Morgunblaðið - 25.11.1995, Page 8
8 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995______________________
FRÉTTIR
ÞAÐ MÆTTU nú gjarnan vera fleiri opinberir „þurrkdagar" á árinu, Gunna mín ...
Nú bjóöum vlð
þýsku DETfl
rafgeymana á
tilboðsveröi
45 amp. áður 6.082 kr.
HV & °M f'V
60 amp. áður 6.104 kr.
nú 4.9 óó kiv
63 amp. áður 6.104 kr.
nú 4,966 tot
70 amp. áður 7.558 kr.
I allar algengari
tegundir fólksbilreiða
ogjeppa
ísetning á staðnum
H
þjónarþér
Staða LIN virðist sterk að mati
Ríkisendurskoðunar
Einn skuldar
14,6 milljónir
6,3 milljarðar afskrifaðir
af útistandandi lánum
LÁNÞEGAR Lánasjóðs íslenskra
námsmanna eru tæplega 32 þús-
und og útistandandi námslán
sjóðsins nema 38,5 milljörðum.
335 einstaklingar skulda meira en
sex milljónir króna í námslán hver
og hæsta skuld einstaklings við
sjóðinn er 14,6 milljónir króna.
Þetta kemur fram í úttekt Ríkis-
endurskoðunar á fjárhagsstöðu
LÍN. Þar segir ennfremur að sá
hópur sem skuldar meira en sex
milljónir sé um 1% allra lántak-
enda og samtals skuldi þeir tvo
milljar’ða króna, sem er um 5% af
útlánum LÍN.
LÍN getur staðið undir öllum
núverandi skuldbindingum
Fram kemur í úttekt Ríkisend-
urskoðunar að af útistandandi
námslánum hafi 6,3 milljarðar
verið færðir niður í ársreikningi
vegna lána sem talið er að ekki
verði innheimt að fullu vegna tak-
markana sem eru á endurgreiðsl-
um samkvæmt ákvæðum þeirra.
„Lánasjóðurinn getur staðið
undir öllum núverandi skuldbind-
ingum með eigin fé. Ef sjóðnum
hefði verið lokað í árslok 1994
gæti hann staðið við allar sínar
skuldbindingar án þess að þurfa á
frekari ríkisframlögum að halda,“
segir í skýrslu stofnunarinnar.
Um seinustu áramót nam eigið
fé sjóðsins 16,3 milljörðum. A
mælikvarða Bankaeftirlitsins og
svonefndra BlS-reglna var eigin-
fjárhlutfall sjóðsins 50,8% og virð-
ist staða sjóðsins því vera nokkuð
sterk að mati Ríkisendurskoðunar.
„Rétt er hins vegar að geta þess
að þá hefur ekki verið tekið tillit
til þess að meginhluti útistandandi
námslána ber enga vexti en í regl-
um Bankaeftirlitsins eru ekki
gerðar kröfur um núvirðingu.þess-
arar tegundar lána,“ segir í skýrsl-
unni.
Kostnaður ríkissjóðs lækkaði
úr 66% í 52% af veittum lánum
í athugun stofnunarinnar á fjár-
hagsstöðu sjóðsins, sem gerð var
1991, var kostnaður ríkissjóðs við
námslánakerfið talinn vera um
66% af veittum lánum miðað við
að eigið fé sjóðsins á hverjum tíma
nægi til að standa við skuldbind-
ingar vegna lána. Nú er þetta hlut-
fallið áætlað vera 52% af veittum
lánum. Ríkisendurskoðun telur þó
að kostnaður ríkissjóðs hafi verið
vanmetinn þar sem sjóðurinn hafi
undanfarin ár verið fjármagnaður
með hærri lánum en 6%, sem hef-
ur verið sú viðmiðun sem útreikn-
ingar hafa byggst á. Þannig mundi
sjóðurinn tímabundið þurfa á
hærra framlagi en 52% að halda
á allra næstu árum.
Fram kemur í skýrslunni að 72%
lántakenda skulda innan við 1,5
milljónir króna hver. Vanskil við
sjóðinn námu um 186 milljónum
króna um seinustu áramót. Telur
Ríkisendurskoðun að stærstu hluti
þessara vanskila muni innheimt-
ast.
MORGUNBLAÐIÐ
Bindindisdagur fjölskyldunnar
Það gera börnin
sem fyrir
þeimerhaft
BINDINDISDAGUR r—
fjölskyldunnar hef-
ur verið árlegur við-
burður frá árinu 1991.
Framkvæmd hans er í
höndum Stórstúku íslands
en fjöldi samtaka hefur ár-
lega komið að undirbúningi
dagsins. Tilgangurinn er að
knýja fólk til umhugsunar
um neikvæðar hliðar vímu-
efnaneyslU.
„Við erum ekki að skipa
fólki að hætta að drekka
áfengi. Hins vegar biðjum
við það að hugsa um þessi
mál í fullri vinsemd og líta
í eigin barm, fjölskyldunnar
og barnanna vegna,“ sagði
Eðvarð Ingólfsson, einn
þeirra sem standa að undir-
búningi dagsins. „Við leggj-
um sérstaka áherslu á að
menn verði að byija forvarnir
heima. Foreldrar eru mikilvægar
fyrirmyndir."
- Ér sýnilegur árangur af degi
sem þessum?
„Reynslan sýnir að t.d. lögregl-
an hefur ekki þurft að hafa eins
mikil afskipti af fólki vegna áfeng-
isdrykkju á bindindisdegi fjöl-
skyldunnar og aðra daga, þannig
að ég tel fullvíst að umræðan um
þessi mál hafi sitt að segja.“
- Er sérstök dagskrá í tilefni
dagsins?
„Það verður haldin mikil fjöl-
skylduhátíð í dag í Vinabæ (gamla
Tónabíói). Hún hefst kl. 15.30 og
þar mun Lína langsokkur til dæm-
is mæta, ræningjarnir úr Kard-
imommubænum og kórar syngja.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
hátíðina."
- Hvað er annað gert til að
minna á daginn?
„í gær stóðu unglingar fyrir
framan áfengisverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu, dreifðu miðum og
buðu fólkj upp á hollan og góðan
ávaxtadrykk í stað áfengis.
Krakkarnir voru um leið að minna
á sjálfa sig því þeir sem aðrir á
heimilum eru oft fómarlömb þeg-
ar misnotkun áfengis á sér stað.
Við höfum þó aðallega -vakið at-
hygli á deginum með greinaskrif-
um og umræðu í fjölmiðlum."
- Hefur neysla áfengis aukist
á þessu ári?
„Heildarneyslan hefur aukist
samkvæmt nýjustu sölutölum frá
ÁTVR. Sala sterkra drykkja hefur
dregist saman um 2%. Á móti
hefur léttvínsdrykkja aukist um
2%, en bjórneysla hefur aukist um
12%. Hins vegar er erfitt að gera
sér fyllilega grein fyrir umfang-
inu, m.a. vegna þess áfengis sem
berst inn í landið með ferðafólki,
skips- og flugáhöfnum og vegna
ólöglegs bruggs. Til dæmis áætlar
lögreglan að brugg ----------------
hafi verið selt fyrir um Misnotkun
einn^ miHjarð króna í áfengis bitnar
ym'Hvert er áiit oft á heimilum
bindindishreyfingar- —————
innar á lækkun lögaldurs til
áfengiskaupa úr 20 árum niður í
18 ár?
„Hún er á móti því. Byggist það
m.a. á áliti Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunar SÞ (WHO). Þar
er lögð áhersla á að heillavænleg
áfengismálastefna byggist bæði á
fræðslu og lagasetningu, enda
hafi hár aldur til áfengiskaupa,
hátt verð og hömlur á framboði
reynst hafa mikil áhrif til góðs.
Þetta telur stofnunin grundvall-
aratriði.
Reynsla frá Bandaríkjunum
Eðvarð Ingólfsson
►EÐVARÐ Ingólfsson fæddist
25. apríl 1960 í Reykjavík en
ólst upp á Hellissandi. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Egilsstöðum 1981 og emb-
ættisprófi í guðfræði frá HÍ í
október sl. Hann var blaðamað-
ur og ritstjóri Æskunnar 1982-
1990 og dagskrárgerðarmaður
hjá RÁS 1 og RÁS 2 í hluta-
starfi á árunum 1981-1986.
Hann hefur skrifað tíu ungl-
ingabækur og fimm ævisögur.
Eðvarð er kvæntur Bryndísi Sig-
uijónsdóttur leikskólakennara
og eiga þau tvö böm.
hefur sýnt að í kjölfar lækkunar
lögaldurs til áfengiskaupa, úr 21
ári allt niður í 18 ár, jukust alvar-
leg umferðarslys og dauðaslys
ungs fólks 18-20 ára. Einnig
fjölgaði slysum í aldurshópnum
16-17 ára, sem bendir til að
drykkja færist neðar þegar lögald-
ur lækkar. Þetta varð til þess að
aldur til áfengiskaupa var hækk-
aður aftur og er hann nú 21 ár
um gervöll Bandaríkin. í Ijós hefur
komið að dregið hefur úr slysum
hjá ungu fólki og áfengisneysla
þess hefur einnig minnkað."
- Hefur löggjafinn staðið vel
að áfengisvarnarmálum að ykkar
mati?
„Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unin samþykkti á sínum tíma að
hvetja til átaks gegn tjóni af völd-
um áfengis. 45 aðildarríki sam-
þykktu þátttöku í verkefninu, sem
fólst í að draga úr áfengisneyslu
um ‘A á árunum 1980-2000. Rík-
isstjórn íslands samþykkti árið
1988 að vera með í tilrauninni.
Þáverandi heilbrigðisráðherra,
Sighvatur Björgvinsson, stóð fyrir
ráðstefnu til að móta opinbera
stefnu í áfengismálum. Sett var á
laggirnar stjórnskipuð nefnd sem
undirbjó málið. Unnið var að
-------- frumvarpi til laga sem
menn vonuðu að lagt
yrði fyrir Alþingi. Það
hefur ekki ennþá verið
gert og hefur bindind-
ishreyfingin oftsinnis
gagnrýnt meðferð málsins. Nú er
tíminn að renna út.
Hún hefur einnig bent á að
veitingahúsum með leyfi til sölu
áfengis hefur fjölgað á árunum
1980 til dagsins í dag og gjöld
fyrir áfengisleyfi eru hlægilega
lág. Þá hafa ýmsir þingmenn tek-
ið undir, og jafnvel kvatt sér
hljóðs, varðandi verslunarfrelsi
með áfengi og nú síðast í sam-
bandi við lækkun lögaldurs. Það
virðist því vera í hróplegri mót-
sögn við þetta átak Sameinuðu
þjóðanna."