Morgunblaðið - 26.11.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 45
I DAG
Arnað heilla
rj p'ÁRA afmæli. Á
I tlmorgun, mánudag-
inn 27. nóvember, er sjötíu
og fimm ára Jón S. Einars-
son, húsasmíðameistari,
Miðgarði 3, Neskaupstað.
Hann fæddist á Hafursá á
Völlum, fluttist til Nes-
kaupstaðar 1945, og hefur
starfað við kennslu, en lét
af því starfi í vor. Kona
hans er Þorbjörg Vil-
hjálmsdóttir og eiga þau
tvær dætur.
PAÁRA afmæli. í dag,
O V/sunnudaginn 26. nóv-
ember, er sextug Hanna
Stella Sigurðardóttir,
Suðurgötu 22, Siglufirði.
Eiginmaður hennar er
Kristinn Georgsson,
slökkviliðssljóri. Þau
dvelja nú erlendis.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 2. september sl. í
Áskirkju af sr. Áma Bergi
Sigurbjörnssyni Auður
Björg Þorvarðardóttir og
Þorsteinn Ingi Víglunds-
son. Þau eru búsett í Hafn-
arfirði.
70J50
ÁRA afmæli. í dag, sunnudaginn 26.
f ogyj\J nóvember, er sjötugur Böðvar Kristjáns-
son, Skaftárvöllum 9, Kirkjubæjarklaustri. Eiginkona
hans er Guðlaug Þorbergsdóttir en hún verður sextug
7. desember nk. Þau verða að heiman afmælisdagana, en
taka á móti gestum í Kirkjubæjarskóla, Kirkjubæjar-
klaustri laugardaginn 2. desember nk. milli kl. 15 og 19.
Farsi
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 11. nóvember sl. í
St. Mary’s Church í Upton
af sr. Chris Boyce, Melody
Wilde og Stefán Larsen.
Heimili þeirra er í 8 St.
Miehael’s Grove, Moreton,
Wirral, Merseyside L46
GDB, England.
STJÖRNUSPA
cftir I'ranccs Drakc
ORÐABOKIIM
ENDA þótt í þessum
litla pistli hafi tvisvar
sinnum á tæpum tveim-
ur árum verið minnzt á
hið hvimleiða danska
tökuorð takk, verður
enn vikið að því að gefnu
tilefni. I Mbl. 17. þ.m.
kemur fram í lesanda-
bréfi, að gefið hafi verið
út þakkarkort, sem á
stendur einungis eitt
orð: Takk. Ekki er nema
von, að bréfritara hafi
blöskrað þetta, enda
spyr hann, hvernig
hönnuður kortsins mun
þakka fyrir sig. í pistli
9. júlí sl. var minnzt á
Já, takk
það, að það séu gömul
áhrif frá dönsku að
segja takk eða takk fyr-
ir, enda vel þekkt í
mæltu íslenzku máli.
Um leið var bent á, að
þetta færi illa og sé með
öllu óþarft í ritmáli. í
þessu sambandi var tek-
ið dæmi af tölvukvittun
eins olíufélaganna, þar
sem stendur efst:
„TAKK FYRIR.“ Auð-
vitað er þetta engin ís-
lenzka, enda særir hún
sem betur fer máltilfinn-
ingu fjölmargra, sbr.
áðurnefnt lesandabréf. í
pistli 12. des. 1993 var
hér vikið að hinu hvim-
leiða vígorði: „Islenskt,
já takk.“ Nú klingir það
enn í eyrum og blasir
við augum. Það er svo
sem ekki að spyrja að
mætti auglýsingastof-
anna, sem ættu vita-
skuld að gæta tungu
okkar sem bezt. Minna
má enn á orð Halldórs
Laxness um ömmu sína,
sem sagði „guðlaun, ss.
þökk fyrir (aldrei nokk-
urntíma sagt „takk“)“.
Hún hefði trúlega frem-
ur sagt: „íslenskt, kærar
þakkir."
-J.A.J.
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú fylgist vel með tækninýj-
ungum og kannt að notfæra
þér þær.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júlí sl. í Digra-
neskirkju af sr. Kristjáni
Björnssyni Ingunn Sigríð-
ur Þorsteinsdóttir og Þór-
hallur Ólafsson. Heimili
þeirra er í HrísmÓum 1,
Garðabæ.
Hrútur (21. mars-19. apríl) Láttu vinnuna og viðskipti eiga sig í dag og hugsaðu um fjölskylduna. Vinur hefur góð ráð að gefa, sem þú ættir að fara eftir.
Naut (20. apríl - 20. ma!) Þú færð góða hugmynd varðandi vinnuna, sem getur fært þér velgengni. Reyndu að koma í veg fyrir deilur innan fjölskyldunnar.
Tvíburar (21.maí-20.júní) ÆX1 Félagslífið hefur upp á margt að bjóða í dag, og þú ættir frekar að heimsækja góða vini en bjóða heim gest- um í kvöld.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) . >“$£ Smávegis misskilningur get- ur komið upp milli ættingja árdegis. Þú þarft að Ijúka gömlu verkefni og hefur lít- inn tíma aflögu.
Ljón (23. júlí- 22. ágúst) Þú lendir’í einhverjum erfið- leikum við lausn á heima- verkefni í dag, en ættingi leggur þér lið, og saman náið þið góðum árangri.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Smekkvísi og góð dómgreind auðvelda þér að ná hagstæð- um samningum um kaup á verðmætum hlut í dag. Vinur er eitthvað miður sín.
Vog (23. sept. - 22. október) Þú kemur vel fyrir og átt auðvelt með að sannfæra aðra í dag. Vinur gerir þér tilboð sem þarfnast mikillar íhugunar.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Hjj0 Reyndu að gefa þér góðan tíma til samvista við þína nánustu í dag. Breytingar geta orðið á fyrirætlunum þínum í kvöld.
Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) íSO Síðdegis skemmtir þú þér vel í hópi góðra vina, en þegar kvöldar er heppilegra að halda sig heima og sinna fjölkskyldunni.
Steingeit (22. des. - 19.janúar) Þú finnur góða lausn á vandamáli, sem hefur valdið þér nokkrum áhyggjum að undanförnu. Varastu deilur við vin í kvöld.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Notaðu fyrri hluta dags til að umgangast vini og ætt- ingja. Þú hofur átt annríkt að undanförnu, og þarft að hvíla þig í kvöld.
Fiskar (19.febrúar-20. mars) IgSr Sumir eru að íhuga að þiggja tilboð um nýtt starf, sem lofar góðu fyrir framtíðina. Farðu sparlega með peninga í kvöld.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
Fiskverkendur - bændur - iðnrekendur
Framleiðum ódýra veggja- og loftkiæðningu úr lituðu stáli.
Timbur og stál hf.,
Smiðjuvegi 11, Kópavogi, sími 564 2940 og 554 5544 ,fáx 554 5607
RANNÍS
Rannsóknarráð íslands auglýsir
styrki úr Tæknisjóði með umsóknarfrest til 15. janúar 1996:
„Tæknimenn í fyrirtæki“
Styrkirnir eru veittir úr Tæknisjóði til fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða
vísinda- og/eða tæknimenntaðan starfskraft. Styrkir eru veittir til allt að
þriggja ára og nema hálfum launakostnaði sérfræðings.
• Umsækjendur geta verið fyrirtæki sem eru að hefja nýsköpun
en hafa ekki vísinda- eða tæknimenntað starfslið í þjónustu
sinni, en hafa að öðru leyti bolmagn og forsendur til nýsköpunar.
• Gert er ráð fyrir að f umsóknum komi fram áform fyrirtækja um
þróunarstarf og eflingu á tæknigetu fyrirtækis og bættri
samkeppnisstöðu þess á markaði.
Eyðublöð og leiðbeiningar (einnig á tölvudisklingi) verða tilbúin
27. nóv. nk. og skal sækja til Rannsóknarráðs íslands,
Laugavegi 13, sími 562 1320, fax 552 9814.