Morgunblaðið - 25.11.1995, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 35
AÐSENDAR GREIIMAR
Hollvínasamtök Háskóla íslands
Á FULLVELDIS-
DAGINN, l.desember,
verða stofnuð við hátíð-
lega athöfn í Háskóla-
bíói samtök áhugafólks
um lærdóm og vísindi í
Háskóla íslands. Nafnið
á samtökunum er Holl-
vinasamtök Háskóla ís-
lands. Markmið samtak-
anna eru af tvennum
toga. Eins og nafnið gef-
ur til kynna, þá er sam-
tökunum ætlað að skapa
Háskólanum öflugan
bakhjarl, sem ekki veitir
af í sívaxandi samkeppni
þjóðanna á sviði þekk-
ingar. Og hins vegar er
það tilgangur samtak-
anna að gera fjölbreytta starfsemi skól-
ans opna og aðgengilega öllum þeim
sem viija kynnast henni og njóta.
Fullt hús fræða
Háskóli íslands er þjóðskóli í bestu
merkingu þess orðs. Hann er háskóli
þjóðarinnar, vísindastofnun og fræða-
setur. Svona hús, uppfullt af fræðum
og visku, á að vera opið öll kvöld og
nætur, svo maður noti líkingamál.
Hollvinasamtök Háskóla íslands er
lykillinn að þessu markmiði. Samtökin
verða öllum opin og árgjald til þeirra
verður lágt, eða 1.500 kr. á ári.
í Háskólanum er gefinn út á hveiju
Guðmundur
Steingrímsson
ári fjöldinn allur af
áhugaverðum blöðum og
bókum af öllu tagi. Fé-
lagsstofnun stúdenta
rekur metnaðarfyllstu og
stærstu bókaverslun
landsins með fræðilegt
efni og erlendar bækur.
Endurmenntunarstofnun
Háskólans býður upp á
vandað námskeiðahald
um hina fjölbreytileg-
ustu hluti.
I Háskólanum eru
haldnir fyrirlestrar og
alls kyns ráðstefnur í
hundraðatali og þar er
einnig margvísleg menn-
ingarstarfsemi. Þar eru
stundaðar rannsóknir á
öllu milli himins og jarðar.
Starfsemi af þessu tagi á ekki að
vera lokuð innan veggja. Með stofnun
Hollvinasamtakanna verður hún að-
gengileg. í stuttu máli má segja, að
félagsmönnum gefist kostur á því að
fylgjast með. Þeir fá upplýsingar um
starfsemi skólans, geta valið úr það
sem þeim finnst áhugavert og njóta
sérkjara þar sem slíkt á við.
Útskrifaðir kandídatar frá Háskól-
anum fá með þessum hætti tækifæri
til þess að halda tengsium við sinn
gamla skóla og sitt fræðasvið. Við
erlenda háskóla er mikið lagt upp úr
slíkum tengslum skólans við fyrrum
Hollvinasamtök
Háskóla íslands verða
stofnuð 1. desember,
sefflr Guðmundur
Steingrímsson, en þau
eiga að verða skólanum
öflugur bakhjarl.
nemendur sína. Hér hafa slík sam-
skipti að mestu verið í mýflugumynd.
Markmiðið er að bæta úr þessu sam-
skiptaleysi Háskólans, og þá jafnt við
útskrifaða nemendur sína sem og aðra
velunnara lærdóms og vísinda.
Áhrif samtakanna
Tekjur Hollvinasamtakanna munu
renna til uppbyggingar náms og
rannsókna í Háskóla íslands. Þjóð-
arátak stúdenta fyrir bættum bóka-
kosti, sem verður slitið formlega
sama dag og Hollvinasamtökin verða
stofnuð, er dæmi um samhent og vel
heppnað átak í þágu brýnna úrbóta.
Bókakaup eru aðeins eitt dæmi af
mörgum um úrbótamál sem Hollvina-
samtökin geta einbeitt sér að, og lát-
ið þar með gott af sér leiða.
Eg vil leggja jafnmikla áherslu, ef
ISLENSKT MAL
Vinur minn og félagi til margra
ára, Friðrik Þorvaldsson mennta-
skólakennari, sendi mér eftirfar-
andi lesmál sem mér þótti betur
fengið en ófengið og þarf ekki
viðbóta né athugasemda (og þó:
fleiri skilríkir íslendingar segjast
hafa heyrt slíkt tal óþægilega
nærri sér):
„Kæri vinur Gísli! Hér á eftir
er ofurlítið stílfærð frétt úr virtu
sænsku dagblaði 18. okt. sl.
„... Hér er mikið um kúltúrella
aktívíteter. Ég fór á lunchkonsert
í gær. Fékk billjett á specíal red-
úseruðum prís. Þessi konsert var
tótal succé fyrir Óla ög Benna,
sem höfðu svo lengi verið neglisj-
eraðir af massmedía. Óli söng og
Benni assisteraði með gítarak-
kompanjemang. Það er kútým
hér, að artistar gefi intervjú eftir
svona kúltúrella evenemangs. Þá
er resónerað og debatterað og
argúmenterað.
Óli er melódískt póet, hann
skrifar dikt, essei og rómana og
hefur públíserað fyrir teater. Ég
sá rekommenderað pjes eftir hann
í fyrra, sem var fullt af nostalgíu
og mjög exalterað, stundum írón-
ískt, en hafði pósitívt effekt. Þetta
var ekkert absúrd teater á ein-
hveiju lágu nívói, nei, þetta var
fenómenal upplevelse.
Þeir kammeratar Óli og Benni
hafa enormt góðar merítur og
elímínera ekki, að þeir muni
gera karijer, en eru enn ekki
búnir að etablera rejala kon-
takta og þá skortir líka ekónó-
mískar resúrsur. En þeir eru
töff og kapabel og imponerandi
og optímistískir. Þeir hafa
grandíósar ídeur, en konkúrr-
ensinn er kolossal á svona rel-
atívt háu músíknívói.
Ég á pamflett um þá í portfölj-
inni minni, sem ég pósta þegar
ég er búinn að jobba. Hei!!
P.S. Móna Sahlín var intervjú-
uð í gær og krítiseruð fyrir að
vera móralískt nonchalant og fyr-
ir að bagatellísera misbrúkun á
kontókorti sínu.“
Heiður sé þeim snillingum, sem
forðuðu okkur frá svona ósköp-
um. Margblessaður."
Urasjónarmaður Gísli Jónsson
824. þáttur
Um skeið var hann betri en Biblían,
en brátt settist þoka og nif! í ’ann;
ég sé stundum Tímann,
en það sest ekkert í mann,
það sárvantar Jónas frá Hriflu í ’ann.
(Jóhann S. Hannesson.)
★
Guttormur Helgi Jóhannesson
í Reykjavík hefur stundum sent
mér ærinn fróðleik um orð, og fer
hér á eftir gott dæmi sem ég
þakka honum kærlega:
„Heill og sæll Gísli.
Til að halda nú málstað orð-
sifjafræðinnar, eða etymolog-
íunni, á lofti langar mig til að
fjalla eilítið um upptök hins sér-
kennilega hugtaks „keisaraskurð-
ur“, sem í fyrstu virðist rammís-
lenskt. Eins og kunnugt er merk-
ir keisaraskurður uppskurð (á leg-
vegg) til að bjarga fóstri sem
móðirin er ófær um að fæða. Á
latínu var þetta kallað sectio
caesarea og íslenska heitið er því
bein þýðing á latnesku nafngift-
inni (sectio = skurður og caesar
= Sesar/keisari, caesarea er því
lýsingarorð).
Áður en lengra er haldið er við
hæfi að rýna betur í orðið keis-
ari, en það er talið elsta tökuorð
af iatnesku bergi brotið í germ-
önsku tungumálaættinni. Orðið
er dregið af tignarnafni róm-
verska „keisarans" Gajus Júlíus-
ar, Caesar (latn. framb.: kesar).
Þróunin varð sú, að rómverskir
keisarar, sem komust til valda
eftir daga Sesars, tóku að nota
auknefnið Caesar. Caesar varð
því þegar fram liðu stundir sam-
heiti fyrir drottnara ríkja og þann-
ig breikkuðu germanir merking-
arsvið þessa sérnafns, sem upp
frá því merkti „keisari“, „drottn-
ari“, sbr. þýska Kaiser, norska
keiser, hollenska keizer,
sænska kejsare, gotneska (út-
dautt) kaisar og til gamans má
nefna finnsku keisari! Ennfrem-
ur er hinn gamli rússneski valda-
titill tsar runninn af sömu rót.
í þessari alhæfðu merkingu lif-
ir orðið hinsvegar ekki í rómönsku
tungumálunum, sem héldu fast
við rómverska titilinn imperator
= (keisari), sbr. franska emper-
eur, spænska emperador og
jafnvel enska, emperor, sem fell-
ur undir germönsku málaættina,
en er þó í raun mitt á milli þeirr-
ar germönsku og rómönsku.
Uppruni hugtaksins „keisara-
skurður" er tengdur ofangreindri
skilgreiningu, en þó nokkuð
skondnari og er fyrir að þakka
rómverska sagnaritaranum Plín-
íusi eldri (23-79 e. Kr.). í risa-
vöxnu alfræðiriti hans, Historia
Naturalis (37 bindi), má lesa frá-
sögnina af fæðingu Júlíusar Ses-
ars. Samkvæmt henni kom hann
í heiminn fyrir tilstilli keisara-
skurðar, árið 100 f. Kr. Hvort
læknavísindi fomaldar hafí haft
næga þekkingu á valdi sínu til að
framkvæma jafn flókna aðgerð og
keisaraskurð, skal ósagt látið, en
þó má leiða getum að því að frá-
sögn Plíníusar sé tilraun til að
útskýra nafngiftina „Caesar“.
Sögnin caedere á latínu merkir
nefnilega „að sjá, skera“ og er þá
stutt yfir í keisaraskurð Sesars. Á
gmndvelli þessarar (þjóð)sögu
notaðist læknisfræði miðalda við
latneska heitið sectio caesarea,
keisaralegur skurður, til að tákna
títtnefnda skurðaðgerð og í tímans
rás tileinkuðu evrópsku tungumál-
in sér þetta heiti og ber þýs. Kais-
erschnitt, enska Caesarean
section, fr. opération césar-
ienne, norska keisersnitt - og
íslenska keisaraskurður vott um
það. Jafnvel slavnesku málin nota
sama orð yfir þessa aðgerð."
Umsjónarmaður minnir auk
þess á hina miklu ritgerð meist-
ara síns, próf. Halldórs Halldórs-
sonar, um sama efni í Örlögum
orðanna (1958).
★
Salómon sunnan kvað:
Jörðin er höfug af hrímingu,
Huld er á kafi í rýmingu,
Kata að djúsa
með Kálflækjar-Fúsa
og karlinn að fara á límingu.
★
Auk þess fær Hjördís Finn-
bogadóttir fréttamaður stig fyrir
að segja: „ef hann [Javier Solana]
brygði á það ráð að fara fyrir
sósíalistum ...“ Auðvitað á hann
ekki „að leiða“ þá.
ekki meiri, á þann stuðning sem Holl-
vinasamtökin geta gefið háskóla-
menntun í landinu og verður ekki
beinlínis falinn í krónum. Gert er ráð
fyrir að í kjölfar stofnunar Hollvina-
samtakanna verði stofnsett í deildum,
skorum eða námsbrautum í Háskólan-
um einstök hollvinafélög. Félagsmenn
í Hollvinasamtökunum geta tekið þá
ákvörðun að láta meginhluta síns ár-
gjalds renna til slíks félags. Á þennan
hátt er líka viðbúið að félagsmenn
komist í meiri nálægð við skólann.
Með þessari nálægð skapast forsendur
til samskipta milli Háskólans og fé-
lagsmanna. Á vegum hollvinafélaga í
deildunum má t.d. stofna hollráð, sem
yrðu ráðgefandi og gagnrýnandi sam-
komur háskólamanna og meðlima fé-
lagsins.
Bakhjarl af þessu tagi er ómetan-
legur. Það hefur oft verið vakin at-
hygli á því, að þjóðimar í kringum
okkur leggja gríðarlega áherslu á
menntun og rannsóknir. Á íslandi er
einn víðtækur rannsóknarháskóli.
Hann gegnir lykilhlutverki í lífsaf-
komu þjóðarinnar á komandi árum.
Starfsemi háskóla er uppbyggingar-
starf, eins mikilvægt og það hlýtur
að vera, og um slíka starfsemi skora
ég á landsmenn að fylkja sér. í raun-
inni snýst stofnun Hollvinasamtak-
anna um mjög einfalda spumingu og
jafnframt svarið við henni. Þessa
spurningu má orða nokkuð skilmerki-
lega með óbeinni tilvitnun í íslands-
klukkuna eftir Halldór Laxness:
Á minn herra vin?
Höfundur er formaður Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands.
Frábærir 45 peru
Ijosabekkir sem laga
sig að líkamanum.
Berglind Úlafsdóttir, snyrtifræðingur Harpa Guðmundsdóttir, nuddari
Viltu ná allt að 42% betri árangri á sjö Ijósatímum.
Kynntu þér þá hið einstaka þriggja þrepa kerfið frá California Tan.
SO°/o afal. tll
Húðfræðingur kynnir í dag taugard. frá kl. 14-17.
200 kr. innborgun á iitun
þakka frábærar viðtökur á ár
% \
\ af öðrum vörum.
% % v
\\ « \
^ \
Gildlrtill5.des.1995.
’
W 'S'
W-
W
r s
V w,
s?
GUdirtil ir>.dc<>. 1995