Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 41
MIIMIMINGAR
SIGURLAUG
G UÐJÓNSDÓTTIR
+ Sigurlaug Guðjónsdóttir
var fædd í Hvammi í Vatns-
dal 15. apríl 1920. Hún lést í
Landspítalanum 15. nóvember
síðastliðinn og fór útförin fram
24. nóvember.
VIÐ systkinin eigum öll okkar
minningar um ömmu. Munum
hana mislangt aftur í tímann en
öll minnumst við skemmtilegrar
sögukonu sem hafði dálæti á ljóð-
um. Sum okkar voru tíðir nætur-
gestir á Rauðárstígnum á yngri
árum og tókum þátt í hennar
bjástri og bisi. Við lærðum undir-
stöðuatriðin í því að fara fijálslega
eftir bakstursuppskriftum, amma
hafði þetta allt á tilfinningunni og
var óhrædd við að fylgja henni.
Amma var sífellt að endurhanna
íbúðina sína, hún var ekkert að
tvínóna við hlutina, þá voru atriði
eins og stærð og þyngd hlutanna
engin fyrirstaða. Stundum röltum
við uppí Hallgrímskirkju til þess
að vera við sunnudagsmessuna,
settumst þá gjarnan hjá stóra
pálmatrénu og sungum með. Hún
kunni aragrúa sálma enda fyrrum
prestsfrú, hún hafði yndi af góðum
sálmum og ljóðum, sem hún las
stundum fyrir okkur. Amma var
gjarnan á faraldsfæti og oftar en
ekki fengum við að heyra ferða-
sögu dagsins vel kryddaða með
ætterni og frásögnum af fólki sem
hún hitti og spjallaði við. Við minn-
umst þess dags með gleði þegar
við hittum hana brúna og sællega
í haust sitjandi á kaffihúsi í góða
veðrinu, hún var þá í einni af sín-
um ofáu bæjarferðum. Það var
síðan óvænt ánægja þegar hún
seinna um daginn brunaði til okk-
ar með almenningsvagninum, til-
búin í spilaslag, vist og ekkert
múður. Helst upp á heila eða hálfa
og ekkert nóló. Við erum þakklát
og stolt yfir að hafa átt svona
frábæra ömmu með alla sína kosti
og galla, sem lifði fyrir líðandi
stund og lét engan segja sér fyrir
verkum. Hvar sem elsku amma
okakr er núna þá lifir minning
hennar í huga okkar allra sem
vorum svo lánsöm að kynnast
þessari gersemi.
Eirún, Vaka, Tinna
og Teitur.
Mig rámar í að hafa fyrst séð
Sigurlaugu, þegar við Gunnar son-
ur hennar vorum að heija skóla-
göngu, sjö ára gamlir. Ég kynntist
henni ekki að ráði fyrr en ég réðst
til kennslu á Höfn, en þá tókst
Skilafrest-
urvegna
minn-
ingar-
greina
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í
miðvikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dög-
um fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
með okkur Skarphéðni manni
hennar góður vinskapur. Séra
Skarphéðinn var mér góður vinur
og svo hollráður, að honum þakka
ég eina giftudrýgstu stefnubreyt-
ingu sem ég hef gert í lífinu. Þeg-
ar hann féll frá urðu kynni okkar
Sigurlaugar nánari. Tók hún þar
við sem Skarphéðinn hætti og var
mér ráðagóð og hlý. Allt sem hún
lagði til um vandræði mín ýmisleg
og ég hafði vit til að fylgja, varð
mér til gæfu. Þetta er mér dýr-
mætast og skal þakkað hér.
En Sigurlaug var ekki einungis
góður trúnaðarvinur, hún var ein
skemmtilegasta kona sem ég hef
kynnst. Fyrir fáum dögum áttum
við unaðslega stund saman á kaffi-
húsi í Reykjavík, þar sem við sögð-
um hvort öðru skemmtisögur og
bæjarslúður, ræddum skáldskap
og pólitík. Hún var óvenju hress
í bragði þennan dag. Því er nú að
oss harmur kveðinn, okkur sem
þekktum hana og elskuðum hana.
Sigurlaug tregaði mann sinn
mjög. Ég hygg að söknuður henn-
ar hafi vaxið með árunum, var sár
sem tíminn græddi ekki. Þetta
vissu fáir, því hún bar harm sinn
í hljóði. Við ræddum þetta aðeins
einu sinni og þá skildi ég hve heitt
hún unni honum. Það er því hugg-
un harmi gegn að hugsa til þess
að þau Sigurlaug og Skarphéðinn
skuli nú vera saman á 'ný og hafa
opið hús fyrir handan í tilefni
dagsins. Þar munu trúlega koma
Dagur og Siggi hálofta og fleiri
vinir, því gestkvæmt mun alltaf
verða hjá Sigurlaugu, hvar sem
hún er. Þar mun að henni sópa
ekki síður en hér. Þar mun oss
búið athvarf um síðir.
Guðmundur Ólafsson.
ÞORDIS
G UÐJÓNSDÓTTIR
+ Þórdís Guðjóns-
dóttir fæddist á
ísafirði 29. septem-
ber 1897. Hún lést á
Hrafnistu í Reylqa-
vík 20. nóvember
síðastliðinn. Þórdís
var næstelst 12
barna hjónanna Sig-
ríðar Halldórsdótt-
ur og Guðjóns
Magnússonar. Að-
eins yngsta dóttir
þeirra hjóna, Anna,
er eftirlifandi af
systkinahópnum.
Hinn 25. desem-
ber 1919 giftist Þórdís Jakobi
Kristmundssyni, f. 16. ágúst
1896, en hann fórst í sjóslysi
12. desember 1924. Þau eignuð-
ust fjögur börn. Þau eru: Anna,
f. 17. júlí 1920, d. 7. júní 1942;
Unnur, f. 18. júlí 1921, gift
Bjarna Bentssyni;
Kristmundur, f. 4.
júlí 1923, giftur
Astdísi Gísladóttur;
og Jakob, f. 2. sept-
ember 1924, d. 8.
október 1962, eftir-
lifandi eiginkona
hans er Kristín
Kristinsdóttir.
Eftir lát eigin-
mannsins starfaði
Þórdís við fisk-
verkun og einnig
tók hún að sér ýms-
an pijónaskap. Eft-
ir að hún fluttist til
Reykjavíkur starfaði hún við
ræstingar hjá Ríkisútvarpinu
til 70 ára aldurs.
Utför Þórdísar fer fram frá
Fossvogskirkju á morgun,
mánudag 27. nóvember, og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
ÞÓ ÉG sé þakklát hægu andiáti
Þórdísar ömmu minnar, 98 ára, þar
sem hún hafði verið lengi veik,
vakna ég daginn eftir með grátstaf-
inn í kverkunum er líf hennar rifj-
ast upp fyrir mér. Líf sem oft var
erfitt og sorgum stráð. Hún varð
ekkja 27 ára gömul með fjögur lítil
börn, það elsta fjögurra ára og
yngsta þriggja mánaða. Barnlaus
hjón tóku yngsta barnið, Jakob, í
fóstur og voru honum sem bestu
foreldrar. Þótt hann hafi alltaf haft
samband við móður sína og systkini
olli það ömmu hugarangri og eftir-
sjá alla ævi að hafa látið hann frá
sér. Dóttir hennar, Anna, lést aðeins
21 árs og sonur hennar, Jakob, lést
38 ára. Amma giftist ekki aftur en
aldrei var hún bitur. Hún var geðb-
esta manneskja sem ég hef kynnst
og það var margt sem gladdi hana.
Þegar ég dvaldist erlendis saknaði
ég mest hlátraskallanna í ömmu og
systrum hennar, þær hlógu svo inni-
lega og smitandi.
Þegar amma bjó á Sólvallagöt-
unni fékk ég oft að sofa hjá henni.
Við sátum í litla eldhúsinu og feng-
um okkur kvöldkaffí og töluðum
saman eins og ég væri fullorðin. Á
eftir bjó hún um mig í rúmfatakass-
anum. Hún skildi svo vel, þegar ég
níu ára gömul, vildi fá að sofa heima
hjá henni á virkum dögum svo ég
gæti prófað að taka strætó í skólann
eins og svo margir bekkjarfélagar
mínir. Ef hún var ein heima í húsinu
bað hún mig um að sofa heima hjá
sér og var ég sérstaklega hreykin
af því og þóttist vera að gæta ömmu
minnar. A sumardaginn fyrsta gaf
amma okkur alltaf sumargjafir,
bolta, sippuband eða jafnvel striga-
skó. Falleg íslensk hefð sem ég við-
held nú sem amma sjálf.
Amma vann við ræstingar hjá
útvarpinu í mörg ár, fyrst við Aust-
urvöll og síðar við Skúlagötuna. Hún
bauð okkur systkinunum alltaf með
sér á jólaböllin þar. Hún var svo fín
í íslenska upphlutnum og kynnti
okkur hreykin fyrir starfsfólki tón-
listardeildar útvarpsins, sem allt
kom fram við hana af ástúð og virð-
ingu. Hún hafði yndi af ljóðum.
Sérstaklega minnist ég þess þegar
hún las upphátt fyrir mig ljóð Þor-
steins Erlingssonar. Einnig naut
hún þess að fara í leikhús.
Arið 1961 sigldum við amma með
Gullfossi til Kaupmannahafnar með
viðkomu í Edinborg. Þetta var fyrsta
utanlandsferð okkar beggja og
amma bar sig eins og heimsdama
um borð. Amma hafði sagt mér að
leggja alla peningana í banka sem
ég vann fyrir í frystihúsi sumarið
áður og þá sem ég hafði fengið í
fermingargjöf um vorið, svo ég
gæti komið með henni til Dóru
frænku í Kaupmannahöfn. Ég ótt-
aðist að amma mundi sjálf ekki eiga
fyrir ferðinni, þar sem ég mundi
þegar hún sagði mér hvað Karl syst-
ursonur hennar hafði sagt sem barn
þegar hún sagðist ætla að gefa
honum eitthvað fallegt þegar hún
yrði rík: „En Dísa, þú verður aldrei
rík.“ Nei, Dísa varð aldrei „rík“, en
við systkinin vorum rík að eiga hana
fyrir ömmu.
I 16 ár var amma ráðskona hjá
Asgeiri Guðnasyni á Njálsgötu 79.
Hann var lífsreyndur maður eins
og amma. Fjölskylda Ásgeirs reynd-
ist ömmu vel þegar hann lést og
bjó hún áfram í íbúð hans í eitt ár,
en þá fluttist hún til Unnar dóttur
sinnar og bjó hjá henjii þar til hún
fluttist á Hrafnistu 1977. Þar naut
hún frábærrar umönnunar, elsku
og natni starfsfólksins og færi ég
þeim innilegar þakkir.
Þegar litið er til baka er þakk-
læti til ömmu efst í huga. Hún gaf
okkur barnabörnum og barnabarna-
börnum sínum svo mikla ást og
umhyggju. Blessuð sé minning Þór-
dísar Guðjónsdóttur.
Anna Þórdís.
Fasteipasala Ktjkjavíkur
Suðurlandsbraut 46,2. hæð, M Rvik. / Siprbjðm Skarpbéðinsson lg.fs. Þóronr inprsson
Sími - 588-5700
Opið í dag
sunnudag
frá kl.
11.00-14.00
FÉLAG rf^ASTEIGNASALA
Einbýli og raðhús
Hjarðarhagi - 4ra herb.
Garðhús. Aðeins eitt hús
eftir. Vel skipul. endaraðh. á
tveimur hæðum ca 145 fm
ásamt 24 fm bílsk. Lóð og stæði
frág. Húsið er til afh. nú þegar
fokh. að innan, fullb. að utan.
Verð 7,8 millj. Eða tilb. til innr.
Verð 9,6 millj.
Nýbýlavegur - hæð + bflsk.
4ra herb. vel skipul. efri hæð ca 83
fm ásamt 40 fm bílsk. Parket. Mikið
útsýni. Laus strax. V. 8,5 m.
Álfhólsvegur - allt sér
3ja herb. jarðh. (ekkert niðurgr.)
ca 66 fm. Gott skipulag. Parket,
fiísar. Sérinng. Húsið að utan
nýtekið í gegn. Áhv. 3,1 millj.
byggsj. o.fl. Verð 5,9 millj.
Þingás. Ca 170 fm einb. ásamt 44
fm bílsk. Ekki alveg fullb. Skipti á minni
eign. Verð 13,5 millj. Áhv. 5-7 millj.
Stór og rúmg. 4ra herb. (b. ca 115 fm
á 1. hæð í litlu fjölb. Parket. Nýtt eld-
hús o.fl. Bílskýli. Áhv. 3,4 millj. Verð
8,8 millj.
Álfheimar - 4ra herb.
Mjög góð 4ra herb. íb. tæpl. 100
fm í nýviðgerðu húsi. Parket,
Áhv. 3.180 þús. Verð 7,2 millj.
Parhús Garðabæ. Mjög
gott ca 200 fm parh. á tveimur
hæðum ásamt 34 fm bilsk. 4
svefnherb., 3 stofur, gott fyrir-
komulag. Ath. skipti á ód. Ahv.
3,2 millj.
Bakkasmári - parh.V. 9,3 m.
Berjarimi - parh. V. 12,9 m.
Heiðnaberg V. 14,5 m.
Vesturberg - einb.V. 11,9 m.
Lindarsel - einb. V. 24,9 m.
Lyngberg V. 11,9m.
Hæðir og 4-5 herb.
Fellsmúli. Mjög góð 4ra herb.
tæpl. 100 fm íb. á 2. hæð í fjölbýli.
Nýtt eldh. o.fl. Góð eign miðsvæðis í
borginni. Áhv. 4,7 millj. Verð 7,9 millj.
Hrfsmóar - Gb.
Vlrkilega góð 4ra herb. endaíb.
á 1. hæð ca 116 fm ásamt innb.
bílsk. Parket. Elísar. Tvennar
svalir. Upphitað bilaplan. Husið
nýmálað. Góð eign á eftirsóttum
stað. Áhv. 2.750 þús. Verð 10,8
millj.
Holtagerði - Kóp. ca 113
fm neðri sérhæð f tvíbhúsi ésamt
23 fm bilsk. 3 stór svefnherb.
Góð staðsetn. Áhv. 2 millj. V.
8,3 m.
Engihjalli. Rúmg. og björt 3ja
herb. íb. ca 90 fm. Suður- og aust-
ursv. Parket. Útsýni. Þvottah. á hæð.
Áhv. ca 2,0 millj. V. 6,2 m.
Drápuhlíð. Góð 3ja herb. íb. í kj.
Sérinng. Parket o.fl. Áhv. byggsj. 3
millj. Verð 5,9 millj.
Vesturbær. Mjög falleg og
vel skipul. 4ra herb. íb. á 3. hæð
f húsi sem altt er nýkl. að utan.
ib. er öll nýuppg. að innan. Bílsk
fylgir. Áhv. 5,0 millj. Verð 8,8
millj.
Hlíðarhjaili
Sérl. vönduð og falleg efri sér-
hæð ca 130 fm með sérh. innr.,
glæsil. útsýni, og bílskýli. Eign í
sérflokki. Ahv. 2,5 millj. hagst.
langtl.
Dúfnahólar - 4ra herb. Mjög
góð og falleg ca 103 fm 4ra herb. íb.
á 6. hæð í lyftuhúsi. Fráb. útsýni.
Góðar innr. Vönduð gólfefni. Áhv. 1,8
millj. Verð 7,5 millj.
Eyjabakki V. 6,9 m.
Flúðasel V. 7,1 m.
Frostafold V. 7,9 m.
Lindasmári V. 8,4 m.
3ja herb.
Trönuhjalli. Mjög góð 3ja herb.
íb. á 2. hæð í fjölb. Parket. Gott út-
sýni. Vandaðar innr. Skipti á 2ja herb.
mögul. Verð 8,2 millj.
Orrahó lar. Vönduð og ný-
uppgerð c a 90 fm fb. með glæsil.
útsýni. Nj 'viðgert lyftuhús. Hús-
eins 6,2 n lillj. Áhv. 2,8 millj.
2ja herb.
Vallarás. Mjög góð 54 fm 2ja herb.
íb. á 5. hæð í lyftuh. Parket. Góðar suð-
ursv. Stutt í alla þjónustu. Áhv. byggsj.
2,4 millj. Verð 4,9 millj.
Víkurás - útb. 2,3 m.
Mjög falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð.
Parket, flisar o.ft. Gervihnattadisk-
ur. Öil sameign og lóð fullfrág.
Áhv. 2,9 miilj. Verð 6,2 milij.
Veghús - húsnæðis-
fán. Séri. fatleg og vönduð 3ja
herb. íb. á jarðhæð. Áhv. 5,2
millj. byggsj. rikisins til 40 ára.
Verð 7,9 millj.
Hraunbær - laus. Rúmi. 90 fm
íb. á 1. hæð. Parket, flísar o.fl. Áhv.
3.750 þús. Verð 6,4 millj.
Skógarás. 2ja herb. íbúð á jarðh.
ca 66 fm ásamt 25 fm bilsk. Laus strax.
Verð 6,4 millj.
Atvinnuhúsnæði
Hraunbær 10fm.
Álfabakki 55 fm.
Skólavörðustígur. 80 fm.