Morgunblaðið - 28.09.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 21
ERLENT
Reuter
Gauguin-verk í Kaíró
EGYPSKUR verkamaður býr sig
undir að hengja upp mynd
franska málarans Pauls Gaugu-
ins, Líf og dauði upp á Mahmoud
Khalil-listasafninu í Kaíró.
Myndin, sem metín er á um 50
milljónir dala, um 3,2 milljarða
kr., er ein af þekktustu verkun-
um á sýningu sem opnuð verður
um næstu helgi á safninu.
Líður að næstu tilraunasprengingu
Frakka við Mururoa
Frakkar taka bát
Grænfriðunga
Papeete. Reuter.
UMHVERFISVERNDARSAMTÖKIN
Greenpeace hétu því í gær að halda
áfram að hindra kjarnorkutilraunir
Frakka á Kyrrahafí, þrátt fyrir að
franskir hermenn hefðu tekið flórða
skip samakanna fyrr í vikunni. Um
var að ræða snekkjuna Vega sem
tekin var innan 12 mílna tilrauna-
svæðis Frakka.
„Við höfum nokkrar hugvitssam-
legar lausnir upp í erminni. Ein
þeirra er sérstaklega athyglisverð,"
sagði Lynette Thorstensen, talsmað-
ur Grænfriðunga á Tahití en vildi
ekki útskýra orð sín nánar.
Stofnandi samtakanna, David
McTaggart, var við stjórn er skút-
unni Vega var siglt inn á bannsvæð-
ið en auk hans var annar grænfrið-
ungur og 21 Polýnesi um borð og
vildu þeir að sögn Thorstensen „end-
urheimta land forfeðra sinna og af-
henda stjórnvöldum mótmælabréf
vegna tilraunanna." Kröfðust Póly-
nesarnir þess að tilraununum yrði
hætt og að Mururoa og Fangatufa
yrðu afhentar íbúunum.
Næsta tílraun
við Fangatufa
Gert er ráð fyrir að næstu kjarn-
orkutilraunir Frakka muni fara fram
nærri Fangatufa á næstu dögum en
fyrsta tilraunasprengingin fór fram
í byrjun september. Er talið að næsta
tiiraun verði sú stærsta af þeim sjö
eða átta tilraunum sem ráðgerðar
eru á næstu mánuðum.
Frakkar hafa áður tekið tvö
stærstu skip Grænfriðunga,
Rainbow Warrior II og MV Green-
peace, þyrlu, skútu með átta stjórn-
málamönnum um borð og að minnsta
kosti tólf gúmbáta.
Fréttir hafa borist af því að mikil
óeining sé innan samtakanna um
hvernig baráttan gegn tilraunum
Frakka sé skipulögð. Níu skip og
bátar Grænfriðunga eru nú á sigl-
ingu nærri Mururoa og verið getur
að fleiri bætist í hópinn á næstu
dögum.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
FRÁBÆR ÞJÓNUSTA
¥\ KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
A4MBI
X fi€r©Art]»ié..I
AKUREYRI
HASKOLABIO
Hemma
á föstudögum
Fyrsti þátturinn hefst 6. október