Morgunblaðið - 10.01.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.01.1996, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Prjón og sitt- hvað fleira LIST OG HÖNNUN Hafnarborg PRJÓN - TEXTÍLHÖNNUN Kaffe Fassett. Opið frá 12-18 alla daga til 19 febrúar. Aðgangur 300 krónur. Á SAMA tíma og ýmsir listaskól- ar leggja niður grónar listgreinar í nafni nýstefnu í skólamálum, hafa einstaklingar hafíð þær til vegs svo útbreiðsla þeirra er meiri og almenn- ari en nokkru sinni. Veigurinn felst í því, að um ástríðu og lifun er að ræða, en séu þau atriði ekki fyrir hendi innan stofnana og einungis staðnaður sótthreinsaður lærdómur á ferðinni, er hætta á að áhugi nem- enda dvíni fljótlega. En það telst mikil fljótfærni og skammsýni að gera það að áfellisdómi yfir sígildum listgreinum, telja þær úreltar, þröskuld á vegi nýstefnunnar og því markmiði „að veita nýju blóði“ inn í skólana. Grunnatriði, sígild list og þjóðlegar erfðir fara einfaldlega aldrei úr tísku, frekar en frumform jarðar. Þannig veit ég að ýmsir þættir höggmyndalistar, svo sem mótun og steinhögg eiga víða undir högg að sækja, sömuleiðis hefð- bundinn vefnaður, og jafnvel hið hefðbundna nám í undirstöðugrein- um, teikningu og málun. Ekki er laust við að ýmsir hafa litið til þessarar þróunar með nokkr- um ugg, því þetta er í kjama sínum svipað því og að úrelda mömmu sína, og álíta að eitthvað í áttina að staðlaðri glasafijóvgun sé fram- tíðin. En á sama tíma eru sem bet- ur fer framsæknir málarar að leita til akademískrar tækni í uppbygg- ingu myndheilda, einkum málunar- tækni. Sér þess víða stað, því mynd- verk þeirra hafa vakið dijúga at- hygli, og sumir jafnvel heimskunnir. Er ég kom til Finnlands fyrst fyrir aldarfjórðungi eða svo, minnist ég þess, að ég kom inn í mjög at- hyglisverða, og að ég held nýstofn- aða deild pijónahönnunar við listiðn- aðarskólann í Helsingfors, sem hreif mig upp úr skónum. Vakti sérstaka athygli á henni hér í blaðinu og inn- an Myndlista- og handíðaskóla ís- lands, en fékk engin viðbrögð í landi sauðkindarinnar. Þá tel ég það til frásagnar, að þá ég var við nám í Kaupmanna- höfn um miðbik aldarinnar, undraði mig hve mikið var pijónað þar. Jafn- vel settist maður ekki inn í sporvagn án þess að einhveijar konur væru þar með pijóna sína á lofti, jafnvel kornungar stúlkur. þetta kom mér spanskt fyrir sjónir því yfírleitt pijónuðu í þá tíð einungis rosknar og gamlar konur heima á íslandi, helst rosavettlinga með tveim þuml- um á sjómenn. Undantekningar voru þó nokkrar, en það var næsta fátítt að sjá fólk við pijóna í strætó. Þótti mér núlistamanninum unga, sem Danir væru langt á eftir tíman- um, iðjan gamaldags á dögum staðl- aðra nýviðhorfa á öllum sviðum, húsa sem áttu að vera eins og skó- kassar í laginu, enda í móð hjá „djúpvitru“ dularfullu fólki með pípu í munnvikinu og svartar alpahúfur á kollinum. Tíminn er afstæður, því nú sést varla nokkur kona pijóna í almenn- ingsvögnum í Kaupmannahöfn, en á sama tíma virðast konur á öllum aldri famar að pijóna uppi á ís- landi, þykir í senn fínt og nútíma- legt. Ekki er það nýstefna í skólamál- um sem á heiðurinn, heldur nokkrir einstaklingar, og þá helst sá er ber undarlega nafnið Kaffe Fassett, og er merkilegt nokk frá landi hinnar stöðluðu fjöldaframleiðslu, fæddur í San Francisco árið 1937. Að maðurinn skuli kominn hingað og fylla hvem krók og kima Hafnar- borgar af verkum sínum, halda jafn- framt fyrirlestra og námskeið, hlýt- ur að stafa af áhuga fólks á iðju hans og pijónahönnun um leið. Hef ég ekki í annan tíma séð viðlíka mannfjölda samankominn í húsinu og á sunnudag er mig bar að garði í annað sinn. Áhuginn skein úr ásjónum fólksins, sem var á öllum aldri, frá gömlum köllum og kelling- um niður í reifabörn. Var næstum því jafn margt og á hinni sallafínu opnun sl. föstudagskvöld, sem sjálf- ur sendiráðherra Breska heimsveld- isins bauð til. Kaffe Fassett hefur verið búsett- LISTIR xr k rtnw-i . .. a Morgunblaðið/Þorkell KAFFE Fassett pi^onahonnuður. EITT verkanna á sýningunni. Morgunbiaðið/RAX ur í Lundúnum frá árinu 1964, svo það er skiljanlegt að enskir eigni sér manninn, enda er menntun hans mikið til sótt í hið óviðjafnlega safn Victoria og Albert Museum í Lond- on. Þar hef ég séð mikilfenglegast úrval textíla hvers konar, og tekur daga að skoða það allt að gagni. Sýningin ber líka sterkan svip af, að Fassett hafi óspart sótt hug- myndir þangað, allt í senn hvað mynstur, efni og liti snertir, sem er að mínu mati hárrétt stefna. Skólamir geta aldrei komist með tærnar þar sem söfnin em með hælana um margs konar fróðleik og hann liggur þar ómengaður og upplifaður, bíður hins næma og for- vitna auga. Og það er alveg rétt sem listamaðurinn sagði, „menn geti allt eins þjálfað litnæmið og vöðvana", að auk er það öllu hollara fyrir lík- ama og sál, enda koma engir anaból- ískir sterar þar nærri. Listamaðurinn hefur einnig orðið fyrir áhrifum úr fleiri áttum, eða kannski hafa viðkomandi listamenn sótt á sömu mið svo hér ber að fara mjög varlega í allar fullyrðingar og getspeki. Mikið upplýsingastreymi um listamanninn hefur þegar komið í íjölmiðlum og skal það ekki endur- tekið hér en snúið sér beint að sjálfri sýningunni. Einstök verk eru ekki númeruð, en það sem rýninum þótti mest áberandi í heildina var hve hinn óhlutbundni form- og litræni stígandi hafði mikla yfírburði yfir hlutlæga útfærslu. Ólíklegustu lita- sambönd verða mjög lifandi í hönd- um listamannsins, einkum ef allt er lagt í blæbrigði grunnlitarins og samvirkar formanir, og skiptir þá jafnvel ekki máli, þótt hann sé bleik- ur eins og nærklæði kvenna, sem þykir yfírleitt ekki par fínn litur í myndlist. Einnig skiptir fjöldi lita ekki máli, ef gerandinn heldur sig innan marka þessa jafna og hæga stíg- anda og gengur út frá þróuðum ríki- dómi blæbrigða, sem er einungis rofínn af tilfallandi formum. Hins vegar eru verkin á sýningunni mjög misjöfn og undraði mig að sjá þarna innan um púða, sem eru varla af hærri listrænni gráðu en almennur saumaklúbbaiðnaður og teikningin á þeim er stundum óörugg og svíf- andi. I hinum skreytikenndari verk- um þykir mér listamaðurinn einnig stundum á hálum ís og einkum er hann blandar saman bútasaumi og pijóni. Allt annar handleggur er að sjá formin í sjölum, peysum, vestum og hvers konar yfírhöfnum stuttum sem löngum, en þar er öryggið í fyrirrúmi og árangurinn oft framúr- skarandi enda er hið hreina pijón og huglæga framsetning ótvírætt styrkur listamannsins. Sýningunni er mjög smekklega og vel fyrir kom- ið miðað við fjölda verka svo að á stundum jaðrar við kraðak. Telst lærdómsríkt dæmi um lögmálið, regla í ruglingi, eins og það er stundum orðað, eða regla í fijálsri mótun. Eitthvað voru listamenn að agnú- ast út af yfirbragði markaðssetning- ar við opnunina, en markaðssetning er nú einmitt það sem mest er ábóta- vant á íslenzkum listavettvangi um þessar mundir. Er einmitt höfuð- ástæða þess hve íslenzkir listamenn og hönnuðir eiga erfitt uppdráttar heima sem erlendis. Góða list þarf að markaðssetja eins og hvað annað og það vita allir utan landsteinanna, og það er eins og að reka hausinn í vegg að koma með góða vöru í verndað umhverfi, hafí menn ekki réttu samböndin og tilfinningu fyrir markaðssetningu. Gleymum ekki að allt kostar peninga og að listin kost- ar ekki einungis miklar fómir af hálfu gerendanna heldur einnig dijúgan skilding. Mér varð ósjálf- rátt hugsað til þess, hvar frábærir pijónahönnuðir eins og Hulda Jós- efsdóttir og Steinunn Bergsteins- dóttir stæðu í dag hefðu verk þeirra notið réttrar markaðssetningar. Maður þakkar með virktum fyrir þessa sýningu sem kemur heilasell- unum á hreyfingu og vonandi hefur hún farsæl og örvandi áhrif á lista- menn, almenning sem og landsfeð- ur. Bragi Ásgeirsson BÓKMENNTIR Ljóðabók SIGURVEGARINN SÁRFÆTTI eftir Björgu G. Gisladóttur. Útgefandi höfundur -1995. SIGURVEGARINN sárfætti er fyrsta ljóðabók Bjargar G. Gísla- dóttur og annað skáldverk hennar. Frumraun hennar var leikþátturinn Þá mun enginn skuggi vera til, sem hefur verið sýndur á síðustu misser- um í Reykjavík og á mörgum stöð- um úti á landi. Ljóðabók sinni skiptir Björg í þijá hluta: Fjötrar, Fangelsi kuld- ans og Sláttur á fíðlustreng. Bókin fjallar að miklu leyti um sigur manneskjunnar á erfíðleikum og sársauka sem líkaminn veldur. I fyrsta ljóði bókarinnar er spurt: „Afhveiju lifi ég í fíötrum líkam- ans háð gangverki þessarar vélar?“ (Úr Ifíötrum, s. 7.) Þó ljóðmælandanum fínnist hann enn heftur af líkama sínum í síð- asta hluta verksins hefur hann orð- ið fyrir létti og í stað þess að þyngsli líkamans sitji í fyrirrúmi hefur ljóð- mælandinn eignast dálítið frelsi sem kemur ekki hvað síst fram í andblænum á ljóðunum sjálfum. Tungumálið breytist þegar líður á verkið og loftið fer að leika um orðin þegar ljóðmælandinn hefír sigrast á reiðinni og sársaukanum sem hafði búið svo kyrfilega um sig. Stór hluti ljóðanna í bókinni fíall- ar um sársauka og harm þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðislegu of- beldi. Þá leiðir Ijóðskáldið okkur t.d. inn í baðherbergið til lítillar stelpu sem grætur og veggirnir gráta með henni á meðan svört stutt hár fljóta í vatninu, í ljóðinu Þol- andi. Lítil hjörtu bresta og fullorðin er manneskjan sem var þetta barn að reyna að tína saman brotin. Ljóð- skáldið leiðir okkur inn í reiðina og hefndarþorstann, burt frá þoland- anum og til þess sem fremur og segir ógnandi: þú getur aldrei verið óhultur því sá andlegi kraftur sem býr í mér nær þér kannski á morpn þá munu augu þín mæta böðlinum sem býr í sjálfum þér (Ör Svartur hugur, s. 26.) Fyrstu tveir hlutar verksins nálg- ast þessa bitru reynslu frá mörgum sjónarhornum. Það er síðan fyrst og fremst á eftirfarandi hátt sem einsemd og þyngsli reynslunnar losna úr viðjum: Með minni hijúfu tungu sleikti ég örin þar til fór að blæða I blóðinu bjuggu tilfínningar þær þekktu ekki veg sinn þær týndust í orðflaumi tung- unnar Með minni hijúfu tungu myndaði ég orð Tilfínningar okkar mættust sameinuðust í sársauka reynslunnar _ (Úr Orð, s. 33.) Nefnilega með orðum ogtjáningu og samneytinu við annað fólk. Það er þess vegna sem ljóðin í síðasta hlutanum lifna við og verða orð sterkrar manneskju en ekki veik- rar. Þar víkur reiðin og harmurinn fyrir nautninni og ljóðmælandinn hvíslar: „í eyra þitt/njóttu stjamanna/njóttu norður- ljósanna/njóttu _ brims- ins/njóttu mín“ (Úr Ástarleik- ur, s. 41.) Sársaukinn hefur með lækningu orðsins tekið á sig yfírvegaðra form, hann er „under control" eins og sagt er á ensku og ljóðmæl- andinn hefur náð sátt við vonbrigði lífsins. Hann stendur dálítið æðrulaus frammi fyrir sambandsleysinu á milli fólks, fíarlægðinni og aðskilnaðinum. í þessum hluta ná væng- ir ljóðanna betra flug- þoli, þó getur það einn- ig verið sökum þess að lesandanum er létt, hann fær tilfinningu fyrir góðum endi og fer því að líða vel. Síðasta ljóðið gefur lesandanum sannarlega von: Ást Ást þín er eins og skordýr sem sýgur sig fast á húð mína og verpir í hold mitt ég er öil í kýlum ógeðslegum kýlum nótt eina rifnar ofan af kýlunum í tunglskinsbirtunni glittir á hvítar perlur í rifunum Þama brúar ljóðskáldið ljótleik- ann og fegurðina á einfaldan hátt og það tekst. Flest öll ljóðin í Sigurvegaranum sárfætta eru hversdagslega orðuð. Þau bera þungar og erfiðar tilfínn- ingar og koma tilfinningunum til skila án skrúðs eða yfirgengilegra orða. Án ofbeldis. Þessi bók nær inarkmiði sínu, sem ég held að sé að koma umræddri reynslu til ann- arra manna og gefa bæði þeim sem þekkja og þeim sem ekki þekkja hlutdeild í henni. Það er með sam- ræðunni sem þolendur misnotkunar sigra skömmina. í lokin langar mig til að birta ljóð úr bókinni sem rímar við ljóðið hér á undan en tekur einnig utan um þema bókarinnar. Poki Belgvíður dvergur í sauðskinnskóm birtist mér í draumi rétti mér poka af iðandi kóngulóm Ég vaknaði opnaði pokann hann var fullur af hugmyndaflugi (S. 12.) Kristín Ómarsdóttir Erfiðri reynslu komið til skila Björg G. Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.