Morgunblaðið - 15.10.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ur það tjón mest þar, sem mest er
í misst. Þeir falla hver um annan,
öndvegismenn kirkju vorrar og
klerkastjettar. Með skyndilegu frá-
falli síra Þórhalls Höskuldssonar
sóknarprests á Akureyri erum vjer
enn minnt á fallveiti jarðlegrar
veru, en þó meira á Guðs gjafír.
Hann var drengur góður. Hann var
öndvegisprestur. Fáa klerka hefi eg
vitað betur gegna þjónustuheiti
sínu, en hann. Allt gjörði hann með
kostgæfni, hvort sem það var að
rannsaka ritningarnar, uppfræða,
leiðbeina, hvetja og styrkja, vaka
yfir sálarheill þeirra, sem honum
var til trúað, styðja lítilmagna og
hjálpa bágstöddum. Líklega var þacj
vegna þess, hversu heill hann var
í prestsskapnum, að hann gjörðist
svo þarfur kirkjunni og klerkastjett-
inni, sem raun bar vitni og var
honum þó ærinn starfi í sínum sókn-
um. Þegar eg kynntist honum, hafði
hann þegar verið fyrir framan í
miklum nauðsynjamálum kirkjunn-
ar um hríð. Um það skeið munu
aðrir íjalla. Hann sat þá í stjórn
Prestafjelags íslands og tók sæti
af þess hálfu í Kirkjueignanefnd
þar, sem hann tók þátt í því mikla
verki að leggja drög að því, að leysa
deilur ríkis og kirkju um meðferð
kirkjueigna. Hann var af kirkjunnar
hálfu formaður viðræðunefndar rík-
is og kirkju, sem tók við því verki
á grundvelli skýrslu Kirkjueigna-
nefndarinnar að skipa þeim málum
til framtíðarhorfs. Hann var manna
fróðastur og bezt að sjer um þau
mál öll. Þar er nú að missi hans
hinn mesti skaði. Síra Þórhallur
átti sæti í Starfskjaranefnd presta.
í þeirri nefnd var í mörgu efni lagð-
ur grunnurinn að þeim fyrir löngu
tímabæru úrbótum á starfskjörum
presta, sem orðið hafa að undan-
fömu. Fyrir hönd stjettarinnar
þakka eg þá þjónustu alla. Loks var
hann á Kirkjuþingi fremstur í flokki
atkvæðamestu og atkvæðabeztu
þingmanna og hafði að síra Jóni
Einarssyni föllnum tekið sæti í
Kirkjuráði. Jafnan var mikils af
honum vænzt og þeim mun meira,
sem hann dugði betur.
Eigi mun í þessum kveðju- og
þakkarorðum rakinn prýðilegur fet-
ill síra Þórhalls Höskuldssonar um-
fram það, sem hjer hefur verið drep-
ið á þar, sem leiðir okkar lágu sam-
an. Eg þakka alla hans þjónustu í
þágu klerkastjettarinnar og allan
drengskap við hana. Eg þakka vin-
áttu hans, ráðuneyti og hjálp, ör-
læti á tíma og krafta og þolinmæð-
ina. Sjálfur sje hann Guði falinn.
Frú Þóru Steinunni og bömun-
um, ástvinum hans öllum og þeim
öðmm, sem trega hann, votta eg
innilegustu samúð og bið Guð að
hjálpa yður öllum. Þeir missa mest,
sem mikið er gefið. Þeir eiga líka
þakkarefnin. Hugum að því, einnig
í sorginni.
Geir Waage, Reykholti.
PHOENIX
námskeiðið
leiðin til árangurs
Meðal efnis sem
námskeiðið f jallar um:
*Að losa um hemlana.
’Að stilla hugann inn á velgengni.
’Hraðnámstækni.
’Fimm lykilatriði til að setja sér markmið.
'Tólf þrep til að ná markmiðum sínum.
*Að skipuleggja tíma sinn.
’Tækni við skapandi lausn vandamála.
’Að eyða streitu eða spennu.
’Að byggja upp úrvals sambönd.
’Að ala upp „ofurmenni",
Skráning og upplýsingar gefur
Fanný Jónmundsdottir, simi 552 7755.
MINNINGAR
Séra Þórhallur Höskuldsson,
sóknarprestur á Akureyri, andaðist
í Reykjavík aðfaranótt laugardags-
ins 7. október'. Hann var þar að
sækja fund í einni af þeim mörgu
nefndum sem hann valdist til starfa
í vegna yfirburða þekkingar sinnar
á kirkjulegum málefnum og vinnu-
þreks sem aldrei virtist þijóta.
Við séra Þórhallur vorum vinir
og samhetjar á kirkjulegum vett-
vangi, naut ég þar, svo sem marg-
ir aðrir, afburða gáfna hans, áhuga
og umhyggju í öllum þeim málum
sem hann beitti sér fyrir. Hann var
ötull baráttumaður bæði ,í málum
þjóðkirkjunnar og prestastéttarinn-
ar og varði hagsmuni okkar af
meiri festu og rökfimi en öðrum
var gefið. Drýgst munu störf hans
í starfsháttanefnd þjóðkirkjunnar
og kirkjueignanefnd hafa verið og
áhrif þeirra munu vara um ókomna
tíma, kirkjunni til heilla og blessun-
ar.
Ég þekkti nokkuð til sálgæslu
séra Þórhalls, í þeim málum var
hann næmur og nærgætinn hugg-
andi, og munu margir sem lítils
voru megnugir telja sig eiga honum
þakkarskuld að gjalda. En hann lét
sér ekki nægja að hafa afskipti af
málum einstakra sóknarbama
sinna sem voru í þrengingum, held-
ur sá hann og setti slíkar kringum-
stæður í félagslegt samhengi og
barðist fyrir heildarlausn þeirra.
Eiginkonu séra Þórhalls, Þóru
Steinunni Gísladóttur, börnum
þeirra og öllum öðrum ástvinum
hans, votta ég mína dýpstu samúð.
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 31
%
% 2
_ Pegar ancíJdí
b&r a'd höncium
Útfararstofa Kirizjugartíanna Fossvogi
Sími SSl 1266
108 Reykjavík. Sími 31099
til kl. 22,-einnig um helgar.
Gjafavörur.
Ný námskeið að kefjast
-sniðin að mannlegum \>ö rfu m
Við vitum að það er ekki hægt að móta alla líkama
og allra þarfir í eitt form. I meira en tuttugu og fimm
ár höfum víð hjá Líkamsrækt JSB unnið með þúsundum
kvenna við að byggja upp hreysti og viðhalda góðri
heilsu og útliti. Til okkar leita konur með ýmsar
væntingar. Við gerum okkar besta tjj að hjálpa þeim,
en árangurinn byggist fyrst og fremst á þeim sjálfum.
Við gerum ekki kraftaverk - en þú getur það!
Athugið að Líkamsrækt JSB er flutt í
„JSB húsið“ í Lágmúla 9 í Reykjavík.
LjKAMSRÆKT
Kortakerfið
Græn kort:
Frjáls mæting
6 daga vikunnar fyrir
konur á öllum aldri.
Aliir finna flokk við sitt
hæfi hjá J.S.B.
FRÁ TÖPPÍ TÍÍ TAAR
Námskeið sem hefur gefið ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum
sem berjast við aukakílóin.
Uppbyggilegt lokað námskeið.
- Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn.
Strangur megrunarkúr sem fylgt er eftir
daglega með andlegum stuðningi, einka-
viðtölum og fyrirlestrum um mataræði og
hollar lifsvenjur.
- Heilsufundir, þar sem farið er
yfir förðun, klæðnað, hvernig á að
bera líkamann og efla sjálfs-
traustið.
NYTT-NYTT
Framhalds TT
Nú bjóðum við upp á
framhaldsflokka fyrir TT konur.
3 fastir tímar,
2 lausir tímar í hverri viku.
Fundir - aðhald - vigt - mæling
LÁGMÚLA 9 SÍMI 581 3730 / 581 3760
Innritun hafin alla daga í síma 581 3730
Barnapössun alla daga frá kl. 9-16.
Hringið og pantið kort eða
skráið ykkur í flokka.