Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AUGLÝSINGAVEGGSPJÖLD prýddu gluggana í verslunum Gristede’s & Sloan’s.
íslenskt lambakjöt á
borð Ameríkumanna
SIGURÐUR Baldvin og Karitas í eftirlitsferð.
UNDANFARNAR vikur hef-
ur neytendum í New York
gefist kostur á að kaupa
íslenskt lambakjöt í 30
matvöruverslunum. Óhætt
er að segja að fólki hafi líkað kjöt-
ið vel þrátt fyrir það að kjötið sé
á mun hærra verði en lambakjöt
frá Nýja Sjálandi og Ástralíu svo
að ekki sé talað um bandarískt
lambakjöt. Nú er verið að vinna
kjöt í þijá 40 feta gáma sem eiga
að fara á markað í New York. Þá
eru viðræður hafnar við ýmsa að-
ila í verslunar- og veitingarekstri
í New York og víðar um frekari
kaup á lambakjöti og öðrum land-
búnaðarafurðum frá íslandi.
Þessa dagana er verið að und-
irbúa frekari vinnslu, skurð og
pakkningar en stefnan er sett á
að selja umtalsvert magn af lamba-
kjöti þijá síðustu mánuði ársins
en þá er kjötneysla í hámarki. Það
athyglisverða við þessa sölu er
ekki sist sú staðreynd að nánast
allur skrokkurinn fer utan - og
það sem meira er - hann er skor-
inn og pakkaður hér heima. Áður
en vinnsla hófst fóru menn utan
og lærðu að útbúa kjötið á þann
hátt sem tíðkast í Bandaríkjunum.
Innflutningsfyrirtækið í Bandaríkj-
unum heitir Cooking Excellence
en kjötið er selt í verslunum sem
bera heitið Gristede’s & Sloans.
Dreifingin er í höndum fyrirtækis-
ins Louis Food Service. Cooking
Excellence er í eigu Karitasar Sig-
urðsson og Sigurðar Baldvins Sig-
urðssonar.
Hreinleiki íslenskrar náttúru
Kjötið er markaðssett sem nátt-
úruvæn afurð og sérstök áhersla
er lögð á hreinleika kjötsins, holl-
ustu þess og gæði. Fram kemur í
kynningarbæklingi að á íslandi eru
ekki notaðir hormónar við kjöt-
framleiðslu og engar lyfjaleifar er
að finna í kjötinu. Þetta kunna
Kjötið er markaðssett
sem náttúruvæn afurð
og sérstök áhersla
er lögð á hreinleika
kjötsins, segir Askell
Þórisson, hollustu þess
o g gæði
Bandaríkjamenn vel að meta og
áhugi á vistvænum vörum eykst
stöðugt.
Að undanfömu hefur íslenska
lambakjötið verið selt á sérstöku
kynningarverði. Sem dæmi má
nefna að lambalæri er selt á 564
krónur kílóið en sambærilegt ástr-
alskt lambalæri kostar 420 krónur
og lambalæri frá Nýja Sjálandi
kostar 396. Fyrir bandarískt
lambakjöt greiðir neytandinn tæp-
ar 280 krónur fyrir kílóið. Kótelett-
ur eru sérstakur kapítuli en kíló-
verð er 1.490 krónur! Samkvæmt
þeim upplýsingum sem undirritað-
ur aflaði sér ytra hefur aldrei feng-
ist jafn hátt útsöluverð fyrir lamba-
kjöt í Bandaríkjunum og þótt víðar
væri leitað.
í samtölum við verslunarstjóra
og forráðamenn verslananna
Gristede’s & Sloan’s kom fram að
í sjálfu sér væri mun auðveldara
ef salan snerist eingöngu um
hryggi, en á sumrin er meiri sala
í slíkri vöru en í lærum og framp-
örtum. Hins vegar voru viðmæl-
endur sammála um að ekki þýddi
að biðja aðeins um bestu bitana
þar sem erfitt gæti reynst að selja
það sem eftir er - og þar með
gæti íslenski fjárbóndinn ekki lifað
- og útvegað neytendum gott kjöt.
Skilaverð til íslenskra bænda er
ekki hátt en þó betra en menn
hafa átt að venjast. Hærra verð í
STARFSFÓLK Gristede’s &
Sloan’s var yfirleitt í svuntum
með auglýsingu um íslenskt
lambakjöt.
Bandaríkjunum mun að sjálfsögðu
skila sér til bænda hér heima en
raunhæfari aðgerð er einfaldlega
LAMBAKJÖTIð er geymt í
frystigeymslum Louis Food
Service en þaðan er því dreift
í verslanir og til veitingastaða.
að ná fram lækkun á slátrunar-
og pökkunarkostnaði og flutning-
um. Færri sláturhús og lengri slátr-
unartími, sérhæft starfsfólk í slát-
urhúsum eru meðal þeirra aðgerða
sem gætu fært bændum hærra
verð. Aukið magn mun þýða meiri
hagkvæmni og ekki spillir fyrir ef
dollarinn tekur sig til og hækkar
frá því sem nú er!
Bandaríkjamarkaður er síður en
svo auðveldur viðfangs - og allra
síst sá hluti hans sem snýr að
matvælum. í ljósi þess að einungis
eru liðnir fjórir mánuðir frá því að
til umræðu kom að Cooking Excell-
ence tæki að sér að koma lamba-
kjöti á framfæri í New York má
halda því fram með fullum rétti
að árangur fyrirtækisins sé afar
athyglisverður og er þá ekki djúpt
í árinni tekið. Það eitt hlýtur að
teljast afrek að fá stjórnendur Red
Apple, sem á tugi matvöruverslana
á svæðinu, og Louis Food Service,
sem er eitt stærsta dreifingarfyrir-
tækið í New York á sviði matvöru,
að virða íslenskt lambakjöt viðlits.
Þá verður að hrósa vöruvöndun
Húsvíkinga því að Food and Drug
Administration, Matvæla og lyíja-
eftirlitsstofnun Bandaríkjanna,
hefur ekkert séð athugavert við
kjötið sem farið hefur utan og
starfsmenn þess hafa lýst yfír sér-
stakri ánægju með gæði þess. Allt
gerðist þetta á ótrúlega skömmum
tíma. Fyrsta sendingin fór frá
Húsavík 28. apríl sl. og fyrsta
kynningarherferðin átti sér stað
dagana 25. og 26. maí. Cooking
Excellence lausréð 35 starfsmenn
sem kynntu kjötið í verslunum en
alls er búið að halda 90 kynningar
- og kjötið þraut að lokum þar sem
undirtektir voru mun betri en ráð
var fyrir gert^-
Tveir viðskiptajöfrar
íslenska lambakjötið hefur verið
selt í verslunum eignarhaldsfélags
sem heitir Red Apple Companies.
Eins og fyrr segir heita verslanirn-
ar Gristede’s & Sloan’s og eru 55
slíkar í New York. Þetta er ein
stærsta keðjan sinnar tegundar í
borginni. Eignarhaldsfélagið á og
rekur nokkrar aðrar keðjur vítt og
breitt um Bandaríkin. Af þeim má
nefna Pantry Pride sem margir
þekkja frá heimsóknum sínum til
Flórída.
Eigandi Red Apple er maður að
nafni John Catsimatidis. Hann
keypti sína fyrstu verslun, sem var
á Broadway, árið 1969. Þá var
hann rétt skriðinn úr háskóla en
sex árum síðar átti hann 12 stór-
markaði og nú er svo komið að
hann er með auðugustu mönnum
Bandaríkjanna. Trúlega ber hann
heitið „viðskiptajöfur" með rentu.
Simeon Mike Vouyiouklis er eig-
andi dreifingar- og innflutningsfyr-
irtækisins Louis Food Service
Corporation. Hann kom til Banda-
ríkjanna 17 ára gamall og hóf
reksturinn með tvær hendur tóm-
ar. Mike hló er hann minntist fyrstu
áranna er hann ók um á gamla
bílnum sínum og seldi skinku,
smjör og egg. „Ég átti ekki neitt,“
sagði þessi geðþekki Grikki sem á
eitt stærsta fyrirtæki sinnar teg-
undar í New York og á austur-
strönd Bandaríkjanna. Louis Food
Service annast dreifingu þeirrar
matvöru er Cooking Excellence
flytur til Bandaríkjanna. Þeir Jo-
han Catsimatidis og Simeon Mike
Vouyiouklis, ásamt nokkrum sam-
starfsmönnum, eru væntanlegir
hingað til lands 20. júlí.
Viðamesta matvælakynningin
í Bandaríkjunuin
Um áramótin voru samþykkt lög
frá Alþingi um átaksverkefni um
vöruþróun og markaðssetningu
vistvænna / lífrænna afurða á
grundvelli hollustu, hreinleika og
gæða. Stjórn átaksverkefnsins hef-
ur verið skipuð og er Haukur Hall-
dórsson formaður. Verkefninu hef-
ur verið gefið nafnið Áform, átaks-
verkefni. Verkefnisstjóri er Baldvin
Jónsson en hlutverk hans er m.a.
að samræma aðgerðir heima og
erlendis. Markaðssetningin er í
höndum Cooking Excellence en
vinnslan fer fram í samráði við
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Kjötumboðið, Kaupfélag Þingey-
L
!
!
!
f:
t
f
!
f
I
I
f
I
I
f