Morgunblaðið - 25.08.1995, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
FRAKKINN Mathieu Morverand átti í gær viðræður við fulltrúa Samskipa. Frá vinstri eru Robert Wessman, Einar Þorsteinsson,
Olafur Steinarsson og Frakkinn Mathieu Morverand.
Hægt hefði veríð að fá
undanþágn frá tolli
MORVERAND fjarlægði eigur sínar úr Söru í gær að viðstödd-
um núverandi eiganda skútunnar, Gunnari Borg, til vinstri.
KAJAKARNIR, sem voru I skútunni þegar Frakkinn skildi hana
eftir á Islandi. Morverand skoðaði þá í geymslum Samskipa.
BJÖRN Hermannsson tollstjóri seg-
ir að ef eftir því hefði verið leitað
þá hefði verið hægt að fá undan-
þágu frá því að borga toll af skútu
Frakkans Mathieu Morverand í allt
að eitt ár eftir að hún kom hingað
til lands. Skútan var seld á uppboði
í mars 1992.
Frakkinn Mathieu Morverand
lenti í hrakningum á skútu sinni
undan ströndum Englands haustið
1990. Eins og fram kemur í yfirlýs-
ingu Samskipa hér á síðunni bauð
Skipadeild Sambandsins, forveri
Samskipa, honum ókeypis flutning
skútunnar til íslands. Síðan fór
Morverand úr landi. I samtali við
Morgunblaðið í gær sagðist hann
hafa verið peningalaus og því ekki
getað siglt skútunni héðan þá. Hann
hefði skrifað Skipadeildinni bréf í
september 1991 og látið vita um
fyrirætlanir sínar og heimilisfang í
Frakklandi. Hann hefði verið grun-
laus um að uppboð á skútunni væri
í aðsigi. Ekki hefði hann fengið
neitt svar við bréfi sínu til Skipa-
deildarinnar.
Seld á uppboði
Skútan var geymd á tollgeymslu-
svæði Samskipa uns hún var seld
á uppboði í mars 1992. Samkvæmt
upplýsingum frá sýslumanninum í
Reykjavík var skútan seld á
240.000 kr. auk uppboðskostnaðar.
Samskip fékk greiddan kostnað við
að flytja skútuna á uppboðsstað.
Tollstjóraembættið fékk eitthvað
upp í kröfu um aðflutningsgjöld.
Samskip gerði einnig kröfu um
flutningskostnað til íslands en fékk
ekkert upp í þá kröfu samkvæmt
upplýsingum sýslumannsembættis-
ins í Reykjavík.
Það voru tollyfirvöld sem kröfð-
ust uppboðsins á skútunni. Fyrir
liggur að skútan var flutt hingað
til lands sem farmur. Af allri vöru
verður að greiða aðflutningsgjöld
skv. tollalögum nema sérstaklega
sé mælt fyrir um undanþágur í lög-
um. Samkvæmt tollalögum hafa
tollstjórar heimild til að halda upp-
boð og selja ótollafgreidda vöru til
lúkningar aðflutningsgjöldum.
Stendur hin aðflutta vara að veði
fyrir ógreiddum gjöldum. Lögum
skv. er ekki þörf á að tilkynna eig-
anda um uppboðið enda taldar líkur
á að hann kæri sig ekki um vöruna
ef hennar er ekki vitjað hjá farm-
flytjanda.
Samviskuspurning
Björn Hermannsson tollstjóri
segir að ef eigandinn hefði borið
sig eftir því þá hefði hann fengið
að hafa skútuna hér á landi i allt
að eitt ár án þess að borga af henni
toll líkt og gildi um ökutæki ferða-
manna sem hingað koma. En þegar
komið hefði verið fram yfír alla
fresti hefði uppboðs verið krafist
til að greiðsla fengist á aðflutnings-
gjöldum eins og lög geri ráð fyrir.
„Það er ekki hægt að láta allar
geymslur fyllast af ósóttum vör-
um,“ segir Björn.
„Okkur bar engin skylda til að
koma þessari skútu undan með
nokkrum hætti,“ segir Ólafur Stein-
arsson, deildarstjóri innflutnings-
deildar Samskipa. Þegar Ólafur er
spurður hvort það hefði ekki verið
eðlilegra að láta Frakkann vita að
uppboð stæði fýrir dyrum miðað við
forsögu málsins svarar hann: „Þú
ert með samviskuspurningu. Auð-
vitað hefði það verið rétt að reyna
að hafa upp á manninum. En málið
fer sína eðlilegu leið í kerfínu. Þetta
er bara einn hlutur á lista yfir
marga sem fara á uppboð. Okkur
ber ekki lagaleg skylda til þess en
það er kannski spurning um ein-
hveija siðferðilega skyldu.“
Ólafur hitti Morverand að máli í
gær. „Við tjáðum honum að ef hann
myndi kaupa skútuna gæti hann
rætt við okkur um flutning á henni
út,“ segir Ólafur, bótaskylda væri
hins vegar ekki fyrir hendi.
Ólafur neitar því að það skipti
nokkru máli að á þessum tíma, þ.e.
árið 1991, leysti Samskip Skipa-
deild Sambandsins af hólmi. Sömu
menn hafi starfað áfram að þessum
málum hjá fyrirtækinu.
Þegar Morverand hitti Samskips-
menn í gær tjáðu þeir honum að
kajakar þeir sem fylgdu skútunni
væru enn í vörslum Samskipa.
Morverand sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að kajakarnir hefðu
verið í góðu ásigkomulagi en það
hefði orðið úr að bíða með afhend-
ingu þeirra uns ljóst yrði hvort toll-
yfírvöld krefðust gjalda af kajökun-
um.
Samningaviðræður um kaup
Morverand segir samningavið-
ræður standa yfir við Gunnar Borg,
núverandi eiganda, um kaup á skút-
unni. Fjármögnunaraðili Morver-
ands hafi fallist á það í gær að
reiða fram kaupverð það sem um
væri rætt. Morverand kvaðst því
búast við að fara héðan úr landi
með skútuna og kajakana en ef
forsendur reyndust fyrir því yrði
krafa gerð á hendur Samskipum
hf. eða íslenska ríkinu um uppboðs-
andvirði skútunnar sem hefði verið
um 300.000 kr.
Frakkinn Mor-
verand hyggst
heimta skútu sína
Yfirlýs-
ing frá
Sam-
skipum
SÍÐASTLIÐINN sólarhring
hefur átt sér stað ítarleg um-
fjöllun í fjölmiðlum um málefni
sem tengjast skútu sem á sín-
um tíma var flutt með skipi
Samskipa hf. frá Hull til Ís-
lands. í þessari umfjöllun hefur
ítrekað verið gefíð í skyn að
rangt hafi verið staðið að mál-
um af hálfu skipafélagsins. Af
þessu tilefni vilja Samskip hf.
koma á framfæri eftirfarandi
athugasemdum.
Um haustið 1990 var for-
stöðumaður Samskipa í Hull í
Englandi var við umfjöllun í
fjölmiðlum um ungmenni sem
væru á leið til íslands á skútu
sem þá bar nafnið Love Love.
Umrædd skúta hafði orðið fyr-
ir vélarbilun og hafði verið
dregin að byggju. M. Mathieu
Morverand var á skútunni
ásamt ungri stúlku. Áttu þau
í miklum vandræðum þar sem
þau höfðu hvorki peninga né
mat. í yfirlýsingum fjölmiðla í
Hull var auglýst eftir aðstoð.
í ljósi þess að ungmennin voru
á leið til íslands hafði forstöðu-
maður Samskipa hf. samband
við höfuðstöðvar fyrirtækisins
á íslandi. Var tekin sú ákvörð-
un af hálfu Samskipa hf. að
flytja skútuna og ungmennin
ókeypis til íslands. Var skútan
tekin um borð í ms. Helgafell
og flutt til Reykjavíkur. Þegar
komið var til Reykjavíkur
meinaði útlendingaeftirlitið
þeim að fara í land þar sem
þau höfðu engan samastað,
enga peninga og gátu ekki
sýnt fram á það hvernig þau
ætluðu að komast aftur til
baka. Af þessu tilefni veitti
skipadeildin þeim aðstoð með
því að afhenda þeim ókeypis
farseðla með Helgafellinu til
baka að liðnum tveimur vikum.
Einnig var þeim veitt önnur
aðstoð á meðan dvöl þeirra á
íslandi stóð. Eftir tveggja
vikna dvöl fóru þau aftur með
Helgafellinu til Rotterdam.
Skútan varð á hinn bóginn eft-
ir, ásamt tveimur kajökum.
M. Mathieu Morverand sagðist
ætla að vitja þessara hluta um
vorið 1991.
Samskipum skylt að
afhenda skútuna
M. Morverand hafði ekki
samband við Samskip hf. vorið
1991, eins og hann sagðist
ætla að gera. Um sumarið 1992
berst síðan fyrirspurn frá ís-
lenska sendiráðinu í París um
afdrif umræddrar skútu. Kom
þá í ljós að hún hafi verið seld
á uppboði þann 20. febrúar
1992 að beiðni Tollstjórans í
Reykjavík. Samskipum hf. var
skylt að afhenda skútuna í
tengslum við framkvæmd
nauðungarsölunnar. Enda þótt
umtalsverð geymslugjöld hefðu
safnast upp í tengslum við
geymslu skútunnar af hálfu
Samskipa hf., hafði félagið ekki
beðið um nauðungarsölu. Ekki
var beðið um sölu á kajökunum
tveimur af hálfu Tollstjórans í
Reykjavík, og eru þeir því enn
í vörslu félagsins.
Reykjavík 24. ágúst 1995.
Samskip hf.