Morgunblaðið - 15.10.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 13
Vandamál í starfsumhverfi
Júlíus B. Kristinsson er búinn að
vera lengi í eldlínunni og hefur rek-
ið sig á öll þau horn sem fyrir eru
í starfsumhverfi greinarinnar. Þegar
hann gaf út yfirlýsingu daginn sem
óskað var gjaldþrotaskipta rakti
hann helstu vandamál varðandi
starfsumhverfi hafbeitarinnar.
Hann telur núverandi aðferðir í haf-
beit ekki duga til að ná endur-
heimtuprósentu sem dugar. Rann-
sóknir þurfí að vera skilvísari því
sárlega skorti vitneskju um hvað
verður um 94 til 98 prósent seiða
sem skila sér ekki.
Hann tínir fleira til, t.d. að þar
sem ekki sé hægt að spá með vissu
um endurheimtur sé erfitt að und-
irbúa slátrun og vinnslu og gera
sölusamninga fyrirfram. Það tor-
veldi aftur hagræðingu í rekstri og
geri markaðsstarf erfiðara en ella.
Þá segir Júlíus að það komi illa
niður á hafbeitarstöðvum að þrátt
fyrir stór orð um að laxveiði í sjó
sé bönnuð við ísland sé eigi að síður
stundaður mikill veiðiþjófnaður, að
ekki sé minnst á fimm bæi, tvo í
Hvaifirði og þrjá á Mýrum, sem
hafí lögiegar laxalagnir frá fornu
fari. Bæði hafi tilkoma hafbeitar-
stöðva hvatt veiðiþjófa til dáða
vegna stóraukinna laxagangna og
svo hefur veiði í löglegu lagnirnar
margfaldast. Lög sem leyfðu lagn-
irnar eru frá 1932 og gerðu ekki
ráð fyrir starfsemi á borð við haf-
beit. Það væri erfítt að sætta sig
við að engu mætti breyta í þessum
efnum því viðvarandi ástandi mætti
líkja við að einhveijir sætu fyrir
fénaði bónda á afréttinum og það í
fullu leyfi.
Þá telur Júlíus hafbeitarstöðina
Silfurlax hafa tapað 39,5 tonnum
af laxi til annarra hafbeitarstöðva
vegna laxaflakks á árunum 1991
til 1994 og byggir það á skýrslu
frá Veiðimálastofnun. Söluverð-
mæti þessa lax væri um 17 milljón-
ir króna miðað við markaðsverð á
hafbeitarlaxi í dag. Segir Júlíus
ójafnvægi í flakkinu þannig að
sumar hafbeitarstöðvar hagnist á
því á meðan aðrar tapi. Hafbeitar-
stöðvarnar hafa leitað samkomu-
lags um uppgjör vegna þessa frá
árinu 1991, en ekki tekist og engin
framtíðarskipan þessara máli ligg-
ur fyrir.
Síðan rekur Júlíus deilu Silfurlax
og veiðiréttareigenda á svæðinu sem
áður hefur verið getið um og tínir
loks til erfiðleikana að fá afurðarlán
út á hafbeitarlax. Segir Júlíus að
veðlög leyfí ekki veðtöku í hafbeitar-
laxi nema til eins árs í senn og það
seti „óbærilegar skorður“ við töku
afurðarlána í seiðaeldi og hafbeit
þar sem allt að fjögur ár líði frá
því að hrogn séu tekin til klaks og
þar tii að laxar úr þeim skili sér
úr hafbeit eftir tvö ár í sjó. Frum-
varp um breytingar á veðlögum
hafa legið óafgreidd á Alþingi í tvö
ár. í því er kveðið á um úrbætur á
ákvæðum um veðtöku í hafbeitar-
laxi.
Þegar Júlíus hefur dregið saman
alla þessa erfiðu þætti í starfsum-
hverfí hafbeitarinnar kemst hann
að eftirfarandi niðurstöðu: „Af
reynslu Silfurlax hf. má nokkuð
læra. Þrátt fyrir mikla rannsókna-
og þróunarstarfsemi félagsins, í
samstarfí við aðra, er þekking í
hafbeit enn of lítil og lög og reglur
ekki við hæfí til þess að hafbeit
geti vaxið og dafnað sem atvinnu-
grein. Brýnt er að yfirvöld í landinu
vinni skipulega að því að koma þess-
um málum greinarinnar í lag áður
en reynt er að laða fjárfesta, inn-
lenda sem erlenda, til að leggja fé
sitt í greinina á ný.“
Píslarganga hafbeitar á íslandi
er orðin nokkuð löng og ríflega
þymum stráð. Af orðum fram-
kvæmdastjóra Silfurlax sáluga má
hins vegar ráða að hann telji haf-
beitina aðeins komna á annað hnéð
og vinna beri að því að koma henni
aftur á fót. Verði það er brýnt að
minna aftur á þau orð Júlíusar, að
„af reynslu Silfurlax hf. má nokkuð
læra“.
Hef flutt stofu mína í Reykjavík
úr Læknastöðinni Mjódd í
Domus Medica Egilsgötu 3.
Tímapantanir í síma 5631000
Stofutímar mínir í Heilsugæslustöðinni í Keflavík
eru óbreyttir á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Tímapantanir í síma 422 0500
Úlfur Agnarsson,
meltingarlæknir barna og almennur barnalæknir
21. október
ERAMGAR
ALSACE
Sérstök kynning á Alsacehéraðinu í
Frakklandi. Matreiðslumeistarinn
Joseph Matter, frá Restaurant Les
Vosges sem er einn af bestu veitinga-
stöðunum í Ribeauville, hefur sett
saman frábæran matseðil að hætti
Alsace.
með eðalvínum frá Alsace.
Kaffi og koníak eða líkjör á eftir.
Takmarkaður gestafjöldi hvert kvöld.
Borðapantanir ísitna 552 5700
23. október
til London
frá 16.930
^ któbev
Við höfum nú fengið 8 viðbótarherbergi á Great Eastem nvá«u<*a^a 1 °K
hótelinu á hreint ótrúlegu verði fyrir brottförina 23. október nanóvevober
í 3 nætur. Einfalt hótel í gömlum stíl, staðsett í City, rétt við
lestarstöð, sem gengur beint inn á Oxford stræti. Öll herbergi
með sjónvarpi, síma og baði.
Bókaðu meðan enn er laust og tryggðu þér síðustu sætin á tilboðsverði.
Verð kr.
16.930
Aðeins flugsæti með sköttum.
Verð kr.
19.930
Verð m.v. 2 í herbergi, 23. okt.
Með sköttum.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
S tarfsmenntaþing
miðvikudaginn 18. október kl. 9, Borgartúni 6
• Starfsmenntaþing er stofnfundur Starfsmenntafélagsins, sem er samstarfsvettvangur
stofnana, félaga, skóla, samtaka, fyrirtækja eða starfshópa sem vinna að starfs-
menntamálum eða vilja láta starfsmenntamál sig varða.
• Nánari upplýsingar um Starfsmenntafélagið og aðild að því veitir Sigurður
Guðmundsson í síma 525 4900.
• Starfsmenntaþing er opið fulltrúum þeirra sem ætla að gerast félagar í
Starfsmenntafélaginu.
• Ráðstefna um árangursríkt samstarf skóla og atvinnulífs hefst kl. 13 og er opin öllum
sem áhuga hafa.
Dagskrá Starfsmenntaþings
Fundarstjóri: Margrét S. Björnsdóttir, Endurmenntunarstofnun Háskólans.
1. Setning Starfsmenntaþings kl. 9.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra flytur ávarp.
2. Tillaga að lögum Starfsmenntafélagsins borin upp til samþykktar.
3. Stofnsamningur undirritaður. Fulltrúar í fulltrúaráð tilnefndir.
(Kaffihlé).
4. Kosning formanns og stjórnar.
5. Ákvörðun um félagsgjald.
6. Kynning á hugmyndum um fyrstu verkefni.
7. Umræður og önnur mál.
(Matarhlé kl. 12-13).
Ráðstefna kl. 13 (opin öllum)
Árangursrík samskipti skóla og atvinnulífs
Páll Pétursson félags'málaráðherra flytur ávarp.
Stutt framsöguerindi:
Kristján Roth, ísal.
Gerður G. Óskarsdóttir, Háskóla íslands.
Ágúst H. Ingþórsson, Sammennt.
Ásmundur Hilmarsson, fræðslufulltrúi MFA.
Brynjar Ingi Skaptason, Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Pailborðsumræður og fyrirspurnir.
Ráðstefnuslit kl. 17.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra flytur ávarp.
p Itfptttl - Marni málsins!