Morgunblaðið - 10.01.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 19
ERLENT
Reuter
Mitterr-
and
syrgður
FRANQOIS Mitterrand,
fyrrverandi Frakklands-
forseta, var minnst um all-
an heim í gær, en hann lést
á skrifstofu sinni í París á
mánudag. í Þýskalandi
minntust leiðarahöfundar
hans sem leiðtoga er hefði
verið traustur bandamaður
Þjóðverja og margir Iétu í
ljós efasemdir um að sam-
starf rikjanna yrði jafngott
eftir að Jacques Chirac tók
við embætti. Hið virta blað
Frankfurter Allgemeine
Zeitung sagði samskipti
Frakka og Þjóðveija aldrei
hafa verið betri en í tíð
Mitterrands, jafnvel ekki
er Konrad Adenauer og
Charles de Gaulle voru við
völd. Margir Parísarbúar
lögðu í gær leið sína að
skrifstofu Mitterrands í
miðborg Parísar og lögðu
þar blómsveiga í minningu
um forsetann.
Kínveijar mótmæla nýrri mynd um munaðarleysingjahæli í Kína
Asökunum um skipuleg
dráp á börnum neitað
Starfsmenn sakaðir um að hafa svelt
þúsundir barna í hel
Peking, London. Reuter, The Daily Telegraph.
KÍNVERSK stjórnvöld sögðu í gær að ekkert væri hæft í ásökun-
um um að starfsmenn kínverskra munaðarleysingjahæla hefðu
svelt þúsundir barna í hel. Þau sögðu að aðbúnaður barnanna
færi batnandi og forstöðumenn hælanna ættu yfir höfði sér fang-
elsisdóm ef skjólstæðingar þeirra syltu eða frysu til bana.
Reuter
STARFSMENN og börn á munaðarleysingjahæli í Shanghai þar
sem hermt er að þúsundir barna hafi verið svelt i hel. Kínversk
yfirvöld skipulögðu ferð fyrir erlenda fréttamenn um hælið.
„Engir dauðabiðsalir eru til í
Kína,“ sagði talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, Chen Jian, á
blaðamannafundi í Peking. „Það er
mjög ósanngjarnt að setja hluta sög-
unnar fram sem aila söguna og
ófrægja Kínverja."
Talsmaðurinn var að svara ásök-
unum, sem koma fram í skýrslu
mannréttindasamtakanna Human
Rights Watch/Asia og í breskri heim-
ildamynd, um að þúsundir barna,
einkum stúlkur og fötluð börn, hafi
verið látin svelta í hel í „biðsölum
dauðans“_ á munaðarleysingjahælum
í Kína. „Ástandið er yfirleitt gott og
fer batnandi," sagði hann.
Wu Jingsong, ’yfirmaður kín-
verskra samtaka sem reka fjögur
„barnaþorp" á vegum stjórnarinnar
og barnahjálparsamtakanna SOS,
sagði að aðbúnaðurinn væri ef til
vill ekki nógu góður á nokkrum
munaðarleysingjahælum en það væri
af og frá að börn syltu eða frysu þar
í hel.
Wu sagði að kínversk yfirvöld
sendu eftirlitsmenn reglulega til að
kanna aðbúnað barnanna á öllum
hælum landsins.
Veik og fötluð börn valin
I heimildarmyndinni og skýrslu
mannréttindasamtakanna er því
haldið fram að starfsmenn munað-
arleysingjahælis í Shanghai hafi
valið börn og sett þau í sérstaka
deild, þar sem þau hafi verið án
matar og drykkjar. Breska sjón-
varpsstöðin Channel Four sýndi
myndina í gær, en hún er framhald
myndarinnar „Biðsalir dauðans"
sem vakti mikla athygli í fyrra.
Nýja myndin er meðal annars byggð
á frásögn og gögnum Zhang Shuy-
uns, læknis sem starfaði á hælinu á
árunum 1988-93. Zhang flutti frá
Kína í fyrra og tók með sér lækna-
skýrslur, myndir af deyjandi börnum
og upptökur á viðtölum við ungt
fólk sem dvaldi á hælinu.
Zhang segir að starfsmenn hæl-
isins hafi valið veikburða, sjúk og
fötluð börn og sett þau í sérstaka
deild þar sem þau hafi verið án
matar og lyfja. Þeir hafi einnig valið
„börn sem voru mjög skítug eða
óþæg eða bara ófríð“. Markmiðið
hafi verið að halda fjölda barnanna
á hælinu innan ákveðinna marka.
Óhugnanleg frásögn
í heimildarmyndinni segir að op-
inber gögn sýni að rúmur helmingur
allra barna, sem sett hafi verið á
kínversk munaðarleysingjahæli á
þessum tíma, hafi dáið innan árs.
Zhang nefnir sem dæmi stúlku sem
dó tveimur mánuðum eftir að hún
var sett á hælið árið 1989. „Undir
lokin var hún orðin svo hungruð að
hún reyndi að naga hold af hend-
inni,“ segir hún .
„Munaðarlausu börnin voru lamin
og misnotuð hvenær sem var,“ segir
Zhang í myndinni. „Barsmíðarnar
voru mjög alvarlegar. Yfirleitt voru
notaðir stólfætur eða mjög stór prik.
Höggin voru látin dynja á öllum lík-
amanum, einkum höfðinu."
Zhang segir að börnin hafi verið
bundin við rúmin á nóttunum. „Einu
sinni átu rottur fingur og hönd af
barni. Þetta sýnir að þjáningar barn-
anna voru rniklar."
Ai Ming, 23 ára Kínveiji sem var
á hælinu, lét Human Rights Watch
í té ljósmynir af látnum og deyjandi
börnum. Hann sagði að þeim hefði
verið misþyrmt á hælinu.
Morðingja
Ayyash
leitað
PALESTÍNSK yfirvöld gáfu í
gær út handtökutilskipun á
hendur Kamal Hammad,
kaupsýslumanni á Gaza-svæð-
inu, sem grunaður er um að
hafa tekið þátt í drápinu á
Yahya Ayyash, sprengjusér-
fræðingi Hamas, samtaka
heittrúaðra múslima. ísraelsk
og palestínsk dagblöð segja
að ísraelska leyniþjónustan
hafi greitt Hammad sem svar-
ar 65 milljónum króna fyrir
að færa Ayyash farsíma, sem
sprengju hafði verið komið
fyrir í.
Blöðin segja að Hammad
hafi flúið til Israels eftir dráp-
ið á föstudag og nokkur þeirra
telja að hann hafi síðan farið
til Bandaríkjanna undir fölsku
nafni.
Vogel dæmd-
ur sekur
WOLFGANG Vogel, lögfræð-
ingur í Austur-Berlín sem var
þekktur fyrir að skipuleggja
njósnaraskipti í kalda stríðinu,
var í gær dæmdur sekur um
að hafa kúgað fé af Austur-
Þjóðverjum sem vildu flýja
vestur á bóginn. Vogel fékk
tveggja ára skilorðsbundinn
dóm og honum var gert að
greiða 92.000 mörk, 4,2 millj-
ónir króna, í sekt fyrir fjárkúg-
un, meinsæri og skjalafals.
Grískir sós-
íalistar deila
ÁGREININGUR er kominn
upp meðal forystumanna
grískra sósíalista um hvernig
standa eigi að vali á eftir-
manni Andreas Papandreous
forsætisráðherra, sem liggur
á sjúkrahúsi. Framkvæmda-
stjórn flokksins sagði í vik-
unni sem leið að eftirmaður-
inn yrði valinn á fundi mið-
stjórnarinnar 20. janúar en
ráðherrar flokksins mótmæltu
þeirri ákvörðun í gær. „Ég er
einn þeirra sem vilja ekki setja
nein tímamörk," sagði Karo-
los Papoulias utanríkisráð-
herra.
Læknar forsætisráðherrans
sögðu í gær að hann væri á
hægum batavegi eftir átta
vikna sjúkrahússdvöl og gæti
nú stigið nokkur skref.
Dráp og ólga
í Istanbul
TVEIR kaupsýslumenn voru
myrtir þegar óþekktir menn
réðust inn á skrifstofu þeirra
í Istanbul í gær og hófu skot-
hríð. Vinstrisinnuð skæruliða-
samtök lýstu drápunum á
hendur sér. Tyrkneskir kaup-
sýslumenn hvöttu til þess að
endi yrði bundinn á ólguna í
stjórnmálum landsins sem
þeir sögðu hafa stuðlað að
árásinni.
SÚ1 01 SAI 10 .AN HEFST Á -60% afsláttur i MORGU »humme IN 1 ö
• S Nýtt kortatímabil S P 0 R T B Ú I IMÓATÚIXII sími 511 3555 D 1 N 17