Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 17
valinn úr fátækrahverfum. Það voru
drengir sem fengu ekki menntun
og voru jafnvel taldir með greind
undir meðallagi. Annar var forrétt-
indahópur, hinn var hópur sem naut
engra forréttinda. Þeir voru valdir
vegna þess að þeir voru ekki af-
brotaunglingar. Þeir sem ekki eru
afbrotaunglingar í hverfum eins og
þeir ólust upp í voru flokkaðir sem
nokkuð heilbrigðir. Þeir sem valdir
voru frá Harvard voru taldir heil-
brigðari en félagar þeirra.
Ein af niðurstöðunum var sú að
tíðni alkohólisma í þessum hópum
var ekki meiri en við má búast al-
mennt. Báðir hóparnir voru kannað-
ir á öllum sviðum. Þeir fengu spurn-
ingalista sem þeir áttu að svara á
tveggja ára fresti og voru kallaðir
í viðtöl á fimmtán ára fresti. í úrtak-
inu frá Harvard voru 268 menn en
í hinu úrtakinu 456 menn.
í báðum hópum voru menn sem
höfðu átt erfiða æsku og menn sem
höfðu verið hamingjusamir í æsku.
Það var lítill munur á því hvernig
þeir aðlöguðust lífinu. Það var jafn
stórt hlutfall af heilbrigðum og
hamingjusömum einstaklingum í
báðum hópum. Geðræn vandamál
voru hlutfallslega jafn algeng í báð-
um hópum.“
Alkóhólismi ekki ættgengur
Það sem er athyglisvert við þessa
rannsókn var að þeir sem höfðu átt
erfíða æsku voru ekkert frekar í
þeim hópi sem hneigðist til alkohól-
isma en þeir sem höfðu átt ham-
ingjuríka æsku.“
Stríðir það ekki gegn öllum þeim
kenningum sem slegið hefur verið
fram um alkohólisma á seinustu
árum?
„Flestum.“
Geturðu skýrt það frekar?
„Já. Þegar alkohólisti kemur til
meðferðar er oft gengið út frá því
að ákveða að hann hafi átt erfiða
æsku og svo er farið að kafa í
æskuna. Svo halda alkohólistar að
þeir séu einir um að hafa átt erfíða
æsku og það sé ástæðan fyrir alko-
hólisma þeirra.
Þegar þú gefur þér niðurstöður
áður en þú byrjar rannsóknir, færðu
þær niðurstöður. En óhamingja í
æsku og erfíðleikar í uppeldi eru
ekki ástæðan fyrir alkohólisma."
Hveijar eru helstu ástæður alko-
hólisma?
„í fyrsta lagi ódýrt alkohól sem
auðvelt er að ná í.
í öðru lagi samfélag sem elur á
sérstökum tvískinnungi gagnvart
áfengi; leyfir drykkju en fordæmir
í senn - að vera drukkinn er ósið-
legt og sjúklegt en í aðra röndina
eilítið garpslegt og karlmannlegt.
Slík afstaða er algeng í Norður-Evr-
ópu og stuðlar ekki að heilbrigðri
afstöðu til áfengisneyslu.
í þriðja lagi smitast fólk af alko-
hólisma af vinum sínum og mökum,
ekki foreldrum. Þetta er vandamál
félagahópsins.
í fjórða lagi er það svo að ef þú
átt náinn vin sem er fíkill er lík-
legra en ella, ef þú ferð út í misnotk-
un, að þú verðir fíkill líka í stað
þess að neyta, til dæmis alkohóls,
í hófi eða á þann hátt sem kallað
hefur verið félagsleg neysla. Mun-
urinn á fíkn og félagslegri neyslu
er sá að þegar við neytum alkohóls
félagslega, þá ákveðum við hvenær
við viljum hefja neyslu og hvenær
við viljum hætta henni. Ef við erum
alkohólistar þá bytjum við að gera
hluti sem við ætluðum ekki að gera,
og jafnvel þótt við höfum ákveðið
að hætta þeim.
í fimmta lagi er þetta arfgengt
vandamál. Alkohól er eiturefni og
þegar fólk neytir þess verður það
fýrir eitrun; það verður veikt í mag-
anum, kastar upp, verður timbrað,
fær höfuðverk. Alkohólistinn bregst
ekki þannig við eitrinu. Það sem
er arfgengt við alkohólisma í fjöl-
skyldum er þolið. í ættinni er óvenju
mikið þol og meðlimir hennar hafa
ekki það varnarkerfi sem annað
fólk hefur gegn alkohólisma.
Það er margt fólk sem fær sér
að reykja og verður háð nikótíni.
Og það eru margir sem fá sér alko-
hól en verða ekki alkohólistar vegna
þess að þeir þola ekki eituráhrifín.
Það er þolið sem er ættgengt, ekki
drykkjan.
í sjötta lagi þróast alkohólismi
með einstaklingi sem hefur verið
alinn upp við alkohólisma oftar en
hjá þeim sem ekki hafa verið aldir
upp við hann. Segjum að móðir þín
hafí verið alkohólisti. Þá er skömm-
in svo mikil að það er mjög erfitt
að fá þig til að viðurkenna vanda-
málið. Og þá erum við komin að
því sviði sem Leigh vinnur á, grein-
ingu á varnarkerfi og viðtalsmeð-
ferð.“
„Eg spyr mig alltaf hversu stórir
hinir ýmsu þættir eru í tilviki hvers
sjúklings," segir Leigh. „Hvort það
eru hinir samfélagslegu þættir,
vinahópurinn, uppeldið eða fjöl-
skyldan og ég hef tekið eftir því
að þetta er mjög mismunandi eftir
einstaklingum. Það er því mjög
varasamt að gefa sér einhvern einn
þátt fyrirfram þegar maður fær
einstakling til meðferðar. Ég held
að við höfum ekki nægilegar rann-
sóknir, hvað þá niðurstöður, til að
fullyrða að einhver einn þáttur sé
afgerandi fyrir allan hópinn.“
„Það getur meira að segja verið
hættulegt að ganga út frá því,“
bætir George eiginmaður hennar
við. Það er ekki til setunnar boðið,
því bæði fyrirlestrar og námskeiða-
hald bíða þeirra. Við hin verðum
bara að bíða og vona að áratuga
vinna þeirra skapi okkur smám
saman heilbrigðari og hamingju-
samari heim.
Mýmimgmrsmtm
Allir loftlampar, borðlampar og standlampar
seldir með verulegum afslætti næstu daga.
Rafbúðin, Auðbrekku 11, Kópavogi.
JÖKULL
hefur gefið út
sinn fyrsta sóló geisladisk:
H A M F A R I R
Fæst í öllum helstu hljómplötuverslunum landsins.
—..... —■ <Q>
Sannur gæðingur
Tulííp computers
Gæðamcrkiö frá Hollandi .
MYTT
pentium
Pentium 120
850 MB diskur
8 MB minni
Ethernet á móðurborði
kr. 194.900
<B>
NYHERji SKArtAHUO:-* SIMI 549 7 700 FAX
Sýning tím helgina /1
• ? Pj i 11 KjiÁ
Full búð
af nýjum
vörum.
Persía við Faxafen
Suðurtandsbraut
h&iéjoq«
tneð uleihciku ívafi
Við færum þér friðsæld fjallanna og ævintýrablæ jólaandans á stað sem á hvergi
sinn líka. Skíðaskálinn í Hveradölum er ekki aðeins fallegt veitingahús,
staðsetning þess, metnaðarfullt starfsfólk, stórkostlegur matur og góðir
skemmtikraftar leggjast á eitt við að þú eigir ógleymanlega kvöldstund
- hjá fólkinu í fjöllunum!
Danskur desember er sérstök jóladagskrá hjá okkur. Við útbúum glæsilegt
jólahlaðborð þar sem borðin hreinlega svigna undan kræsingunum og gerum
kvöldin ógleymanleg öllum íslendingum sem vilja bre>ita til og uppplifa eitthvað
nýtt í skammdeginu.
Pantid tímanlega!
Dœmi um dagskrá fyrir ykkar hóp:
1. Kiila sa.-kir ykkur á cikvedinn staö.
2. Vlö tökum á máti ykkur meö harmonikkuleik.
3. I’iö gctið sest niöur viö arineid, barinn opinn o fl.
4. Jólahlaöborö aö hcvtti melstarakokha Skiðaskálans.
5. Og svo auövitaö iskaldur snafs af Áiaborgar-Akaviti mcö síldinni
6. Ykkar eigin skemmtidagskrá um kvöldiö?
7. Skálahandiö lcikur fyrir dansi fram á rauða nótt.
8. Rátan ckur ykkur heim um nóttina.
9. Heitir pottar og snjósleðaferdir ef pantaö er með fyrirvara.
VERÐAÐEINS
mt 2,890
m. MANN UM HEEOAB
VERÐAÐEINS
Með kœrri jólakveðju,
Starfsfólk Skíðaskálans í Hveradölum
- Ykkar fólk t fjöllunum!
Borðapantanir:
s. 567 2020
fax 587 2333
tAUQARlfA'ðA I DCSEMBEK.
ENNÞA LAUO DORD ViRKA
OAOA OO SUNNUDAGA.