Morgunblaðið - 10.01.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 27
AÐSENDAR GREINAR
Er þorskstofn-
inn að braggast?
MEÐ NÝJU ári kem-
ur hækkandi sól og
bráðum kemur betri tíð
með blóm í haga. Nú
munu sárin foldar gróa
því góðærið gengur í
garð eins og forsætis-
ráðherra segir. Það er
líka byijað að byggja
upp þorskstofninn sem
stækkar óðum segja
margir. Sjómenn á
Vestijörðum hafa aldrei
á ævi sinni séð aðra
eins þorskgengd. Þeir
gætu veitt tonn á mín-
útu segja þeir í hvert
troll ef þeir bara mættu.
Það gera 60 tonn á
klukkutíma, 500 tonn á
8 tíma vinnudag eða 130 þús. tonn
á ári þó að ekki væri nú verið að
toga um helgar. í 80 troll mætti fá
10 milljónir tonna af þorski, tuttugu
til fjörutíu milljónir tonna ef togað
væri á vöktum. Að viðbættum þess-
um 20-30 þús. tonnum sem smábát-
arnir stela frá togaraflotanum og
þeim stórútgerðarmönnum sem eiga
þorskstofninn. Það væru sko vit í
hásetahlutnum þá. En togararnir fá
bara ekkert að veiða þennan þorsk,
kvótakerfið skammtar öllum flotan-
um aðeins 155 þús. tonn. Það er góð
og gild ástæða fyrir því. Þessar ár-
vissu upphrópanir Vestfirðinga um
ævintýralega þorskgengd hafa nefni-
lega ætíð reynst tóm haugalygi eða
a.m.k. stórlega ýktar og svo er enn.
Þorskstofninn er ekkert að bragg-
ast. Stærð hans ákveðst ekki af nein-
um árlegum duttlungum náttúrunnar
eða sérstökum skilyrðum á Vest-
fjarðamiðum nú. Þorskar kvikna ekki
af sjálfu sér og þeir ganga ekki úr
Barentshafi til íslands. Grænlands-
ganga mun heldur ekki koma aftur,
a.m.k. ekki næstu áratugina. Þorsk-
stofninn nú ákveðst fyrst og fremst
af aðstæðum og skilyrðum í sjónum
fyrir meira en hálfum áratug. Af
ástandi sem við þekkjum og vitum
því að það er ekkert að marka upp-
hrópanir Vestfirðinga nú fremur en
í fyrra, hittiðfyrra né árin þar áður.
Algjör óþarfi, tíma- og peningasóun
að senda fiskifræðinga nú á Vest-
fjarðamið.
Vissulega finnast ljósir punktar
ef þorskstofninn er skoðaður. Árin
1989 og 1990 var hrygning með
besta móti þótt ekki hafl hún jafnast
á við góðærin hér áður fyrr. Fyrir
því geta legið ýmsar ástæður. Vafa-
laust spilar heppni og umhverfisskil-
yrði inn í en sjálfsagt hefur það líka
hjálpað að þá var hrygningarstofn í
hámarki og 1990 kom síðasta Græn-
landsgangan. Það voru risaárgang-
arnir frá 1983 og 1984 sem sáu til
þess, síðasta gullna tækifærið sem
gafst til þess að byggja hratt upp
þorskstofninn og standa við þau lof-
orð sem sjávarútvegsráðherra gaf
bæði íslendingum og Grænlending-
um. Að þessu búum við enn þann
dag í dag og því er nú þorskstofninn
ekki enn minni en hann er. Þess
vegna var á þessu ári sem nú er að
líða meira um 5 ára fisk en verið
hefur síðan 1989 og meira um 6 ára
fisk en verið hefur síðan Grænlands-
gangan kom 1990. Það má jafnvel
enn vonast eftir því að hrygningin
hafl ekki verið svo hörmuleg á liðnu
ári. Hrygningarstofninn var af fyrr-
greindum ástæðum í hámarki og þó
að tíu ára golþorskar hafi að vísu
aldrei verið sjaldgæfari var talsvert
meira um 11 og 12 ára fisk en oft
áður a.m.k. í seinni tíð.
Aftur eru hér risaár-
göngunum frá 1983 og
1984 um að þakka.
Ástand hrygningar-
stofnsins var í raun
ekkert verra á síðasta
ári en 1989 og 1990.
En þorskstofninn er
ekkert að braggast,
ástand hans fer versn-
andi. Á árinu sem nú
er að renna upp verða
færri 5 ára þorskar í
sjónum en hafa nokkru
sinni mælst í bráðum
aldarlangri sögu þorsk-
rannsókna. Eini Ijósi
punkturinn í ár eru 6
og 7 ára þorskarnir sem
verða enn fleiri en í ár og geta vafa-
laust kallað á upphrópanir Vestfirð-
inga eitt árið enn. Þessir þorskar eru
langflestir kynþroska og munu gera
hrygningarstofninn jafnvel enn
stærri í ár en í fyrra og þá stærri
en verið hefur síðan Grænlandsgang-
an kom 1990 og hann á sjálfsagt
að stórum hluta tilvist sína að þakka.
Það er vissulega ljós í svartnættinu.
En hitt vegur þó sennilega þyngra
að golþorskastofninn er í sögulegu
lágmarki og fer hratt minnkandi. í
ár verða færri 10 og 11 ára fiskar
en nokkru sinni hafa mælst í þorsk-
stofninum'. Sjálfsagt færri en verið
hafa nokkurt ár síðan ísland reis úr
hafi fyrir milljónum ára. Því má allt
Þorskstofninn stækkar
ekki, segir Einar
Júlíusson, meðan
hrygningin batnar ekki
en togurum fjölgar.
eins búast við lélegri hrygningu en
nokkru sinni fyrr. Og varla batnar
hrygningin eða stofninn verulega á
næsta ári þó að ráðherra hafi lofað
meira en 200 þús. tonna kvóta þá.
Næsta ár verða 6 ára þorskar á Is-
landsmiðum færri en nokkru sinni
hefur áður mælst. Hrygningarstofn-
inn mun minnka. Veiðistofninn gæti
stækkað lítilsháttar því þá verður
farið að telja með árganginn frá
1993, þann eina sem náð hefur næst-
um meðalstærð síðan risaárgangarn-
ir frá 1983 og 1984 komu. En það
er skammgóður vermir því næsti
árgangur frá 1994 er örlítill og það
eru engir möguleikar á að flotinn
gæti veitt 100 þús. tonna stærri
kvóta á næstu árum eins og aðal-
fundur Skipstjóra- og stýrimannafé-
lags Norðlendinga hefur lagt til og
stutt þannig Vestfirðingana sem og
Farmanna- og fiskimannasamband-
ið. Á þeim bæjum hafa menn hvorki
vit á þorskveiðum né skilning á nauð-
syn þess að koma í veg fyrir hrun
þorskstofnsins. Engan stuðning við
uppbyggingu þorskstofnsins og afla-
reglu sína mun sjávarútvegsráðherra
fá úr þeim áttum. Og þorskstofninn
stækkar ekki á meðan hrygningin
batnar ekki en togurunum fjölgar.
Hann braggast reyndar ekki fyrr en
hálfum til heilum áratug eftir að
hrygningin kemst í lag. Þorskstofn-
inn braggast ekki á þessari öld. Við
höfum séð til þess.
Höfundur er edlisfræitingur.
Einar
Júlíusson
Rosenthal -pegarpúvehirsV
Glæsilegar gjafavörur
Matar- og kaffistell í sérflokki
Verð við nllrn hæfi Laugavegi 52, sími 562 4244.
SKÓLI J0HN CASABLANCAS Á ÍSLANDI KYNNIR Á NÝJU ÁRI
John Casablancas
MODELING & CAREER CENTER
INNRITUN HAFIN - SÍHIAR S88 7799 S88 7727 Skeiían 7
ELITE
módelkeppnin '96,
leit hafin.
Námekeiðið er ætiað
öllum aldurshópum.
10-12 • 13-14 • 15-20 •
20 og eldri
- Lokaðir hópar -
Kennarar Ipjálfaðir frá
John Casablancas, USA.
Hannes tískuljósmyndari
frá Mílanó ásamt Gústa,
Superstudíó test myndatökur.
4 VIKNA KYHMINGARNAMSKEIÐ A 4.900 KR.
I—I 1iaMi'ía»'
\j\010W*W
Feimni
Sjálfsöryggi
Augnasamband
Framsögn - auglýsingar
Skipulagning
Tjáning - að jpora
Göngulag
Dans - Funck
REYKJAVÍKURVEGI 62 HAFNARFIRÐI
SÍMI 565 1680
L0KAÐ
í
DAG
STÓR-
ÚTSALA
HEFST
Á
M0RGUN
NÝTT K0RTATÍMABIL
Opið laugardag
til kl. 16.00.