Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 47
KÍN — leikur að læra! Vinningstölur 24. nóv. 1995 4 •10*11 »12 •21*22* 29 Eldri úrslit á slmsvara 568 1511 Gæði og hreinleiki Gustavsberg blöndunar- og hreinlætistækin eru stílhrein og endingargóð. Kynnið ykkur fjölbreytta og fallega hönnun fyrir eldhús og baðherbergi. þar sem gæði og hreinleiki skipta máli Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum Innflutningsaðili Gustavsberg á Islandi: Krókháis hf. Sími 587 6550 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 47 FRETTIR Erindi um lifnaðar- hætti loðnunnar SÍÐASTI fræðslufundur Hins ís- lenska náttúrufræðifélags á þessu ári verður mánudaginn 27. nóvem- ber. Fundurinn verður að venju haldinn í stofu 101 í Odda, Hugvís- indahúsi Háskólans. Á fundinum flytur dr. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknar- stofnun, erindi sem hann nefnir: Loðnan og hlutverk hennar í fæðu- keðju norðlægra hafsvæða. í erindinu fjallar Hjálmar um niðurstöður rannsókna á lífsskilyrð- um og lifnaðarháttum loðnunnar og hlutverki hennar i vistkerfum norðlægra hafsvæða en þær hefur hann stundað í mörg ár. Erindið kynnir hann á eftirfarandi hátt: „Loðnan er lítill kaldsjávarfiskur af laxakyni og víða algeng á norð- lægum hafsvæðum. Loðnan er svif- æta og torfufiskur og vegna hins gífurlega fjölda er hún afar mikil- vægur hlekkur í fæðukeðjunni á flestum eða öllum þeim svæðum sem hún byggir. Allt þar til á sjöunda áratugnum var lítið veitt af loðnu. Um og upp úr 1970 hófust stórfelldar loðnu- veiðar, fyrst í Barentshafi og svo við ísland og Nýfundnaland. Síðan hefur gengið á ýmsu, bæði að því er varðar loðnuna sjálfa og þær dýrategundir sem á henni lifa. Reynt verður að bregða upp mynd af vistkerfum miðanna út af Ný- fundnalandi, við ísland og í Barents- hafi sem svipar að sumu leyti saman en erú þó ólík. Þetta á ekki hvað síst við um loðnuna og áhrif hennar upp á við í fæðukeðjunni. Það er síðan ástæða þess að menn umgang- ast loðnuna með nokkuð ólíkum hætti á þessum hafsvæðum.11 Fræðslufundir HÍN er öllum opn- ir og aðgangur ókeypis. INDVERSK börn á munaðarleysingjaheimili og öll eiga íslenska stuðningsforeldra. ABC hjálparstarf með opið hús í dag Jólakort Barnahjálp- ar SÞ komin í sölu JÓLAKORT Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, UNICEF, eru komin á markaðinn. UNICEF hefur selt jólakort til fjáröflunar fyrir starfsemi sína síðan 1949. Fyrsta UNICEF kortið var mynd eftir tékkneska stúlku, en hún sendi mynd sína í þakklætisskyni fyrir þá aðstoð sem þorpið henn- ar varð aðnjótandi í kjöifar síð- ari heimsstyrjaldarinnar. Allar götur síðan hafa UNIC- EF kortin verið listaverkamynd- ir, bæði verk meistaranna, nú- tímalist, höggmyndalist og klippimyndir. Þessi listaverk eru frá yfir 200 þjóðlöndum en ágóð- inn af sölunni fer allur til starf- semi Barnahjálparinnar meðal barna víða um heim. Hér á íslandi er það Kvenstúd- entafélag Islands sem sér um sölu jólakorta Barnahjálparinn- Jólakort KFUM og KFUK komin út Aflar fjár til hjálpar indversk- um götubomum Fé til tölvukaupa FÉLAG hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu hefur fært Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans að gjöf fé til tækjakaupa og var ákveðið að festa kaup á tölvuhugbúnaði frá ACI sem kostaði rúmlega 230 þúsund krónur. Þann 1. nóvember 1995 var gjöfin afhent forinlega. Á mynd- inni sést Grétar Ólafsson, yfir- læknir deildarinnar, þakka Jóni Þór Jóhannssyni, formanni fé- lagsins, fyrir gjöfina. í bak- grunni eru fulltrúar frá félaginu og starfsfólk á deildinni. KFUM og KFUK í Reykjavík hafa gefið út jólakort til styrktar starfi félaganna. Kortin eru íjögur talsins og prýða þau vetrarmyndir, teknar í Vatnaskógi. KFUM og KFUK í Reykjavík starfa í vetur á 13 stöðum með 30 deildir meðal barna og unglinga ef Suðurnesin eru meðtalin. Að auki eru aðaldeildarfundir hvors félags fyrir sig í hverri.viku og almennar samkomur á sunnudögum, þar sem fjölskyldan getur komið saman. Ný Ten-Sing deild, sem er söngstarf meðal unglinga, hóf störf í húsi félaganna við Holtaveg í haust. Rúmlega hundrað sjálfboðaliðar leggja barnastarfinu lið. Jólakortin eru seld á skrifstofu KFUM og KFUK á Holtavegi. ABC hjálparstarf á íslandi verður með opið hús í dag, laugardag, milli klukkan 13.00 og 17.00 að Sigtúni 3, annarri hæð. Samtökin standa nú í stórræðum, sem er bygging heimila og skóla fyrir götu- börn á Indlandi. Samtökin, sem stofnuð voru árið 1988 sem samkristilegt hjálpar- starf, hafa nú fest kaup á fjórum hekturum lands í suðurhluta Ind- lands þar sem áætlað er að byggja heimili og skóla fyrir um 500 ind- versk götubörn. Til að standa straum af kostnaði hafa verið gefin út dagatöl, jólamerkimiðar og jóla- kort bæði fyrir fyrirtæki og ein- staklinga og segir Guðrún Margrét Pálsdóttir, framkvæmdastjóri ABC, að ef upplagið myndi seljast, þá nægði andvirðið fyrir landkaupum og byggingum. Allt starf ABC er unnið í sjálf- boðavinnu og renna framlög óskert til hjálpar bágstöddum í löndum þar sem fátækt og hörmungar ríkja, en samtökin hafa aðallega HAFIN er sala á jólakortum. vegna fjáröflunar á land- kaupum og byggingum. starfað í Úganda, Indlandi, Kambódíu, Filippseyjum, Bangla- desh og Laos. I þessum löndum eru samtals um 1.700 börn á fram- færi íslenskra stuðningsaðila í gegnum ABC. Þeir, sem gerast stuðningsaðilar við eitt barn á Indlandi, greiða 1.450 kr. á mánuði. Fyrir þá upp- hæð fær barnið húsnæði, umönnun, læknishjálp, fatnað, fullt fæði og síðast en ekki síst menntun. JÓLAKORT Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna árið 1995. ar. Skrifstofa félagsins er á Hallveigarstöðum, Túngötu- megin og er er opin fram að jólum milli kl. 16 og 18. Þar er hægt að nálgast jólakortin og aðra hluti sem Barnahjálpin sel- ur, auk þess sem kortunum hef- ur verið dreift í allar helstu bókabúðir landsins. Eldhús- raftæki í Ikea VERSLUN IKEA hefur hafið sölu á eldhúsraftækjum frá Bræðrunum Ormsson. Til sölu eru ofnar, helluborð, eldavélar, kæliskápar, uppþvottavélar og viftur frá ÁEG og Indesit. Tækin eru til sýnis og sölu í innréttingadeild IKEA og gefst nú viðskiptavinum IKEA tæki- færi til að kaupa eldhúsinnrétt- ingar og nauðsynleg eldhústæki á einum stað. Kvöldguðs- þjónusta í Laugar- neskirkju KVÖLDGUÐSÞJÓNUSTA verður í Laugameskirkju sunnu- dagskvöldið 26. nóvember og hefst kl. 20.30. Guðsþjónustu- formið verður einfaldara en í hefðbundinni guðsþjónustu og tónlistin lífleg. Kór Laugames- kirkju syngur undir stjóm org- anistans, Gunnars Gunnarsson- ar, en einnig verður leikið á gít- ar, bassa og trommur. Orri og Krist- ín á Tveim- ur vinum KRISTÍN Eysteihsdóttir og Orri Harðarson halda sameiginlega tónleika á Tveimur vinum 29. nóvember næstkomandi. Kristín gaf nýverið út sína fyrstu sólóplötu sem ber nafnið Litir og mun jafnung stúlka ekki áður hafa gefið út sólóplötu með frumsömdu efni. Orri Harðarson er hins vegar að gefa út aðra sólóplötu sína og ber hún nafnið Stóri draum- urinn. Fyrsta platan kom út fyr- ir tveim ámm. Bæði eru þau sjálfstæðir út- gefendur en Japis sér um dreif- ingu. ■ BÚSETI á höfuðborgar- svæðinu heldur kynningu á fé- laginu í Hafnarfirði sunnudag- inn 26. nóvember. Búseti á 12 ára afmæli þennan dag og býð- ur í afmæliskaffi frá kl. 14-18 í Suðurhvammi 13. Búnaðar- bankinn kynnir nýjan búsparn- aðarreikning og nýjar íbúðir félagsins verða til sýnis við Engihlíð 3a í Hafnarfirði. Búseti rekur 300 íbúðir á höfuð- borgarsvæðinu og eru félags- menn á þriðja þúsund talsins. |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.