Morgunblaðið - 26.10.1995, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hag-yrð-
ingakvöld
í Deiglunni
HEITIR fimmtudagar hefja göngu
sína á ný í Deiglunni í kvöld,
fimmtudagskvöldið 26. október,
en þá munu hagyrðingar leiða
saman skáldfáka sína undir styrkri
stjórn Málmfríðar Sigurðardóttur.
Hagyrðingar að þessu sinni eru
Erla Guðjónsdóttir frá Seyðisfirði,
Jóhannes Sigfússon frá Gunnars-
stöðum í Þistilfirði og Friðrik
Steingrímsson úr Mývatnssveit.
Hörður Kristinsson leikur á harm-
onikku og Steinunn Sigurðardóttir
les upp. Dagskráin hefst kl. 20.30
og er öllum heimill aðgangur.
í næsta mánuði verða m.a.
danstónleikar, fyrirlestur Heimil-
isiðnaðarskólans, djasstónleikar
og bókakynning á dagskrá heitra
fimmtudaga.
Morgunblaðið/Kristján
Höfði hf. hefur fjárfest í strauvélasamstæðu, sem gerir fyrirtæk-
inu kleift að bjóða viðskiptavinum sínum upp á fljótlegri og
ódýrari lausn sinna mála. A myndinni er Kristin Ragnarsdóttir,
starfsmaður, að raða borðdúkum í strauvélina.
„Færumst 20-30 ár
framítímann“
HÖFÐI hf. þvottahús-fatalitun,
hefur tekið í notkun strauvéla-
samstæðu, sem fyrirtækið keypti
notaða frá Danmörku. Um er að
ræða innsetningarvél, strauvél
og brotvél. Vélin straujar og
brýtur allt lín, borðdúka, sæng-
urver, lök og önnur ofin efni.
Einnig hefur Höfði fjárfest í
þurrkskáp fyrir vinnusloppa,
sem bæði þurrkar og pressar
sloppa. Björgvin Yngvason, hjá
Höfða, segir að með þessum
tækjakaupum hafi fyrirtækið
færst 20-30 ár fram í tímann, sé
miðað við þau tæki sem notuð
hafa verið í þessari starfsgrein
hérlendis.
Aukin umsvif fyrirtækisins
„Þetta er eina einkarekna fyr-
irtækið hér á landi sem hefur
yfír slíkum vélakosti að ráða og
aðeins Rikisspítalamir eru með
fullkomnari vélar. Notkun þessra
véla sparar mikla vinnu. Þetta
gerir okkur einnig kleift að bjóða
viðskiptavinum upp á ódýrustu
lausnina sem völ er á. Það er
eins með þennan iðnað og annan,
mestu máli skiptir að gera hlut-
ina fljótt, vel og ódýrt,“ segir
Björgvin.
Höfði er til húsa að Hafnar-
stræti 34, i nýlegu 340 fermetra
húsnæði, sem byggt var á aðeins
58 dögum.
Umsvif fyrirtækisins hafa auk-
ist jafnt og þétt. Hjónin Björgvin
Yngvason og Bima Hermanns-
dóttir, keyptu fyrirtækið árið
1988 og frá þeim tíma hefur
veltuaukningin verið 130-140%
og mest síðustu tvö ár.
Villibráðardagar í Skrúði
fimmtudags-, föstudags-, laugardags-: og sunnudagskvöld
Á hlaðborðinu verður mikið úrval girnilegra forrétta og aðalrétta eins og
hreindýrasteikur, villigæsir, rjúpur, lundar, súlur og lax auk fjölbreytts
meðlætis og spennandi eftirrétta. Leikin verða létt lög
á píanó á meðan á borðhaldi stendur.
Verð 2.900 kr. Borðapantanir í síma 552 9900.
■þín sagal
SAGA
Póstur og sími
ætlar að byggja
í Þorpinu
PÓSTUR og sími hyggst koma
upp póstþjónustu í Glerárþorpi á
Akureyri. Eins og kom fram í
Morgunblaðinu í gær, hefur fyrir-
tækið falast eftir byggingarlóð
undir pósthús á svokölluðu mið-
svæði, neðan við Tjölbýlishús Fé-
lags aldraðra við Lindarsíðu.
Ársæll Magnússon, umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Norður-
Iandi, segir að fyrirtækið hafi
fullan hug á að hasla sér völl í
Þorpinu. Hins vegar hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvenær
hafist verður handa við að byggja
á umræddu svæðí. Stærð hússins
liggur heldur ekki endanlega fyrir
en hönnunarvinna er nú að fara í
gang.
Aðkoman í
miðbænum erfið
Öll aðkoma að pósthúsinu í
miðbæ Akureyrar er mjög erfið
og lítið um bílastæði og segir
Ársæll að með tilkomu nýs póst-
húss í Þorpinu myndu umsvifin í
miðbænum að sama skapi dragast
saman. íbúar í Glerárþorpi hafa
lengi vonast eftir póstþjónustu á
sitt svæði en þeir þurfa alla jafna
að sækja hana í miðbæinn.
„Það hefur ekki verið mikil
pressa frá íbúum Glerárþorps um
bætta þjónustu nú seinni ár en
hún var aftur meiri fyrir nokkrum
árum. Á þessu stóra svæði er
sérstakt póstnúmer og það er orð-
ið tímabært að koma þar upp
pósthúsi,“ segir Ársæll.
Póstur og sími er með starfsemi
við Fjölnisgötu í Glerárþorpi. Þar
eru teiknistofa, birgðadeild, hú-
slagna- og sérbúnaðardeild og
jarðsímadeild til húsa en Ársæll
segir að tilkoma nýs pósthúss þar
skammt frá, komi ekki til með
að hafa nein áhrif á þann rekstur.
Þjónustukjarni
og íbúðir
Logi Einarsson, arkitekt á
skipulagsdeild Akureyrar, segir
ekki ljóst á þessari stundu hvenær
hægt verður 'að hefja bygginga-
framkvæmdir á miðsvæðinu en
stefnt sé að því að það verði sem
fyrst.
„Við munum hitta fulltrúa
Pósts og síma einhvern tíma á
næstunni og gera þeim grein fyr-
ir þeim hugmyndum sem eru uppi
varðandi þetta svæði. Þarna er
gert ráð fyrir bæði þjónustu-
kjarna og íbúðum og þótt best
væri að svæðið yrði allt byggt upp
í einu, er það þó ekki nauðsyn-
legt,“ segir Logi.
• Á bifreiöaverkstæöum þar sem félagsmenn okkar starfa eru
þeir klæddir sérstökum vinnufatnaöi með merki Bíliðnafélagsins.
• Merkiö tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka
og hefun aðgang að endurmenntun á sínu sérsviði.
Láttu ekki bilinn þinn í hendurnar á hverjum sem er
-------------—• Það gæti oröið þér dýrt