Morgunblaðið - 18.10.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 17
ERLENT
28 særast í áttunda sprengjutilræðinu í Frakklandi
Særðir farþegar gengu kíló-
metra í dimmum göngunum
París. Reuter. ^ *
SPRENGJUTILRÆÐII PARIS
Tuttugu og átta særöust þegar sprengja sprakk
í neöjanjaröariest í miöborg Parísar
St-Michel
<í%***^. Sjö féllu og 86 særðust þegar
.. fyrsta sprengjan sprakk
Musee ^ hér þann 25. júli
g^d'Orsay stöðin
Sprengjan sprakk
milli lestarstöðvanna
Saint-Michel og Musée d'Orsay
á C-leið RER-lestakerfisins.
Sprengjuherferð heittrúarmanna
25. júlí: Sprengja springur við Saint-Michel,
sjó láta lífið og 86 særast
17. ágúst: Sautján særast er sprengja springur
við sigurbogann.
26. ágúst: 25-kílóa sprenja er komið hafði verið
fyrir við Lyon springur ekki.
3. sept.: Fjórir særast í sprengingu
við Bastillutorg
4. sept.: Lögregla gerir óvirka sprengju er
fannst við almenningssalerm í Paris
7. sept:
Fjórtán særast er sprengja springur
við skóla gyðinga í Lyon
6. okt.: Þrettán særast er sprengja springur
í suðausturhluta Parfsar
7. okt.: Alsírskir heittrúarmenn lýsa yfir
ábyrgð á sprengjutilræðunum og
hóta að sprengja fleiri sprengjur
17. okt.: 28særastersprengjaspringurí
lest á milli stöðvanna Saint-Michel
og Musée d’Orsay
ÖFLUG sprengja tætti í sundur
vagn neðanjarðarlestar í París í
gærmorgun. Sprengjan sprakk
klukkan fímm mínútur yfír sjö að
staðartíma, þegar fjöldi manna var
á leið til vinnu, og var lestin á sex-
tíu kílómetra hraða í göngum á
milli lestarstöðvanna Saint-Michel
og Orsay. Var um að ræða svokall-
aða RER-lest en þær flytja fólk úr
úthverfunum inn í miðborgina. Tutt-
ugu og sex særðust í sprenging-
unni, þar af fímm lífshættulega.
Örvænting greip um sig meðal
farþega í kjölfar sprengingarinnar.
„Það var reykur alls staðar og ösk-
ur. Síðan heyrðum við neyðaróp
særðs farþega er lá á brautartein-
unum,“ sagði einn farþegi er var í
lestinni. „Vagninn hafði rifnað í
sundur og við sáum að minnsta kosti
fjóra eða fimm særða farþega."
Urðu farþegar lestarinnar að því
búnu feta sig áfram um kílómetra-
langa leið í óuppiýstum göngunum
eftir brautarteinunum að Orsay-
stöðinni.
Tvö fómarlambanna misstu fót
eða löpp í sprengingunni og einnig
varð að skera fót af manni í braki
lestarinnar. Hlúð var að hinum slös-
uðu á lestarpöllum og í bráðabirgða-
sjúkrahúsi sem komið var upp í
Orsay-safninu. í Orsay við Signu-
bakka er að fírina mörg frægustu
verk franskra impressjonista og
koma þúsundir ferðamanna þangað
daglega.
Sáu n-afrískan mann
Vitni sögðust hafa séð norður-
afrískan mann klæddán í íþróttagalla
stökkva úr lestinni og hefði hann
skilið eftir pakka í vagninum.
Skömmu eftir sprenginguna sýndi
sjónvarpið myndir af lögreglumönn-
um ásamt handjámuðum manni er
lýsingin átti við skammt frá lestar-
stöðinni. Lögregla sagði þó síðar að
einungis hefði verið um vitni að ræða.
Alain Juppé forsætisráðherra og
Jean-Louis Debre héldu þegar í stað
á vettvang sprengingarinnar og
Jacques Chirac Frakklandsforseti,
er var á ferð um vesturhluta Frakk-
lands, ákvað að halda hið snarasta
aftur til höfuðborgarinnar.
Gífurlegar öryggisaðgerðir hafa
verið í gangi undanfarna mánuði í
Frakklandi allt frá því að sprengja
sprakk á sömu slóðum, við Saint-
Michel-stöðina, 25. júlí. Samtök
heittrúaðra múslima í Alsír (GIA)
hafa lýst yfír ábyrgð á þeirri
sprengjuherferð sem þá hófst og
kostað hefur sjö manns lífíð og
sært hátt á annað hundrað manns.
Krefjast samtökin þess að Frakkar
láti af stuðningi við stjómvöld í
Alsír, sem nemur sex milljörðum
franka á ári.
Sprengjan sem sprakk í gær er
sú áttunda í röðinni. Síðast sprakk
sprengja 6. október sl. í ruslafötu
sama dag og Alsírbúinn Khaled
Kelkal, sem grunaður var um aðild
að fyrri sprengjutilræðum, var jarð-
settur í Lyon. Hann lést eftir skot-
bardaga við sérsveitarmenn.
Hertar öryggisaðgerðir
Eftir að Kelkal hafði verið felldur
og þrír vitorðsmanna hans hand-
teknir lýsti Debre innanríkisráð-
herra því yfír að hryðjuverkahópur
sá, sem hann var í forsvari fyrir,
kynni að hafa borið ábyrgð á öllum
sprengjutilræðunum. Sú virðist ekki
vera raunin. Roland Jacquard, sér-
fræðmgur í málefnum hryðjuverka-
manna, sagði í franska sjónvarpinu
í gær að líklega væri að finna hópa
hryðjuverkamanna er væm reynslu-
meiri og harðsvíraðri en klíka Kelk-
als. Væm þetta hópar sem hefðu
áður haft það hlutverk að smygla
vopnum til heittrúarmanna í Alsír.
Samtök heittrúarmanna fengju ung-
menni úr úthverfum Parísar til að
ganga til liðs við sig.
Alls hafa sex sprengjanna
spmngið í París en tvær í Lyon.
Jean Tiberi, borgarstjóri Parísar,
sagði í gær að gripið hefði verið til
ýtrustu öryggisaðgerða þegar eftir
tilræðið í júlí og það væri fátt sem
lögregla gæti gert því til viðbótar
annað en að biðja almenning um
að vera á varðbergi.
Þúsundum lögreglumanna hefur
verið bætt við á götum Parísar og
um fímm þúsund hermenn verið
látnir gegna löggæslustörfum. Alls
hafa 25 þúsund manns sinnt lög-
gæslustörfum í París undanfarna
mánuði.
Eftirlit með lestarsamgöngum
verður enn hert eftir tilræðið í gær
en lestarstöðvar í París em 385,
fimm þúsund lestir fara um lestar-
kerfíð á dag og farþegar telja tvær
milljónir daglega.
Sahlin höfð-
aði til gras-
rótarinnar
SAHLIN brosir til ljósmyndara á
blaðamannafundi sínum á mánudag.
Stokkhólmi. Reuter.
MONA Sahlin, aðstoðarforsætis-
ráðherra Svíþjóðar, virðist hafa
höfðað til flokksystkina sinna í
sænska Jafnaðarmannaflokknum
með áhrifamikilli ræðu er hún
hélt á blaðamannafundi í Stokk-
hólmi á mánudag. A fundinum
viðurkenndi Sahlin að hafa notað
opinbert greiðslukort í einkaþágu,
meðal annars til að kaupa bleiur
og Toblerone-súkkulaði handa
börnum sínum. Hún sagði ástæðu
þess hins vegar hafa verið óreiðu
í heimilisbókhaldinu en ekki að
hún hafí haft í hyggju að svíkja
út fé. Sahlin var til skamms tíma
talin líklegasti arftaki Ingvars
Carlsson, formanns flokksins og
forsætisráðherra, sem hyggst láta
af embætti á næsta ári.
Fyrstu viðbrögð margra leið-
toga jafnaðarmanna víða um Sví-
þjóð benda til að ræða hennar
hafí fallið í góðan jarðveg hjá
grasrót flokksins. „Hún var ein-
staklega greinargóð og kraftmik-
il. Ef menn geta komið þetta vel
fram þegar þeir eru undir miklum
þrýstingi ættu þeir að geta ráðið
við hlutverk flokksformanns og
forsætisráðherra," sagði Jan
Karlsson, formaður jafnaðar-
manna í Bohuslán.
Aðrir sögðu það vera sterkan
og skynsaman leik hjá henni að
biðja um „leikhlé" á meðan verið
væri að rannsaka mál hennar.
„Það var skynsöm ákvörðun. Á
meðan við bíðum eftir niðurstöðu
rannsóknarinnar getum við velt
fyrir okkur réttu og röngu í máli
hennar," sagði Björn Áhkvist, for-
maður í Halland.
Háttsettur flokksmaður í Jámt-
land í norðurhluta landsins sagð-
ist hins vegar telja að þetta mál
ætti eftir að koma Sahlin illa.
„Hún hefur eytt miklu af pólitísk-
um styrk sínum og á eftir að bera
þess merki það sem eftir er,“ sagði
hann.
Þingnefnd sem máli Sahlin
hafði verið vísað til komst í gær
að þeirri niðurstöðu að ekki væri
ástæða fyrir nefndina til að taka
málið upp þar sem að Sahlin hefði
ekki gerst brotleg í starfi. Nefnd-
in tók hins vegar ekki afstöðu til
þess hvort að Sahlin hefði gerst
brotleg við lög sem einstaklingur.
Málið fer nú aftur til embættis
ríkissaksóknara sem mun ákveða
hvort ástæða sé til að gefa út
kæru á hendur henni.
Leiðarahöfundur stærsta dag-
blaðs Svíþjóðar, Dagens Nyheter,
sagði það greinilegt að varafor-
sætisráðherrann byggi yfír mikl-
um styrk. Eftir að hafa orðið fyr-
ir mesta áfalli á sínum hefði hún
komið fram ákveðin og reiðubúin
til baráttu. í leiðara Svenska Dag-
bladet sagði að í fyrstu virtist sem
Sahlin hefði styrkt stöðu sína en
alls ekki væri víst að það myndi
reynast raunin til lengri tíma litið.
Síðdegisblaðið Aftonbladet,
sem styður Jafnaðarmannaflokk-
inn, birti leiðara með yfirskriftinni
„Auðvitað er Sahlin nógu góð“
en Expressen, sem er hægra meg-
in við miðju, sagði tilfinninga-
þrungna ræðu Sahlin ekki hafa
breytt neinu, hvað varðar efnisat-
riði málsins. „Tilraun hennar til
tilfinningalegrar kúgunar gras-
rótarinnar mun varla duga til
lengdar,“ sagði blaðið.
Kaunda
vísað frá
Zambíu?
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Zambíu, Chitalu Sampa, sagði
í gær að Kenneth Kaunda,
fyrrverandi forseta landsins,
kynni að verða vísað úr landi
vegna ásakana um að hann
hefði ekki mátt gegna forseta-
embættinu þar sem hann væri
útlendingur. Stjómin segir að
Kaunda, sem var með malav-
ískan ríkisborgararétt, hafí
ekki óskað eftir ríkisborgara-
rétti í Zambíu árið 1964 þegar
landið öðlaðist sjálfstæði eins
og honum bar samkvæmt lög-
um. Hann hafi gert það árið
1970 en umsóknin hafi ekki
fengið löglega meðferð.
Kaunda, sem er 71 árs, stjórn-
aði landinu í 27 ár en tapaði
í fyrstu fjölflokkakosningum
landsins árið 1991.
Kosið í Aust-
urríki 17.
desember
STJÓRN Austurríkis boðaði í
gær til þingkosninga 17. des-
ember eftir stjómarslit jafnað-
armanna og Þjóðarflokksins
vegna deilna um fjárlög fyrir
næsta ár. Fráfarandi stjóm var
mynduð eftir kosningar í fyrra
og er sú skammlífasta í Austur-
ríki frá síðari heimsstyijöldinni.
Þijár bréfsprengjur spmngu
í Austurríki á mánudag og
særðust tveir innflytjendur. Er
talið að þær hafí verið sendar
í tilefni þess að réttarhöld hó-
fust þá yfir tveimur nýnasist-
um sem sakaðir era um að
hafa sent bréfsprengjur til hátt
settra stjómmálamanna.
Kohl aftur í
framboð?
ÞRIGGJA daga landsþing
Kristilegra demókrata í Þýska-
landi hófst á mánudag og
Helmut Kohl kanslari gaf í
skyn í setningarræðu sinni að
hann myndi sækjast eftir end-
urkjöri árið 1998. Kohl héfur
verið við völd í 13 ár og ef
marka má skoðanakannanir
gæti flokkurinn náð meirihluta
á þinginu ef kosið yrði nú.
Winnie vill
bjarga hjóna-
bandinu
LÖGFRÆÐINGAR Winnie
Mandela sögðu í gær að hún
myndi ekki failast á skilnað
við Nelson Mandela, forseta
Suður-Afríku, þar sem hún
teldi að hægt væri að bjarga
37 ára hjónabandi þeirra. Þeir
sögðu hins vegar að ef dóm-
stóll í Jóhannesarborg sam-
þykkti skilnaðarbeiðni forset-
ans vildi hún fá helming eigna
hans.
Óeirðir í
Nairobi
ÓEIRÐALÖGREGLAN í
Kenýu særði tvö ungmenni
þegar hún reyndi að binda enda
á átök stríðandi ættbálka í fá-
tækrahverfí í Nairobi í gær.
Þetta er þriðji dagurinn í röð
sem slík átök blossa upp í
hverfinu og þau hafa kostað
fjóra menn lífíð.