Morgunblaðið - 10.01.1996, Side 16

Morgunblaðið - 10.01.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Talið er að íslenska neðanjarðarhagkerfið velti árlega um tuttugu milljörðum króna Dragbítur á heiðarleg fyrirtæki og ógnun við samfélagið ÚTBREIÐSLA neðanjarðarhag- kerfisins hér á landi skapar mikla erfíðleika hjá þeim fyrirtækjum, sem fara eftir leikreglum samfé- lagsins, greiða til þess lögboðna skatta og skyldur og uppfylla allar þær kvaðir, sem settar eru. Þess vegna er það mikið hagsmunamál atvinnulífsins í heild að allir sitji við sama borð og að leikreglur sam- félagsins séu virtar. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar Verslunar- ráðs Islands um neðanjarðarhag- kerfíð og viðbrögð við því, sem kynnt verður á morgunverðarfundi þess að Hótel Sögu í dag. í umræddri skýrslu kemur fram að talið sé að neðanjarðarhagkerfíð hér á landi sé með svipaða veltu og tíðkist í nágrannalöndunum eða milli 4-5% af landsframleiðslu. Það nemi um um 20 milljarða króna veltu hérlendis. Nefnd fjármála- ráðuneytisins, sem fjallaði um málið árið 1993 mat það svo að tekjutap- ið fyrir ríki og sveitarfélög væri um tveir þriðju af veltu neðanjarðar- hagkerfisins. Þetta þýði að tekjutap opinberra aðila vegna neðanjarðar- hagkerfisins sé um 14 milljarðar króna. Nefnd Verslunarráðsins telur að þetta mat sé allt of hátt. Staðreynd- in sé sú að mikið af starfsemi neð- anjarðarhagkerfisins myndi aldrei eiga sér stað ef hún þyrfti að fara fram eftir settum reglum. Verð á margvíslegri vöru og þjónustu í umræddu kerfí taki að sjálfsögðu mið af því að viðskiptin séu ekki skráð og skattar ekki greiddir. „Ef viðskiptin væru með fullum sköttum hækkaði verðið og eftirspurnin minnkaði auk þess sem áhuginn á að selja viðkomandi vöru eða þjón- ustu minnkaði líka. Ennfremur verður óbeint til mikið af skatttekj- um vegna neðanjarðarstarfsemi þar sem tekjum af henni er eytt í vörur og þjónustu sem skattar eru greidd- ir af. Því getur málið aldrei snúist um að öll neðanjarðarstarfsemi komi upp á yfírborðið og skili fullum skatttekjum þar sem hún fellur nið- ur ef aðstæður hennar breytast," segir í skýrslunni. Ógnun við samfélagið Áhersla er lögð á að gera verði greinarmun á neðanjarðarstarfsemi sem ógni samfélaginu og þeirri, sem geri það ekki. Ráðast eigi gegn skipulagðri neðanjarðarstarfsemi, sem ógni samfélaginu vegna þess að hún breiðist út í einstökum at- vinnugreinum og sýki þær með þeim hætti að að skráð starfsemi geti alls ekki keppt á jafnréttis- grundvelli. Hins vegar sé óraun- hæft að ætla að uppræta þann hluta starfseminnar, sem ógni ekki sam- félaginu eins og þann sem er tilfall- andi, einstaklingsbundin og byggist á tilviljanakenndri greiðasemi innan fjölskyldu og milli vina. Skatteftirlit gagnrýnt Nefndin bendir á að freistingin til að svíkja undan skatti verði þeim mun meiri eftir því sem skattarnir verði hærri og hið opinbera verði því að stilla álögum í hóf og fara vel með opinbert fé. Þá verði einnig að sjá til þess að borgararnir fái réttláta og sanngjarna meðferð hjá skattyfirvöldum en misbrestur á því geti leitt til að samstaða um leik- reglur samfélagsins bresti og þeir leiti leiða til að ná raunverulegum eða meintum rétti sínum með öðrum hætti. „Sem dæmi ■ um þetta má nefna hið misheppnaða eftirlitsátak skattyfirvalda á árinu 1993,“ segir í skýrslunni. Skattyfirvöld verða fyrir mikilli gagnrýni í skýrslunni og segir að þau standi sig ekki í stykkinu. Þau fáist fyrst og fremst við minnihátt- ar mál og geri miklar kröfur til þeirra sem líklegastir séu til að vera með sín mál í lagi. Þá sé ósann- gjörn meðferð skattyfirvalda í ein- stökum málum og áhersla á smáu málin hvimleið. Leiðir til úrbóta Nefnd Verslunarráðsins tínir til nokkur atriði, sem hún telur að geti orðið til úrbóta og dregið úr neðanjarðarstarfseminni. Til dæmis sé mikilvægt að þrýst sé á að nýtil- komin skilaskylda ársreikninga til hlutafélagaskrár sé uppfyllt þannig að fyrirtæki geti nálgast almennar fjárhagsupplýsingar um önnur fyr- irtæki og metið þannig áhættuna af viðskiptum. Þá gæti verið til bóta að gera kröfu um að bókhald fyrirtækja sé endurskoðað með reglubundnu millibili, t.d. þriðja eða fjórða hvert ár. Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli 11,6% söluaukn- ing á síðasta ári SALA Fríhafnarinnar á síðasta ári jókst um 11,6% miðað við árið þar á undan. Heildarvelta síðasta árs nam rúmum 2,2 milljörðum króna en hafði verið 1.970 milljónir árið þar á undan. Mest varð söluaukn- ingin á rafmagnstækjum af ýmsu tagi og er sala þeirra orðin álíka stór þáttur í veltu Fríhafnarinnar og sala áfengis. Þessi söluaukning er nokkru meiri en sem nemur auknum fjölda far- þega sem fóru um Kefiavíkurflug- völl á síðasta ári, en fjölgun þeirra nam 10%. Guðmundur Karl Jónsson, forstjóri Fríhafnarinnar, segir að það sé alltaf ánægjuiegt að sjá söluaukn- ingu umfram fjölgun farþega. Hann Forte hafn- arnýjuboði Granada London. Reuter. BREZKA sjónvarps- og veitinga- húsafyrirtækið Granada hefur gert lokatilraun til að komast yfir hótel- fyrirtækið Forte plc með því að hækka tilboð sitt í það um 15%. Forte-fyrirtækið undir forystu Sir Rocco Forte flýtti sér að hafna til- boði Granada og sagði að það og boð um að selja glæsi- og Meridan- hótel Forte miðaði að því að svipta fyrirtækið eignum. Kjarni tilboðs Granada er óbreytt- ur, en fyrirtækið kveðst meðal ann- ars fúst að greiða að auki sérstakan arð upp á 47 pens á hlutabréf í Forte. Granada segir að nýja tilboðið sé endanlegt og metur Forte á um 3.8 milljarða punda, en tilboðið í það hljóðar upp á um 3.3 milljarða punda samkvæmt upphaflega tilboðinu, sem gildir til 23. janúar. bendir einnig á að aukningin hafi orðið mest í fjölda erlendra ferða- manna. Þeir kaupi gjarnan nokkru minna en íslendingar og því virðist sem íslenskir ferðamenn hafí að jafnaði eytt meira fé í Fríhöfninni á siðasta ári en árið 1994. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu varð söluaukning á öllum til- greindum vöruflokkum sem í boði eru í hillum Fríhafnarinnar. Sem fyrr segir dregur sala rafmagns- tækja nokkuð mikið á áfengissöluna, en sala þeirra jókst um 16,7% á sama tíma og sala áfengis jókst um tæp 7%. Heildarsala beggja vöru- flokka var um 500 milljónir árið 1995. ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa hækkaði í gær, annan daginn í röð, og hefur krafan hækkað um 0,1% á tveimur dögum og stendur nú í 5,90% hjá flestum verðbréfafyrir- tækjanna.Loftur Ólafsson, ráðgjafi hjá Landsbréfum, segir að þessi hækkun nú hafi komið til vegna lí- tillar eftirspurnar eftir húsbréfum upp á síðkastið. „Þetta var í raun aðlögun að þeirri þróun sem þegar hafði átt sér stað. Húsbréf seldust ekki á meðan að ávöxtunarkrafan vár í kringum 5,80% og því þurfti að hækka kröfuna til þess að fá ein- hveija eftirspurn eftir bréfunum." Loftur segir að þessi hækkun hafí augsýnilega borið árangur því að talsvert meira hafí selst af húsbréf- um en undanfarna daga. Eftirspurn eftir verðbréfum á lang- tímamarkaði tók talsverðan kipp í gær eftir nokkra deyfð upp á síðkast- ið. Um leið lækkaði ávöxtunarkrafa SALA —^ FRÍHAFNARINNAR 1995 auSS;g HeiSala Tæki 16,7% 502 Sælgæti 16,2% 336 Tóbak 11,6% 193 llmvatn 7,2% 469 Áfengi Úrog 6,9% 504 skartgripir Ýmsar 6,0% 60 vöruteg. 19,0% 136 Samtals 11,6% 2,200 Þá má einnig sjá að sala sælgæt- is hefur aukist um rúm 16%. Mest er þó aukningin í sölu á því sem skilgreint er sem ýmsir vöruflokkar en þar mun fyrst og fremst vera um að ræða skó, slæður og fatnað af ýmsu tagi. Sala á þessum vöru- tegundum jókst um 19% á síðasta ári. ýmissa flokka spariskírteina ríkis- sjóðs og voru dæmi um að ávöxtunar- krafan lækkaði um allt að 0,2%. Aðspurður hvort hækkanir á ávöxt- unarkröfu húsbréfa nú væru ekki í mótsögn við þessar lækkanir, sagði Loftur að hann teldi svo ekki vera. „Ef við lítum á þessi viðskipti, eru þetta yfirleitt nokkuð litlar fjárhæð- ir og að auki í mjög smáum eining- um. Mér sýnist að þarna hafi Þjón- ustumiðstöð ríkisverðbréfa verið á ferðinni til þess að safna í sarpinn fyrir innlausnirnar nú í febrúar, þ.e. til að geta boðið einstaklingum upp á fieiri möguleika en bara þann flokk spariskírteina sem boðið er upp á í skiptikjörunum.“ Loftur segir að þessi viðskipti hafi ekki verið alveg í takt við aðrar hreyfingar á mark- aðnum og því telji hann að núver- andi ávöxtunarkrafa húsbréfa sé sú lægsta sem hægt sé að bjóða mark- aðnum sem stendur. FUTURA hf., eigandi Domino’s pizzustaðanna hér á landi, hefur að und-' anförnu átt í viðræðum við Domino’s í Bandaríkjunum um að fá sérleyfi til rékst- urs slíkra staða í Dan- mörku og jafnvel fleiri löndum. Sérleyfið fyrir hin Norðurlöndin fylgdi með í kaupunum á sínum tíma þegar forráðamenn Futura fengu leyfið fyrir Island. Hins vegar rann leyfið út fyrir hin löndin með- an á uppbyggingunni stóð hér heima. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins ákvað Futura að sækja um samninginn fyrir Danmörku og hugsanlega Noreg og Svíþjóð á ný og er von á fulltrúum Domino’s frá Bandaríkjunum á morgun, fimmtu- dag, til viðræðna. Endanleg niður- staða liggur þó ekki fyrir því dansk- ir aðilar hafa einnig sýnt áhuga á leyfinu. Forráðamenn Futura gera ráð fyrir að stofna sérstakt fyrirtæki um þetta verkefni og fá fleiri aðila ti! liðs við sig. Er gert ráð fyrir að þetta fyrirtæki reki sjálft um 10 staði í Danmörku en endurleigi sér- leyfi til 20-30 aðila til viðbótar. Gangi það eftir má búast við að sérleyfí fyrir fleiri lönd fylgi í kjölfarið. Danir ósáttir við að greiða fyrir símtalið Bjartsýni ríkir um að Futura hafi betur í sam- keppninni við dönsku aðilana um sérleyfið þar sem hægt er að benda á ákaflega góðan árangur fyrirtæk- isins hér á landi. Domino’s hefur á skömmum tíma orðið umsvifamikið á íslenska pizzumarkaðnum og er staðurinn á Grensásvegi einn sölu- hæsti staðurinn innan keðjunnar í heiminum. Þetta mál bar á góma í ræðu Sigurjóns Sighvatssonar, kvik- myndaframleiðanda, á hádegisverð- arfundi Félags íslenskra stórkaup- manna í síðustu viku. Fram kom að markaðsrannsóknir í Danmörku hafa leitt í ljós að aðstæður á mark- aðnum þar eru töluvert frábrugðnar því sem þekkist hér á landi. Þannig virðast Danir t.d. ósáttir við að greiða sjálfir fyrir símtalið þegar þeir panta sér pizzu svo dæmi sé tekið. Siguijón lét þess einnig getið að upphaflega hafi hann haft hug á að opna Burger King veitingastað á íslandi og hafi samningar þar að lútandi verið langt komnir. Lífeyrissjóður Flugvirkjafélags íslands Landsbréf taka við rekstri sjóðsins LÍFEYRISSJÓÐUR Flugvirkjafé- lags íslands (LFÍ) hefur samið við Landsbréf um að fyrirtækið taki við rekstri sjóðsins. Þetta er gert til þess að gera rekstur sjóðsins hagkvæmari og fá aðgang að sér- fræðiþekkingu við stýringu fjár- muna auk þess sem stjórn sjóðsins geti nú sinnt eftirlitshlutverki sínu betur en áður, að því er segir í frétt. Hrein eign LFÍ nam 1.136 mi ónum króna í árslok 1994 og vc sjóðsfélagar 178 talsins en lífeyr þegar 62. Sjóðurinn er fjórði lífe; issjóðurinn sem gerir slíkan san ing við Landsbréf, en heildareig lífeyrissjóða í fullum rekstri 1 Landsbréfum nema nú 6 milljörði króna. Ávöxtunarkrafa hús- bréfa hækkar enn * Eigendur Domino’s á Islandi Vilja færa útkvíamar til Danmerkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.