Morgunblaðið - 01.10.1995, Page 2
2 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra vill að ríkisstofnanir greiði markaðsverð fyrir afnot af húsnæði
Stefnt er að verulegri
fækkun fasteigna í ríkiseigu
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir
stefnt að því að fækka fasteignum í eigu ríkis-
ins. Þegar séu komnar fram tillögur um að fækka
embættisbústöðum. Fram hefur komið að ríkis-
sjóður á 650 einbýlishús og er fasteignamat
þeirra 7,3 milljarðar króna. Rúmlega 400 þeirra
eru embættisbústaðir. Þá segir fjármálaráðherra
að miðað sé að því að ríkisstofnanir greiði raun-
hæft verð fyrir afnot af húseignum.
Friðrik segir að undanfarið hafi farið fram
markviss skráning og flokkun á fasteignum ríkis-
ins og sé það ein af forsendum þess að koma á
nýskipan í ríkisrekstri. „Umfang eigna ríkisins
hefur ekki legið fyrir. Nú getum við skoðað þró-
unina ár frá ári og þannig veitt sjálfum okkur
aðhald. Það þarf að skoða rækilega hvort ríkið
eigi að standa í svona umsvifamikilli eigna-
umsýslu," segir ráðherra.
Hann segir að nefnd um fækkun embættisbú-
staða á vegum ríkisins hafi skilað skýrslu og
verði hún kynnt ríkisstjórninni á næstunni.
Nefndin leggi til að á stöðum, þar sem búa fleiri
en 1.000 íbúar, verði embættisbústöðum fækk-
að. Embættismönnum verði boðið að kaupa hús-
in og húsaleiga verði einnig hækkuð í áföngum,
þannig að hún verði í samræmi við markaðs-
verð. Friðrik segir að unnið sé að gerð tillagna
um breytingar á rekstri og viðhaldi eigna ríkisins.
Dæmi um að umfangið ráðist
af húsnæðinu
Aðspurður hvort ætlunin sé að Iáta stofnanir
ríkisins taka aukna ábyrgð á rekstri þess hús-
næðis, sem þær hafi til umráða, segir Friðrik
það þekkta kenningu erlendis að umfang og
starfsmannafjöldi stofnana ráðist af stærð hús-
næðis. „Það kann að eiga við hér í einhveijum
tilvikum," segir Friðrik. „Æskilegt væri að stofn-
anir greiddu markaðsverð fyrir það húsnæði, sem
þær hafa til umráða. Þannig yrði stuðlað að
betri nýtingu húsnæðis ríkisins og stofnanir
myndu skoða alla möguleika á markaðnum.“
Stefnan að selja eignir
Fram hefur komið að ríkissjóður eigi um 1.500
jarðir og landspildur. Þar á meðal eru 10.000
hektarar af ræktuðu landi. Aðspurður hvort til
stæði að þetta landflæmi yrði áfram í eigu ríkis-
ins, sagði Friðrik: „Það hlýtur að vera stefnan
að selja allar fasteignir ríkisins, sem það hefur
ekki bein not af. Hvað varðar sölu ríkisjarða
þarf hins vegar að gæta allra hagsmuna og
horfa til þess að jarðir falli ekki í verði vegna
stóraukins framboðs á stuttum tíma.“
Einvígið
á Alnetinu
HÆGT er að fylgjast með leikjum
í heimsmeistaraeinvíginu í skák
milli Kasparovs og Anands í New
York jafnóðum og meistararnir
leika leikjum sínum, með því að
vera tölvutengdur Alnetinu. Þetta
er í fyrsta skipti sem hægt er að
fylgjast með heimsmeistaraeinvígi
með þessum hætti.
Margeir Pétursson, stórmeist-
ari, segir að með Alnetinu hafi
landfræðilegar fjarlægðir milli
skákmanna verið yfirunnar og það
að vera í skákklúbbi á Alnetinu
jafnist á við það að vera í venjuleg-
um skákklúbbi, maður geti teflt,
fylgst með öðrum skákum og ráðg-
ast við aðra um þá leiki sem leikn-
ir eru eins og í venjulegum skák-
klúbbi.
„Skákirnar eru sýndar leik fyr-
ir leik og leikirnir koina jafnóðum
og þeir eru leiknir. Það er hægt
að ræða við aðra skákmenn sem
eru að fylgjast með skákinni. Ég
ber mig til dæmis mikið saman
við norskan stórmeistara, sem er
skákblaðamaður eins og ég er,
en auk þess eru ávallt nokkrir
bandarískir stórmeistarar tengd-
ir í þessum klúbbi. Skákin hefur
blómstrað á Alnetinu og áhugi á
skáklistinni hefur aukist gífur-
lega vegna þess hversu vel skákin
hentar tölvunum."
KR-ingar
rotaðir í
Liverpool
Liverpool. Morgunblaðið.
FJÓRIR úr stuðningsmanna-
hópi KR, sem fylgdi liðinu í
Evrópuleikinn gegn Everton,
lentu í slagsmálum á
skemmtistaðnum Buzz í Liv-
erpool aðfaranótt föstudags.
Þrír þeirra voru rotaðir og
tveir fluttir á sjúkrahús. Eng-
inn er þó alvarlega slasaður,
en töluverðir áverkar á andlit-
mm þeirra.
Dyraverðir tóku þátt
Skemmtistaðurinn Buzz er
sá stærsti í Liverpool og tekur
um fjögur þúsund gesti og var
nánast fullt hús þegar atburð-
urinn átti sér stað. Fjórmenn-
ingarnir segja að dyraverðir
skemmtistaðarins hafi tekið
þátt í þessum áflogum. Lög-
reglan í Liverpool rannsakar
málið.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjármálaráðherra um
flug’umferðarsijóra
Samninga-
viðræður
hefjist
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir mikilvægt að samn-
inganefndir ríkisins og flugum-
ferðarstjóra hefji viðræður að nýju
og freisti þess að ná samningum.
Hann segist vona að uppsagnir
flugumferðarstjóra tefji ekki við-
ræðurnar.
„Það áttu sér stað viðræður á
milli flugumferðarstjóra og samn-
inganefndar ríkisins á sínum tíma.
Viðræðurnar hafa tafist vegna
þess að flugumferðarstjórar
ákváðu að fara í málaferli til að
fá staðfestingu á rétti sínum. Nú
liggur sú staðfesting fyrir ríkinu
í vil og mér finnst eðlilegt að
menn hefji samningaviðræður á
ný.
Það hefur hver einstaklingur
rétt til að segja upp störfum, en í
þessu tilviki sýnist mér að það sé
verið að nota uppsagnarréttinn til
að knýja fram betri kjör. Ég vona
að það tefji ekki fyrir eðlilegum
samningaviðræðum,“ sagði Frið-
rik.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
Sljórnmálameiin eiga
ekki að skapa óróleika
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir að hann sé
fullkomlega sammála þeim orðum
Benedikts Davíðssonar, forseta ASÍ,
í Morgunblaðinu í gær, að það sé
óþolandi að stjórnvöld skapi þær
aðstæður að það kunni að verða
ófriður á vinnumarkaði þrátt fyrir
að lögformtegir kjarasanmingar séu
í gildi. „Það getur ekki verið hlut-
verk stjórnmálamannanna að vera
aðaluppspretta óróleika og ósættis í
þjóðfélaginu og ef þeir lenda í því
af einhveijum ástæðum hljóta þeir
að verða að bregðast bæði hratt og
skynsamlega við til að snúa þeirri
þróun við,“ sagði Þórarinn.
Þórarinn sagði að sú staða sem
væri komin upp í kjölfar ákvarðana
Kjaradóms og forsætisnefndar Al-
þingis væri pólitískt en ekki hag-
fræðilegt viðfangsefni. 40 þúsund
króna starfskostnaðargreiðsla þýddi
ef til vill 10-15 milljóna króna út-
gjöld fyrir Alþingi og væri út af
fyrir sig ekki stórkostlegt áhyggju-
efni útgjaldalega séð. „Búvörusamn-
ingurinn eða þau firn sem þar ganga
á og snúa að hagsmunum skatt-
greiðenda eru auðvitað óramiklu
stærra hagfræðilegt og efnahags-
legt viðfangsefni og vandamál.“
Launabreytingar 7-8%
Hann sagði að með ákvörðun for-
sætisnefndar þingsins um skatt-
greiðslu af starfskostnaðargreiðslu
hefði verið staðfest að kjaramálum
þingmanna hefði verið ráðið til lykta
í tvennu Iagi, annars vegar með
ákvörðun þingsins sjálfs og hins veg-
ar með úrskurði Kjaradóms. Kjara-
dómur segðist ekki hafa heimild til
að taka nokkurt tillit til þess sem
þingið gerði og vissi raunar ekki um
það, eftir því sem upplýst væri.
„Við ætlum að samningsbundnar
launabreytingar á þessu launatíma-
bili öllu verði 7-8% og við erum að
vona að heildarlaunabreytingarnar
fari ekki yfir 9% með persónubundn-
um hækkunum og slíkum þáttum.
Þetta greinist mjög misjafnlega.
Lægri hópamir eru að taka launa-
hækkanir, eftir því sem okkur sýn-
ist, frá þetta 9-12%. Hærra launuðu
hóparnir liggja hins vegar, að því
er okkur sýnist, nær 6%, þannig að
það hefur þrátt fyrir allt orðið veru-
legur árangur í því að bæta kjör
hinna lægst launuðu meira heldur
en annarra. Þessi samanburður gef-
ur það óneitanlega til kynna að eðli-
legar launabreytingar til æðstu emb-
ættismanna ríkisins lægju nær lægri
tölunum heldur en þeim hærri, en
frávikið er ekki slíkt, að mínu mati,
að það sé forsenda fyrir því að kalla
eftir ógildingu dómsins."
► Umboðsmaður bama er tals-
maður allra bama og ungmenna
að 18 ára aldri. Umboðsmaðurinn
á að bæta hag barna og standa
vörð um hagsmuni, þarfir og rétt-
indi þeirra. Þórhildi Líndal er um-
boðsmaður bama. /10
Reykjavíkurfundurinn
markaði tímamót
► Úr endurminningabók Míkhaíls
Gorbatsjovs. /14
Æska í ánauð
► Milljónir barna á Indlandi eru
notaðar sem þrælar, seldar upp í
skuld, misnotaðar kynferðislega
eða sendar á götuna til að stela
eða betla ./20
Að láta fólki líða vel
►í Viðskiptum og atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Láms Gunn-
steinsson í Skóstofunni við Dun-
haga ./22
B_________________________
► 1-28
Blátt & gult
►Sigurður Sverrir Pálsson kvik-
myndatökumaður stjómaði tökum
á bæði Tári úr steini og Benjamín
dúfu og segir frá því hvemig hann
glataði bláa litnum og fann þann
gula í staðinn og sá rautt þegar
hann hlustaði á Heklu eftir Jón
Leifs ./1
Með blæðandi
leikhúsdellu
►Leikstjórinn Magnús Geir Þórð-
arson haslaði sér völl í íslensku
leikhúsi aðeins tíu ára gamall. í
dag undirbýr hann uppsetningu á
nýjasta leikriti Jims Cartwrights,
og er þar með orðinn yngsti leik-
stjóri sem hefur sett upp sýningu
í atvinnuleikhúsi á íslandi. ./6
Skyldi hann vera
í akkorði
► Það em liðin 50 ár síðan Guð-
mundur Steingrímsson eða Papa
Jazz hóf feril sinn sem hljóðfæra-
leikari, og hann kom fyrst fram
opinberlega sem trommuleikari í
hljómsveit. /14
Herðubreið
►Óður Matthíasar og RAX til
þessarar drottningar íslensku
öræfanna og sýn’nokkurra mynd-
listarmanna af fjallinu ./16
BÍLAR
► 1-4
Froskaugun og Björk
►Söngkonan Björk Guðmunds-
dóttir fékk lánaðan gerbreyttan
Austin Healey árgerð 1970 þegar
verið var að gera myndband við
lag hennar Army of Me, til þess
eins að látast aka yfir hann. /2
Bílasýning
►Um 800 þúsund manns komu
til Frankfurt ./3
FASTIR ÞÆTTIR
Frettir 1/2/4/6/bak Skák 40
Leiðari 26 Fólk i fréttum 42
Helgispjall 26 Bíó/dans 44
Reykjavikurbréf 26 íþróttir 48
Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 49
Myndasögur 38 Dagbók/veður 51
Bréf til biaðsins 38 Mannlífsstr. 8b
ídag 40 Kvikmyndir lOb
Brids 40 Dægurtónlist 12b
Stjörauspá 40
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4-6