í skjóli einokunar óheyrilega okurstarf- semi við sölu á þessari þjónustu. Það er af þessum ástæðum m.a. að víða um lönd er jiú að verða breyting á þeirri einokun, sem opinber fyrirtæki af sama tagi og Póstur og sími hafa haft Árvakur hf., Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir' Gunnarsson. frá upphafi. Bergþór Halldórsson gerir sér- staklega að umtalsefni þá skoðun Morgunblaðsins, að Póstur og sími eigi að hætta samkeppni við einkafyrirtæki í sölu á notenda- búnaði. Hann segir að reynslan af því að einkafyrirtæki ein hefðu rétt tiÞað selja farsíma á sínum tíma hafi verið slæm og þá fyrst hefðu farsímar lækkað í verði, þegar Póstur og sími hefði hafið sölu þeirra. Um þetta er eftirfarandi að segja: einkafyrirtæki eru engar heilagar kýr. Hafi þau tækifæri til að skapa sér einokunaraðstöðu eða sterka vígstöðu í skjóli fá- keppni nýta þau sér hana eins og dæmin sanna m.a. hér á Is- landi. Þess vegna hafa annars vegar verið sett lög og reglur til þess að koma í veg fyrir samráð á milli fyrirtækja um verðlagn- ingu og hins vegar hefur Morgun- blaðið m.a. lagt ríka áherzlu á nauðsyn aukinnar samkeppni er- lendis frá. Hafi einkafyrirtæki verið stað- in að slíku samráði sín í milli í sölu farsíma eins og yfirverk- fræðingur Pósts og síma gefur til kynna er það verst fyrir þau sjálf og það eru til aðrar aðferðir til að koma í veg fyrir slíkt sam- ráð en íhlutun Pósts og síma. Á hinn bóginn er það alþekkt aðferð fyrirtækja, sem hafa ráðandi markaðsaðstöðu að bjóða verð, sem er langt fyrir neðan kostnað- arverð í ákveðinn tíma til þess að drepa keppinautana. Um þetta eru því miður ljót dæmi úr ís- lenzku viðskiptalífi en hér skal því ekki haldið fram, að Póstur og sími hafi beitt þeim aðferðum til að lækka verð á farsímum. Einkafyrirtækin í þeirri grein svara fyrir sig. Það er staðreynd, að verð_ á GSM-símum hefur lækkað á ís- landi vegna samkeppni einkafyr- irtækja við Póst og síma. í því sambandi birtir Bergþór Hall- dórsson samanburð á kostnaði neytenda við GSM-símakerfi í Þýzkalandi og hér og segir að verð í íslenzka GSM-símakerfinu sé það lægsta, sem þekkist í slík- um kerfum. Samanburðurinn er ófullnægjandi vegna þess, að inn í hann vantar kostnað við kaup á símatækinu. Aðalatriði málsins er þó, að vilji erlend fyrirtæki í samstarfi við íslenzka aðila taka fjárhags- lega áhættu af því að hefja rekst- ur á GSM-símakerfi í samkeppni við Póst og síma eru nákvæmlega engin rök til að hafna slíkri beiðni. íslenzkir neytendur munu ekki borga tapið af því heldur hinir erlendu aðilar, ef þeir tapa peningum á slíkum rekstri. Bergþór Halldórsson réttlætir samkeppni Pósts og síma við einkafyrirtæki í hraðflutningum á pósti með því að þau fyrirtæki starfi einungis í þéttbýli. í þessu sambandi kemst einn af æðstu yfirmönnum Pósts og síma að þeirri niðurstöðu, að fyrirtækið veiti Morgunblaðinu „félagslega aðstoð“ (!) í formi lágra póstburð- argjalda á blaðinu til kaupenda í afskekktustu byggðum. Ef Póst- ur og sími væri einkafyrirtæki, sem ætti viðskipti við annað einkafyrirtæki, Morgunblaðið, af þeirri stærðargráðu, sem um er að ræða, mundi einum æðsta stjórnanda slíks einkafyrirtækis ekki detta í hug að hafa uppi slík- an skæting í garð góðs viðskipta- vinar heldur telja sjálfsagt að bjóða honum magnafslátt vegna góðra viðskipta. En slíkur hugs- unarháttur þekkist bersýnilega ekki hjá Pósti og síma. Hins vegar valda tæknifram- farir því, að Morgunblaðið og kaupendur þess eru ekki lengur jafnháðir því að Póstur og sími taki að sér flutning á blaðinu vegna þess, að nú eiga kaupendur um allan heim kost á því að kaupa áskrift að því á Internetinu. Áð vísu er þjónusta Pósts og síma á því sviði ekki fullnægjandi. Einn af ráðherrum í ríkisstjórn ís- lands, Björn Bjarnason, mennta- málaráðherra, hefur líkt þeirri þjónustu við það að bjóða mönn- um upp á kerrustíga fyrri alda í stað hraðbrauta nútímans. EINKAREKSTUR OG FRJÁLS SAMKEPPNI DANTE HELDUR áfram að lýsa handleiðslu Beatrísu í upphafskviðu Paradísarljóðanna og má segja að skáldleg sýn hans fari himinskautum. Hann tvinnar saman jarðneskar minningar og reynslu og innblásnar lýsingar á himin- hvolfinu og því guðdómlega umhverfí sem við biasir. Beatrísa fagnar þeim framförum sem hún sér í sál hans og þannig er förinni haldið áfram, frá einni hugmynd til annarrar, og allt byggt á fyrmefndum forsendum heimsmyndar kaþólskrar miðaldakirkju, guðdómlegu fyrirheiti og fögnuði þeirrar æskuástar, sem er skáldinu leiðarljós að sjálfum guðdóminum. En þó er einsog skuggi jarðneskrar reynslu fylgi Dante að leiðarlokum. í síðustu kviðu Gleðileiksins guðdómlega ávarpar Dante sjálfa guðsmóður og biður í auðmýkt sinni um styrk svoað hann geti eygt bjarta tinda ljóssins, eins- og hann kemst að orði. Hún, sem í fátækt sinni fæddi Frelsarann sem klæddist gervi mannsins, er beðin af heitu hjarta að taka svart moldarmyrkrið frá aug- um skáldsins. Lokakviðan hefst með þessum orðum, svo að vitn- að sé milliliðalaust í skáldið sjálft: Vergine Madre, figlia del tuo Figlio, UmRe ed alta piú che creatura - eða: Jómfrúin dýra, dóttir eigin sonar, dýrleg og auðmjúk, hæstri tign gæddist - Af þessu má sjá hve guðsmóðir gegnir miklu hlut- verki í kaþólskri trú, og er engin tilviljun að Dante opnar síðustu kviðuna með ávarpi til hennar. Hann lýkur svo verki sínu með þessum mikilfenglegu orð- um, sem eru ekkisíður einskonar minnisvarði um mátt listar og skáldskapar en það efni sem um er fjallað í þessu sígilda miðaldakvæði: Og líkt og mæta allir punkti einum við öxul geislar hjóls á vegi förnum, svo lukti um mig sú ást, er höndum hreinum heldur á sól og jörð og öllum stjörnum. Þóað efni hins Guðdómlega gleðileiks hafi kannski verið skáldinu efst í huga, enda segir hann sjálfur að hann hafi viljað upplifa þessa reynslu áðuren hann dæi, þá er hitt jafnvíst, að það er hvorki efni né boð- skapur ljóðaflokksins sem hefur borið hann fram til sigurs, þráttfyrir byltingar og breytta tíma, heldur stórfengleg list hans. Það er í henni sem Dante Alighi- eri varð ódauðlegur, hvernig svosem honum hefur vegnað eftir að sál hans skildi við líkamann. Ahrifa Hins guðdómlega gleðileiks sér víða stað en þekktust er líklega setningin í 1. kafla Eyðilands- ins eftir T.S. Eliot, Greftrun dauðra, I had not tho- ught death had undone so many (ég hélt ekki dauð- inn hefði eytt svo mörgum) sem tekin er úr 3. kviðu gleðileiksins en þar er einnig að fínna þá frægu setn- ingu við inngöngu Hetjar að þeir skyldu yfírgefa von- ina sem færu þar inn. I skýringum þýðanda Eyðilands- ins, Sverris Hólmarssonar, segir um þetta: “[63. Sbr. Infemo III, 55-57: ’si lunga tratta di gente, ch’io non avrei mai creduto che mor’e tanta n’avesse disfatta.’] (“svo löng röð af fólki að ég hefði aldrei getað trúað að dauðinn hefði grandað svo mörgum.“) Dante er hér staddur í fordyri Vítis, þar sem þær dauðu sálir dveljast sem hvorki gerðu gott né illt í lífi sínu og þjóta nú fram og aftur í algeru tilgangsleysi, stungnar af vespum og geitungum. Fyrsta tivísun [Eliots] af mörgum í Divina Comme- dia eftir Dante Alighieri (1265-1321), sem lýsir ferð hans gegnum helvíti, hreinsunareld og himnaríki." M (meira næsta sunnudag) HELGI spjall IREYKJAVIKURBREFI FYRIR hálfum mánuði var meðal ann- ars vikið að því hvernig mark- aðsvæðing og alþjóðavæðing takmörkuðu valdsvið stjórn- málamanna. Stundum hefur þetta tvennt farið hönd í hönd - markaðsvæðingin hefur oft komið að utan. Heimuri.nn skreppur æ hraðar saman með bættum samgöngum, fjarskiptum og fjölmiðlun og upplýsinga- streymið á milli ríkja og heimsálfa eykst í sífellu. Ein afleiðing þessarar þróunar er auðvitað sú að íslenskur almenningur hefur miklu meiri upplýsingar en áður um fyrirkomulag ýmissa mála erlendis og er í mun betri aðstöðu til að bera saman ýmis þau gæði, sem bjóðast í nágranna- löndunum, og framboð vöru og þjónustu á íslandi. Að fengnum þeim samanburði sættir fólk sig sjaldnast við að þurfa að búa við lakari kost en nágrannaþjóðirnar, hvorki varðandi verðlag né úrval vöru og þjónustu. Röksemdimar, sem lengi hafa verið hafðar uppi í íslenskri stjórnmálaum- ræðu, að sjálfsagt sé og réttlætanlegt að önnur lögmál gildi um verslun, viðskipti og þjónustu á íslandi en annars staðar, eru á hröðu undanhaldi. Mörg „sérein- kenni“ markaðarins á íslandi hafa þannig horfíð á undanförnum árum; ríkiseinokun í Ijósvakafjölmiðlun, sjónvarpslausir fimmtudagar, bjórlausar krár, stuttur af- greiðslutími matvöruversiana, gjaldeyris- höft - allt hefur þetta orðið undan að láta. Aðhaldið að jafnt stjómmálamönnum sem markaðnum sjálfum og fýrirtækjunum, sem bjóða fram vöm og þjónústu, er í auknum mæli orðið alþjóðlegt. Alþjóðavæðingin þrýstir á um breyting- ar, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. í sumum tilfellum hafa neytendur einfaldlega getað beint viðskiptum sínum út fyrir landsteinana vegna óánægju með verðlagið. Dæmi um þetta er hvernig ódýr- ar verslunarferðir til írlands og Bretlands hafa þrýst á íslenska fatakaupmenn að lækka verð og bæta þjónustu. Það hefur beinlínis getað borgað sig, ekki síst fyrir stórar fjölskyldur, að gera stórinnkaup í fataverslunum í Dublin eða Newcastle, þrátt fyrir að við reikninginn bætist flug og gisting. í þessu tilviki og ýmsum öðrum er fjarlægð íslands frá öðrum löndum ekki lengur sú vernd, sem hinn innlendi mark- aður hefur getað treyst á. Landbúnað- ur og nýtt neyslu- mynstur I OÐRUM TIL- fellum er erfíðara um vik fyrir neyt- endur að „kjósa með fótunum“ eins og það hefur stund- um verið kallað, og beina viðskiptum sínum út fyrir landsteinana. Ofannefnt til- vik er dæmi um að hinn ftjálsi markaður er tiltölulega sveigjanlegur og kemur til móts við óskir viðskiptavinanna. Þegar hins vegar er á hið opinbera að sækja, getur verið erfiðara um vik. Stjómkerfið tekur oft ekki við sér fyrr en komið er að því að þolinmæði almennings þverri— og atkvæðum stjórnarflokka fækki. Ýmis dæmi eru um að neyslu- og lífs- hættir þorra almennings í landinu eru í raun komnir mörgum skrefum á undan ákvörðunum stjórnvalda. Eitt af nærtæk- ari dæmunum um þetta er hvemig breyt- ingar á neyslumynstri almennings þrýsta á um breytingar á landbúnaðarkerfínu. Neysla á kindakjöti innanlands hefur minnkað miklu hraðar en stjórnvöld áttu von á, er búvörusamningurinn var gerður við bændur. Ástæðan er ekki eingöngu hátt verð á kjötinu, heldur einnig breyttur smekkur - fyrir rúmu ári birtust niðurstöð- ur kannana, sem sýndu fram á að íslend- ingar neyttu orðið meira pasta en ítalir - miðað við höfðatölu. Með nýrri kynslóð breytast neysluhættirnir að sjálfsögðu. Matargerð á einkaheimilum á Islandi er undir æ meiri alþjóðlegum áhrifum og kindakjötsréttir eru þar af leiðandi ekki endilega efstir á vinsældalista ungra fjöl- skyldna. Þetta er staðreynd, sem ekki verð- ur horft framhjá við endurskoðun landbún- aðarkerfisins og hins opinbera stjórnkerf- is, sem miðað hefur að því að tryggja tekj- ur bænda. Yngri kynslóð fyrirvinna ís- lenskra heimila hlýtur að spyija hvers vegna hún eigi að leggja fram dijúgan skerf af skattpeningum sínum til þess að styrkja framleiðslu, sem æ færri kaupa. Fregnir af áformum um endurskoðun bú- vörusamningsins bera reyndar vott um að bæði stjórnvöld og bændur taki eitthvert mið af þessum raunveruleika. Hér hlýtur leið hins fijálsa markaðar að verða valin, þótt það kunni að verða sársaukafullt fyr- ir bændastéttina til skamms tima litið. Sama máli gegnir um innflutning á land- búnaðarafurðum. Vandræðagangurinn varðandi þann takmarkaða innflutning landbúnaðarvara á hóflegum tollum, sem á að vera leyfilegur samkvæmt GATT- samkomulaginu, er orðinn stjórnvöldum til skammar. Sú mynd, sem almenningur fær af hinu opinbera stjórnkerfí, er sú að það geri allt sem í valdi þess stendur til að torvelda innflutninginn og hindra þann- ig að úrval landbúnaðarvara í hillum ís- lenskra verslana verði sambærilegt við það, sem gerist erlendis. Þegar fram líða stundir mun íslenskur almenningur ekki sætta sig við slíkt og kröfur um aukið fijálsræði í þessum efnum munu verða háværari. Breytt við- horf í áfeng- ismálum REYKJAVIKURBREF Laugardagur 15 júlí IÍKLEGA SKER ísland sig hvergi jafnmikið úr lengur í samanburði við helstu nágranna- lönd okkar og í áfengismálum. Umræður á opinberum vettvangi um þessi mál hafa alltjof lengi einkennst af ofurviðkvæmni, feimni og skinhelgi. í nýlegum umræðum á Alþingi um breytingar á áfengislögum kom greini- lega í ljós að margir þingmenn virðast eiga erfítt með að halda uppi sæmilega skynsamlegum umræðum um áfengismál. Auðvitað verður ekki hjá því litið að óhóf- leg áfengisneysla hefur skaðlegar og sorg- legar afleiðingar í för með sér. Enginn mælir gegn því að kapp sé lagt á forvarn- ir og barist gegn ofneyslu áfengis. Það breytir aftur á móti ekki þeirri stað- reynd að þeir eru margir, sem misnota ekki áfengi og að viðhorf margra alþingis- manna eru í litlu samræmi við þann veru- leika, sem við blasir úti í þjóðfélaginu. Staðreyndin er sú að neyslumynstrið hefur verið að breytast upp á síðkastið. I vikunni var greint frá því að á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefði neysla á bjór aukist um 15% miðað við síðasta ár og rauðvínsneysla um 8%, á sama tíma og samdráttur varð í neyslu á sterku áfengi. Svipuð þróun átti sér stað á síðasta ári. Margt bendir til að áfengisneysla á íslandi sé smám saman að færast frá sterkari tegundum áfengis yfir í léttari tegundir á borð við vín og bjór og verða þar með lík- ari því sem gengur og gerist á meginlandi Evrópu og víðar. Til marks um þetta er hinn stóraukni áhugi á léttum vínum. Um þau eru gefnar út bækur og haldin fjöl- sótt námskeið, sem hefði verið nánast óhugsandi fyrir áratug. Þetta er í takt við þróunina á Vesturlöndum yfirleitt, sem varla getur talist óæskileg. Annað merki um breyttar venjur í áfeng- isneyslu er hin mikla fjölgun vínveitinga húsa á síðustu árum. Þau voru 141 í Reykjavík um síðustu áramót, samanborið við 93 árið 1990, 17 árið 1980 og þijú árið 1954. Verðlag á áfengi er aftur á móti fyrir löngu komið út fyrir öll velsæmismörk. Líklega er áfengi óvíða dýrara á Vestur- löndum en hér á landi. 1 verðkönnun, sem birt var í Morgun blaðinu á síðasta ári, þar sem gerður var samanburður á áfengisverði í Svíþjóð og á íslandi, kom í ljós að ótrúlegur munur er á verði á einstökum léttvínstegundum hér á landi og í Svíþjóð. Voru þær rauð vínstegundir sem seldar voru jafnt í Sví- . ÚR Elliðaárdal. Esjan er í baksýn. þjóð sem á Íslandi að meðaltali 78,4% dýrari á íslandi en hvítvínstegundir 83,4% dýrari. Einstaka tegundir voru allt að 147% dýrari á íslandi en í Svíþjóð. Þrátt fyrir það er verðlag á áfengi í Svíþjóð með því hæsta sem gerist í Evrópu. Það verður sífellt erfíðara að réttlæta þessa ofurverðlagningu á áfengi og sjálfs- blekking að halda því fram að með þessu sé verið að draga úr áfengisneyslu. Hin opinbera einkasala áfengis á íslandi seldi á síðasta ári áfengi fyrir tæpa 7,8 millj- arða króna og því er ljóst að áfengissala er ekki einungis mikilvæg tekjulind fyrir hið opinbera heldur vegur hún einnig þungt í útgjöldum heimilanna. Það þarf ekki mikla reikningskunnáttu til að sjá að jafnvel mjög hófleg meðal- neysla á áfengi - miðað við neyslumynst- ur í mörgum nágrannalöndum okkar - er vart á færi annarra en hátekjufólks. Hið háa verð hefur hins vegar ekki orð- ið til að halda aftur af neyslu heldur leitt til að stór hluti neyslunnar fer hreinlega fram hjá hinu opinbera kerfí. Fólk hættir ekki að drekka áfengi þótt verð þess hækki heldur verður sér úti um áfengi eftir ódýr- ari leiðum. Afleiðingin er sú að hér hefur myndast risavaxið neðanjarðarhagkerfí fyrir áfengi. Miklu magni er smyglað til íslands á ári hverju og talið er að selt sé ólöglega eimað áfengi fyrir hundruð millj- óna króna á ári hveiju. Hvort tveggja er auðvitað lögbrot og aukinheldur ekki til þess fallið að bæta umgengni um áfengi. Fyrir tveimur árum lýsti forstjóri ÁTVR því yfir að líklega væru 10% áfengisneyslu í landinu brugg. Að auki kemur mikið áfengi inn í landið sem keypt er á lögleg- an hátt í fríhöfnum. Opinberu neyslutöl- urnar eru því að vissu leyti blekkjandi. Færa má rök fyrir því að verðlækkun á áfengi myndi stuðla að því að hin ólöglega starfsemi legðist að miklu leyti af, sem myndi vega upp á móti tekjutapi ríkis- sjóðs. Jafnframt yrði slík verðlækkun auð- vitað hrein kjarabót fyrir þann mikla fjölda íslendinga, sem kýs að neyta áfengis í hófí. Ekki má heldur gleyma því að hátt verðlag á áfengi er það, sem oft er efst á blaði þegar erlendir ferðamenn eru beðnir um að telja upp neikvæðar hliðar íslands sem ferðamannalands. Raunhæf áfengis- stefna ER EKKI ORÐIÐ löngu tímabært að hér á landi verði mótuð raunhæf og nútímaleg áfengis- stefna, sem tekur mið af raunveruleikanum en ekki nítjándu aldar púritanisma og sjálfsblekkingu? Áfengisneysla er álíka gömul og siðmenn- ingin sjálf og áfengis hefur verið neytt á íslandi frá upphafi landnáms. í nær öllum ríkjum í kringum okkur er litið á áfengi sem sjálfsagða neysluvöru, litlar hömlur eru á áfengissölu og verðlag langt fyrir neðan hið íslenska. Þrátt fyrir það fæst ekki séð að aðrar þjóðir fari verr með áfengi en íslendingar. Þvert á móti má færa sterk rök fyrir því að það séu ein- mitt höftin og verðjagsstefnan sem séu undirrótin að því að íslendingar eigi erfið- ara með að umgangast áfengi en aðrar þjóðir. Þannig hafa margir þeirra þúsunda Islendinga, sem dvalist hafa langdvölum erlendis, tamið sér siði viðkomandi þjóða í þessum efnum. Rökin fyrir því að önnur lögmál eigi að gilda á Islandi en annars staðar eru vandfundin í þessu máli sem öðrum. Hér er enn eitt dæmið komið um það, að almenningur hefur breytt um lífshætti, en hið opinbera kerfí fylgir ekki á eftir. Rétt eins og á öðrum sviðum gengur ekki að reyna að halda uppi stefnu, sem geng- ur þvert á það sem gengur og gerist ann- ars staðar. Margt bendir til þess að innan fárra ára verði smásala á áfengi afnumin í Finnlandi og Svíþjóð vegna Evrópusam- bandsaðildarinnar og má þá gera ráð fyrir að Noregur fylgi í kjölfarið. Hvaða vit væri í því að í byijun 21. aldarinnar yrði ísland hugsanlega eina Evrópulandið, þar sem menn yrðu að fara í sérstakar ríkis- búðir til að kaupa áfengi? Rétt eins og margar aðrar vörur er áfengi hættulegt, sé það misnotað, en hins vegar eru dæmin miklu fleiri um að það sé notað í hófí. Forvarnar- og fræðslustarf er mun líklegra til að skila árangri í vímuefnamálum en fráleit verðlags- og haftapólitík. Samhliða breyttri stefnu í áfengismálum er sjálfsagt og eðlilegt að stórauka forvarnarstarf og beita til þess nútímalegri aðferðum, en hér hafa tíðkast. Alþjóðavæð- ing í hug- skoti þjóð- arinnar DÆMIN, SEM nefnd eru hér á undan, eru langt í frá þau einu, þar sem hið opinbera kerfi hefur ekki brugðist við alþjóð- legum áhrifum sem skyldi. Sennilegt er að þeim fari fjölgandi á næstu árum, með síauknum alþjóðlegum samskiptum. Með vaxandi alþjóðlegum samskiptum og æ meiri möguleikum ungra íslendinga til að hasla sér völl erlendis, verður sífellt mikilvægara að ísland geti boðið sambærileg lífskjör á sem flestum sviðum og nágrannalöndin. Sá vísir að stórborgarsamfélagi sem hefur orðið til í Reykjavík - með öllum sínum neikvæðu hliðum - er til dæmis ein forsenda þess að margt ungt fólk geti hugsað sér að snúa aftur heim frá námi erlendis. Það verður einfaldlega ekki spornað við hinni alþjóðlegu þróun og áhrifum hennar á ís- landi. Fjarlægð íslands frá umheiminum er ekki lengur röksemd fyrir því að hér eigi hlutirnir að vera með öðrum hætti en annars staðar. Hún kallar miklu frekar á það að hér sé boðið upp á sambærileg kjör að flestu leyti og í þeim ríkjum, sem ísland hefur helst verið borið saman við, einmitt vegna þess að það er hvorki ódýrt né auðvelt að komast í annað umhverfi, sætti menn sig ekki við hið íslenska. Eigi að vera hægt að tryggja búsetu í landinu til frambúðar, getur ísland ekki orðið „öðruvísiland“. Stundum er amast við þeirri stofnana- bundnu alþjóðavæðingu, sem hefur átt sér stað með aðild íslands að alþjóðlegum samningum sem fela í sér margs konar skuldbindingar, til dæmis samningnum um Evrópskt efnahagssvæði og GATT-sam- komulaginu. Það heyrist að með aðild að þessum samningum og þeim stofnunum, sem þeim tilheyra, sé verið að beygja sig fyrir valdboði að utan. Staðreyndin er hins vegar sú, að alþjóðavæðingin á sér stað, burtséð frá aðild íslands að alþjóðlegum sáttmálum. Hún á sér stað í hugskoti þjóð- arinnar, sem fer fram á að búa við sömu aðstæður og þær þjóðir, sem standa okkur næst. Ef eitthvað er, stuðlar aðildin að milliríkjasamningum að því að hraða þró- un, sem er óhjákvæmileg. Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson „Alþjóðavæðingin á sér staðj burtséð frá aðild Islands að alþjóðlegum sáttmálum. Hún á sér stað í hugskoti þjóðarinnar, sem fer fram á að búa við sömu aðstæð- ur og þær þjóðir, sem standa okkur næst. Ef eitthvað er, stuðlar aðildin að milliríkja- samningum að því að hraða þróun, sem er óhjá- kvæmileg.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.