Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 34

Morgunblaðið - 28.09.1995, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Móðir okkar, ÞORBJÖRG LÍKAFRÓNSDÓTTIR áðurtil heimilis í Sundstræti 21, ísafirði, andaðist á Hrafnistu DAS i Reykjavík aðfaranótt 27. september. Rannveig Gísladóttir, Jón Gíslason, Guðrún Gísladóttir, Matthildur M. Gfsladóttir. Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KJARTANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Víðihllð 12, Reykjavik, lést í Borgarspítalanum 26. september. Egill Þ. Einarsson, Hrefna S. Einarsdóttir, Agla Egilsdóttir, Alda Berglind Egilsdóttir, Einar Þór Egilsson, Atli Freyr Fjölnisson. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN JÓNSSON kaupmaður, Skipholti 32, lést á Hvítabandinu þriðjudaginn 26. september. Guðrún Kristinsdóttir, Birgir Halldórsson, Halldór Björnsson, Guðrún Ruth Viðars, Guðrún P. Björnsdóttir, Þorvaldur Björnsson, Viola Pálsdóttir, Kristinn Rögnvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HANSÍNA HANNIBALSDÓTTIR, Þingholtsbraut 28, lést á hjúkrunarheimiiinu Sunnuhlíð miðvikudaginn 27. september. Óskar Jensen, Aðalheiður Óskarsdóttir, Gústaf Óskarsson, Kristbjörg Markúsdóttir, Málfríður Óskarsdóttir, Anna Júlia Óskarsdóttir, Ómar Óskarsson, Ólafia Sigurgarðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, + frú AÐALBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Miklubraut 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. september kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlaug Jóhannsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Björn Jóhannsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA ÁRNADÓTTIR, Álftamýri 52, Reykjavík, sem lést 19. september, verður jarð- sungin frá Akraneskirkju föstudaginn 29. september kl. 14.00. Heiðrún Þorgeirsdóttir, Benedikt Sigurðsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Magni Baldursson, Árni Ibsen, Hildur Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JÓN EYJÓLFUR EINARSSON + Jón Eyjólfur Einarsson, prófastur í Saurbæ á Hval- fjarðarströnd, fæddist í Lang- holti í Andakílshreppi 15. júlí 1933. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. september síðást- liðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ 23. september. 17. JÚNÍ 1959 var fannhvít jörð á Akureyri. Þann dag settu 66 nýstúd- entar frá Menntaskólanum á Akur- eyri upp hvítar súdentshúfur eftir að hafa flestir átt samleið í skólanum í fjóra vetur. Góður vinur, séra Jón E. Einarsson, sem nú er fallinn frá í blóma lífsins, 62 ára að aldri, var í þessum hópi og eru þá sjö bekkjar- systkini látin. Eg átti því láni að fagna að kynnast Jóni vel á þessum menntaskólaárum. Við vorum í heimavist skólans og bjuggum ásamt örfáum öðrum nemendum í gamla skólahúsinu eða á gömlu vistinni eins og kallað var. Herbergisfélagar vor- um við í þrjá vetur og síðustu tvo vetuma bjuggum við í risherberginu sem bar hið skagfirskættaða nafn Tindastóll. Út um glugga herbergis- ins blasti við sjónum fallegt útsýni yfir Pollinn og Vaðlaheiðina. Þegar Jón settist í menntaskólann var hann lítið eitt eldri en við bekkjar- systkini hans. Hann hafði þá þegar ákveðið að verða prestur og þeirri ákvörðun fylgdi hann eftir af festu. Það var óvanalegt, ef ekki eins- dæmi, í okkar bekk að nemandi hefði svo snemma á námsferlinum tekið ákvörðun um í hvaða skólanám hann færi að loknu stúdentsprófi. Þegar Jón kom í skólann var hann vel að sér um bókmenntir og kveðskap. Gerðu þeir það stundum að leik, Jón og ljóðelskur bekkjarbróðir okkar á gömlu heimavistinni, að kveðast á. Það urðu langar rimmur og harðar. Jón van einnig góður hagyrðingur og orti marga vísuna á þessum árum. Man ég m.a. vísur með góðlátlegu gríni um bekkjarsystkinin sem hann orti. Jón var þegar á menntaskóla- árum sínum, og reyndar áður, mjög pólitískur. Hann var vel máli farinn og tók gjaman til máls á málfundum. Atti Framsóknarflokkurinn þar sterkan málsvara þegar háð var hildi um pólitísk mál. Jón var góður námsmaður. ís- lenskt mál var honum sértaklega hugleikið og sýndi hann bæði þá og síðar mikla leikni á því sviði, bæði í ræðu og riti. Þegar okkur samstúd- entum Jóns hefur þótt mikið liggja við að velja góðan ræðumann fyrir hópinn á hátíðarstundum höfum við leitað til hans. Þannig var hann ræðumaður okkar þegar við fögnuð- um 25 ára stúdentsafmæli á Akur- eyri árið 1984. Sum okkar hafa einn- ig leitað til hans með prestsverk. Þessi verkefni sem önnur leysti Jón af hendi með miklum sóma. En Jón var ekki bara maðor alvörunnar. Hann hafði næma kímnigáfu. Á síð- ari árum hafa bekkjarsystkinin kom- ið saman einu sinni á vetri til að halda vináttunni við og rifja upp gamla daga. Jón, sem mætt hefur Eríidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUCLEIÐIR HÓTEL LOFTUIDIfí samviskusamlega á þessar samkom- ur ásamt eiginkonu sinni, flutti þá oft græskulaus gamanmál. Jón var vandaður maður til orðs og æðis og traustur vinur, sem nú er sárt sakn- að. Þar sem góðir menn fara þar eru guðs vegir. Jón var gæfumaður í einkalífi. Hann var kvæntur Hugrúnu Guð- jónsdótutr, mikilli sómakonu. Þau eignuðust fjögur börn og bamabörn- in em orðin þtjú. Við hjónin vottum þeim öllum og þeirra nánustu inni- lega samúð. Eg veit líka að bekkjar- systkinin og makar þeirra senda flöl- skyldunni innilegar samúðarkveðjur. Kristinn Ólafsson. Vinur minn og samstarfsmaður á akri kirkjunnar til margra ára, séra Jón Einarsson í Saurbæ, er fallinn frá. Farinn í þá ferð sem bíður okk- ar allra. Þegar haustlitimir með öll- um sínum litbrigðum vom að færast yfir landið okkar fagra kvaddi hann. Eftir sit ég og velti fyrir mér tilgang- inum með öllu þessu, því að allt hlýt- ur þetta að hafa einhvem tilgang; lífíð og dauðinn. Þó að ég hafí vitað um nokkurt skeið að hverju stefndi var ég samt óviðbúinn. Enda emm við mannanna böm eflaust alltaf jafn óviðbúin dauðanum í raun og vem. Sá sjúkdómur sem læknavísindin ráða lítið við dró Jón vin minn til dauða, á örskömmum tíma. Hann stóð samt meðan stætt var og sinnti prestsverkum. Ekki em nema rúmar fjórar vikur síðan ég var viðstödd kirkjulega athöfn hjá honum, sem hann framkvædi á sinn látlausa og fallega hátt. Þar var fyrir rúmum 20 árum sem Jón tók við starfí sóknarprests í Innra-Hólmssókn. Áður höfðu alltaf þjónað þar sóknarprestar á Akra- nesi. Jón hafði þá búið í Saurbæ og þjónað kirkju þar og á Leirá um nokkurra ára skeið. Eflaust kviðum við sóknarböm Innra-Hólmskirkju öll fyrir því að fá nýjan prest. En sá ótti reyndist ástæðulaus. Jón og hans góða kona, Hugrún, urðu strax miklir aufúsugestir á heimili foreldar minna á Innra-Hólmi. Þar átti ég líka einnig margar ánægjustundir með þeim hjónum yfír kaffibolla. Seinna gerðist ég starfsmaður kirkjunnar og áttum við alla tíð mjög gott samstarf, sem aldrei féll skuggi á. Við gátum alltaf rætt saman um alla heima og geima. Öll verk sín, hvort sem var í kirkju eða á verald- legum sviðum, vann Jón af einstakri alúð, samviskusemi og nákvæmni. Eflaust hefur sumum fundist hann einum of nákvæmur á stundum. All- ar hans kirkjulegu athafnir fóru fram á rólegan, fágaðan og fallegan hátt, sama hvort um var að ræða venjuleg- ar guðsþjónustur eða athafnir á gleði- eða sorgarstundum. Jón hafði alltaf ákveðnar skoðanir á öllum hlutum, mönnum og málefnum, og var fastur fyrir ef því var að skipta. Oft ræddum við saman um lífið og tilveruna og einnig um þetta óumflýj- anlega, dauðann. í vetur sem ieið fannst mér stundum að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera hjá Jóni vini mínum. Eflaust var þetta eitthvert hugboð sem ég fékk og sjúkdómurinn hefur verið að setja mark sitt á hann. Sama dag og faðir minn lést og aðeins fimm dögum fyrir andlát Jóns heimsótti ég hann fársjúkan í sjúkra- hús. Ég kveið ákaflega fyrir að fara í þessa heimsókn, var dálítið við- kvæm og hálf illa sofin. Sá kvíði reyndist ástæðulaus og við áttum yndislega samverustund ásamt Hugrúnu. Fyrir þessa stund er ég þakklát nú. Á heimili þeirra hjóna mætti mér og mínum ávallt einstök hlýja og gestrisni. Þar var gott að koma. En nú er þessi tími liðinn og ég fæ ekki fleiri hringingar eða samtöl frá vini mínum Jóni. Ég sakna hans sárt og þakka honum fyrir allt. Hugrúnu og fjölskyldunni allri sendum við heimi- lifólkið á Ásfelli einlægar samúðar- kveðjur. Guð blessi ykkur öll. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ragnheiður Guðmundsdóttir. Sr. Jón Einarsson prófastur á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd er lát- inn. Sem nágrannar og samverka- menn hans í áratugi, fylgdust Skóg- armenn KFUM með æðrulausri bar- áttu hans við illvígan sjúkdóm allt til hinstu stundar. Aðeins rúmri viku áður en andlátið bar að, var sr. Jón í Vatnaskógi þar sem hann tók þátt í hátíðardagskrá í lok karlaflokks ásamt Hugrúnu, eiginkonu sinni. Þau hjónin létu sig heldur ekki vanta í lokaguðsþjónustu flokksins, sem eins og venjulega var haldin í Hallgríms- kirkju í Saurbæ. Það duldist engum að sr. Jón var máttfarinn og gekk ekki heill til skógar, en æðruleysi hans var slíkt að enginn hefði trúað því að hann ætti svo skammt eftir ólifað. í sr. Jóni Einarssyni áttu Skógar- menn KFUM góðan nágranna. Tengslin voru ekki eingöngu við hann sem sóknarprest, prófast eða oddvita hreppsnefndar Hvalfjarðarstrandar- hrepps, því sr. Jón hafði mikinn áhuga á starfínu í Vatnaskógi og fylgdist vel með því sem þar fór fram. Á hveiju sumri lagði hann sitt af mörkum til starfsins með því að bjóða drengjunum í Vatnaskógi að heim- sækja Hallgrímskirkju í Saurbse og taka þátt í guðsþjónustu þar. Ýmist talaði hann þar sjálfur til drengjanna út frá Guðs orði eða bað einhvern úr Vatnaskógi að stíga í stólinn. Síð- an fræddi hann á lifandi hátt um sr. Hallgrím og þá fallegu kirkju sem honum er tileinkuð á Saurbæ. Að guðsþjónustu lokinni bauð sr. Jón iðulega einhveijum Skógarmönnum í kaffí og var þá gjarnan rætt um sveitarmál, kirkjumál og starfið í Vatnaskógi. Kynntust margir þar, eins og í karlaflokkum á haustin, hinum gamansama Jóni sem oft sá spaugilegu hliðamar á hlutunum. Auk þess að vera fastur gestur í lok hvers karlaflokks, kom sr. Jón jafnan í heimsókn á Sæludaga um verslunarmannahelgar og oft þess utan. Stundum kom hann með góða gesti með sér til að sýna þeim stað- inn. í apríl 1990 kom hann m.a. í fylgd biskups að vísitera kapelluna í Vatnaskógi. Þótti sú ferð nokkuð söguleg því þá var enn mikill snjór í Vatnaskógi, skafrenningur og veg- ur einungis fær sérútbúnum bílum. Þurfti biskup og fylgdarlið að kúldr- ast í ,fjallatrukk“ og klofa síðan snjó- inn til að komast á leiðarenda. Voru menn heldur illa búnir undir slíkt, en helgistundin í kapellunni gleymist ekki! Síðustu árin hafa Skógarmenn KFUM staðið fyrir fermingamám- skeiðum I Vatnaskógi á haustin. Strax frá upphafí sá sr. Jón til þess að Hallgrímskirkja í Saurbæ stæði fermingarbömunum opin til helgrar þjónustu og hefur það verið ómetan- leg blessun að fá að enda hvert nám- skeið í kirkjunni. Oft tók sr. Jón þátt í þessum helgistundum þegar hann hafði tök á því, en rúmlega 1.600 fermingarböm heimsóttu kirkjuna síðastliðið haust. Það var Skógar- mönnum KFUM einnig sérstök hátíð- arstund þegar sr. Jón blessaði íþróttahúsið í Vatnaskógi í lok fram- kvæmda sumarið 1993, eftir nærri 20 ára framkvæmdir. Sr. Jón Einars'son gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir kirkju íslands og vann ötullega að margvíslegum sveitarstjómarmálum. Sem oddviti sveitarstjómar Hval- fjarðarstrandarhrepps, frá árinu 1978, naut hann mikils trausts. Hann þjónaði Saurbæjarprestakalli af trú- mennsku í nærri 30 ár, eða allt frá árinu 1966 er hann lauk námi við guðfræðideild Háskóla íslands. Hafa Skógarmenn KFUM notið liðsinnis og hjálpsemi sr. Jóns og fjölskyldu hans oftar en hér gefst tóm til að telja upp. Skógarmenn KFUM þakka Guði fyrir blessunarríkt starf sr. Jóns Ein- arssonar og biðja góðan Guð að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.