Morgunblaðið - 25.11.1995, Blaðsíða 60
MORGl'SBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(iXENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skattrannsóknar-
menn og lögregla
Rannsókn á
fimm veit-
ingastöðum
RANNSÓKNARMENN skattrann-
sóknarstjóra ríkisins gerðu fyrir-
varalausa rannsókn með aðstoð lög-
reglu á fímm veitingahúsum á höf-
uðborgarsvæðinu í fyrrakvöld.
Hjá embætti skattrannsóknar-
stjóra ríkisins hefur að undanförnu
verið í gangi rannsókn á veitinga-
starfsemi sem gaf tilefni til aðgerða
í umræddum veitingahúsum vegna
gruns um skattsvik, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Mikil leynd hvíldi yfir undirbún-
ingi aðgerðanna, en talsvert á þriðja
tug skattrannsóknar- og lögreglu-
manna tóku þátt í þeim. Fóru þeir
í hópum, ijórir eða fimm saman,
samtímis inn á umrædda veitinga-
staði til að rannsaka starfsemina.
Skúli Eggert Þórðarson skatt-
rannsóknarstjóri staðfesti í samtali
við Morgunblaðið í gær að embættið
hefði veitingahús til skoðunar og að
rannsókn væri hafin á starfsemi
fimm aðila. Aðspurður vildi Skúli
ekki tjá sig um hvort grunur væri
um stórfelld skattsvik hjá umrædd-
úm aðilum.
Morgunblaðið/RAX
Olíumengun
við stálþilið
Hallinn á frystingiumi
orðinn 2,5 milljarðar króna
SAMKVÆMT útreikningum Sam-
taka fiskvinnslustöðva er botnfisk-
vinnslan nú rekin með 7,5% halla
sem á heilu ári þýðir tæplega
briggja milljarða króna halla. Hall-
inn í frystingunni er um 2,5 millj-
arðar króna en í söltuninni um 450
milljónir króna. í útreikningunum
er byggt á úttekt Þjóðhagsstofnun-
ar frá í september þar sem halli á
botnfískvinnslu mældist 4%, og
miðað við hráefniso og afurðaverð
í dag.
Að sögn Arnars Sigurmundsson-
ar, formanns Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, eru hreinar hráefnishækk-
anir helsta ástæðan fyrir auknum
halla. Þær megi að hluta rekja til
sjómannaverkfallsins í vor og úr-
skurða úrskurðarnefndar um físk-
verð sem hafí leitt af sér hækkun
í nokkrum tilvikum.
„Þarna er hreinlega komin fram
hráefnisverðshækkun, sem kemur
verr niður á frystingunni þar sem
afurðir hennar hafa ekkert hækkað
á tímabilinu og í raun örlítið lækk-
að. Á móti hefur orðið hækkun á
saltfiskafurðunum og þar kemur
skýring á því að hallinn í söltuner
minni en í frystingu," segir Arnar.
Hann segir að hráefnisprósentan
sé nú komin í 64% og það þoli fisk-
vinnslan einfaldlega ekki. Greini-
legt sé að sjómenn hafi í sumum
tilfellum náð fram umtalsverðum
launahækkunum í gegnum úr-
skurðarnefnd á sama tíma og laun
hjá öðrum hhafi ekki breyst. Nauð-
synlegt sé í a.m.k. sumum tilfellum
að lækka hráefnisverðið til vinnsl-
unnar, en það sé hægara sagt en
gert.
Miðað við óbreytta afkomu telur
Arnar viðbúið að mörg fyrirtæki
lendi í verulegum erfiðleikum í
kringum áramótin og spurning
hvort þau komist af stað aftur eftir
hátíðarnar. Hann sagðist alveg
sannfærður um að ef það yrði i
ofanálag ófriður á vinnumarkaði og
gengið fram með stórfelldar launa-
breytingar þá gerðist það sjálfkrafa
að gengið myndi falla þar sem ljóst
væri að ýmislegt annað myndi gefa
sig um leið og fiskvinnslan.
„Menn reka ekki fyrirtæki í hefð-
bundinni botnfískvinnslu i marga
mánuði að óbreyttu. Við erum bún-
ir að gera kjarasamninga út næsta
ár og ég er ekki með þessu að segja
að við eigum að komast út úr þeim
samningum. Fjölmörg fyrirtæki í
frystingunni eiga ekki möguleika á
að fara í söltun og ég sé ekki ann-
að en að þau muni stöðvast í kring-
um áramótin ef ekkert gerist,“ seg-
ir Arnar Sigurmundsson.
STARFSMENN Trévangs hf.
eru langt komnir með vinnu
við nýtt stálþil sem rekið hef-
ur verið niður í bátahöfnina
á ísafirði. Gamla þilið var
orðið ónýtt og var þilið sett
aðeins utar. Fyrirhugað er
að fylla upp með grjóti og
mulningi úr Breiðadals-
göngunum. Töluverð olíu hef-
ur verið í höfninni undanfarin
ár enda er jarðvegurinn á bak
við gamla þilið mikið olíu-
mengaður, væntanlega vegna
leka við olíulöndun. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvort mölin
verður grafin upp. Starfs-
menn Trévangs voru að sjóða
og steypa polla í fyrradag.
> *
ASI og VSI endurnýja samkomulag um lífeyrissjóðakerfið
Vilja samræmingu við
almannatryggingar
ASÍ og VSÍ hyggjast leita eftir því
við ríkið að lífeyrisréttindi lífeyris-
sjóða og almannatrygginga verði
samræmd, þannig að kerfin vinni
saman sem ein lífeyrisheild. Farið
verði yfir alla bótaflokka og mögu-
lega verkaskiptingu milli almanna-
trygginga og lífeyrissjóða. í þessu
sambandi verði sérstaklega kann-
aðir möguleikar á því að gera elli-
lífeyrisréttindi að sameign hjóna.
Þetta kemur fram í drögum að
samkomulagi ASÍ og VSÍ um líf-
eyrismál sem kynnt var á aðal-
fundi Sambands almennra lífeyris-
sjóða í gær. ASÍ og VSÍ ítreka þar
þá stefnu að launþegum verði
áfram skylt að greiða í lífeyrissjóð
viðkomandi starfsstéttar eða
starfshóps.
Hins vegar verða nú settar sam-
ræmdar reglur fyrir allt almenna
lífeyrissjóðakerfið þar sem strang-
ar kröfur verða gerðar til uppbygg-
ingar og reksturs sjóðanna. Þannig
verður lífeyrissjóði óheimilt að taka
við iðgjöldum nema eignir sjóðsins
dugi fyrir lífeyrisskuldbindingum.
I drögum að hinum nýju reglum
er í fyrsta sinn gerð sú krafa til
lífeyrissjóða að þeir geti staðið
undir ákveðnum lágmarksréttind-
um. Þeir sjóðir sem starfa á grund-
velli þeirra skulu tryggja hverjum
sjóðfélaga rétt til ellilífeyris, end-
urhæfingar- og örorkulífeyris,
makalífeyris og barnalífeyris gegn
greiðslu samningsbundins iðgjalds.
Ennfremur er kveðið á um stór-
hert eftirlit með rekstri og upp-
byggingu lífeyrissjóðanna ásamt
því að upplýsingaskylda verði auk-
in til muna.
■ Skylduaðild verður áfram/4
Paula eftir Allende í
1. sæti bóksölulista
FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN
Háskóla íslands gerir könnun fyr-
ir Morgunblaðið, Ríkisútvarpið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og
Félag bóka- og ritfangaverslana á
bóksölu fyrir jólin 1995. Um er
að ræða lista yfir 10 söluhæstu
bækurnar í þremur bókaflokkum
og heildarlista yfír 10 söluhæstu
bækurnar. Þrettán bókaverslanir
á höfuðborgarsvæðinu og sjö á
landsbyggðinni tóku þátt í fyrstu
könnuninni, sem nær frá 1.-21.
nóvember. Samkvæmt henni skip-
ar Paula, bréf móður til sjúkrar
dóttur, eftir Isabel Allende efsta
sæti bóksölulistans. Mál og menn-
ing gefur bókina út.
I öðru sæti listans er María,
konan bak við goðsögnina, sam-
talsbók eftir Ingólf Margeirsson.
Vaka-Helgafell gefur bókina út.
Bókin lýsir ævi Maríu Guðmunds-
dóttur, ljósmyndafýrirsætu og
ljósmyndara. Þriðja sæti listans
skipar bók Guðrúnar Helgadóttur,
Ekkert að þakka, barnabók sem
Vaka-Helgafell gefur út.
Fram til jóla verður könnunin
gerð vikulega og búist er við því
að enn fleiri bókaverslanir taki
þátt í næstu samantekt, sem gerð
verður næstkomandi miðvikudag.
Listarnir eru birtir í heild í blað-
inu í dag. Einn listinn er heildar-
listi, annar tekur til skáldverka,
íslenskra og þýddra og ljóða, sá
þriðji nær til bóka almenns efnis
og úórði listinn til barna- og ungl-
ingabóka, íslenskra sem þýddra.
■ Bóksölulisti/4