Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 17
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Kristján
FRÁ sýningu þýska handavinnufólksins í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þýskt handverk
í Ráðhúsinu
Hafsjór fróðleiks um bætiefni
adidas
1. október eru 25 ár síðan
Blómaval tók til starfa.
Af því tilefni veitum við ÉBB L/ / l/ afslátt
af öllum vörum fimmtudag til sunnudags.
œástázfmn sjá/fan
• ... sunnudaginn 1. október bjóðum
við viðskiptavinum okkar til mikillar
afmælisveislu.
• Kl. 14 byrjum við að skera 25 metra
langa aímælistertu og bjóðum upp á
kaffi og gosdrykki.
• Landsfrægir tónlistarmenn skemmta
gestum með léttri tónlist.
HÓPUR þýskra áhugamanna um
textíl sýnir nú í Ráðhúsinu í Reykja-
vík undir jrfirskriftinni „Kristallar í
textílverkum." Sýningin verður til
4. október næstkomandi.
„Þetta eru verk tuttugu Þjóð-
verja, sem vinna út frá sameigin-
legu þema, kristöllum. Þegar krist-
allar eru skoðaðir myndast form eða
mynstur og fólkið vinnur með mis-
munandi aðferðum út frá mynstr-
inu. Mér finnast hugmyndirnar
mjög vel útfærðar og handverkið
frábært,“ segir Gerður Hjörleifs-
dóttir hjá íslenskum heimilisiðnaði,
sem skipulagt hefur sýninguna
ásamt þýska sendiráðinu, Germaníu
og Göethe-stofnuninni.
, „Á sýningunni eru fjölbreytt
verk, til dæmis peysa, sem fuliorð-
inn karlmaður pijónaði með afar
sérstakri tækni. Einnig er sýndur
útsaumur, bótasaumur, batík, ork-
ering og fleira. Útsaumur hefur
verið í mikilli lægð hér á landi að
undanfömu, en ég hef orðið vör við
að sýningin hefur kveikt áhuga
margra á að taka fram saumadótið
sitt að nýju.“
MÁL og menning hefur sent frá sér Bætiefnabókina, hand-
bók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. Höfundar
bókarinnar eru Harald Ragnar Jóhannesson og Sigurður
Óli Ólafsson en þeir eru báðir lyfjafræðingar. í bókinni er
að fínna fróðleik um 13 vítamín, 11 steinefni og 25 fæðu-
bótarefni auk orðaskýringa, upplýsinga um önnur gagnleg
rit um bætiefni og atriðisorðaskrár.
í frétt frá bókarforlaginu segir að í bókinni sé safnað
saman á einn stað aðgengilegum upplýsingum um vítamín
og bætiefni af ýmsu tagi sem eru á markaðnum hér á
landi. Fjallað er um fituleysanleg og vatnsleysanleg vítam-
ín, steinefni, snefilefni og margskonar fæðubótarefni, jafnt
þau sem sannað hafa gildi sitt sem önnur óhefðbundnari.
Meðal annars er fjallað um Mansjúríusveppinn en talið
er að hann hafi verið notaður sem fæðubótarefni í Mansjúr-
íu svo öldum skiptir, jafnvel fyrir Krist. Því hefur verið
haldið fram að seyði úr sveppnum sé allra meina bót en
þrátt fyrir hve lengi það hefur verið notað eru fáar vísinda-
legar heimildir til um verkun þess.
Þá er einnig rætt um kóensím QIO sem hefur notið
mikilli vinsælda að undanförnu. Er þess getið að flestir
ættu að fá nægilega mikið af efninu úr fæðunni og er
barnshafandi konum og konum með barn á brjósti ráðið
frá því að taka það inn.
Víst er að bókin kemur almenningi að góðum notum og
á fólk að geta fengið þar svör við ýmsum spurningum sem
brenna á vörum þess s.s. „Hvernig verka bætiefni?“, „Hve
mikið er æskilegt að taka?“ og „Hafa þau aukaverkanir?"
Bætiefnabókin er 132 bls., unnin í Prentsmiðunni Odda
hf. Kápuna gerði Bergþóra Huld Birgisdóttir. Bókin kostar
1.980 krónur.
Haratd Ra/iuar Jóhannesson
Siúurður Óli Óktfsson
K0Kl\
Handbók um
vítamín, steinefni
og fæðubótarefni
Nýkomnir sundbolir
Kr. 3.78D
5% staðgreiðsluafsláttur
af póstkröfum greiddum
innan 7 daga.
UTIUFP
GLÆSIBÆ • SÍMI 581 2922
SHto0tmUfibib
- kjarni málsins!