Morgunblaðið - 15.10.1995, Síða 22

Morgunblaðið - 15.10.1995, Síða 22
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVIN N UA UGL ÝSINGAR VAKÍ ÖRYGGISKERFI SlMI 561 7045 Sölumaður óskast Vegna aukinna umsvifa er óskað eftir starfs- krafti við kynningu og sölu öryggiskerfa í stofnanir, fyrirtæki og heimili. Þarf að hafa bifreið til starfsins. Rífleg sölulaun fyrir dug- legan og framtakssaman starfskraft. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir föstudags- kvöld, 20. október nk. merktar: „Vaki-Öryggiskerfi/Sölustarf - 13560“. Rafeindavirkjar/- rafvirkjar Vegna aukinna umsvifa er óskað eftir fram- takssömum starfskrafti, sem getur unnið sjálf- stætt við uppsetningu og viðhald öryggiskerfa. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð og þurfa að hafa bifreið til umráða. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir föstudags- kvöld, 20. október nk. merktar: „Vaki-Öryggiskerfi/Uppsetning - 13561“. Fjármálastjóri Eitt af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði neytendavöru óskar eftir dugmiklum og ákveðnum fjármálastjóra. Helstu verkefni Fjármálastjórinn mun sjá um öll fjármál fyrir- tækisins, þar með talið innheimtu, bókhald og launamál. Hann mun einnig bera ábyrgð á og vinna að áætlanagerð, kostnaðargrein- ingu og fráviksgreiningu. Jafnframt sinnir hann öllum samskiptum við fjármálastofnan- ir. Kröfur um hæfni Viðkomandi þarf að hafa viðskiptafræði- menntun eða hliðstætt nám og 5 til 10 ára reynslu í sambærilegum störfum. Um er að ræða krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á skipuleg vinnubrögð og árangur í starfi. Fyrir réttan aðila eru góð laun í boði. í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upp- lýsingar um menntun og fyrri störf. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnað- armál og öllum umsóknum verður svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur, er að ofan greinir, er boðið að senda inn umsókn til KPMG Sinnu hf. fyrir 21. október nk. m Sinna ehf. Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf Vegmúla 3, Sími 588-3375. 108 Reykjavík. Myndriti 533-5550. KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á ýmsum sviðum stjórnunar- og starfsmannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting. Beitingarmenn óskast Vana beitingarmenn vantar á 110 rúmlesta línubát, sem gerður er út frá Flateyri. Upplýsingar í símum 456-7822 og 456-7878. Vélavörður óskast Vélavörður óskast á 650 ha, 190 tonna línu- bát, sem gerður er út frá Flateyri. Upplýsingar í síma 456-7688 eða 456-7822. LAUSSTAÐA ÞJÓNUSTUSTJÓRA HJÁ SPARISJÓÐI EINN AF LEIÐANDI SPARISJÓÐUM LANDSINS ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÞJÓNUSTUSTJÓRA. ÞJÓNUSTUSTJÓRI mun hafa yfir- umsjón með þjónustu afgreiðsludeilda ásamt því að sinna ráðgjöf til viðskiptavina- sparisjóðsins hvort heldur er vegna skuldastöðu, ávöxtunarmöguleika eða aðra þá þjónustu sem í boði er. Enn ffemur úrlausnir ýmissa mala innan afgreiðsludeilda. Jafhframt mun þjónustu- stjóri taka þátt í kynningar- og markaðsmálum. HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu viðskiptaffæðingar eða með sam- bærilega menntun. Áhersla er lögð á öguð vinnubrögð, leiðtogahæfileika, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Kostur er starfsreynsla í banka. Umsóknarfrestur er til og með 23. október n.k. Ráðning verður sem allra fyrst. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar veittar á skrifstofú, sem opin er frá kl.10-16', en viðtalstímar eru frá kl.10-13. Starfsrábningar ehf Mörkinni 3-108 Reykjavík Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3044 Cuíný Harhardóttir Framkvæmdastjóri íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík óskar að ráða framkvæmdastjóra er annist skrifstofu- störf, fjáröflun og húsvörslu. Umsóknum skal skila til íþróttafélags,fatl- aðra í Reykjavík, Hátúni 14, 105 Reykjavík, fyrir 20. þ.m. Öllum umsóknum verður svarað. Þroskaþjálfara eða leikskólakennara vantar til að sinna sérstuðningi á Lönguhólum Okkar vantar áhugasamt, uppeldismenntað starfsfólk til að sinna sérstuðningi á leikskól- anum Lönguhólum í Hornafirði. Lönguhólar er vel búinn þriggja deilda leikskóli í sveitarfé- lagi, sem er rómað fyrir náttúrufegurð. Veitum fúslega allar nánari upplýsingar. Leikskólastjóri Lönguhóla er í síma 478 1315 (vinna) og 478 1084 (heima) og félagsmála- stjóri Hornafjarðar í síma 478 1702. Bæjarfélagið útvegar hagstætt leiguhús- næði og greiðir ferðastyrk. Heildverslun - skrifstofa Óskum eftir að ráða hæfan starfskraft á skrif- stofu okkar í Reykjavík. Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Hæfniskröfur: • Góð skrifstofumenntun. • Tölvuþekking. • Enskukunátta. • Þjónustulipurð. • Létt lund. • Gott heilsufar. • Frumkvæði. Reyklaus vinnustaður. Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl., merktum: „M - 1095“, fyrir 20. október. Vantar þig aukavinnu eða viltu breyta til? Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur bíl til umráða og getur unnið 4-7 tíma á dag, þá höfum við starf fyrir þig. Okkur vantar fólk til fastra afleys- inga við ræstingar. Góðir tekjumöguleikar fyrir röska starfsmenn. Vinnutími er frá kl. 16.00 eða 17.00 mánudaga til föstudaga. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Guðrúnu Gísladóttur, Síðumúla 23, milli kl. 10 og 11.30 til og með 19. október nk. rm SECURITAS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.