Morgunblaðið - 25.08.1995, Qupperneq 52
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Air 90 millj.
Hrafni Sveinbjarnarsyni GK meinað að leita hafnar í Noregi vegna vélarbilunar
Morgunblaðið/RAX
Flugan á lofti
Fr amkvæmdastj ór i
Lífeyrissjóðs bænda
lætur af störfum
Lánaði
Emerald
TÆPLEGA 1.000 laxar hafa veiðst
í Laxá í Aðaldal í sumar. Þar af
hafa rúmlega tíu laxar verið tutt-
ugu pund eða þyngri. Veiðitíminn
í ánni er frá 10. júní til 9. septem-
ber. í bókinni Landið þitt, ísland,
segir að Laxá í Aðaldal sé talin frá
upptökum til ósa ein jafnfallegasta
á landsins. Hún rennur úr Mývatni
og fellur um Laxárdal og Aðaldal
og út í Skjálfandaflóa. í bátnum
eru Eyþór Sigmundsson að kasta
og ræðarinn er Pétur Steingríms-
son í Laxárnesi.
Boðað verkfall Framtíðarinnar á miðnætti
A
Arangurslaus fundur
ÁRANGURSLAUS samningafundur
var haldinn með fulltrúum Verka-
kvennafélagsins Framtíðarinnar í
Hafnarfirði og samninganefnd ríkis-
ins hjá ríkissáttasemjara í gær, en
boðað hefur verið til annars fundar
hjá ríkissáttasemjara kl. 17 í dag.
Náist samningar ekki á þeim fundi
skellur á verkfall ófaglærðs starfs-
fólks á sjúkrastofnunum í Hafnar-
firði á miðnætti í nótt.
Ljóst er að komi til verkfallsins
verða áhrif þess veruleg á starfsemi
St. Jósefsspítala, Sólvangs og Hrafn-
istu. Að sögn Láru Sveinsdóttur,
framkvæmdastjóra Framtíðarinnar,
mun starfsemi á þessum stofnunum
öll fara úr skorðum, þ.e. ræsting,
mötuneyti, þvottahús, saumastofur
og aðhlynning, en öll þessi störf eru
unnin af ófaglærðu fólki sem er í
Verkakvennafélaginu Framtíðinni.
Sagði Lára að um 80% af öllu starfs-
fólki á Sólvangi væri ófaglært, um
60% á Hrafnistu en eitthvað færra
á St. Jósefsspítala.
Óbreytt hjá
flugumferðarstjórum
Sáttafundur var einnig haldinn í
kjaradeilu flugumferðarstjóra í gær,
en honum lauk án þess að samning-
ar tækjust. Ekki hefur verið boðað
til nýs sáttafundar í deilunni.
Fleiri í lánshæfu námi en
áður en færri taka lán
UMSÓKNUM um námslán hefur ekki
fjölgað þó að flest bendi til þess að
fleiri nemendur séu í lánshæfu námi
en áður. Samkvæmt upplýsingum frá
Lánasjóði íslenskra nárnsmanna hafa
borist 4.532 umsóknir um nám hér-
lendis, 2.728 í Háskóla íslands og
1.804 í sérskóla. Umsóknir um lán
til náms erlendis eru nú samtals 1.822
en voru fyrir tveimur árum 1.948.
Færri sækja nú til Bandaríkjanna
og Englands en áður eftir að reglur
um Lánasjóðinn voru hertar 1992
og hætt var að lána fyrir skólagjöld-
um til náms á lægra skólastigi á
Lánasjóðskjörum. Fleiri sækja nú til
Norðurlanda og þá helst til Danmerk-
ur. 1
Umsóknum um lán til náms í
Þýskalandi hefur fækkað, eða úr 223
veturinn 93/94 í 185. Samkvæmt
heimildum frá LÍN er talið að háar
námskröfur í þýskum skólum valdi
því og erfitt er að ná tilætluðum
árangri svo að námslán fáist. Ætlast
er til 75%-100% námsárangurs svo
að námslán sé borgað út.
■ Færri til Bandaríkjanna/1B
Bílþjófnaður unglinga endaði háðulega
Myndband kom
upp um þjófana
STULDUR fjögurra unglings-
pilta í Hafnarfirði á BMW-bif-
reið endaði háðulega þegar
þeir uppgötvuðu að maður, sem
stóð með myndbandsvél sína úti
á svölum, var að festa stúss
þeirra við bílinn á filmu. Lög-
reglan skoðaði upptökuna og
bar kennsl á drengina, sem við-
urkenndu að þeir hefðu velt
fyrir sér að krefja eiganda bíls-
ins um lausnarfé.
Piltarnir fjórir, sem eru 14
og 15 ára, fundu lykil að BMW-
bíl á bílastæði við Hrísmóa á
miðvikudagskvöid og gekk
greiðlega að finna réttan bíl.
Þeir fóru í ökuferð um bæinn,
en lögðu bílnum í stæði og
skruppu heim til mömmu í
kvöldmat. Svo komu þjófarnir
aftur, fóru í aðra stutta ökuferð
og veltu fyrir sér möguleikan-
um á að krefja eiganda bílsins
um lausnargjald. Þeir guggn-
uðu hins vegar á að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd.
Undarlegt aksturslag
Þegar hér var komið sögu
ákváðu piltarnir að losa sig við
bílinn þar sem þeir höfðu lagt
honum á meðan þeir fóru heim
í mat. íbúi í húsi þar nærri veitti
bílnum eftirtekt og þótti akst-
urslag undarlegt og skrykkjótt,
en sá sem sat undir stýri hefur
ekki ökuréttindi, enda allt of
ungur. íbúinn beindi mynd-
bandsvél sinni að bílnum og
myndaði piltana fjóra þegar
þeir stigu út úr honum.
Piltarnir sáu manninn munda
vélina og tvístraðist hópurinn í
allar áttir. Síðar um kvöldið
bankaði lögreglan upp á heima
hjá þeim, því þeir höfðu allir
þekkst af upptökunni.
FRAMKV Æ MD AST J ÓRI Lífeyris-
sjóðs bænda hefur látið af störfum
eftir að ljóst varð að hann hafði veitt
flugfélaginu Emerald Air verulegar
fjárhæðir að láni án samþykkis og
vitneskju stjómarmanna.
Emerald Air hefur hætt flugi milli
íslands og Bretlands og nýtt félag,
Arctic Air Tours, tekið yfír þá starf-
semi félagsins. Lífeyrissjóður bænda
^var stærsti hluthafinn í eignarhalds-
félaginu Aktiva sem nokkrir íslensk-
ir aðilar stofnuðu um hlut sinn í
Emerald Air, með alls um helming
af 22 milljóna kr. heildarhlutafé.
Emerald Air hefur að undanförnu
fengið umtalsverðar upphæðir að
láni frá Lífeyrissjóði bænda, og að
sögn Guðríðar Þorsteinsdóttur,
stjórnarformanns sjóðsins, er þar um
að ræða nálægt 90 milljónir króna.
Guðríður sagði stjórnina ekki hafa
samþykkt neinar lánveitingar til
Emerald Air og að hún myndi aldrei
hafa tekið slíkt í mál. „Fram-
^kvæmdastjóri sjóðsins veitti félaginu
hins vegar lán án heimildar eða
umboðs stjórnar og fór þar út fyrir
sitt umboð og á bak við stjórnina.
Hann hefur lagt fram upgsagnarbréf
sitt og látið af störfum. í framhald-
inu höfum við ráðið endurskoðanda
og lögmann til að kanna stöðu okk-
ar.“
■ Arctip Air/14
Við erum stjórnlausir
ef við lendum í brælu
NORSKA strandgæslan neitaði á miðvikudag
frystiskipinu Hrafni Sveinbjamarsyni GK að leita
til hafnar í Noregi vegna vélarbilunar. Togarinn
var að veiðum í Smugunni á þriðjudag þegar alvar-
leg bilun varð i forþjöppu við aðalvél skipsins og
ákvað skipstjórinn þá að halda áleiðis til Noregs
til viðgerðar.
íslenska utanríkisráðuneytið hefur unnið að lausn
málsins undanfama tvo sólarhringa í samtölum við
norsk stjórnvöld en þær tilraunir höfðu ekki leitt
til árangurs í gærkvöldi þegar Morgunblaðið talaði
við Hilmar Helgason, skipstjóra á Hrafni Svein-
bjamarsyni.
Bíða utan 4 mílna lögsögunnar
Skipinu var siglt á 3-4 sjómílna hraða í austnorð-
austan átt og fjórurri vindstigum í gær. „Ef við
lendum í brælu erum við stjórnlausir. Þetta er alvar-
Ieg bilun og ég get aðeins keyrt vélina með 30%
álagi,“ sagði Hilmar. Hann gerði ráð fyrir að verða
kominn upp að íjögurra mílna lögsögumörkum
Utanríkisráðherra bjart-
sýnn á lausn
Noregs um kl. hálf ellefu í gærkvöldi en þar mun
skipið bíða þar til niðurstaða fæst í málinu.
„Það er ekki komin lausn. Við vonumst eftir að
hægt verði að gera við skipið en ég get ekki full-
yrt um hvernig það mun til takast," sagði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra í gærkvöldi. Hann
sagðist aðspurður vera bjartsýnn á að lausn muni
fínnast. „Það var talað um það í sambandi við Má
að reynt yrði að leysa þetta með samtölum og við
höfum staðið við það af okkar hálfu og höfðum
strax samband við norsk stjórnvöld. Hins vegar
hafa Norðmenn ekki breytt sinni stefnu," sagði
Halldór.
Neyðarráðstöfun
Hilmar sagði að þegar bilunin kom upp hafi
hann beðið um að fá að fara inn í norska lögsögu
og til Hammerfest en fengið neitun frá norsku
strandgæslunni. Því hefði verið borið við að skipið
hefði verið við veiðar í Smugunni og skv. nýrri
reglugerð væri bannað að veita slíkum skipum þjón-
ustu í norskum höfnum.
Jon Espen Lien, talsmaður strandgæslunnar í
Norður-Noregi, sagði í gær, að skipstjórinn á Hrafni
Sveinbjarnarsyni hefði ekki lýst yfir neyðarástandi
og því væri engin ástæða til að veita skipinu heim-
ild til að sigla inn til norskrar hafnar.
Hilmar sagði útilokað að ætla að sigla skipinu
til Islands á því vélarafli sem unnt væri að beita.
„Maður fer ekki með skipið svona yfir hafið því
að það er neyðarráðstöfun að bjarga sér á vélinni
svona túrbínulausri. Því lengur sem maður keyrir
hana því meiri hætta er á að vélin verði fyrir stór-
skemmdum," sagði hann.
25 manns eru um borð í Hrafni Sveinbjamar-
syni, þar af eru tvær konur. Skipið hafði verið við
veiðar í Smugunni í á aðra viku þegar bilunin kom
upp og var komið með 100 tonn af frosnum flökum.