Morgunblaðið - 25.11.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
KRANSINN er úr hálmstráum en einnig má
nota frauðhring. Mosinn er vafinn utan um
kransinn og ef þarf er hægt að festa hann bet-
ur niður með lykkjum úr blómavír.
FLEST festir Kolbrún niður
með blómavírslyklqum en
kúrbítssneiðar og leirpotta
festir hún með límbyssu.
í SÝNINGARKENNSLUNNI var hráefnið ekki
úðað. A tilbúna kransinum er hins vegar búið
að úða allt hráefnið og er það gert áður en
byrjað er að skreyta kransinn.
Hvítlaukur, kúrbítur
og kartöflur í krans
I STAÐ þess að vera með hefðbundinn aðventukr-
ans þetta árið hvemig væri að búa hann til úr
því sem til er í eldhúsinu? Það er í tísku að hafa
kransana sem náttúrulegasta og kannski ekki úr
vegi að nota t.d. lauka og kartöflur.
Kolbrún Jónsdóttir eigandi blómabúðarinnar
Irpu í Kópavoginum brást vel við þegar við fóram
þess á leit við hana að hún leiðbeindi lesendum
hvemig nýta mætti það sem fínnst í eldhúsinu
við gerð aðventukransa. Hún sagðist ekki hafa
gert slíkan aðventukrans áður þó svo að hún not-
aði ýmislegt úr eidhúsinu í veggkransa. „Að-
ventukransamir í ár era náttúralegir og stundum
bæði grófír og fínlegir, þ.e.a.s. blandað er saman
náttúralegu efni og fínlegu eins og t.d. gylltum
slaufum. Síðan era margir sem vilja bara hafa
kransinn sinn hefðbundinn og rómantískan í rauðu
og grænu.“
Það sem þarf í kransinn
• hálmhringur eða frauðhringur (oasis)
• blómavir
• mosieðagreni
• tómstundalakk
• 4 kertahöldur
• þurrkaðar kúrbítsneiðar
• þurrkaðar perusneiðar
• þurrkaðar kartöflur
• þurrkaðar rauðrófur ef vill
• kanilstangir
• þurrkaðar appelsínusneiðar
• rauðlaukur -
• hvítlaukur
• hnetur
• litlir leirpottar ef vill
Hvítlaukur og kúrbítur
„Það er margt í eldhúsinu sem má nota í skreyt-
ingar á við þessa, þurrkaður kúrbítur er tilvalinn,
appelsínusneiðar, þurrkaðar perar, kartöflur, rauð-
rófur, kanilstangir, rauðlaukur, hvítlaukur og til
dæmis hnetur."
Kolbrún segir að það megi með góðum árangri
þurrka ýmislegt og nota. Hún nefnir appelsínu-,
sítrónu-, og greipsneiðar, perasneiðar, kúrbít,
kartöflusneiðar, rauðrófur, chilipipar og ferskar
ananassneiðar. Það má bæði þurrka sneiðamar á
dagblaðapappír eða á miðstöðvarofni, í miðstöðv-
arherbergi þar sem heitt er eða jafnvel skella
ávöxtunum niðurskomum í bakaraofn ef hitinn
er ekki mikill.
Það sem þarf í kransinn
• hálmhringur eða frauðhringpir (oasis)
• blómavir
• mosieðagreni
• tómstundalakk
• 4 kertahöldur
• þurrkaðar kúrbítsneiðar
• þurrkaðar perusneiðar
• þurrkaðar kartöflur
• þurrkaðar rauðrófur ef vill
• kanilstangir
• þurrkaðar appelsínusneiðar
• rauðlaukur •
• hvítlaukur
• hnetur
• litlir leirpottar ef vill
• mosi
• myrtugreinar
• eikarlauf
• galaxblöð
• 4 kerti
Allt úðað með tómstundalakki
Sem undirstöðu er hægt að nota krans úr hálm-
stráum eða jafnvel frauðhring (oasis). Hringurinn
er hulinn með greni eða mosa eins og í þessu til-
felli og best að vefja honum utan um og festa hér
og hvar með blómavírslykkjum ef þarf.
Allt hráefnið úðaði Kolbrún með lakki og hún
segir að lesendur geti keypt svipað lakk og hún
Morgunblaðið/Ásdís
AÐ VENTUKR AN SINN tilbúinn.
notar, svokallað tómstundalakk, í byggingarvöra-
verslunum.
Blómavír er notaður til að festa allt niður í krans-
inn og Kolbrún gerir úr blómavímum litlar lykkjur
sem hún stingur síðan niður þegar þarf að festa
hluti. Margir eiga límbyssur og þær koma að góð-
um notum þegar búa á til skreytingu sem þessa.
Aðventukransinn má geyma til næstu aðventu.
Það eina sem þarf að endumýja ef mosi er notað-
ur sem undirlag eru hvítlaukurinn og rauðlaukur-
inn og síðan auðvitað kertin. Sé notað greni í
skreytinguna þarf að endurnýja það að ári.
Það á að merkja
vörur með mæli-
einingarverði
ÖLL fyrirtæki sem selja vörur til neyt-
enda eiga að merkja vörur sínar með
mælieiningarverði auk söluverðs.
Mælieiningarverð er verð vöra miðað
við tiltekna mælieiningu, svo sem kíló,
lítra og metra. Þegar söluverð vöra
er birt í ritaðri eða prentaðri auglýs-
ingu á líka að tilgreina mælieiningar-
verð. M.ö.o. þegar til að mynda mat-
vöraverslanir auglýsa tilboð á vörum
sínum á kílóverð alltaf að koma fram
iíka.
Þetta kemur fram í reglum um
mælieiningarverð sem tóku gildi á sl.
ári og eru í samræmi við það sem
kveðið er á um í samningum um
Evrópska efnahagssvæðið.
Að sögn Kristínar Færseth, deild-
arstjóra hjá Samkeppnisstoftiun, gef-
ur mælieiningarverð neytandanum
möguleika á að bera saman vöraverð
og kemur t.d. að góðum notum við
val á milli pakkningastærða sömu
vöru eða við samanburð á vöruverði
frá mismunandi framleiðendum sömu
vörategundar.
Mikil kjarabót
„Það era ákveðnar verslanir sem
þegar veita þessar uppiýsingar en enn
er langt í land með að allar búðir
hafí tekið við sér,“ segir hún. Hún
segir starfsfólk Samkeppnisstofnunar
hafa gert lítið af því ennþá að ýta
við þeim verslunum sem ekki hafa
sinnt þessum reglum. Það verði hugað
að því á næstunni.
Kristín segir að
verslanir þurfí að
fara eftir þessum
reglum og þegar
verðmerkingar
eru komnar í lag
bendir hún á að
slíkt verði mikil
kjarabót fyrir
neytendur. „Full-
trúar fmnskra
neytendasamtaka
taka svo djúpt í
árinni að segja að
mælieiningarverð-
ið sé mesta kjara-
bót finnskra neyt-
enda í áratugi.“
Strikamerk-
ingar
Rúnstykki eðn brauð -
reiknaðu dæmið til enda
■
BflNSTVKKI 60* 42
kflóverð
Vppiýiífwfí' Ó'» veníurim- 709
BUAI Ð 500 g 160
hilóveið
Uyt)tiú{i#u f> (ir vtavíaana S20
fjöl'.kylda borðar c*tt 500 g brauð 4 dag koMar }>að 4.800 krónur á tnánuðú
Kau|it fjðbkyWaií Mna* tttagit af rúdstykkjum ko*t*r hana 10.500 kr.
Margar versl-
anir eru komnar með svokallaðar
strikamerkingar. Ekki þarf þá að
verðmerkja hvem hlut fyrir sig og
segir Kristín að fyrir bragðið sé erfið-
ara en áður að fylgjast með verði. í
athugunum Samkeppnisstofnunar
hefur komið í ljós að stundum vantar
verðmerkingar framan á hillur og
hefur gætt misræmis á verði í hillum
og við afgreiðslukassa, einkum á til-
boðsvöram. „Víða eru strikamerking-
ar alltaf í lagi en annars staðar þarf
að gera betur. í könnunum á þessu
ári voru gerðar athugasemdir við 5%
af vörum í matvöruverslunum, þ.e.
varan var óverðmerkt eða misræmi á
milli verðs á hillu og kassa. Ástandið
fer þó batnandi.“
Kristín segir starfsfólk Samkeppn-
isstofnunar vilja hvetja neytendur til
að bera saman annarsvegar tilboðs-
verð og hilluverð og hinsvegar verð
við afgreiðslukassa og vekja athygli
starfsfólks á því ef verðmerkingu
vantar á hillubrún.
Islenskir
geisladisk-
ar í Bónus
BÓNUS selur þessa dagana nýja
íslenska geisladiska á töluvert
lægra verði en tíðkast annars
staðar. Um er að ræða 13 ís-
lenska titla og ýmsa erlenda.
Ætlunin er að vera alla jafna
með 15 vinsælustu titlana.
Þessa vikuna er t.d. geisla-
diskurinn með Bubba á tilboði,
kostar 1.397 kr. Geisladiskurinn
með Páli Óskari er á 1.559 kr.
og tvöfaldur diskur með lögum
Gunnars Þórðarsonar kostar
1.927 kr. Þá er geisladiskur með
Ragga Bjarna á 1.497 kr. og
Pottþétt lög, tvöfaldur diskur á
2.395 kr.
„Auk þessara 13 íslensku titla
í Bónus í Holtagörðum erum við
með erlenda titla sem eru líka
ódýrari en gengur og gerist,"
segir Jón Asgeir Jóhannesson í
Bónus.
- Hvernig getið þið selt
geisladiskana á þessu verði?
„Ég panta þokkalegt magn
og hef sanngjarna álagningu,"
segir Jón Ásgeir. Hann segir að
taka þurfi líka með í reikninginn
að geisladiskarnir í Bónus eru
seldir beint af brettum og ekki
boðið upp á þá þjónustu þar sem
hægt er að fá í hljómplötuversl-
unum.
Piparkökur
og glögg
FYRIRTÆKIN Sól hf. og Ó.
Johnson & Kaaber hafa
ákveðið að selja í samvinnu
jólaglögg og piparkökur fyrir
jólin.
Sól hf. hóf í fyrra að fram-
leiða jólaglögg sem seld er í
femum og fyrirtækið Ó.
Johnson & Kaaber hf. hefur
um skeið flutt inn sænskar
piparkökur frá Paagens.
Starfsmannafélög og aðrir
hópar geta því fengið jóla-
glögg og piparkökur á sama
staðnum og mun Sól hf. sjá
um söluna.
Náttúrulegir
munndropar
MUNNDROPARNIR Del
One Drop frá bandaríska mat-
vælafyrirtækinu
Food Co. fást nú
hér á landi. í
fréttatilkynn-
ingu frá AHHA
hf. heildverslun,
sem flytur drop-
ana til landsins
segir að þeir
innihaldi aðeins
náttúraleg efni,
svo sem blað-
grænu, hunang
og mentol. Þá
séu þeir án vín-
anda. Dropamir
era í 7 ml plast-
brúsum og aðeins þarf einn
dropa af efninu í hvert skipti.
í fréttatilkynningunni segir
að Del One Drop hafí notið
mikilla vinsælda í Bandaríkj-
unum. Klasi hf. dreifir dropun-
um hér á landi og eru söluaðil-
ar flest apótek, söluturnar og
Essóstöðvar. Verð á brúsa er
um 290 krónur.
Sól framleið-
ir viðbit fyrir
Bónus
SMYRILL nefnist nýtt viðbit
sem Sól hf. hefur hafið fram-
leiðslu á fyrir Bónus-verslan-
irnar. Smyrill inniheldur 40%
fitu og á að vera mjúkur beint
úr kæliskápnum. Viðbitið
hentar ekki til steikingar,
gengur í bakstur en er aðal-
lega ætlað til að smyija með
brauð. Smyrillinn er í 400
gramma pakkningum og
verður á tilboðsverði fram að
jólum eða á 79 krónur.
Hain Pure