Morgunblaðið - 31.12.1995, Síða 31

Morgunblaðið - 31.12.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1995 B 31 áætlað að keypt þjónusta og vörur hérlendis séu um 2,5 til 3,0 milljarð- ar króna. Andvirði útfluttra sjávarafurða áætlar Fiskifélagið að verði um 85 milljarðar króna á árinu. Árið 1994 nam verðmæti útflutnings sjávaraf- urða 87,6 milljörðum króna. Það hefur því dregist saman um tæp 3% milli ára. Verðmæti þessa út- flutnings er áætlað nema um 1.311 milljónum dollara en það jafngildir um 5% aukningu frá því í fyrra. Þá var verðmætið um 1.249 miljjón- ir dollara. Sé miðað við SDR hefur útflutningsverðmætið þó dregist saman um rúmt 1%, en hér er um áhrif mismunandi gengisþróunar að ræða. Samdráttur í útflutningsverð- mætum þrátt fyrir aukningu í heild- arveiði er ekki óeðlilegur ef tekið er tillit til þess, að aukningin í magninu verður í síld sem er mjög ódýr vara. Þá er óhagstæð gengis- þróun hluti af skýringunni, eins og kemur fram hér að ofan, þ.e. að aukning er í útflutningnum mæld- um í dollurum, en samdráttur sé hann mældur í SDR. Einnig má ætla að birgðabreytingar geti spilað eitthvað inn í. Eins og drepið var á hér í upp- hafl má segja að þetta ár hafi markað nokkur spor í sögu sjávar- útvegsins, bæði í því tilliti að vinnsl- an hefur sótt í sig veðrið og hafið af auknum krafti að þróa vörur og með því móti aukið vinnsluvirðið og gert sig hæfari á markaði. Einn- ig hafa verið mörkuð spor í úthafs- veiðum og útgerðir hafa sótt á fjar- læg mið í mun ríkari mæli en áður. Þá hafa athafnamenn í sjávarútvegi aukið enn á samvinnu við erlenda aðila í sjávarútvegi um allan heim og selja nú ekki aðeins þann fisk sem íslendingar veiða heldur stjóma veiðum og vinnslu og ann- ast sölu afurða fyrir aðrar þjóðir. Við verslum með vöru sem kemur aldrei nálægt íslandi, en við njótum afraksturs frá henpi. Þannig sköp- um við okkur sess á alþjóðavett- vangi, ekki sem fiskveiðiþjóð heldur sem fisksölu- og fiskiðnaðarþjóð. Nýtt ár er fyrir stafni og sjávar- útvegurinn nú sem fyrr sér ekki yfir brimskaflana. -Ekki er þó ástæða til að vera svartsýnn, við eigum dugmikla sjómenn, verkafólk og athafnamenn sem munu í sam- einingu bregðast við og leysa þann vanda sem upp kemur hveiju sinni. Ég óska landsmönnum öllum far- sæls nýs árs og vona að árið verði öllum hagsælt bæði til lands og sjávar. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Þörf á sam- stilltu átaki MANNSKAÐARNIR á Vestfjörð- um setja skugga á árið 1995 og minna á hversu harðbýlt land okkar er og hve mikilvægt er að þjóðin standi saman þegar á reynir. Djúp- ur harmur er kveðinn að mörgum vegna þessara og annarra slysfara. Það er umhugsunarvert að við slík váleg tíðindi virðist allt dægurþras vera sem hjóm og hjal og varla ómaksins vert. íslendingar hafa verið blessunar- lega lausir við vopnaðan ófrið. Fréttastofur heimsins hafa flutt okkur fréttir af Balkanskaga og öðrum ófriðarsvæðum heimsins þar sem einstaklingar og fjölskyldur hafa verið að missa sína nánustu í hamförum af mannavöldum. Nú virðist raunhæft að binda vonir við að takast megi að slökkva ófriðar- bálið á Balkanskaga. Ef þetta heppnast þá yrðu það gleðileg stór- tíðindi ársins af erlendum vett- vangi. Gjafir eru yður gefnar Ef litast er um á hinum pólitíska baráttuvettvangi heimsins vekur athygli að nánast hvarvetna er ver- ið að heyja sömu baráttuna, með nánast sömu ráðum, sömu orðum og með sömu hagsmuni að leiðar- ljósi. Þannig eru hægri menn heims- ins að gefa vinum sínum stofnanir og fyrirtæki almennings í anda boðorðsins að sælla sé að gefa en þiggja. Hér á landi gaf ríkisstjórnin brennivínsheildsöluna fijálsa, eins- og það er kallað, síðastliðið vor og nýlega var greint frá því í fréttum að einkavæðingarnefnd fjármála- ráðuneytisins væri stöðugt að hugsa, væntanlega samkvæmt þóknunartaxta ríkisins. Sem dæmi um hve viðfangsefni stjórnmálanna eru skyld má nefna annars vegar þá baráttu sem Repú- blikanar undir forystu Newt Gingrich halda uppi á bandaríska þinginu til að koma á kné hinni veikburða velferðarþjónustu Bandaríkjamanna og hins vegar til- raunum Juppe forsætisráherra Frakka að ijúfa þá þjóðareiningu sem um langt skeið hefur ríkt um velferðarþjónustu í Frakklandi. Þannig virðist ekki samhengi á milli þess hve mikil eða kostnaðar- söm samneyslan og velferðarþjón- ustan er; róttækir hægri menn jafnt vestan hafs sem austan, telja sér skylt að beijast gegn hvers konar samhjálp og sameign eftir forskrift- um peningaftjálshyggjunnar, þess- arar undarlegu blöndu hagsmuna og hugmyndatísku. Margt bendir þó til að þessi bylgja sé í rénun. Þannig hafa Frakkar risið upp eftir að þjóðin áttaði sig á því að hún var á góðri leið með að verða fómarlamb skað- legrar hugmyndatísku og krafðist þess að fá rök stjómvalda áður en velferðarþjónustan yrði skorin niður við trog. Þau rök komu að sjálf- sögðu aldrei. Norðan Ermarsunds- ins, í Bretlandi, töluðu dæmin ským máli um þau mistök sem gerð höfðu verið í krafti þessarar stefnu, hvort sem voru vatnslausir kranar í einka- væddum vatnsveitum eða hrakandi velferðarþjónusta. Frá Nýja-Sjálandi tii íslands En það er fyrst núna að fólk er farið að skoða af alvöru reynslu þeirra þjóða, eins og Breta og Ný- Sjálendinga, sem gengið hafa lengst til móts við sæluríki fijáls- hyggjunnar. Á íslandi hefur Bret- land þann ókost að vera óþægilega nálægt en Nýja-Sjáland er hinum megin á hnettinum og virðist eina ríkið sem er svo langt í burtu að íslenskir fijálshyggjumenn telji þor- andi að nota sem fýrirmynd. Þess vegna bauð íslenska ríkisstjómin ný-sjálensku einkavæðingarséníi, fýrrverandi fjármálaráðherra lands- ins, hingað til lands á árinu til að boða fagnaðarerindið. Á Nýja-Sjá- landi eru menn hins vegar reynsl- unni ríkari eftir valdatíma þessa sérstaka spámanns sem leiddi af sér hveija hörmungina á fætur ann- arri yfir þjóðina og dró úr innri styrk hennar og efnahagsgetu. Þessar staðreyndir komu í ljós þeg- ar BSRB lét gera rækilega úttekt á umfangsmikilum kerfisbreyting- um sem fijálshyggjumenn höfðu gert á ný-sjálensku þjóðfélagi. Innan samtaka launafólks og á vettvangi félagshyggjustjórnmála er að aukast gagnrýnin umræða um hvernig takast eigi á við efna- hagsvanda þjóðanna, atvinnuleysið og skuldasöfnun á ábyrgan og upp- byggilegan hátt. Þessi hugsun hafnar einföldum kerfislausnum og. byggir á því að stuðlað sé að sam- vinnu og sameiginlegri ábyrgð, stöðugt sé tryggt lýðræðislegt að- hald og eftirlit. Hið félagslega markmið er eftir sem áður að byggja upp þjóðfélag þar sem hver einstaklingur fær svigrúm og tæki- færi til dáða en jafnframt um- hyggju og samúð þegar eitthvað bjátar á. Uppbyggileg umræða á dagskrá í anda þeirrar hugsunar að stuðla að uppbyggilegri umræðu af þessu tagi hefur BSRB gengist fyrir mál- stofufundum þar sem farið hefur verið í saumana á ýmsum álitamál- um. Þannig gengust samtökin til dæmis fýrir fundi þar 'sem starfs- fólk heilbrigðisþjónustu, stjórn- málamenn og heimspekingar veltu fyrir sér forgangsröðun í heilbrigð- isþjónustunni. Tæknisamfélag sam- tímans býður upp á sífellt fleiri möguleika til að lækna fólk og sinna forvörnum. Þetta leiðir til þess að stöðugt er þrýst á aukin útgjöld og standa þjóðfélögin nú frammi fyrir miklum siðferðilegum spurningum um hvernig nýta eigi fjármagnið, hve mikið og í þágu hverra. Ljóst er að hafni menn því að láta fjárráð fólks ákvarða aðgang að heilbrigð- isþjónustunni þarf að taka ákvarð- anir á öðrum forsendum. Þetta er umræða sem þarf að fara fram af mikilli alvöru á næstu misserum. Kjarasamningarnir á árinu voru ekki gerðir á vettvangi heildarsam- taka. Engu að síður reyndi Vinnu- veitendasambandið og ríki og sveit- arfélög að fylgja einsleitri kjara- stefnu. Láglaunafélög á almennum vinnumarkaði höfðu lagt upp með jafnlaunakröfu sem aðrir byggðu síðan á, ýmist í prósentuformi eða með krónutölu og varð niðurstaðan því nokkuð mismunandi. Þetta átti við bæði á almennum vinnumarkaði og innan opinbera geirans. Engu að síður var iðulega talað eins og um samræmda kjarasamninga hefði ver- ið að ræða sem byggðir hefðu verið á víðtækri samstöðu launafólks. Hamrað var á þeirri rangtúlkun að ríkið hefði „svikið“ eins og það var orðað, jafnvel innan vébanda verka- lýðshreyfingarinnar, og samið betur við ríkisstarfsmenn en gerst hefði á almennum vinnumarkaði. Það var sérkennileg reynsla fýrir fulltrúa lægst launuðu félaganna innan BSRB að fá sendimenn Þjóð- hagsstofnunar til að kanna hvort ríkið hefði samið umfram leyfileg mörk Vinnuveitendasambandsins. Löngu voru þá gleymdar launa- hækkanir, skattlagðar og skatt- lausar til háembættismanna, ráð- herra og alþingismanna sem vakið höfðu réttláta reiði þjóðarinnar. Drögum rétta lærdóma BSRB hefur marghrakið ýmsar rangfærslur sem reiddar hafa verið fram í samanburði um kjaraþróun á síðustu mánuðum og misserum og hefur sérstaklega verið bent á í því sambandi hve mikilvægt er, að bom- ar séu saman sambærilegar stærðir. Launakjör ríkisstarfsmanna eru öll aðgengileg fyrir kannanir á sama tíma og launakannanir á almennum vinnumarkaði eru byggðar á úrtaki og jafnframt vitað að þær gefa brenglaða mynd af launakjömm í efri launalögunum. Mikilvægt er að efla athuganir og rannsóknir á launakjörum í landinu þannig að forðast megi yfirborðskennda og misvísandi umræðu af því tagi sem setti svip á síðustu vikur ársins. En mikilvægast af öllu er að sam- tök launafólks dragi réttar ályktanir af reynslu síðustu vikna og mánaða og þeirri úlfúð sem hefur skapast innan vébanda verkalýðshreyfingar- innar. Að mínu mati er lærdómurinn sá, að þegar á að reyna að semja á svipuðum grundvelli fyrir launafólk í landinu öllu þá gengur ekki annað en að reynt sé að skapa mjög víð- tæka samstöðu um slíka samninga. Einhliða valdboð gagnvart stómm hluta vinnumarkaðarins mun aldrei ganga upp til lengdar og er til þess eins fallið að grafa undan verkalýðs- hreyfingunni. Og við því má samfé- lagið síst af öllu. Mikilvægi verkalýðshreyfingar Mikilvægi verkalýðshreyfmgar- innar kom berlega í ljós á síðustu vikum ársins þegar tekist var á um fjárlögin. BSRB beitti sér mjög gegn áformum um að skerða atvinnuleys- isbætur, örorku- og ellilífeyrisbætur og einnig þeim áformum stjórnvalda að koma á til frambúðar þeirri kerf- isbreytingu að þessar greiðslur yrðu ekki miðaðar við þróun launa og verðlags. Þá beittu samtökin sér mjög gegn því að tekin yrðu upp innritunargjöld á sjúkrahús og gjald- taka á sjúkrastofnunum yrði aukin með því að krefjast gjalda fyrir svo- kölluð ferliverk. Ríkisstjórnin kom til móts við kröfur BSRB og annarra samtaka launafólks í þessum málum. Eftir stendur þó að velferðarþjón- ustunni eru ekki tryggðir nægilegir fjármunir, og því er sú hætta fyrir hendi að draga þurfi úr þjónustu á sjúkrastofnunum á næsta ári og jafnvel segja upp starfsfólki ef ekki verða tryggðir viðbótarfjármunir. Við skoðun á millifærslukerfinu, svo sem barnabótum og vaxtabótum og stöðu velferðarþjónustunnar kemur í ljós hve hart hefur verið sótt að velferðarþjóðfélaginu á síðustu árum. Þetta viðurkenndu reyndar allir stjórnmálaflokkar fyrir kosn- ingar og lofuðu bót og betrun. Þeim mun hlálegra var þegar ríkisstjórnin kvaðst í upphafi kjörtímabilsins myndu skila einhveiju af því sem tekið hafði verið - en ekki fyrr en í tengslum við kjarasamninga í lok ársins 1996. Það hlýtur að vera saga til næsta bæjar að til skuli vera ríkis- stjórn sem ætlar að semja við launa- fólk um eigin kosningaloforð. Bjartara framundan Án efa mun koma mikið fjármagn inn í landið með nýju álveri og á lofti eru ýmis teikn um batnandi þjóðarhag. Það er umhugsunarefni hvemig umræðan um stóriðju hefur breyst á síðasta áratug. Án efa veld- ur viðvarandi atvinnuleysi þar miklu. í stað þess að sönnunarbyrði væri hjá fylgismönnum stóriðju um ágæti þess að reisa hér afkastamiklar verk- smiðjur virðist sönnunarbyrðin hafa færst á andstæðinga stóriðjunnar; hvernig þeir réttlæti andstöðu við vinnustaði sem veita mörgum hönd- um vinnu. í þessu felast ákveðnar hættur; að slegið verði af kröfum um meng- unarvarnir og til verði einskonar þriðja heims hugsunarháttur þar sem réttmæt gagnrýni er hrópuð niður ef hagvöxtur er annars vegar. Mikilvægt er að íslendingar haldi vöku sinni i umhverfismálum. Enda þótt sá sem þetta skrifar hafí verið hlynntur stækkun álversins er full ástæða til að vara við andvaraleysi í þessum efnum ekki síst þar sem fréttir berast af fleiri stóriðjufyrir- tækjum sem renna hýru vonarauga til íslenskra fallvatna. Spá um batnandi efnahag þjóðar- innar eru gleðitíðindi og vonandi mun efnahagsbatinn verða nýttur til að bæta og jafna lífskjör þjóðarinn- ar, stytta vinnutíma og útrýma at- vinnuleysi. Ef við vinnum samhent að þessum markmiðum verður kom- andi ár gott ár. Til að þetta gangi eftir er þörf á samstilltu átaki þjóð- arinnar allrar. Hallgrímur Gunnars- son formaður ís- lenzkrar verzlunar Verslun í víking! VERSLUN er einn vænlegasti vaxtarbroddur íslensks atvinnulífs og því ánægjulegt að ýmis fram- faramál verslunar hafa náð fram að ganga á liðnu ári. Þar má nefna gildistöku GATT-samkomulagsins og að áhrif EES eru farin að segja til sín á jákvæðan hátt fyrir íslensk verslunarfyrirtæki þrátt fyrir mót- stöðu „kerfisins". Þetta hefur leitt til að einkaaðilum er nú heimil m.a. verslun með áfengi í heildsölu og eins ýmsar tegundir landbúnaðaraf- urða. Tölur um gjaldeyrisskil og endurgreiðslu VSK vegna erlendra ferðamanna sýna að þessi verslun hefur aukist töluvert undanfarin ár en möguleikarnir eru langt í frá fullnýttir. íslenskir innflytjendur hafa með betri aðgangi að erlendum birgjum náð að lækka vöruverð á íslandi en meðan ríkisvaldið býr versluninni ekki betri skilyrði halda þeir vart sínum hlut t.d. í sam- keppni við innkaupaferðir landans til útlanda. Á árinu 1995 varð eðli- leg aukning í smásöluverslun þegar á heildina er litið þótt ekki nægði hún til að uppræta atvinnuleysi meðal verslunarfólks. Lækkun varð á einum vörugjaldaflokki fólksbíla, sem neytendur kunnu vel að meta og ríkisvaldið uppgötvaði að senni- lega væri hægt að auka tekjur ríkis- ins með lægri álögum! Við erum vonandi að nálgast þá stöðu að rekstrarumhverfi íslenskr- ar verslunar verði sambærilegt við það sem gerist með öðrum þjóðum en við þurfum að gera enn betur. Regluverk yfirvalda um viðskipti hér á landi þarf að vera þannig að það gefi okkur forskot í samkeppn- inni innan lands sem utan. Við höf- um séð dæmi þess að íslensk sjávar- útvegsfyrirtæki hafa lagst í víking og heijað á fjarlægum mörkuðum m.a. í Suður-Ameríku og i Rúss- landi með góðum árangri og sama má segja um ýmsa aðra verslun með íslenskar sjávarafurðir. íslensk iðnaðarfyrirtæki sem framleiða fýr- ir fiskútveginn hafa náð frábærum árangri á erlendum mörkuðum. ís- lensk flutningafyrirtæki hafa löng- um selt þjónustu sína erlendis og þannig aflað þjóðarbúinu tekna. Á liðnu ári náðu íslensk hugbúnaðar- fyrirtæki markverðum árangri en íslenskir verslunarmenn þurfa enn- þá að feta sig varlega áfram með sín viðskipti hérlendis, að ekki sé minnst á þriðjalandsviðskipti, til að draga björg í bú. Þessu þarf að breyta! Islensk verslun þarf að fá tækifæri til að heija bæði hérlendis og erlendis. Ef við reynum að greina hvers vegna „víkingum" okkar vegnar vel erlendis má í fljótu bragði sjá að fisksölufyrirtækin hafa vegna kunnáttu sinnar um erlenda mark- aði getað numið land á fleiri stöð- um, þökk sé sérstöðu íslands sem fiskveiðiþjóðar. íslensk iðnaðar- fyrirtæki sem framleiða fyrir útgerð • og fiskvinnslu hafa haft aðgang að góðum heimamarkaði til að byggja grunninn. Islensk flutningafyrir- tæki sömuleiðis. Ástæður þess að íslensk hugbúnaðarfyrirtæki ná árangri á erlendum mörkuðum eru sennilega margþættar, en góð menntun og ef til vill sú ákvörðun stjórnvalda á sínum tíma að undan- þiggja tölvur söluskatti hafa gefið það forskot, sem til þurfti svo hug- búnaðarfyrirtækin kæmust á legg. í sumum tilvikum hafa þessi fyrir- tæki notið ákveðinnar vemdar og/eða fyrirgreiðslu sem hefur létt undir í rekstri þeirra. Á óskalista íslenskrar verslunar til framtíðar er fyrst og fremst að öll lög og reglur um viðskipti verði einfölduð sem allra mest og þannig að íslensk verslunarfyrirtæki hafí af þeim sökum forskot á erlenda samkeppnisaðila. Þar ber fyrst að nefna vörugjöldin, sem afnema þarf hið snarasta. I raun er það sorgleg staðreynd að þá fyrst komst hreyf- ing á vörugjaldamálin í ráðuneyti og ríkisstjórn að þau voru kærð til ESA, sem nú hefur vísað málinu til EFTA-dómstólsins til úrskurðar. Auk vörugjaldsins era fjölmargar aðrar álögur sem hafa lagst þyngra á verslun en aðrar atvinnugreinar. Má þar nefna sérstakan skatt á verslunarhúsnæði, tryggingagjöld, leyfisgjöld ýmiss konar að ekki sé minnst á beinan fjárstuðning til valdra atvinnugreina. Vonandi verður Alþingi búið að leiðrétta þetta áður en árið 1996 er liðið. Ég hef nú rakið ýmis atriði sem snerta sérstaklega samkeppnis-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.