Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Teppi með
náttúru
og fuglum
TEXTÍLKONAN Heidi Krist-
iansen opnar sýningu í anddyri
Safnahúss Vestmannaeyja á
morgun kl. 14.
Á sýningunni
verða um 20
myndteppi
unnin í aplika-
sjon og quilt.
Myndefnið er
einkum sótt í
íslenska nátt-
úru og fugla-
og dýralífið.
Þetta er sjö-
unda einkasýning Heidi á Is-
landi en hún hefur einnig hald-
ið einkasýningar í Noregi og
Svíþjóð auk þess sem hún hefur
átt verk á samsýningum, bæði
hérlendis og erlendis. Nokkur
verka hennar eru í opinberri
eigu.
Sýningin verður opin alla
daga á opnunartíma byggða-
safnins. Síðasti sýningardagur
verður sunnudaginn 10. sept-
ember.
Heidi býr og starfar í Reykja-
vík og er með vinnustofu að
Njálsgötu 34 B.
Signý Þóra Friða
Sæmundsdóttir Sæmundsdóttir
Söngtón-
leikar að
Laugalandi
SIGNÝ Sæmundsdóttir söng-
kona og Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir píanóleikari halda tón-
leika að Laugalandi í Holtum,
í kvöld kl. 21.
Á efnissrkrá tónleikanna eru
íslensk og norræn lög eftir
ýmsa höfunda meðal annars
Peter Heise, Carl Nielsen, E.
Grieg, J. Sibelius, Áma Thor-
steinsson, Björgvin Guðmunds-
son o.fl. Einnig eru á efnis-
skránni nokkur Vínarljóð eftir
R. Stolz.
Grindavíkurkirkia
Sönglög
og íslensk
þjóðlög
SÍÐUSTU tónleikamir í tón-
leikaröð Grindavíkurkirkju
verða næst-
komandi
sunnudag,
27. ágúst,
kl. 18. Á
tónleikunum
koma fram
Sigrún Val-
gerður
Gestsdóttir
söngkona og
Davíð
Knowles Játvarðsson píanóleik-
ari.
Flutt verða sönglög eftir Jo-
hann Sebastian Bach, Felix
Mendelssohn, Franz Schubert
og Oskar Merikanto, einnig ís-
Iensk þjóðlög og sönglög eftir
Bjama Þorsteinsson, Karl 0.
Runólfsson og Áma Þorsteins-
son.
Heidi
Kristiansen
FORSÍÐA Guggenheimbókarinnar
Oddi prentar fyrir
Guggenheim og
Metropolitan
PRENTSMIÐJAN Oddi hefur
undanfarið verið að prenta bók
og bæklinga fyrir listasöfnin
Guggenheim og Mefropolitan í
New York. Annars vegar er um
að ræða bók um tilurð og bygg-
ingu Guggenheimsafnsins en
það var stofnað árið 1937. Safn-
byggingin var svo reist á árun-
um 1956-1960 en hún var teikn-
uð af F.L. Wright sem er einn
fremsti arkitekt 20. aldar. Hins
vegar hefur verið prentaður
sýningarbæklingur fyrir Metro-
politansafnið.
Söluherferð
í Bandaríkjunum
Hilmar B. Baldursson mark-
aðsstjóri Odda sagði í viðtali við
blaðamann að þessi verkefni
væru árangurinn af söluherferð
í Bandaríkjunum. „í Bandaríkj-
unum höfum við eingöngu ein-
beitt okkur að því að ná inn
verkefnum sem krefjast mikilla
gæða í prentun og menn eru
tilbúnir til að greiða hærra verð
fyrir. Við höfum verið að prenta
mikið af bókum og blöðum fyr-
ir ýmis listasöfn og gallerí
þarna úti en þessi tvö eru óneit-
anlega stærst þeirra. Mönnum
í Guggenheimsafninu þótti það
bara fyndið fyrst í stað að prent-
smiðja frá íslandi væri að bjóða
í verk af þessu tagi. Þetta hefur
því verið erfið sölumennska.“
Hilmar segir að þessi verk-
efni séu vissulega góð auglýsing
fyrir prentsmiðjuna á þessum
markaði og eigi væntanlega eft-
ir að opna henni einhveijar dyr.
EYJAGRAFÍK
Á MORGUN, laugardag, kl. 16
verður opnuð í sýningarsal graf-
íkfélagsins að Tryggvagötu 15,
sýning á grafíkverkum sex nor-
rænna myndlistarmanna. Sýningin
ber yfirskriftina „Eyjar“. Mynd-
listarmennimir sem eru allir frá
eyjum eru: Mari Elisabet Stefáns-
dóttir og Nanna Sjöström frá
Álandseyjum, Anker Mortensen og
Elinborg Lutzen frá Færeyjum og
íslendingamir Bima Matthíasdótt-
ir og Ríkharður Valtingojer. Sýn-
ingin er liður í 50 ára afmæli Nor-
ræna myndlistarbandalagsins.
Myndlistarfélög hverrar eyju völdu
tvo fulltrúa til að sýna, og miðað-
ist valið við að annar listamaðurinn
hefði langan starfsferil að baki en
hinn væri að byija listferil sinn.
Sýningasalurinn er að Tryggva-
götu 15 annarri hæð og er gengið
inn frá Geirsgötu. Sýningin stend-
ur yfir frá 26. ágúst til 10. septem-
EFTIR að ég fór eftir Birnu
Matthíasdóttur, æting í stál.
ber og er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 15 til 18.
ÞORVALDUR Þorsteinsson opnar sýningu
í Gallerí Greip á laugardag
Myndir í römmum
SÝNING á verkum Þorvaldar Þor-
steinssonar í Gallerí Greip, Hverfis-
götu 82, Vitastígsmegin, verður opn-
uð nú á laugardag kl. 16. Sýningin
ber yfirskriftina Myndir í römmum.
Þorvaldur stundaði nám við Ný-
listadeild MHÍ og Jan van Eyck
Akademie í Hollandi á árunum 1983-
1990. Hann sinnir jöfnum höndum
myndlist og ritstörfum og setti Nem-
endaleikhúsið leikrit hans Maríusög-
ur á svið í vor.
Þá koma myndverk Þorvaldar við
sögu á mörgum sýningum um þessar
mundir: í Glugganum á Akureyri, á
annarri hæðinni hjá Hörra á Seyðis-
firði, á markaðstorginu í Kotka í
Finnlandi, á sumarsýningu Kjarvals-
staða og á sýningunni Botngróður í
Hallormsstaðaskógi.
Sýningin í Gallerí Greip er opin
alla daga nema mánudaga kl. 14-18
og henni lýkur 10. september.
HLYNUR Hallsson myndlistarmaður.
MYNDFLÍSAR
HLYNUR Hallsson er ungur mynd-
listarmaður sem eins og flestir
myndlistarmenn láta sig rýmið
varða sem þeir sýna verk sín í. Nú
stendur yfír sýning Hlyns í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi þar
sem hann gerir sýningarrýmið
sjálft að umfjöllunarefni og um-
myndar í eitt allsheijar verk.
Gólf salarins er klætt flísum sem
Hlynur myndaði, fjölfaldaði og
„flísalagði“ veggi salarins með.
„Mér hefur alltaf þótt gólfið í
Gerðubergi óhentugt á sýningar-
sal. Það er eitt og hálft ár síðan
mér var boðið að sýna þama og
síðan hef ég verið að útfæra hug-
myndina um að notfæra mér flís-
arnar í stað þess að láta þær angra
mig,“ sagði Hlynur þegar blaða-
maður Morgunblaðsins talaði við
hann.
Risastór
sturtuklefi
„Fyrst var hugmyndin sú að
flísaleggja lýmið með eins flísum
og voru á gólfinu en þegar kostnað-
ur var áætlaður 200.000 krónur
hætti ég við það auk þess sem mér
þótti ólíklegt að geta útvegað sams-
konar flísar. Á endanum fannst
mér lausnin sem áhorfendur sjá á
sýningunni sú besta,“ sagði Hlynur.
Hlynur sagði að gestir á sýning-
unni hefðu lýst andrúmslofti henn-
ar á margan hátt. „Þetta er eins og
í gasklefa," sagði einn og annar
sagði „Þetta er eins og að vera
staddur í risastórum sturtuklefa
eða ofan í sundlaug." Hlynur sagði
að takmarkið hafí verið að breyta
rýminu algjörlega en ganga samt
útfrá því sjálfu og segja má að það
hafi tekist ef marka má ummæli
gesta.
Gjörningar
Á sýningaropnun framdi Hlynur
gjörning sem hann kallaði 9 staðir
en hann hefur framið nokkra slíka
síðustu þijú árin. „Gjömingar sem
listform innan myndlistarinnar hef-
ur verið í lægð síðan hvað mest
var um þá fyrir um 25 árum. Nú
virðist samt vera merkjanleg upp-
sveifla þó þeir séu framdir á öðrum
forsendum nú en áður. Áður var
þetta meiri uppreisn gegn gallerí-
stefnunni."
Hlynur segist aðallega fást við
staðsetningu, tungumál og tíma í
sínum gjörningum og einnig lætur
hann oft leifar gjömingsins standa
eftir, á þeim stað sem hann var
framinn, sem verl» eða innsetning.
Hann hefur sýnt verk sín í Þýska-
landi, m.a. í eigin sýningarrými sem
hann kallar Listrými/íbúðarrými
sem er staðsett í íbúðarhúsi hans
í Hannover í Þýskalandi. í sumar
sýndi hann á Listasumri á Akur-
eyri og í febrúar næstkomandi mun
hann sýna í Nýlistasafninu. í byij-
un desember tekur hann þátt í
gjörningasýningu í Osló í Noregi
ásamt fleiri ungum myndlistar-
mönnum.
Hlynur er nemandi við Listahá-
skólann í Hannover í Þýskalandi
og hefur vinnuaðstöðu þar en sæk-
ir einnig til kennara í Listaháskól-
anum í Hamborg og Dusseldorf.
Hlynur kann vel við sig í Þýska-
landi og segir að vel sé gert við
myndlistarnema þar í landi auk
þess sem myndlistarlíf sé mjög
virkt a.m.k. á því svæði sem hann
býr á og góð listasöfn séu í flestum
borgum í landinu. Hann lýkur námi
eftir eitt eða tvö ár og eftir það
stefnir hann á að flytja aftur heim
til íslands. Aðspurður um mögu-
leika á að lifa af listinni sagðist
hann ekki sjá fram á það. „Maður
getur kannski tekið sér orð Fluxus
listamannanna í munn og sagt eins
og þeir að maður ætti ekki að lifa
af myndlist. Maður ætti að gera
eitthvað annað líka. Ég stefni á að
geta sinnt henni þó ég vinni eitt-
hvað með og þá hef ég áhuga á
að vinna eitthvað tengt myndlist-
inni. Ég hef aldrei selt verk og
verkin mín eru kannski ekki mjög
söluleg og ég legg ekki áherslu á
það heldur, en ef einhver vill kaupa
eftir mig verk þá má ræða það,“
sagði Hlynur Hallsson að lokum
og brosti.
Sýningin í Gerðubergi stendur
til 15. október.