Morgunblaðið - 26.11.1995, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fyrrverandi kommúnisti kjörinn forseti Póllands í stað Walesa
Trú og hugmyndafræði
réðu ekki úrslitum
BAKSVIÐ
Lech Walesa, fráfarandi forseti Póllands,
og stuðningsmenn hans reyndu að sann-
færa pólsku þjóðina um að kosningamar
sl. sunnudag snerust um það hvort hún
kysi fyrrverandi kommúnista og heiðingja
eða kaþólskan föðurlandsvin og frelsis-
hetju sem þjóðhöfðingja. Trú og hug-
myndafræði réðu þó ekki úrslitum.
ALEKSANDER Kwasniewski fagnar sigri í forsetakosningun-
um í Póllandi ásamt konu sinni, Jolanta.
ÝMSIR Pólvetjar urðu miður sín
þegar úrslitin lágu fyrir og töldu
Pólland hafa orðið fyrir mikilli
ógæfu með sigri Aleksanders
Kwasniewskis, sem er fyrrverandi
kommúnisti en hefur tekið upp
stefnu jafnaðarmanna. Það var
ekki aðeins vegna þess að fyrrver-
andi kommúnistar og bandamenn
þeirra hafa nú bæði tögl og hagld-
ir í stjómkerfinu, þar sem þeir
höfðu áður náð meirihluta á þing-
inu og myndað stjóm. í þessu
áhyggjufulla fólki blundar einnig
ótti við að fyrrverandi kommúnist-
ar efli tengslin við Rússland og
geri Pólvetja aftur að leppum
Rússa, þótt fátt bendi til þess að
svo fari.
Þessir Pólvetjar óttast þó meira
að þjóðin klofni í tvær andstæðar
fylkingar. Annars vegar í kaþólska
föðurlandsvini, sem vilja efla
tengslin við Vesturlönd, en mega
sín nú einskis í stjómkerfinu. Hins
vegar í fyrrverandi kommúnista,
„óvini kirkjunnar", gamla marx-
ista, embættismenn frá valdatíma
kommúnista og meinta föðurlands-
svikara í leynilegu bandalagi við
kommúnista og þjóðernissinna J
Rússlandi.
Samfélagsleg barátta
Trú og hugmyndafræði skiptu
þó ekki meginmáli í kosningunum
og ekki heldur stéttarstaða kjós-
enda. Atkvæði verkamanna og
smábænda skiptust t.a.m. nánast
jafnt milli Walesa og Kwasniewsk-
is í fyrri hiuta kosninganna 6.
nóvember.
Kjörfylgi Kwasniewskis var
mest í litlum og meðalstómm bæj-
um og meðal íbúa svæða í norður-
og vesturhlutanum sem tilheyrðu
Þýskalandi fyrir stríð. Kwasn-
iewski naut einnig mikils stuðnings
meðal ungra kjósenda og þeirra
sem hafa mesta menntun.
Hins vegar búa flestir þeirra,
sem kusu Walesa, í stóru borgun-
um og í suðausturhlutanum, þar
sem fólk er fastheldnara á pólskar
venjur. Walesa naut meiri stuðn-
ings eldri kjósenda og þeirra sem
hafa litla menntun.
Kosningarnar þykja því fyrst og
fremst endurspegla samfélagslega
baráttu, sem markast af búsetu,
aldri og menntun, frekar en hug-
myndafræðilega baráttu og upp-
gjör við kommúnismann.
Val milli „svartadauða
og kóleru“
Ástæður þess að Walesa beið
ósigur í kosningunum eru margvís-
legar. Helsta skýringin er þó sú
að meirihluti Pólveija hefur fengið
sig fullsaddan á einræðistilburðum
Walesa, pólitískri refskák hans og
látlausum deilum við þingið, og
komist að þeirri niðurstöðu að
hann sé ekki rétti maðurinn til að
gegna embætti þjóðhöfðingja.
Walesa urðu á ýmis pólitísk
mistök og margir fyrrverandi
bandamenn hans snerust gegn
honum vegna einræðistilburðanna.
Einn þeirra, Radek Sikorski, fyrr-
verandi aðstoðarlandvarnaráð-
herra, lýsti Walesa sem „óhefluð-
um, óútreiknanlegum, óábyrgum,
einráðum og hégómagjörnum“-
manni. Þrátt fyrir þessa galla
ákváðu margir fyrrverandi banda-
menn Walesa að kjósa hann. Þeir
gerðu það með miklum semingi
og höfðu í flimtingum að valið
stæði milli „svartadauða og kól-
eru“.
Stöðnun framundan?
Flestir fréttaskýrendur telja að
Pólveijar þurfi ekki að óttast
stefnu Kwasniewskis, sem er ekki
mjög umdeild. Hann hefur lofað
að beita sér fyrir aðild Pólveija
að Atlantshafsbandalaginu og
Evrópusambandinu. Hann hefur
boðað frekari einkavæðingu og
umbætur í átt til markaðsbúskap-
ar, þótt hann vilji fara sér hægar
en ýmsir alþjóðlegir bankar telja
æskilegt.
Hins vegar setja menn spurning-
armerki við gömlu kommúnistana
á bak við Kwasniewski sem hafa
treyst stöðu sína út um allt Pólland
eftir sigur vinstriflokkanna í þing-
kosningunum árið 1993. Þótt for-
setinn vilji umbætur vilja þessir
menn engu breyta og eru nógu
klókir til að halda völdum sínum.
Kjör Kwasniewskis gæti því leitt
til stöðnunar.
Aftur á réttri hillu
Það er til marks um álitið sem
menn hafa á Walesa að ýmsir velta
því 'fyrir sér hvort hann fari að
dæmi pólsku þjóðhetjunnar Jozefs
Pilsudskis, sem rafvirkinn fyrrver-
andi ber mikla virðingu fyrir.
Pilsudski barðist fyrir sjálfstæði
Póllands, varð fyrsti forseti lands-
ins árið 1918 og sigraði rússneska
bolsévíka í stríðinu árið 1919-20.
Pilsudski „settist í helgan stein“
árið 1923 en átti í látlausum deii-
um við þingið sem leiddu til glund-
roða í stjórnmálum landsins þar
til hann rændi völdum og var nær
einvaldur til dauðadags, árið 1935.
Ólíklegt er þó að Walesa geti
valdið slíkum glundroða eftir að
hafa misst forsetaembættið. For-
setinn fyrrverandi gæti þó reynst
Kwasniewski hættulegur og hann
hefur lofað að sameina mið- og
hægriflokkana í baráttunni gegn
vinstriflokkunum fyrir næstu þing-
kosningar, sem verða ekki síðar
en eftir tæp tvö ár.
Þótt Walesa hafi þótt afleitur
forseti hefur hann öðlast sess í
sögunni sem þjóðhetja með því að
kollvarpa kommúnismanum og
bjóða Sovétríkjunum birginn.
Reynslan sýnir að honum er það
miidu betur gefið að vera í stjórn-
arandstöðu og því er of snemmt
að afskrifa hann.
Ýmsir hafa líkt Walesa við
Winston Churchill, sem sigraði í
stríðinu en tapaði í kosningunum.
Aðrir líkja honum við Míkhaíl
Gorbatsjov, síðasta forseta Sovét-
ríkjanna, sem var snjall í að rífa
niður slæmt kerfi, en reyndist ekki
rétti maðurinn til að byggja upp
nýtt í staðinn.
Heimildir: Independent og
The Daily Telegraph.
:
Norræna gæsluliðið á vegum
Atlantshafsbandalagsins í Bosníu
Dani mun fara með
yfirstíóm herliðsins
Morg-unblaðið. Kaupmannahöfn.
NORRÆNU hersveitirnar í al-
þjóðlega friðargæsluliðinu í Bos-
níu verða undir stjórn Danans
Finn Særmark-Thomsens, sem
áður var yfirmaður dönsku ^l-
þjóðasveitarinnar. 1 norræna liðs-
aflanum verða sæjnskar, norskar
og finnskar hersveitir, auk þeirra
dönsku, alls um 4-5 þúsund
manns.
I þessum afla verða einnig
pólskar hersveitir og hugsanlega
sveitir frá fleiri löndum. Svíar og
Pólverjar geta verið með þar sem
löndin eru aðilar að friðarsam-
starfi Atlantshafsbandalagsins,
NATO.
Umræður í Svíþjóð um
NATO- aðild
Þetta er í fyrsta sinn sem
sænskar hersveitir taka þátt í
hernaðaraðgerðum eftir síðari
heimsstyijöld og hefur þetta á ný
vakið umræður um hugsanlega
NATO-aðiId Svíþjóðar.
Særmark-Thomsen hefur leitt
dönsku hersveitirnar í liði Sam-
einuðu þjóðanna í Bosníu undanf-
arin ár. I viðtali við Det Fri Aktu-
elt segist hann áhyggjufullur yfir
tortryggni Bosníu-Serba vegna
friðarsamninganna. Norrænu
sveitirnar verða á einum við-
kvæmasta staðnum, þar sem þær
eiga að hafa eftirlit með Posa-
vina-svæðinu, mjórri landræmu
er tengir helstu svæði Bosníu-
Serba við Serbíu. Höfuðstöðvarn-
ar verða í Tuzla, þar sem dönsku
hersveitirnar hafa áður verið.
Þessi fyrsta aðild Svía að
NATO-aðgerðum hefur verið mik-
ið rædd í Svíþjóð. Stjórn jafnaðar-
manna styður hana, enda eru
Svíar aðilar að friðarsamstarfi
NATO. Sænsku hersveitirnar
þurfa ekki mikinn aðlögunartíma,
því þær hafa tekið þátt í heræf-
ingum bandalagsins.
Óll farartæki NATO-hersveit-
anna eru merkt NATO/PFP, sem
er skammstöfun fyrir friðarsam-
starf Nató. Finnsku sveitirnar eru
fyrst og fremst skipaðar tæknil-
iði.
Vill þungavopn
Hinn danski yfirmaður nor-
rænu sveitanna er hlynntUr því
að sveitirnar verði vopnaðar
þungavopnum, enda hafa dönsku
sveitirnar áður orðið illa uti í
Bosníu, því þær voru ekki nægi-
lega vopnaðar. Særmark-Thoms-
en bendir einnig á að mun meiri
þungi fylgi aðgerðunum nú, þar
sem þær séu eingöngu undir
merkjum NATO og því verði hægt
að bregðast skjótar við en hægt
var meðan SÞ og NATO önnuðust
friðargæsluna í .sameiningu.
Reuter
Heimsókn Díönu mótmælt
ARGENTÍNUMAÐUR hrópar
slagorð gegn heimsókn Díönu
prinsessu af Wales sem nú er stödd
í landinu og hefur m.a. rætt við
börn á sjúkrahúsum. Enn eru
margir Argentínumenn beiskir
vegna ósigursins í Falklandseyja-
stríðinu í upphafi síðastá áratug-
ar. Kona í hjólastól, er misst hafði
ættingja þegar herskipinu Bel-
grano var sökkt, hrópaði ókvæðis-
orð að Díönu á laugardag.