Morgunblaðið - 18.10.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 19
í landi Kastrós
KVIKMYNPIR
Háskólabíó
Jarðarber og- súkkulaði
„Fresa y Chocolate" ★ ★ V4
Leiksljórar: Tomas Gutíerrez og Ju-
an Carlos Tabio. Handrit: Senai Paz.
Aðalhlutverk: Jorge Perugorría,
Vladiinir Cruz, Mirta Ibarra og
Francisco Gatomo. Kúba. 1994.
ÞAÐ er ekki oft sem berast kúb-
anskar myndir til landsins og því
er fengur að Jarðarbeijum og
súkkulaði, ágætri
kúbanskri bíómynd
sem útnefnd var til
Óskarsverðlauna.
Hún segir á raun-
sannan og fallegan
og alltaf svolítið
kómískan hátt frá
vináttusambandi
sem myndast á
milli ungs komm-
únista og mennta-
manns sem er
hommi og fellur illa
inn í samfélag
Kastrós. Hún er
alls ekki gagnrýni-
laus á skipan mála
í landinu en ádeilan
er sett fram á
hófstilltan og
æsingalausan máta. Það er t.d.
eðlilegasti hlutur í heimi að setja
á tónlist ef ræða skal eitthvað sem
skiptir máli því eftirlitsþjóðfélagið
blómstrar. Það er ekkert gert með
það frekar. Svona er lífið.
Myndin, sem Tomas Gutierrez
og Juan Carlos Tabio leikstýra, er
um vináttu tveggja manna sem á
yfirborðinu virðast ósamrýmanleg-
ir. Davíð er ungliði í kommúnista-
samtökunum og hefur fyrirlitningu
á hommum og kynnist hommanum
Diego fyrst betur þegar hann
ákveður að njósna um hann fyrir
samtökin. Hann heillast með tím-
anum af Diego, sem er ástríðufull-
ur menntamaður og sannkallaður
heimsmaður er opnar unga mann-
inum veröld kúbanskra höfuð-
skálda. Smátt og smátt breytist
tortryggni og fjandskapur í vin-
semd og djúpa virðingu og vináttu.
Þetta er kannski óður til gagn-
kvæms umburðarlyndis en niður-
staðan er sú að þótt það rúmist á
endanum á milli tveggja einstakl-
inga er ekki pláss fyrir það í landi
Kastrós. Þar gildir aðeins einn
lífstíll.
Jarðarber og súkkulaði er einkar
lítil um sig, einföld að allri gerð
og gerist að mestu í íbúð Diegós.
Aðalpersónurnar eru þijár, homm-
inn og komminn og vinkona þeirra,
Nancy, kona á miðjum aldri sem
reynist kommanum happafengur.
Allar eru persónurnar skemmtilega
leiknar. Sérstaklega gustar af
Jorge Perugorría í hlutverki Die-
gos, hins lífsglaða menntamanns
og homma. Vladimir Cruz er dulur
og vandræðalegur Davíð og Mirta
Ibarra er lostafull sem Nancy.
Þetta er glaðvær hópur í skemmti-
legri mynd með alvarlegum undir-
tóni.
Arnaldur Indriðason
ATRIÐI úr myndinni Jarðarber og
súkkulaði frá Kúbu.
landskiiyin r f ri;%
öi\gatj °kJt>a»Ptyti
Núna bjóðum við
þessar dönsku
umhverfisvænu
frystikistur á verði
sem allir ráða við.
Hólf og gólf, afgreiösla 515 4030
562 9400
Almenn afgreiösla 568 9400
Verstun, Breiddinni. Kópavogi:
Grænt símanúmer BYKO
26/\í/r
/./.856
Ritgerðarsam-
keppni ungs fólks
Veitt
verðlaun
VERÐLAUN í ritgerðarsamkeppni
ungs fólks, sem efnt var til í til-
efni af átaki Evrópuráðsins, Nor-
rænu ráðherranefndarinnar og
menntamálaráðuneytisins gegn
kynþáttafordómum og útlendinga-
ótta, verða veitt á morgun,
fimmtudag, 10. október.
Samkeppni þessi er liður í sam-
norrænu verkefni og er hún haldin
samtímis á öllum Norðurlöndum.
Haft hefur verið samstarf við
stærstu dagblöð Norðurlanda
vegna hennar.
Fyrirhugað er að birta verð-
launaritgerðirnar í dagblöðum og
að þær verði í sameiningu þýddar
og gefnar út á öllum Norðurlanda-
málum.
Landsnefnd íslands, sem að
verkefninu stendur fyrir hönd
menntamálaráðuneytisins og
Æskulýðssamband Islands, sem
hefur annast þetta tiltekna verk-
efni stendur fyrir verðlaunaaf-
hendingunni í Norræna húsinu
næstkomandi fimmtudag kl. 16.
Formaður dómnefndar, Einar
Már Guðmundsson rithöfundur,
mun gera grein fyrir starfi nefnd-
arinnar.
Björn Bjarnason menntmálaráð-
herra afhendir verðlaunin, en veitt
verða sjö verðlaun.
Þrjár nýjar
og spífímm/
Við kynnum Diet pítusósuna, eggjalausa og
kólesterólskerta fyrir þá sem vilja léttari pítusósu,
sterka sinnepið fyrir þá sem vilja aðeins það sterkasta
og Salsa sósuna fyrir alla sælkera sem hafa dálæti á
mexíkönskum mat.
Sósurnar fást í öllum helstu matvöruverslunum.
Verði ykkur að góðu.
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525