Morgunblaðið - 03.01.1996, Page 62
62 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Skokknámskeið
Ný 16 vikna námskeið hefjast 8. janúar 1996
og verður kennt á mánudögum, miðvikudögum
og fímmtudögum.
Byrjendur........ kl. 19.15—21.15
Framhaldshópur.....kl. 17.15—19.15
Áætlun:
Þrekmælingar
Einstaklings/hópáætlanir
Mataræði
Teygjur/teygjuæfingar
Þrekleikfimi
Aðrir viðburðir:
Ferð í Flóahlaupið í Vorsabæ
Auðragatnagleði NR
Námsflokkahlaup 96
Víðavangshlaup ÍR á sumar-
daginn fyrsta
Gautaborgarhálfmaraþon í maí
Kjörorð: Aldrei of seint
Kennsla fer fram í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1.
Innritun hefst 4. janúar og upplýsingar eru veittar í
símum 551 2992 og 551 4106.
Kennari: Jakob Bragi Hannesson.
A/htuiu
RÝMINGARSALA
BÚTASALA
Kl
Bútar og gluggatjaldaefni
í metratali
- allt að
ta 50%
afsláttur
ÍjLUGGATJOÖJ
Skipholti 17a
ÐB □
ÍDAG
Með morgunkaffinu
HOGNIHREKKVISI
// l/eann, mjö'j rolcpfr... ■
Ást er ...
6-25
að brciða yfir og kyssa
góða nótt.
TM Reg U.S. Pal. Otf. — all rights reserved
(c) 1995 Los Argeles Tlmes Syndicate
Farsi
^IW^araBCartoons/^Lby^JniversafPressS^ndirate^
„ {//frhöfum fenqihöll þessi orð!Ef \//cf óctrct
gscturn kom/ð e/nhserrt skJpQn d þau..."
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Farseðill o.fl.
tapaðist
FRANSKUR maður sem
var að skemmta sér á
Þorláksmessu tapaði far-
seðlinum sínum heim aft-
ur, svartri loðfóðraðri
leðurhúfu og frönsku
nafnskírteini. Hann lagði
leið sína á Gauk á Stöng
að biðskýli hjá Hreyfli,
tók leigubíl þaðan upp í
Eskihlíð. Hafi einhver
fundið þessa muni er
hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma
551-6536 eða 422-7136.
Bíllykill tapaðist
BÍLLYKILL í brúnu
lyklaveski tapaðist sl.
fimmtudag um fimm-
leytið. Eigandinn lagði
bíl sínum í bílastæði við
Hafnarstræti, fór þaðan
og yfir Hafnarstræti,
yfir Lækjartorg, í Ey-
mundsson og aftur til
baka að bílastæðinu.
Hafi einhver fundið
kippu er hann vinsam-
lega beðinn að láta vita
í síma 551-4597 eða fara
með lyklana í úrsmíða-
verslun Garðars Ólafs-
sonar við Lækjartorg.
Úr tapaðist
Úr á keðju af gerðinni
Pierpoint tapaðist 10.
desember, líklega í
Kolaportinu. Hafi ein-
hver fundið úrið er hann
beðinn að láta vita í síma
553-6411.
SKÁK
Umsjðn Margeir
Pctursson
HVÍTUR á leikinn
Staðan kom upp á stór-
mótinu í Groningen í Hol-
landi fyrir áramótin. Bos-
níumaðurinn Ivan So-
kolov (2.665) var með
hvítt og átti leik, en Ung-
veijinn Zoltan Almasi
hafði svart og lék síðast
19. — g7—g5?. Það er
ljóst að hvítur verður að
láta mann af hendi, en
Sokolov hafði greinilega
séð allt fyrir:
20. Bxe6! - fxe6 (Auð-
vitað ekki 20. — gxh4?
21. Dg6+ og vinnur) 21.
Rf5 - Df8 22. Hxe6 -
He8 (Ef svartur þiggur
seinni mannsfórnina og
leikur 22. — gxh4 þá kem-
ur 23. Re7+ - Kf7 24.
Hael með afar sterkri
sókn) 23. Hxe8 — Hxe8
24. Bg3 (Hvít-
ur hefur fengið
tvö peð og afar
hættuleg færi
fyrir manninn.
Nú hótar hann
að vinna
svörtu drottn-
inguna með
25. Bd6) 24. -
Hd8 25. Hel
- Rc6 26.
He6! (Svartur
getur nú ekki
varist ölium
hótunum
hvíts) 26. —
Kh8 27. Rd6 - Bc8 28.
Rxc8 — Hxc8 29. Dg6 —
Rxd4 30. Hxf6 og hvítur
hefur unnið manninn til
baka með peði meira og
léttunnu tafli. Svartur gaf
eftir 30. - Re2+ 31. Kfl!
- Rxg3+ 32. hxg3 - Dg7
33. Df5.
Lokastaðan í Groning-
en: 1. Karpov 7 'A v. af
11 mögulegum, 2- 3. Ivan
Sokolov og Kamsky 7 v.
4. Svidler 6 ‘A v. 5. Adams
6 v. 6- 7. Leko og Van
Wely 5 v. 8. Tivjakov 5
v. 9. Almasi 4'/z v. 10-11.
Piket og Curt Hansen 4
v. 12. Lautier 3'A v.
Víkverji skrifar...
ÓLASVEINARNIR, þeir synir
Grýlu og Leppalúða, hverfa
brátt til fjalla á nýjan leik og lands-
menn verða þeirra ekki varir á ný
fyrr en eftir tæpt ár. Víkveiji hefur
oft furðað sig á því, að jólasveinar
þeir sem koma fram á skemmtun-
um, í fjölmiðlum og á útisamkomum
virðast allir vera meira og minna
steyptir í sama mótið. Ekki er bein-
línis hægt að segja að Víkveiji hafi
horn í síðu sveinanna, en hann hef-
ur oft látið pirra sig að allir jóla-
sveinar virðast hafa alveg sama
talandann. Víkveija er spurn, hvers
vegna uppeldi þeirra Grýlu og Lepp-
alúða á sveinum sínum þarf að vera
með þeim hætti, að jólasveinarnir,
hvaða nafni sem þeir annars gegna,
tala allir með sama skræka, leiði-
gjarna róminum og hafa undan-
tekningalítið tamið sér þann ósið,
þegar þeir ræða við smáfólkið, að
ræða við það á nótum sem eru fjarri
því að geta talist vitsmunalegar.
Börn eru bráðskemmtilegt fólk, og
eiga það skilið að við þau sé rætt
eins og viti bornar verur. Jólasvein-
arnir hafa greinilega verið með-
höndlaðir af Grýlu og Leppalúða á
uppvaxtarárum sínum af mikilli lít-
ilsvirðingu og aldrei fengið að vaxa,
þroska og dafna sem vitsmunaver-
ur. En Víkveija er spurn, hvers eiga
blessuð börnin að gjalda að fá bull-
ið þeirra í hausinn um hver jól og
áramót?
xxx
AÐ gerist á þessum tíma ár
hvert, að í þjóðfélaginu hefjast
miklar umræður um Aramótaskaup
Sjónvarpsins og hvernig grínurunum
hafi tekist til við að skemmta lands-
mönnum á gamlárskvöld. Að þessu
sinni heyrist Víkveija sem nokkuð
almenn ánægja ríki með Skaupið.
En auðvitað eru ekki allir á einu
máli í þeim efnum fremur en öðrum.
Víkveija fannst Skaupið hóflega
fyndið, en honum heyrist einnig að
fleiri séu á þeirri skoðun að það
hafí verið mjög fyndið.
XXX
ANNARS virðist sem áramótin
hafi að mestu verið í friði og
spekt. Hér á höfuðborgarsvæðinu
viðraði einstaklega vel, frost og
logn. Himinninn á miðnætti um
áramótin var með því allra skraut-
legasta sem Víkveiji man eftir.
Fróðlegt verður að vita hversu
mörg hundruð milljónum króna
landsmenn brenndu um þessi ára-
mót. Ekki er ólíklegt að íslendingar
eigi heimsmet á þessu sviði og er
þá að sjálfsögðu miðað við höfða-
töluna víðfrægu. Það er eiginlega
ótrúlegt hversu vel við sluppurn/frá
slysum og óhöppum um áramótin,
þegar til þess er litið, að stór hluti
landsmanna tekur þátt í brennum
og sprengingum. Drengur slasaðist
illa á auga og ung kona sömuleiðis.