Morgunblaðið - 26.11.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 25
Miklu raunhæfara er að
gera sér vonir um að stjórn-
völd breyti aðflutnings-
gjöldum varfærnislega. Bíl-
ar eru of hátt tollaðir.
Þetta er nú þannig hjá okkur,
að bílarnir eru seldir með þriggja
ára ábyrgð, þannig að margar við-
gerðir falla hreinlega undir ábyrgð.
Eg get svo sem vel skilið að ein-
staklingar með mjög gamla bíla
freisti þess að kaupa ódýra vara-
hluti hjá partasölum til þess að
lengja lífdaga bílsins, en þó með
skammtíma markmið fyrir augum.
Það breytir því ekki, að „orginal"
varahlutur hlýtur alltaf að vera
besti kosturinn í bílinn. Auk þess
hefur varahlutaverslun breyst mjög
hin síðari ár. Um fjórðungur henn-
ar er nú sala á ýmiss konar auka-
búnaði, s.s. vindskeiðum, álfelgum,
kösturum og m.fl.“
Snúum okkur að öðru, stendur
til að sameina IH og Bílheima þar
sem þessi fyrirtæki eru rekin af
sömu aðilum að heita má í sama
húsnæði hér eftir?
„Nei, ekki stendur það til. Þessir
stóru framleiðendur eru eftir sem
áður í samkeppni á markaðinum
og hafa óskað eftir því að við höld-
um fyrirtækjunum aðskildum. _Að
sjálfsögðu verðum við við því. Það
er ekkert óeðlilegt að sama fyrir-
tæki, eða fjölskylda, hafi umboð
fyrir tvö eða fleiri umboð. Slíkt er
algengt erlendis og er sérstaklega
hagkvæmt í íslensku samfélagi þar
sem markaðurinn er jafntakmark-
aður og raun ber vitni. í þess hátt-
ar viðskiptaumhverfi sem við búum
við getur verið lífsnauðsynlegt að
hafa fleiri en eina körfu til að tína
eggin í. Annars er hætt við að
reksturinn geti orðið þungur. Ef
við hefðum t.d. aðeins verið með
Subaru, hefði verið erfitt að takast
á við það þegar sala á Subaru
minnkaði."
En þið haldið í horfínu og eruð
bjartsýnir á framtíðina?
„Já, já, því ekki það, okkur hef-
ur gengið vel og það væri vanþakk-
læti að kvarta. Við erum með góð
vörumerki og raunar fleira en ég
hef sagt þér, því við erum bæði
með landbúnaðarvélar á borð við
Massey Ferguson og mikið úrval
landbúnaðarvéla og lyftara á borð
við hina þýsku Linde sem eru
stærstir í heiminum í framleiðslu
lyftara. Þá er því ekki að neita, að
léttara er yfir viðskiptavinum okkar
í seinni tíð en áður og alveg
hugsanlegt að betri tímar sú fram-
undan, a.m.k. verðum við varir við
stóraukna bjartsýni, ekki síst eftir
að samið var um stækkun álvers-
ins. Þá stöndum við ekki síst vel
að vígi vegna þess að Ingvar Helga-
son og Bílheimar eru samhent fjöl-
skyldufyrirtæki. Það standa allir
saman og heill fyrirtækisins er það
sama og heill fjölskyldunnar. Yfír-
bygging er í lágmarki og menn
deila ábyrgðinni og ákvarðanataka
er sameiginleg. Pabbi, Ingvar
Helgason, er forstjóri, en ég og
bræður mínir, Helgi og Guðmundur
Ágúst, erum framkvæmdástjórar.
Ég hygg að þau atriði sem ég hef
nefnt segi þá sögu að fyrirtæki
verði varla byggð á traustari
grunni.“
Svanasöngur
Jafnan er reynt að kynnast eilít-
ið viðmælandanum í viðtölum þess-
um. Áður er getið söngnáms Júlíus-
ar Vífils við heimfrægan tónlist-
arháskóla í Vín og á Ítalíu, en við
heimkomuna var mikið að gera,
enda grasseraði óperusöngur sem
aldrei fyrr á íslandi einmitt á miðj-
um síðasta áratug og fram eftir
honum. Júlíus Vífill, sem er tenór,
segist hafa haft meira að gera en
flestir og að hann hafi á fjórum
árum, 1982-1986, tekið þátt í á
annað hundrað óperusýningum í
Þjóðleikhúsinu og Islensku óper-
unni. „Það var varla sett upp sú
ópera eða sönguppákoma að ég
væri ekki meðal þátttakenda og
oftast í einu af aðalhlutverkunum."
Varstu svona góður?
„Ég segi það ekki. Best að aðrir
dæmi um það,“ svarar Júlíus Vífill.
En hvers vegna hættir þú að
syngja?
„Eg var fljótlega við heimkom-
una kominn í fullt starf hér í fyrir-
tækinu og við það bættist allur
söngurinn. Þetta var hreinlega of
mikið. Ég upplifði það mánuðinn
út og mánuðinn inn að mæta til
vinnu á mánudögum gersamlega
útkeyrður eftir eril helgarinnar. Eg
vissi að það kæmi að því að störf
mín á báðum vígstöðvum myndu
líða fyrir og því var það er ég söng
hlutverk svansins í Carmina Bur-
ana í upgfærslu með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Söngsveitinni
Fílharmóníu árið 1986, að ég ákvað
að það yrði minn svanasöngur. Mér
fannst það viðeigandi.
Það var annaðhvort það, eða að
koma mér út til Þýskalands eins
og kollegar mínir Kristinn Sig-
mundsson og Viðar Guðnason
gerðu. Það sem réð ákvörðun minni
var einfaldlega að mér líður vel á
íslandi. Þá eru það mikil forréttindi
að geta stundað vinnu sem heillar
mann í samvinnu við fjölskyldu
sína. Ég er nú þannig gerður að
ég hef ýmis áhugamál og það er
hægt að sækja lífsfyllingu og ham-
ingju í fleiri hluti en einn.“
Hefurðu aldrei séð eftir að hafa
hætt að syngja?
„Ég er mjög sáttur við ákvörðun
mína og hef ekki fengið bakþanka.
Auk þess væri það stórmál ef ég
fengi þá flugu í kollinn að fara að
syngja aftur. Það myndi kosta
margra mánaða uppbyggingu, 2-3
klukkustunda æfingar á degi hveij-
um með miklum aga og ég sé mig
ekki í því hlutverki nú. Maður má
ekki vera blindur á sjálfan sig. Það
breytir því ekki að tónlist er mitt
áhugamál númer eitt, tvö og þijú
og ég hef geysilega ánægju af því
að hlusta á vel fluttan óperusöng.
Þá langar mig helst til að spretta
á fætur og taka undir með flytj-
anda. Eftir stendur að þetta var
yndislegur tími og góður í minning-
unni.
Auðvitað fylgdi þessu mikill
spenningur, t.d. að vera á sviði og
syngja fyrir fullu húsi. En þegar
ljóminn bráði af þessu kom í ljós
að þótt óperusöngur sé listgrein,
þá er hann líka starf. Kollegar
mínir margir hafa verið að hneyksl-
ast út í mig vegna þess að ég
hætti og helgaði mig viðskiptum.
„Hvernig gastu hætt?“ er ég búinn
að heyra æði oft. Við því er ekkert
að segja annað en að ég hef gaman
af spennunni og margbreytileika
viðskiptanna."
Ertu þá alveg hættur? Syngur
ekki einu sinni fyrir þína nánustu?
„Jú, ég syng enn þá og þá helst
í sturtu. Ég er góður í sturtunni
og tek þá allar raddirnar. Ég er
líka fínn upp úr miðnætti í góðra
vina hópi.
lilboð yikunnar
^Tímamótatilboð verit með VSK.
LEO*$§ PREDATOR
Pentium 90Mhz
• 8 MB RAM
• 1080 MB diskur
• 15" litaskjár
• 105 hnappa Windows'95
lyklaborö
• Mús
• Meiriháttar Creative SBL4X
margmiðlunarpakki-12 titlar
f
haiS skiplir mali
\ i(1 kati|> á marfími<Miinarl<">l\ii
aA (lisknrinn sr nó{íii <">Hii{iiir...
Ilúr lijúónm \ ió S<*ajial<‘ <lisk
iiK'ó 5400 snúniiijiiim
á mínrou (Itl'IVI)
oji mró sóknarhraóa 10.5 msrk.
V____________________________