Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/LESROK/D 270. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Berlusconi sætir nýrri rannsókn Fyrirtæki hans sökuð um að hafa mútað Bettino Craxi Róm. Reuter. SILVIO Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sagði í gær að hann sætti rannsókn vegna meintra brota á lögum um fjár- mögnun flokka. Daginn áður höfðu fyrirtæki Berlusconis verið sökuð um að hafa mútað Bettino Craxi, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtoga Sósíalistaflokksins. Berlusconi sagði að rannsóknar- dómarar hefðu boðað hann á sinn fund til að yfirheyra hann. „Ég held að ég mæti ekki þar sem ég sé enga þörf á að hitta menn sem vilja aðeins skaða mig,“ sagði for- sætisráðherrann fyrrverandi. Berlusconi verður sóttur til saka í janúar vegna annars máls, meintra mútugreiðslna fjölmiðla- veldis hans, Fininvest, til skatt- ránnsóknamanna. Hann hefur þó ávallt vísað sakargiftunum á bug og sakað rannsóknardómara í Mílanó um pólitíska herferð gegn sér. Berlusconi varð fyrir enn einu áfallinu í fyrradag þegar dómari í Mílanó gaf út handtökuheimild á hendur Giorgio Vanoni, fjármála- stjóra erlendra dótturfyrirtækja Fininvest. Vanoni er grunaður um að hafa séð um að koma mútum til Craxi. Dómarinn gaf einnig út fyrirmæli um handtöku Craxi, sem er í útlegð í Túnis, og tveggja að- stoðarmanna hans. „Síðasta stórorrustan milli rann- sóknardómaranna og Silvios Ber- lusconis er hafin,“ sagði dagblaðið La Stampa i forystugrein á forsíðu. Víki fyrir Fini Berlusconi kvaðst í gær ekki ætla að draga sig í hlé sem leið- togi hægriflokkanna. Ásakanirnar gætu þó valdið honum miklum álitshnekki og skaðað hægriflokk- ana í næstu þingkosningum, sem búist er við að verði á næsta ári. Hægrimaðurinn Mirko Tre- maglia, þingmaður Þjóðarbanda- lagsins, samstarfsflokks Berlusc- onis, hvatti hann til að draga sig í hlé og víkja fyrir Gianfranco Fini, leiðtoga Þjóðarbandalagsins, sem forsætisráðherraefni hægriflokk- anna. Berlusconi sagði það ekkert leyndarmál að hann hefði verið náinn vinur Craxi. Fyrirtæki hans hefðu þó aðeins stutt Sósíalista- flokkinn með löglegum hætti, t.a.m. með því að veita honum afslætti af verði auglýsinga. „ 1111 *"»in Niv, ' M>\ ( OTlsÉg V!MTívt Reuter Ríkis- starfs- menn mótmæla FRANSKIR ríkisstarfsmenn efndu til sólarhrings verkfalls í gær til að mótmæla fyrir- huguðum breytingum á vel- ferðarkerfinu. Varð mikil röskun á samgöngum í lofti og á láði og starfsemi lagðist nið- ur í skólum, sjúkrahúsum, pósthúsum og fleiri opinberum stofnunum. Samkvæmt skoð- anakönnunum er töluverður meirihluti Frakka samþykkur umbótum á velferðarkerfinu, sem rekið er með gífurlegum lialla, en tvö stærstu verkalýðs- félögin í Frakklandi hafa boð- að til annars verkfalls á þriðju- dag. Jacques Barrot félags- málaráðherra sagði í gær, að ríkisstjórnin myndi í engu hopa enda væri ekki annarra kosta völ en (h’aga úr halla- rekstrinum. Á myndinni er verkfallsmaður búinn sem gömul kona og á spjaldinu stendur, að hann krefjist þess að geta lifað sómasamlega í ellinni gegn því að leggja fram 2% af launum sínum árlega. Bosnískir o g króatískir hermenn bornir þungum sökum Stöð SÞ rænd og hús Serba brennd Pólsku kosningarnar 650.000 mótmæli berast Varsjá. Reuter. RÚMLEGA 650.000 kjósendur hafa sent hæstarétti Póllands mótmæli og krafist þess að forsetakosning- arnar sl. sunnudag verði dæmdar ógildar vegna meintra kosninga- svika. Þeir segja einnig sigurvegar- ann, Aleksander Kwasniewski, hafa villt um fyrir kjósendum með ósann- sögli um menntun sína. Kwasniewski sagðist hafa há- skólapróf í hagfræði en háskólinn í Gdansk skýrði hins vegar frá því viku fyrir kosningarnar að hann hefði ekki verið brottskráður. Stuðningsmenn Kwasniewskis höfðu lagt áherslu á að hann væri menntaðri og hæfari til að gegna forsetaembættinu en Walesa. „Þetta kann að virðast lítilfjör- legt mál en staðreyndin er sú að í skoðanakönnunum sögðu 36% kjós- enda að menntun vægi einna þyngst þegar valið væri á milli frambjóð- endanna," sagði Boguslaw Kow- alski, talsmaður Walesa. Hann sagði aðstoðarmenn Walesa einnig hafa bent á 56 skráð dæmi um misferli eða tilraunir til kosninga- svika. Hæstiréttur hefur frest til 9. desember til að úrskurða í málinu og lögfræðingar telja að kosning- arnar verði ekki dæmdar ógildar. Hjónum leyft að skilja? ÍRAR gengu í gær til atkvæða um hvort breyta ætti stjórnarskránni og binda enda á 70 ára bann við hjónaskilnuðum. Skoðanakannan- ir fyrir atkvæðagreiðslu þjóðar- innar bentu til þess að mjótt yrði á munum, en úrslitin eiga að liggja fyrir á hádegi í dag. Ríkisstjórnin og margir stjórn- arandstæðingar hvöttu kjósendur til að greiða atkvæði með sljórn- arskrárbreytingunni en kaþólska kirkjan beitti sér mjög gegn henni. I samskonar þjóðar- atkvæðagreiðslu árið 1986 voru tveir þriðju kjósenda andvígir því að hjónaskilnaðir yrðu leyfðir. Á myndinni mæta írskar nunnur á kjörstað. BOSNÍSKIR stjórnarhermenn létu greipar sópa um eina bækistöð Sameinuðu þjóðanna í gær og frétt- ir eru um, að króatískir hermenn hafi rænt og brennt hús á svæði, sem afhenda á Serbum. Forseti þings Bosníu-Serba neitar enn að fallast á friðarsamningana og kallar þá svik. Chris Vernon, undirofursti og talsmaður friðargæsluliðsins, sagði, í samtali við fréttaritara Reuters, að bosnísku stjórnarhermennimir, 200 að tölu, hefðu ráðist inn í bæki- stöð 80 friðargæsluliða frá Bangla- desh í Velika Kladusa og stolið þar öllu steini léttara. Skutu þeir af byssum upp í loftið og höfðu meðal annars á brott með sér níu bryn- varða bíla, bensín og matvæli. Hef- ur þessum atburði verið harðlega mótmælt við stjórnina í Sarajevo. Króatar óánægðir Maríanna Csillag, hjúkrunar- fræðingur, sem starfar á vegum Rauða krossins í gömlu Júgóslavíu, segir mikla óánægju með friðar- samninginn meðal Króata. Þeir séu einkum óánægðir með að þurfa að gefa eftir landsvæði sem þeir náðu í Mið-Bosníu. Mjiríanna segir menn sammála um að samkomulagið feli ekki í sér neina lausn á málefnum flótta- mannanna. „Menn hafa ekki trú á því að flóttamenn geti snúið aftur. Þess eru dæmi að króatískir flótta- menn frá Bosníu hafi verið sendir aftur til „öruggra svæða“ í Bosníu frá Króatíu áður en samkomulagið náðist. Nú verður hluti þessa fólks að halda hrakningunum áfram því svæðin, sem það var sent til, féllu Bosníu-Serbum í skaut.“ v Króatar kveikja í húsum Reuter hafði eftir talsmanni SÞ, Alexander Ivanko, að króatískir hermenn hefðu rænt verðmætum úr húsum í Mrkonjic Grad og Sipovo í Norðvestur-Bosníu og brennt þau. Þessi svæði féllu í hendur Króötum og múslimum í haust en verða serbneskt svæði samkvæmt friðar- samningunum. William Perry, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í Vín í gær, að NATO-herliðið myndi halda uppi gæslu jafnt á svæði Serba sem múslima og Króata og yrði komið þangað fáum dögum eftir lokaund- irritunina í París. Sagði hann, að hún yrði snemma i desember. Momcilo Krajisnik, forseti þings Bosníu-Serba, neitar enn að fallast á friðarsamningana þótt svo virðist sem allir aðrir leiðtogar þeirra hafi heitið að framfylgja þeim. Hefur Krajisnik viðurnefnið „herra nei“ vegna afstöðu sinnar í fyrri friðar- viðræðum. Radovan Karadzic, leið- togi Bosníu-Serba, kvaðst í gær- kvöldi styðja samningana. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.