Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 42
42 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
J?m PAVfe>
és VAR AÐ
d6ALLTS€/t1
þAE> 5K SA<ST AÞ
\Ki5A5ÐO>e S5U
STfóZRl £H FÍLAR.
Grettir
Ljóska
Hér er flugkappinn úr stríðinu
að hækka flugið yfir landamær-
um óvinanna ...
HERE'S THE LúORLD WAR I
FLVIN6 ACE ZOOMIN6 THR0U6H
TME AIR ABOVE ENEMV LINES..
I GOT A LETTER FROM MOM T0PAY..5HE ALUJAT5 W0RRIE5 ASOUT ME.. mw[ mmm; \ W 5HE SAID NOT TO pf;æ T00
£
1 1 V) 2 1 1 s p^. '0 , | "/'Oy—' \
1 ©
Ég fékk bréf frá mömmu i Hún sagði mér að
dag... hún hefur alltaf áhyggj- fljúga ekki of
ur af mér ... hátt —
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hreinsunar-
eldur til efling-
ar ferðamála
Frá Erlingi B. Thoroddsen:
UNDANFARIN misseri hafa tutt-
ugu ungmenni gengið til liðs við
Hvítasunnusöfnuðinn í Vestmanna-
eyjum. Einhver þeirra hafa brennt
bækur og geisladiska í einrúmi eða
nokkur saman. Hugmyndina fengu
þau eftir lestur Postulasögu 19, þar
sem segir að söfnuðurinn hafi
brennt kuklbækur.
Þetta er án efa ákaflega þörf
hreinsun þarna í Eyjum, annars
hefðu ungmennin ekki fundið hjá
sér þörf til verksins.
Skemmst er að minnast sam-
skipta Snorra safnaðarstjóra við
SAM-útgáfuna og þeirra álaga sem
hann lagði á hana. Hvort lok þeirr-
ar starfsemi hafí verið af völdum
hans eða annarra orsaka, þá eign-
aði Snorri safnaðarstjóri sér þann
vafasama heiður að hafa stöðvað
hana.
Ég efa ekki að ungmennum sé
kunnug afstaða Snorra til sorabók-
mennta. En hvað sem því líður, þá
er þama á ferðinni fyrirbæri, sem
á sér margar hliðstæður í veraldar-
sögunni. Oftar en ekki hafa afleið-
ingar þeirra verið ósamboðnar sið-
uðu fólki. En þar sem Snorri safnað-
arstjóri er réttsýnn og umburðar-
lyndur og hefur góða stjóm á söfn-
uði sínum, þá ætla ég að afleiðing-
ar brennanna í Eyjum fari ekki út
í meiri öfgar en ritúalið leyfir.
Arviss atburður
Því vil ég koma fram hugmynd-
um fyrir Snorra safnaðarstjóra að
hugsa um í alvöru. En það er að
gera slíkar brennur að árvissum
atburði og gefa fólki ofan af landi
færi á að taka þátt í brennunni, sem
gæti með tíð og tíma orðið meira
aðdráttarafl, en þjóðhátíðin í Eyj-
um. Þama gæti fólk komið til Eyja
með sorabókmenntir og djöfullega
tónlistardiska og brennt og endað
samkomuna á allsherjar niðurdýf-
ingu. Slík uppákoma gæti með tíð
og tíma spurst út um heimsbyggð-
ina. Fólk úr öðrum heimshlutum
fengi áhuga á málinu og kæmi til
Eyja eins og pílagrímar til Mekka,
til að brenna sorabækur, beint eða
táknrænt. Skiptir ekki máli. Heldur
hugurinn sem því fylgir. Þá mætti
koma upp sölubás til að selja sora-
bókmenntir, líkt og kerti eru víða
seld erlendis, til brennslu, á ýmsum
helgum stöðum, og njóta mikilla
vinsælda ferðamanna. Þar gæti
einnig skapst rými fyrir bókaútgef-
endur til að losna við offramleiðslu
sína, sem væri í lagi, þar sem út-
lenskir lesa ekki hið ástkæra ylhýra.
Endurvinnsla
Ef vel tækist til og mikil aukning
yrði, þarf að sjálfsögðu að útbúa
aðstöðu til brennslunnar (ég efa
ekki að umhverfisráðuneytið gæfi
starfsleyfi sitt). Nú þetta hefði
hugsanlega í för með sér einhverja
minnkun á endurunnum pappír,
sem er í lagi. Hver hefur áhuga á
því að fá inn um bréfalúguna opin-
bera tilkynningu á endurunnum
pappír, sem áður var noaður undir
slíkar bókmenntir? Ég tala nú ekki
um endurunninn hreinlætispappír
með slíka fortíð.
Það er fleira, sem þörf er á að
brenna en bækur og geisladiska.
Því allt er morandi í vafasömum
myndböndum, fílmum, listaverkum,
fatnaði og allskyns varningi, sem
leiðir til kynvillu og ætti heima á
bálinu. Einnig mætti koma fyrir
aðstöðu fyrir þá, sem hafa öfugar
kenndir og vilja afhommast, til að
skera af sköp sín og brenna.
Hróður
Með tíð og tíma gæti hróður
Snorra safnaðarstjóra og fylgifólks
hans breiðst út. Snorri gæti orðið
ímynd góða Sorphirðisins um gjör-
valla heimsbyggð. Samtök græn-
ingja og annarra náttúruverndar-
samtaka gætu átt pláss undir regn-
hlíf Snorra safnaðarstjóra. Straum-
ur ferðamanna (pílagríma) gæti
aukist til Eyja (landsins) og ógrynni
nýrra atvinnutækifæra gæti skap-
ast í ferðaþjónustu og sálgæslu.
Mér þykir þarna vera á ferðinni
hið merkilegasta mál, og bið hlutað-
eigandi að skoða það út frá ofan-
greindum punktum í fullri alvöru.
ERLINGUR B. THORODDSEN,
Austurstræti 17, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbðk verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Handsmíðaðir silfur- og gullskartgripir.
Ný lína -frábœrt verð!
ILS MlÐ^
Skólavöróustíg 10 Rvík Sími 561 1300