Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 24
24 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Bflheimar hf. og Ingvar Helgason hf.
Seldir nýir
fólksbílar
1.03311.009
Markaðshlutdeild
23,6%
20,2%
18,75
17,0%
1991 1992 1993 1994 1995
til 17. nóv.
1991 1992 1993 1994 1995
til 17. nóv.
Morgunblaðið/Kristinn
GOÐURISTURTU
Eftir Guðmund Guðjónsson
JÚLÍUS Vífill er fæddur í
Reykjavík 18. júm' 1951 og
einn átta systkina. Foreldr-
ar hans eru Sigríður Guð-
mundsdóttir og Ingvar Helgason.
Eiginkona hans er Svanhildur Blön-
dal heilsugæsluhjúkrunarfræðing-
ur og börnin þeirra þrjú eru Helgi
Vífill 12 ára og Gunnar Snær og
íris Þóra, 7 ára tvíburar. Auk þess
á Júlíus Vífíll soninn Halldór Krist-
in sem er 22 ára. Júlíus Vífill fór
„hefðbundna menntaleið“, útskrif-
aðist frá MR 1972 og fór þá í lög-
fræðinám í HÍ. Þegar því var að
hálfu lokið lagði hann námið á hill-
una um sinn til þess að halda til
Vínarborgar, en þar nam hann söng
við hinn fræga tónlistarháskóla
borgarinnar. Hann útskrifaðist sem
lögfræðingur frá HÍ árið 1979. Á
árunum 1979 til 1982 var hann á
Ítalíu og nam sönginn og starfaði
samhliða sem fararstjóri. Júlíus var
og er mikill tenór og var áberandi
í sönglífi landsmanna á árunum
eftir að hann kom heim og hafði
lokið lögfræðináminu, en við kom-
um nánar að því á eftir. Hann hóf
störf hjá fjölskyldufyrirtækinu Ing-
vari Helgasyni hf. fljótlega eftir
heimkomuna frá Italíu og þar kom
að hann varð að gera upp á milli
söngferils og ferils í viðskiptalífinu,
en það síðamefnda varð ofan á.
Bílheimar í bili
Ingvar Helgason hf. er eitt af
stærstu, þekktustu og nafntoguð-
ustu bifreiðaumboðum landsins,
hefur lengi höndlað með Nissan og
vmsnpn/ÆviNNUiíF
ASUNNUDEGI
►Júlíus Vífill Ingvarsson er einn þriggja framkvæmda-
stjóra Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima hf. Um þessar
mundir standa yfir flutningar á starfsemi Bílheima frá
Fosshálsi 1 í nýtt húsnæði við Sævarhöfða 2b. Fer þá starf-
semin þar með fram í alls 6.000 fermetra húsnæði sem er
að mörgu leyti óvenjulega uppbyggt miðað við í hveiju
starfsemin er fólgin. Júlíus hefur borið hitann og þungann
af flutningunum og málefnum Bflheima.
Subaru, tegundum sem reynst hafa
afburðavel við íslenskar aðstæður
og náð vinsældum samkvæmt því.
Hins vegar er mál málanna þessa
dagana hið nýja fyrirtæki fjölskyld-
unnar, Bílheimar, sem keypt var
af SÍS árið 1993. Áður var fyrir-
tækið bifreiðadeild SÍS og gekk
undirnafninu Jötunn. Með Jötni
komu Izuzu, Opel og General Mot-
ors, en helstu tegundir þess eru
Chevrolet, Pontiac, Cadillac og
fleiri. í-byrjun þessa árs bættist
síðan Saab við úrval Bílheima er
ljóst var að Globus myndi hætta
með umboðið. Sneru hinir sænsku
framleiðendur sér þá til Bílheima
og varð úr að fyrirtækið hefur nú
umboð fyrir Saab.
Bílheimar hafa verið reknir í
leiguhúsnæði á Fosshálsi, en um
þessar mundir mun starfsemin öll
flytjast í nýhýsi upp á 2.000 fer-
metra og er það tengibygging við
byggingu þá sem Ingvar Helgason
hf. hefur verið starfrækt í síðan
árið 1989.
Júlíus lýsir því með nokkru stolti
að húsin, það gamla og það nýja,
séu ekki beinlínis í anda hefð-
bundnu stóru steinbyggingana.
Þau séu reist úr límtréi sem sé
hagkvæmari byggingarmáti af
fleiri ástæðum en einni. Hráefnið
er ódýrara og fljótlegra að smíða
úr því en steypa og tími eru pening-
ar. „Auk þess setur það skemmti-
legan svip á húsakynnin, það eru
aðrar línur og salir og skrifstofur
eru opnari og bjartari. Þetta er
samkvæmt ákveðinni „fílósófíu"
sem fjölskyldan er sammála um að
hafa í heiðri, að forðast allan íburð
á sama tíma og húsakynnin verða
aðlaðandi fyrir viðskiptavini," segir
Júlíus Vífill.
Erum stærstir
En hver er hlutdeild IH í mark-
aðnum á íslandi?
„Það sem af er árinu er Nissan
með 13,7% og Subaru 4,4%. Að
viðbættum Opel með 5,5%. Þetta
gerir tæplega fjórðung markaðar-
ins og talan hækkar með hinum
tegundunum sem við erum með og
ég nefndi áðan. Þetta segir auðvit-
að að við erum stærstir og sinnum
stærsta flotanum í varahlutum."
Þetta eru bara prósentur, hvaða
tölur eru þetta f raun?
„Þetta merkir 1.480 nýja bíla
það sem af er árinu og það er hluti
af heildarsölu í landinu sem er inn-
an við 6.500 bíla.“
Eru þetta góðar tölur? Er efna-
hagsbatinn sem stjórnvöld tala um
búinn að skila sér í sölu á nýjum
bílum?
„Þetta eru góðar tölur hvað okk-
ur varðar, en í heildarsölu hefur
þetta ár verið eins og þau tvö síð-
ustu, mjög slakt. í góðu ári eigum
við að vera að selja 2.000 - 2.500
bíla. Bílafloti landsmanna telur
131.000 bíla og endurnýjunin er
langt frá því að geta talist eðlileg.
Það er því engin sveifla upp á við
í bílasölu og það er bagalegt, því
•það er beinlínis slæmt ef bílaflotinn
fer að ganga sér til húðar. Ástand-
ið stendur reyndar aðeins í stað
eins og er, bílum hefur ekki fækk-
að um tíma, en flotinn er samt
ekkert að yngjast upp,“ svarar Júl-
íus.
Hvað þarf að breytast til þess
að hleypa lífi í þessi mál?
„Það er kannski óraunhæft og
jafnvel óeðlilegt að miða við ástand
eins og varð árin 1986-87. 1. mars
1986 lækkuðu tollar þannig að út-
söluverð lækkaði um þriðjung í
tengslum við gerð kjarasamninga
og margir notuðu tækifærið og
festu kaup á nýjum bíl. Ég myndi
hvorki biðja um eða vonast til þess
að slíkt gerðist aftur. Miklu raun-
hæfara er að gera sér vonir um
að stjórnvöld breyti aðflutnings-
gjöldum varfærnislega. Bílar eru
of hátt tollaðir. Það er engin raun-
hæf lógík í því hvernig miðað er
t.d. við vélarstærð þegar ákveðið
er í hvaða flokk ákveðin bifreið
skal falla. Það ýtir undir að fluttir
séu inn bílar með minni vélar í
nafni bensínsparnaðar, þegar minni
vélin hentar ef til vill verr við hér-
lendar aðstæður. Þessi mál þarf öll
að endurskoða og því fyrr því betra,
því íslendingar þurfa að endurnýja
sinn bílaflota.“
Hlutdeild Subaru er ekki mikil
miðað við heildina hjá ykkur. Það
kemur nokkuð á óvart miðað við
miklar vinsældir skutbílsins gamla?
„Hann var og er gífurlega vin-
sæll, ótrúlega vel gerður og ending-
argóður bíll fyrir íslenskar aðstæð-
ur. Málið er hins vegar að verk-
smiðjurnar hættu með týpuna og
bíllinn sem kom í kjölfarið var bú-
inn sömu kostum en bæði stærri
og dýrari, Subaru Legacy. Á sama
tíma styrktist japanska jenið. Nú
höfum við náð góðum samingum
um nýjustu árgerðina af Legacy
og hann mun kosta innan við tvær
milljónir. Þá er að koma nýr Sub-
aru, Impreza, sem er nær gamla
bílnum að stærð og búnaði og hann
verður á enn betra verði. Þetta er
allt breytingum undirorpið. Það
sem er gott og gilt í dag gengur
ekki á morgun og það á ekki síst
við vegna óstöðugleika í gengismál-
um.
Við reiknum sem sagt með því
að Subaru fari í hærri sölutölur á
næsta ári og það sama má segja
um Opel. Við höfum rifið hann úr
nánast engri sölu upp í 5,5 prósent
af heildarsölu á örfáum árum. Þetta
eru geysivandaðir og góðir bílar,
þýsk smíð, og hafa verið mest seldu
bílarnir í Evrópu ár eftir ár og feng-
ið viðurkenningar fyrir smíð og
hönnun.
Uppistaðan í sölunni er Opel
Astra og Opel Tigra er sportbíll sem
við komum fljótlega með sem höfð-
ar eflaust ríkulega til unga fólks-
ins. Eins og allir hafa vonandi tek-
ið eftir vorum við að kynna glæsi-
legan nýjan bíl frá Nissan nú ný-
lega, Nissan Almera, sem er arf-
taki Nissan Sunny en þó stærri og
að að mörgu leyti skemmtilegri
bíll. Almera og Nissan Micra eru
uppistaðan í sölunni ásamt jeppun-
um Terrano 2 og Patrol. Nissan
hefur verið einn af mest seldu bíl-
unum hérlendis í mörg undanfarin
ár og segir það sína sögu. Við
spáum því að Nissan muni halda
sterkri stöðu sinni. Nú þessa dag-
ana munum við svo kynna nýjung-
ar í Izuzu Crew Cab. Við bjóðum
þann bíl nú með 3,1 lítra turbo
dísel vél, sem er aflmesta vélin í
bílum af þessu tagi,“ svarar Júlíus.
Að varast varahluti
Þú nefndir áðan að þið væruð í
varahlutaþjónustu fyrir stærri bíla-
flota en nokkurt annað umboð. Þið
hafið ekki fengið að heyra það að
varahlutir væru alltaf dýrastir hjá
umboðum og best að kaupa allt
slíkt hjá sérverslunum?
„Þetta er lífseigur orðrómur og
auðvitað verðum við að taka alla
samkeppni alvarlega, sama hver
hún er. Hins vegar eru þessar þrá-
látu raddir svo oft hreinlega rangar
að gaman væri að það sanna kæmi
einhvern tíman fram. Varahluta-
verslanir umboða eru geysilega
mikilvægur þáttur í starfseminni
og þjónustunni og ég veit mörg
dæmi um að slæm þjónusta með
varahluti hafi skaðað fyrirtæki
verulega.
Sala nýrra fólksbfla eftir tegundum
I Nissan
lOOO
800
600
400
200
Opei □ Aðrarteg.
ilLLfc
1991 1992 1993
1994
1995
til 17. nóv.