Morgunblaðið - 25.11.1995, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
390 þúsund tonn af loðnu enn óveidd
SR-MJÖL á Siglufirði hefur tekið á móti 34.300 tonnum af loðnu
það sem af er loðnuvertíð. Það er rúmlega helmingi meira magn
en SR-mjöl á Seyðisfirði, sem situr í öðru sæti, hefur fengið til
bræðslu.
Mest brætt á Siglufirði
Orri ÍS í vari á
Dýrafirði í hálfan
annan sólarhring
Sveifarás-
inn sveigju-
mældur
„VIÐ KOMUMST til ísafjarðar á
fimmtudagskvöld,“ segir Hörður
Guðbjartsson, skipstjóri á Orra ÍS.
„Þá var skipið búið að vera í vari á
Dýrafirði í hálfan annan sólarhring."
Eins og áður hefur verið greint
frá í Morgunblaðinu tók Stefnir ÍS
Orra í tog eftir að hann hafði orðið
fyrir vélarbilun á miðunum út af
Vestfjörðum um hádegi á þriðjudag.
Skipin urðu svo að leita vars vegna
veðurs.
Hörður segir að siglingin norður
fyrir hafi gengið ágætlega, þrátt
fyrir að sjö vindstig hafi verið á leið-
inni. Hann segir að ekki sé enn kom-
ið í ljós hversu miklar skemmdir séu
á vélinni: „Það er verið að sveigju-
mæla sveifarásinn og það er mikið
í húfi að niðurstaðan úr þeirri mæl-
ingu verði ekki slæm. Blokkin er
talsvert mikið skemmd, en sjálfsagt
verður hægt að gera við hana.“
Hann segir að ómögulegt sé að
segja hvenær skipið komist aftur út,
en Ijóst sé að kostnaðurinn aukist
hvern dag sem það dragist. „Þetta
skip aflar fyrir á annað hundrað
manns í frystihúsinu," segir hann.
„Það eru því ekki aðeins sjómennim-
ir sem verða fyrir vinnutapi."
ALLS hafa um 146 þúsund tonn
af loðnu borist að landi það sem
af er loðnuvertíð. Heildarloðnu-
kvótinn fyrir yfirstandandi fisk-
veiðiár nemur 536 þúsund tonnum
og eru því um 390 þúsund tonn
óveidd enn.
Tæplega 141 þúsund tonn af
loðnu hafa borist að landi með
íslenskum skipum og rúmlega
fimm þúsund tonnum hefur verið
landað úr erlendum skipum.
Af þeim fjórtán loðnuverk-
smiðjum, sem taka á móti loðnu
nú, hefur mest magn borist að
landi á Siglufirði. Þannig hefur
SR-mjöI hf. á Siglufirði tekið á
móti 34.300 tonnum. Næst kemur
SR-mjöl hf. á Seyðisfirði með
16.600 tonn. Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar hf. hefur tekið á móti
12.900 tonnum og Haraldur Böð-
varsson hf. á Akranesi nokkru
minna eða rúmum 12.300 tonnum.
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
og Hraðfryst.ihús Eskifjarðar eru
hvort um sig að nálgast 12.000
tonna markið. Yfir 9.000 tonn af
loðnu hafa borist í Krossanesverk-
smiðjuna á Akureyri, einnig til
SR-mjöls hf. á Raufarhöfn ogtil
Fiskimjöls og Lýsis hf. i Grinda-
vík. Gná hf. í Bolungarvík hefur
fengið 7.300 tonn. SR-mjöI á Reyð-
arfirði hefur fengið til bræðslu
rúm 2.200 tonn, Osland hf. á Höfn
tæp 1.700 tonn og Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum tæp 1.300 tonn.
Marel með 90% markaðshlutdeild á austurströnd Rússlands
Þúsundasta sjó-
vogin til Rússlands
MAREL náði nýlega þeim áfanga
að selja þúsundustu sjóvogina til
Rússlands. Um var að ræða sjóvog
af gerðinni Marel M-60 með 30 kg
vigtargetu, sem ætluð er fyrir
þorsk og alaskaufsa, og var hún
seld til Norður-Kurileyja sem liggja
að rússnesku Kyrrahafsströndinni.
„Marel hefur verið leiðandi í þró-
un sjóvogar með hreyfiaðlögun við
vigtun um borð í skipum, en mis-
ræmi myndast við hreyfingar skips-
ins með hefðbundinni vigtun,“ seg-
ir Lárus Ásgeirsson, markaðsstjóri
Marel. Hann segir að Marel sjóvog-
in geri það að verkum að vigtun
og vinnsla um borð verði jafnná-
kvæm og í landi.
Frumgerð Marel sjóvogarinnar
er frá árinu 1985 og fyrsta afhend-
ing fór fram árið 1986. Síðan þá
hefur Marel afhent á þriðja þúsund
skipavogir til rúmlega 30 landa.
Helstu kaupendur sjóvogarinnar í
Rússlandi hafa tilheyrt krabba-
veiðiflotanum á Kyrrahafi, en vogin
hefur nýst þeim til að auka afurða-
verðmæti og minnka yfirvigt.
Borgar sig upp
á nokkrum dögum
1 „Nákvæmni Marel sjóvogarinnar
útilokar að mestu yfirvigtina sem
fylgir hefðbundinni vigtun," segir
Lárus. „Dæmi eru um það að við
vigtun á verðmætum afurðum, t.d.
hrognum og krabba, hafi vogin
borgað sig upp á nokkrum dögum
vegna minni yfirvigtar í pökkum.“
Hann segir að sovésk og síðar
rússnesk fiskiskip hafi í flestum
tilvikum valið Marel sjóvogir og
salan hafi náð hámarki þegar um-
fangsmikil endurnýjun togaraflot-
ans hafi átt sér stað árið 1991.
„Vogavæðing rússneska flotans
hefur átt sér stað undanfarin ár
og Marel hefur sinnt mörgum af
stærstu raðsmíðaaverkefnum rúss-
neskrar útgerðar,“ segir hann. „Á
austurströnd Rússlands er mark-
aðshlutdeild Marel um 90% í skipa-
vogum.“
Marel hefur boðið upp á sjóvogir
í Rússlandi fyrir ýmsar tegundir
físks. „Auk krabbans má nefna
þorsk, ufsa, ufsahrogn, iúðu og
kyrrahafglax," segir Lárus. „Rúss-
neskir kaupendur hafa verið fljótir
að taka við sér þegar Marel hefur
komið fram með nýjungar eins og
mjúktækan flokkara fyrir við-
kvæmar afurðir, t.d. hrognasekki."
Fjölskylduspilið sem brúar ky n s I ó ð a b i I i ð
Rummikub - Mest selda fjölskylduspil í heiminum Dreifing: Sími 565 4444
FRÉTTIR: EVRÓPA
Eistland sækir
um ESB-aðild
Tallinn. Reuter.
EISTLENDINGAR undirrituðu í
gær formlega aðildarumsókn að
Evrópusambandinu, ESB. Kváðust
þeir vongóðir um að þeim yrði jafn-
vel veitt aðild á undan öðrum um-
sækjendum.
„I dag stigum við stórt skref í
átt að því að ganga frá einu mikil-
vægasta utanríkismáli sjálfstæðs
Eistlands," sagði Tiit Vaehi forsæt-
isráðherra þegar hann hafði undir-
ritað aðildarumsóknina að viðstödd-
um fréttamönnum.
Annað Eystrasaltsríkjanna
þriggja, Lettland, hefur þegar sótt
um aðild að ESB, auk Póllands,
Ungveijalands og Slóvakíu. Tékkar
hafa sagst munu leggja inn aðildar-
umsókn í janúar nk.
Vaehi sagðist í gær vongóður um
að Eistlendingum yrði veitt aðild.
„Eistland uppfyllir þær kröfur sem
gerðar eru til umsækjenda mun
betur en mörg önnur ríki. Efnahag-
ur landsins er í jafnvægi og gjald-
miðillinn er tengdur þýska mark-
inu.“ Vaehi viðurkenndi hins vegar
að verðbólgan, sem búist er við að
verði um 30% í lok ársins, sé mun
meiri en ESB geri kröfu um og að
landið standist að því leyti ekki
skilyrði um aðild.
SÞ gagnrýnir ESB
vegna flóttafólks
Genf. Reuter.
FLOTTAMANNAHJALP Samein-
uðu þjóðanna (UNCHR) sagði í gær
að nýlegur úrskurður Evrópusam-
bandsins, ESB, í málefnum flótta-
manna, græfí undan alþjóðlegum
sáttmálum um meðferð fólks sem
sótt hefur um pólitískt hæli. Segir
stofnunin að úrskurðurinn kunni
að leiða til þess að réttindi flótta-
manna verði skert. Er þetta í annað
sinn á jafnmörgum dögum sem
UNCHR gagnrýnir ríki Evrópu fyr-
ir meðferð á flóttafólki.
Það sem Flóttamannahjálpinni
þykir svo gagnrýnivert er úrskurður
ráðherra ESB í Brussel á fimmtu-
dag, sem samræmir skilgreiningu
ESB á því hveijir teljist vera flótta-
menn. Segir UNCHR að ákvörðunin
sé tekin til að samræma reglur sam-
bandsins ströngum reglum nokk-
urra ríkja ESB; Frakklands, Þýska-
lands, Italíu og Svíþjóðar en þau
viðurkenna ekki að þeir sem flýja
ofsóknir annarra en ríkis, séu flótta-
menn.
Segir UNCHR að niðurstaða
ESB „svipti flóttamenn réttindum
sínum og kunni að verða til þess
að fjöldi þeirra njóti ekki nægrar
verndar." Niðurstaðan kunni að
leiða til þess að fólk geti ekki flúið
ofsóknir skæruliðahópa, svo sem
íslamskra bókstafstrúarmanna í
Alsír sem hafa ráðist gegn fijáls-
lyndum hópum og menntamönnum.
Kristileg
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, tók í gær á móti góðum
gestum, Alexy II patriarka, og
Alexíj biskupi rússnesku rétt-
Reuter
heimsókn
trúnaðarkirkjunnar, sem hefur
eflst talsvert frá hruni Sovétríkj-
anna. Þeir eru í fjögurra daga
opinberri heimsókn í Þýskalandi.
Ósáttir við innflutn-
ingsreglur ESB
Dakar. Reuter. *
ÚTFLYTJENDUR frá þróunar-
löndum sem sóttu iðnaðarráð-
stefnu Vestur-Afríkuríkja og Evr-
ópusambandsins, ESB, í Senegal
í gær, kvörtuðu undan því að inn-
flutningsreglur ESB sem taka
gildi um áramót, jöfnuðust á við
verndarstefnu og kváðust efast
um að þeir gætu keppt á slíkum
markaði.
„Framleiðsluvörur okkar eru
gæðavörur og oft úr náttúrulegum
efnum. Við framleiðum mikið af
landbúnaðarvörum án þess að nota
í þær auka litarefni. En þar sem
vörurnar falla ekki að evrópskum
stöðlum, eigum við í erfiðleikum
með að komast inn á evrópskan
markað,“ sagði fulltrúi Burkina
Faso.
Löndum frá Afríku, Karíbahafi
og Kyrrahafi sem gert hafa
sérkjarasamningina við Evrópu-
sambandið, er gert að standast lög
og reglugerðir þess um innflutning
fyrir árslok. Óttast mörg þessara
ríkja að þetta muni gera þeim út-
flutning til ESB-ríkja afar erfiðan.
)
>
>
)
l
)
\
\
i
i
I
I
l
I