Morgunblaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
„Þetta er engin gullnáma og mik-
il vinna. Það má kannski segja
að það sem ég haf i haft upp úr
þessu basli sé að eignast fyrir-
tækið. .. .“
hann það að mörgu leyti frábrugðið
því sem menn þekki á íslandi. Allt
sé í mun fastari skorðum, strangar
reglur gildi um flesta hluti og þeim
verði að fylgja út í ystu æsar. Þá
sé allt eftirlit strangara og aðrar
reglur gildi um t.d. starfsmanna-
hald, auglýsingar, skatta og opnun-
artíma verslana. „Það hefur tekið
okkur þó nokkurn tíma að setja
okkur inn í þetta allt saman. Ef
maður er ekki innfæddur verður
maður sífellt að setja sig inn í regl-
ur sem aðrir telja sjálfsagðar.“
Einu erfiðleikarnir sem hann hef-
ur lent í segir hann vera varðandi
auglýsingar. Þýsku reglurnar byggi
á því að ekki megi lokka viðskipta-
vininn í verslunina heldur einungis
koma skilaboðum á framfæri til
hans. Hann hafi til dæmis gert þau
mistök í upphafi að gefa úttektar-
miða við opnunina en slíkt er
stranglega bannað. Þá má einungis
auglýsa afslátt á vöruverði tvisvar
á ári á vetrar- og sumarútsölum.
Að auki er bannað að veita við-
skiptavinum meira en 3% afslátt
af verði. „Auðvitað heftir þetta
mann nokkuð og leiðir inn á ákveðn-
ar brautir í auglýsingum og mark-
aðssetningu. Menn geta bara veitt
afslátt á lögbundnum útsölum, sem
er tímaskekkja. Mörg fyrirtæki eru
búin að finna leiðir fram hjá þessum
reglum. Til að mynda er bakaríum
bannað að selja brauð á sunnudög-
um. Hér í borginni hefur hins vegar
frönsk keðja opnað verslun þar sem
hægt er að kaupa nýbökuð brauð
alla daga og öll kvöld undir því
yfirskyni að þetta sé ekki bakarí
heldur kaffihús. Það er alltaf troð-
fullt þar um helgar og sunnudags-
velta þeirra er meiri en alla aðra
daga til samans. Það er engum til
góðs að hafa höft af þessu tagi.
Það verður að ráðast af eftirspurn-
inni hvenær t.d. útsölur eru haldn-
ar.“
Hann segir verslanir í Lúxem-
borg til dæmis óbundnar af þessum
regium öllum og missi því þýskir
verslunareigendur mikla sölu þang-
að.
Þegar Kristinn Már er spurður
að því hvernig gengið hafi að yfir-
færa fræðilegt háskólaverkefni yfir
á hinn raunverulega markað segir
hann lygilega margt hafa gengið
eftir. Tölur um kostnað verið lægri
en hann bjóst við en sölutölur hærri.
Alltaf sé erfitt að taka inn óvissu-
þætti í fræðilegum verkefnum. „Ég
er hins vegar ánægður með hvernig
þetta hefur gengið upp. Framhaldið
er hins vegar óljóst. Það segir sig
sjálft að þegar fyrirtæki er stofnað
með litlu fjármagni þá eru fyrstu
árin erfið. Ef maður ætlar að færa
út kvíarnar verður það að gerast
með nýju fjármagni eða með því
að taka fé úr rekstrinum. Ég hef
undanfarið verið að vinna að stækk-
unaráformum í samráði við prófess-
or minn í háskólanum en það er
ljóst að ef nýtt fjármagn kemur
ekki til þá er mikil áhætta tekin
með hverri nýrri búð. Auðvitað
verður stækkað en það verður að
undirbúa það mjög vel. Ég hef gert
markaðsrannsókn í íjórum öðrum
borgum enda hefur stefnan verið
sú að stækka allt frá upphafi.“
Mikið púl
Fyrir skömmu keypti Kristinn
Már hlut meðeigenda sinna og seg-
ir hann þá hafa fengið góða ávöxt-
un á fjármagn sitt. „Þetta er engin
gullnáma og mikil vinna. Það má
kannski segja að það sem ég hafi
haft upp úr þessu basli sé að eign-
ast fyrirtækið sjálfur. Þetta er
erfiður rekstur og mikið púl. Við
erum á nýjum markaði og önnur
verslun myndi tvöfalda álagið.
Maður verður að fylgjast mjög
náið með rekstrinum og hafa dag-
lega yfirsýn yfir hann. Stefna fyrir-
tækisins er að vera með vörur fyr-
ir ákveðna markhópa á besta verði.
Búðirnar eiga að vera aðlaðandi
og þjónustan góð og brosmild. Við-
skiptavinurinn á að finna að hugs-
að sé um hann.“
Þrír fastir starfsmenn eru í búð-
inni og að auki 7-8 sem skiptast á
í hlutastarfí. Alls er um fimm heil
stöðugildi að ræða.
Að mörgu leyti sé aftur á móti
erfiðara að finna inn á markaðinn
t.d. hvað varðar kvenmannsföt.
Straumarnir séu allt öðruvísi en
heima á íslandi.
Kristinn Már var ekki alveg
ókunnugur verslunarrekstri er hann
opnaði Vero Moda-búðina í Þýska-
landi þar sem að hann tengdist
einnig undirbúningi fyrirtækisins
Skrifstofuvörur ári áður. Hann seg-
ir margt sameiginlegt þar sem að
sú verslun hafi einnig upphaflega
verið hugmynd námsmanns í
Bandaríkjunum. „Hugmynd okkar
var sú að bjóða fyrirtækjum upp á
ákveðna þjónustu á lægsta verði.
Gæðavörur með lágri álagningu.
Það skipti mestu máli að koma vör-
unni til neytandans og má segja
að þetta hafi verið ákveðin hugsjón
að koma inn á markaðinn úr allt
annari átt.“
' Fyrirmyndirnar voru Stables og
Maxi-Papier og heimsótti Kristinn
Már síðarnefnda fyrirtækið í Þýska-
landi á meðan á undirbúningnum
stóð. „Markmiðið var að halda
kostnaði og umgjörð allri í lág-
marki. Sem minnst var lagt í allar
innréttingar því slíkum útgjöldum
verður óhjákvæmilega að hleypa
út í verðlagið. Framkvæmdastjórinn
notaði til að mynda gamla ferming-
arskrifborðið sitt á skrifstofunni.
Markhópurinn var og er sjálfstæðir
atvinnurekendur en sá hópur ætti
best að skilja að þegar sparað er í
rekstrinum er verið að spara fyrir
viðskiptavininn. Þó að við værum
að selja skrifstofuvörur áttum við
ekki að vera leggja mikið í okkar
skrifstofu. Fólk verður að vera á
jörðinni. Það sem er sameiginlegt
með Vero Moda hjá mér er að
bæði fyrirtækin eru stofnuð af
þeirri hugsjón að styðjast við eigið
fé og eigið púl en ekki bankalán,“
segir Kristinn Már. Hann segist
helst sjá eftir því að sökum þess
hve vel reksturinn gekk strax frá
upphafi hafi hann' ráðist út í fjár-
festingar í kringum verslunarrekst-
urinn er voru ekki brýnar. Nauðsyn-
legt sé að átta sig á því að rekstur
af þessu tagi sé sveiflukenndur og
því mikilvægt að halda sér á jörð-
inni og gera sér grein fyrir að þó
vei gangi geti komið tímabundin
lægð í söluna. Því megi menn ekki
spenna bogann of hátt til að geta
mætt þessum lægðum.
Fyrstu mánuðina segir hann
skrifstofu Vero Moda-verslunarinn-
ar hafa verið í þeirri 45 fermetra
stúdentaíbúð sem hann bjó í þá og
hafi öðrum húsmunum verið ýtt til
hliðar. „Þetta var vissulega hálfgert
stríðsástand. I tvennu spara ég hins
vegar aldrei og það er þegar kemur
að innkaupum og sölukostnaði, þ.e.
auglýsingum og starfsfólki. Ég legg
líka mikla áherslu og vinnu í að
vita hvað er að gerast í fyrirtækinu
og veit upp á hár hvað ég seldi á
hvaða degi sem er frá því rekstur-
inn hófst. Ég veit því nákvæmlega
hveijar eru mínar bestu vörur, bestu
litir og stærðir.“
Kristinn segir að lokum að það
sé besta ákvörðun sem hann hafi
nokkurn tímann tekið að vera í
samstarfi við Vero Moda. „Þeir eru
um margt frábrugðnir öðrum fyrir-
tækjum og snillingar á sínu sviði.
Að mínu mati hafa þeir hitt nagl-
ann nákvæmlega á höfuðið varð-
andi það sem þeir eru að gera.“
| SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 25
■
SersrdH verðhlÐoo:
Slærð G7 x 130 cm. fiá hr. 3.127
BHxisn Em
3.9 9
Ssni
v/Faxafen
Cf'Q aqog
J>OÖ 0777
iftlltfStÍ
- "
■SSl i
|
", • J
íýýSí.ifvÆ'í
1
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
Funahöfði 19
Sínn 587 5680
Heppnir
viðskiptavinir
taka við
verðlaunum í
verðlaunaleik
Eldltúss &
baðs.
Ef þú kemur til okkar og kaupir eldhúsinnréttingu,
baðinnréttingu, fataskápa, innihurðir, heimilis-
tæki eða annað fyrir 1. desember n.k. lendir nafn
þitt í lukkupotti Eldhúss og baðs. Ef þitt nafn er
dregið úr pottinum færðu i vinning, ferð fyrir tvo
með Flugleiðum að andvirði 85.000 kr.
Eldhús og bað er íslenskt fyrirtæki sem einbeitir sér að
hönnun, smíði og ráðgjöf á sviði innréttinga. Við höfum langa
reynslu af að leiðbeina fólki við val á innréttingum. Við
leggjum áherslu á faglega ráðgjöf sem hentar hverjum og
einum, hagstætt verð og góða þjónustu. Komdu við í verslun
okkar að Funahöfða 19, það borgar sig.