Morgunblaðið - 04.11.1995, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
FRÉTTIR: EVRÓPA
Morgunblaðið/Sigurjón
SUNNUBERG GK kom með 800 tonn af loðnu til Bolungarvíkur í gærmorgun. ^
Nokkur skipanna með
fullfermi í einu kasti
ísafirði. Morgunblaðið.
FYRSTA loðnan sem berst
til Bolungarvíkur á þessari
vertíð kom með Sunnuberg-
inu frá Grindavík í gærmorg-
un. Sunnubergið landaði 800
tonnum, sem fengust 50 míl-
ur norðaustur af Straumnesi
og Örn KE landaði 8-900
tonnum eftir hádegi í gær.
Magnús Þorvaldsson, skip-
stjóri á Sunnuberginu, sagð-
ist í samtali við blaðið vera
bjartsýnn á veiðarnar nú þó
svo að ekki væri víst að loðn-
an skilaði sér öll á þessari
vertíð. Sjö skip voru á miðun-
um út af Vestfjörðum í gær
og fór þeim fjölgandi.
„Þetta var fyrsta löndunin okkar
á þessari vertíð. Við fórum frá
Grindavík á miðvikudag og beint á
miðin út af Vestfjörðum. Það var
talsvert magn af loðnu á svæðinu
á fimmtudag, en það var yfírleitt
djúpt í hana. Það var einn stór
flekkur uppi frá hádegi í gær og
allir bátamir sjö voru í þeim flekk,“
sagði Magnús Þorvaldsson, skip-
stjóri á Sunnuberginu í samtali við
blaðið í gær.
Eðlileg haustloðna
Magnús sagði að um morguninn
hefði loðnan verið mjög djúpt en
upp úr hádegi hefði hún verið kom-
inn upp að 10 föðmum. „Það voru
fisktittir undir loðnunni og þeir
lyftu henni upp. Þær aðstæður
koma fyrir, þó svo að þær séu ekki
algengar. Þetta var mjög falleg
loðna, mjög eðlileg haustloðna.
Mönnum bar saman um það á Al-
bert GK, sem var búinn að fara
einn túr áður, að þetta væri falleg
loðna. Það var t.d. ekkert um smá-
loðnu í aflanum. Við erum því bjart-
sýnir á að loðnan hafi lifað af síð-
asta vetur og að það eigi eftir að
skila sér, hvort það verður í beinu
framhaldi af þessu eður ei, veit
maður ekki en vonar þó að svo
verði.“
Magnús sagðist sigla beint á
góðri veiði nóttina áður. „Það
var góð veiði í nótt en köstin
voru smærri en í gær. Við
fengum t.d. 800 tonn kast og
Júpíter fékk rúm 1.000 tonn
í einu kasti. Við vorum búnir
að fá 200 tonn þegar 800
tonna kastið kom og létum
við því Albert hafa afganginn.
Ég reikna ekki með að fylla
skipið aftur í einu kasti, það
gerist aldrei tvo daga í röð,“
sagði Magnús Þorvaldsson,
sem sagðist gera ráð fyrir að
skipum myndi Qölga á svæð-
inu næstu sólarhringana.
„Verðið er ekki gott fyrir
loðnuna í dag, það er verið
að taia um einhverja krónu-
hækkun frá því í fyrra á sama tíma
og verð á mjöli og lýsi hefur rokið
upp. Það vantar mikið á það að
verð til skipanna hafi fylgt þeirri
þróun sem hefur orðið siðustu mán-
uðina í afurðaverði. Ég held að
bræðslurnar eigi von á einhverri
veislu á miðunum og þess vegna
fari verðið svona rólega. af stað.“
Unnið á vöktum
„Sunnubergið var að landa hér
800 tonnum og Örn KE er að koma
eftir hádegi með 8-900 tonn. Þetta
magn dugar okkur í 4-5 sólarhringa
miðað við að unnið sé allan sólar-
hringinn. Við reynum að taka loðnu
til bræðslu eftir hendinni, þannig
að haldi veiðin áfram, verður um
fleiri landanir að ræða hér í næstu
viku,“ sagði Einar Jónatansson,
framkvæmdastjóri Loðnubræðsl-
unnar Gnáar hf. í Bolungarvík.
Einar sagði að unnið yrði á vökt-
um vöktum allan sólarhringinn og
miðað við þá vinnu væri afkastaget-
an um 400 tonn á sólarhring. „Það
hefur verið gott verð á afurðunum
sem og góðar markaðsaðstæður.
Þvf vonum við að næg atvinna verði
á næstu vikum,“ sagði Einar. Sex-
tán manns starfa hjá fyrirtækinu i
dag og ljóst er að peningalyktin er
farin að berast um vit Bolvíkinga
þessa dagapa.
Peningalyktin
farin að finnast í
Bolungarvík
Loðnuveiðin
f/ali g
KoUu- Skaf-a-
\ grunn v ' grunn -
K. / ( 'Siglufjörður
Loðnan veiðist
ým 50 sjómílur
N aí Straumnesi.
Skipin landa nú
flest í Bolungarvík
og á Siglufirði
sama stað og reiknaði með að sigl-
ingin tæki um sex klukkustundir
frá Bolungarvík. Hann sagðist ekki
hafa heyrt í öðrum skipum á svæð-
inu en hafði þó fengið fregnir af
Magnús Þorvaldsson Einar Jónatansson
Hertar reglur
til að slá á yfir-
lýsingagleði
Brussel. Reuter.
DEILURNAR vegna bókarskrifa
Ritt Bjerregaard verða að öllum lík-
um til að framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins setji reglur um
þagnarskyldu þeirra, sem í henni
sitja. Reglurnar verða birtar form-
lega innan skamms og mun vænt-
anlega felast í þeim að fulltrúum í
framkvæmdastjórninni verður bann-
að að rita greinar eða flytja ræður
gégn greiðslu eða gjöfum.
Þá munu þeir fulltrúar sem hyggja
á bókaskrif um eigin störf eða störf
framkvæmdastjórnarinnar og stefnu
verða að fá Jacques Santer, forseta
framkvæmdastjórnarinnar, til að
samþykkja handritið fyrir útgáfu.
„Vandinn er að framkvæmda-
stjórnin verður að koma fram sem
ein heild og til að það megi verða
verður að eiga sér stað innri sam-
ræming," sagði talsmaður á vegum
framkvæmdastjórnarinnar. Hann
sagði að enginn ágreiningur hefði
verið um málið er það var tekið til
umræðu og gaf þar með í skyn að
Bjerregaard væri reiðubúinn að
breyta hegðunarmynstri sínu.
Nær einnig til æðstu
embættismanna
Það vakti mikla reiði meðal sam-
starsfmanna hennar er í ljós kom
að hún hafði ritað bók þar sem hún
gagnrýnir harðlega nafngreinda
menn innan ESB og leiðtoga aðild-
arríkja. Þá hefur hún ritað pistla í
dönsk dagblöð og þegið gjafir fyrir
að halda ræður. Einnig olli það deil-
um í september sl. er háttsettur
embættismaður, hagfræðingurinn
David Connolly, ritaði bók þar sem
hann tætir í sig áform sambandsins
um sameiginlegan gjaldmiðil. Hon-
um hefur verið vikið tímabundið úr
starfí og er mál hans til rannsóknar.
Talsmaðurinn sagði að reglurnar
um framkvæmdastjórnina myndu
einnig ná til æðstu embættismanna
á borð við Connolly.
Arangur í
viðskipta-
viðræðum
MICKEY Kantor, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjórnar, og Sir Leon
Brittan, sem fer með utanríkisvið-
skiptamál i framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, heilsast í
upphafi venjubundinna viðskipta-
viðræðna ESB og Bandaríkjanna
í Washington fyrr í vikunni. Að
viðræðunum loknum sögðust þeir
sammála um að þær hefðu verið
árangursríkar og að þokazt hefði
í átt til samkomulags um hvernig
bandarískum útflytjendum yrði
bætt það óhagræði, sem þeir urðu
fyrir vegna inngöngu þriggja
EFTA-ríkja í ESB um seinustu
áramót. ESB hefur samið við ýmis
ríki um tollkvóta vegna hækkaðra
tolla á mörkuðum í Svíþjóð,
Austurríki og Finnlandi. Þannig
var nýlega samið við ísland um
tollfijálsan innflutningskvóta.
Brottrekstur vegna
V SK-ágreinings
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins hefur ákveðið að víkja
Peter Wilmott, háttsettum embætt-
ismanni er hafði yfirumsjón með
þróun nýs virðisaukaskattskerfis, úr
starfi.
Wilmott, sem er Breti, var yfir-
maður deildar er sá um tollamál og
óbeina skattheimtu. Var ákvörðunin
um að víkja honum úr starfi tekin
samhljóða.
„Það er skylda framkvæmda-
stjórnarinnar að sjá til að markmið
hennar nái fram að ganga þó svo
að á stundum krefjist það þess að
óþægilegar ákvarðanir séu teknar,“
sagði Mario Monti, sem sér um
málefni innri markaðarins, á blaða-
mannafundi.Wilmott hafði verið yfir
skatfadeildinni í fimm ár og er
ástæða brottrekstursins talin vera
mikill skoðanaágreiningur á milli
hans og Montis um mótun nýja
VASK-kerfisins. Samkvæmt nýja
kerfinu verður virðisaukaskatturinn
innheimtur í því ríki sem vara kem-
ur upprunalega frá. Þetta myndi
hins vegar að öllu óbreyttu leiða til
að skatttekjur útflutningsríkja
myndu stóraukast á kostnað þeirra
ríkja sem flytja inn meira frá öðrum
ESB-ríkjum en þau flytja út.Mark-
mið framkvæmdastjórnarinnar er að
byggja kerfi sem jafnar út tekjurnar
af virðisaukaskatti þannig að ríki fái
það hlutfall í sinn hlut _sem nemur
innanlandsneyslu. Ágreiningur
Wilmotts og Montis snerist fyrst og
fremst um hvernig ætti að útfæra
slíkt kerfi. Sérfræðingar eru flestir
þeirrar skoðunar að þrátt fyrir að
sjónarmið Montis verði nú ofan á
sé verkefnið það flókið að þetta eigi
áfram eftir að verða deilumál innan
framkvæmdastjórnarinnar um tölu-
verðan tíma.
DUBLINARDAGAR I BENETTON
0PIÐ SUNNUDAG KL. 13-17 20%Æ"“ur„
8 benert
on
Laugavegi 97, sími 552 2555