Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 34
84 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Ástkœr amma mín,
BJARNVEIG HELGADÓTTIR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 8. janúar.
Kristín Bjarnveig Reynisdóttir.
t
Faðir okkar,
GEIR GESTSSON,
Hringbraut 5,
Hafnarfirði,
lést f St. Jósefsspftala, Hafnarfirði, að kvöldi 8. janúar.
Bjarni Hafsteinn Geirsson,
Svavar Geirsson.
t
GUNNVÖR RÓSA FALSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 8. janúar.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn
15. janúar kl. 15.00.
Fyrir hönd frændfólks og vina,
Bentey Hallgrfmsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR,
elliheimilinu Grund,
lést í Borgarspftalanum að kvöldi 8. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurmundur Guðnason,
Guðni Sigurmundsson, Edda Sveinbjörnsdóttir,
Garðar Guðnason,
Karólína Þórunn Guðnadóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, fóstur-
móðir, amma og langamma,
SIGURLAUG KRISTINSDÓTTIR,
Norðurgötu 32,
Akureyri,
sem lést á heimili sínu 3. janúar, verð-
ur jarðsungin frá Hvítasunnukirkjunni
á Akureyri föstudaginn 12. janúar
kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á Hvítasunnukirkjuna, Akureyri, eða
nauðstöddum börnum.
ABC hjálparstarf með
Ásgrimur Stefánsson,
Kristinn Ásgrímsson, Þórdís Karlsdóttir,
Hekla Gestsdóttir, Hörður Júlíusson,
Kristinn Gunnarsson, Lilja Hallgrímsdóttir,
Hannes Rútsson, Jóhanna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
BRYNJÓLFUR EIRÍKSSON
frá Bíldudal,
Hvassaleiti 58,
lést í Landspítalanum að morgni 8. janúar.
Fríða Pétursdóttir,
Pétur Brynjólfsson, Sigfríður Angantýsdóttir,
Sigrfður Brynjólfsdóttir, Örn Engilbertsson,
Gyða Brynjólfsdóttir, Jósteinn Kristjánsson,
Valgerður Brynjólfsdóttir, Anders Hansen,
barnabörn og barnabarnbörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA EINARSDÓTTIR
frá Reykjadal,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 6. janúar.
Útförin verður gerð frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 12. janúar
kl. 14.00.
Gógó Engilbertsdóttir, Oddur Á. Pálsson,
Margrét Engilbertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
MARGRÉT PÁLÍNA
G ÚSTAFSDÓTTIR
+ Margrét Pálína
Gústafsdóttir
fæddist á Stokks-
eyri 10. nóvember
1899. Hún lést á
Hjúkrunarheimil-
inu Víðihlíð 1. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar Margrét-
ar voru Gústaf
Arnason, trésmiður
á Stokkseyri, f. í
Ártúnum á Rangár-
völlum 10.3. 1857,
d. 22.8. 1914, og
kona hans, Jóhanna
Pálína Margrét
Magnúsdóttir, húsmóðir og
saumakona, f. í Króki í Holtum,
Rang., 1.9. 1862, d. 23.2. 1917.
Margrét fór 19 ára sem ráðs-
kona til Símonar Guðmunds-
sonar, sjómanns og verksljóra
í Bergvík og Hrúðurnesi, í
Leiru og víðar, ekkjumanns
með sex börn, f. 11. nóv. 1887
á Klöpp á Miðnesi, d. 8. okt.
1977. Þau giftust tveimur árum
síðar. Margrét og Símon eign-
uðust sex börn og komust fjög-
ur þeirra til fullorðinsára. Börn
þeirra: Einar, f. 6.2. 1920, d.
sama ár. Einar, f. 19.5. 1921 í
Hrúðurnesi, d. 12.12. 1981,
múrari í Reykjavík, en eftirlif-
andi kona hans er Jónína Vald-
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stnð.
(V. Briem.)
Kær fóstra mín er látin í hárri
elli. Upp rifjast minningar frá lið-
inni tíð. Efst í huga mínum er þakk-
læti til þeirrar manneskju, sem tók
mig móðurlausa, barn að aldri, sem
sína eigin dóttur.
Margrét var á margan hátt svo
langt á undan sinni samtíð. Á þeim
árum tíðkaðist ekki að húsmæður
ynnu utan heimilis, hvað þá rækju
eigin fyrirtæki.
Nítján ára gömul fór hún sem
ís Eiríksdóttir, f.
6.1. 1923, og eign-
uðust þau fimm
börn. Þau eru: 1)
Gústaf Pálmar, f.
29.10. 1922 í
Hrúðurnesi, prent-
ari í Reykjavík,
kvæntur Lilju Ingi-
björgu Siguijóns-
dóttur, f. 31.3.
1927, eignuðust þau
fimm börn. 2) Mar-
grét, f. 12.7. 1924 í
Hrúðurnesi, ekkja
eftir Viggó Óskar
Sveinsson, f. 3.1.
1920, d. 29.7. 1983, pípulagn-
ingameistara, en þau eignuðust
fimm börn og eru þijú þeirra
á lífi. 3) Jóna, f. 1926, d. sama
ár. 4) Móna Erla, f. 24.11. 1927
í Hrúðurnesi, gift Sigurbirni
Reyni Eiríkssyni húsasmiði,
þau eignuðust fimm börn. Auk
sinna eigin barna ólu Margrét
og Símon að mestu leyti upp
dótturdóttur Símonar af fyrra
hjónabandi, Ernu Þórðardótt-
ur, f. 29.10. 1936, sem er gift
Hallgrími Friðrikssyni, húsa-
smiði í New York og eiga þau
fjögur börn.
Utför Margrétar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.30.
ráðskona til afa míns, Símonar Guð-
mundssonar, að Bergvík í Leiru, sem
þá var ekkjumaður með sex böm á
aldrinum 18 mánaða til níu ára, en
kona hans, Halldóra, lést úr spönsku
veikinni, eins og svo margir, árið
1918. Eitt af börnunum sex var
móðir mín, Sigrún, þá aðeins fimm
ára gömul.
Margrét og Símon giftu sig árið
1920 og eignuðust saman sex börn
á sjö árum, þar af létust tvö barn-
ung.
Fátæktin var gífurleg á þessu
barnmarga heimili, eitt dæmi um
það er að Margrét kiippti niður sinn
eigin fatnað og saumaði á börnin.
Og þar er Margréti rétt lýst, allt
hennar líf einkenndist af umhugsun
um aðra, hvar hún gat hjálpað þeim,
sem mest þurftu á að halda á hveij-
um tíma.
Þegar ég fæddist, árið 1936, var
móðir mín elskuleg orðin berkla-
sjúklingur og tók Margrét það hlut-
verk að sér að taka mig undir sinn
verndarvæng og þegar móðir mín
svo lést úrþeim sjúkdómi, árið 1942,
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JAKOB VIGTÝR LEÓ ÓLAFSSON,
Kleppsvegi 52,
sem andaðist í Borgarspítalanum
3. janúar sl., verður jarðsunginn frá
Áskirkju föstudaginn 12. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á Krabbameinsfélagið.
Stefanfa Önundardóttir,
Ólafur Jakobsson,
Guðrún Kristjana Jakobsdóttir, Birgir Ástráðsson,
Bjarni Þór Jakobsson, Jóna Þuríður Ingvarsdóttir,
Jakob Leó, Stefanía Helga, Ásrún Lilja og Ásdis.
t
Dr. ANNA SIGURÐARDÓTTIR
forstöðumaður
Kvennasögusafns íslands
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 11. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Menningar- og minningarsjóð
kvenna, Kvennaheimilinu, Hallveigar-
stöðum, sími 551-81 56.
Þorsteinn Skúlason, Ásdfs Skúladóttir,
Anna Skúladóttir, Sigurður Karlsson,
Eirný Ósk Sigurðardóttir, Móeiður Anna Sigurðardóttir,
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, Skúli Á. Sigurðsson,
Karen Emilía Barrysdóttir.
varð ég sem eitt af bömum hennar.
Leiðir Margrétar og Símonar
skildu síðar.
Margrét lærði fatasaum hjá móð-
ur sinni á unga aldri og kom sér
það vel síðar er þau fluttu til Reykja-
víkur, þar sem hún tók að sér heima-
saum. Skömmu síðar setti hún á
stofn undirfataverksmiðjuna Max
og kápusaumastofu, en þá fékk hún
meistarabréf í klæðskeraiðn. Þar vil
ég staldra við og rifja upp er ég var
að byija að reyna að sauma mér
flíkur. Ef illa gekk leitaði ég til
hennar, með þeirri óþolinmæði, sem
einkennir ungdóminn og mér verða
ávallt í fersku minni þau orð, sem
hún sagði við mig: „Erna, það spyr
enginn hversu lengi þú varst að
gera flíkina, heldur hver gerði
hana.“ Þetta hef ég reynt að til-
einka mér allt mitt líf og reyni af
fremsta megni að kenna mínum
börnum.
Árið 1949 flutti Margrét vestur
um haf, til Bandaríkjanna, þar sem
hún síðan settist að í New York.
Árið 1958 flutti ég svo ásamt eigin-
manni mínum og fimm mánaða dótt-
ur einnig þangað, þar sem við höfum
búið síðan. Reyndist hún bömum
okkar ijóram, Sigrúnu, Friðriki,
Helgu og Unu, hin besta amma og
kveðja þau hana nú með söknuði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín Erna.
Kveðja frá
langömmubörnum
í byijun þessa árs bárust okkur
þau tíðindi að langamma okkar,
Margrét Pálína Gústafsdóttir, væri
látin. Langamma okkar, eða
Magga-Gúst-amma eins og við köll-
uðum hana, var smávaxin og grönn
kona en þrátt fyrir það var hún
full af lífsorku og atorkumikil. Lífs-
kraftur hennar virkaði drífandi á
aðra fjölskyldumeðlimi í lifsbarátt-
unni sem oft getur orðið erfið á
köflum. Það að vita það að blóð
hennar rennur í okkar æðum veitir
okkur fulla trú á því að við getum
staðist mótbárur lífsins.
Minningar okkar um Möggu-
Gúst-ömmu era einkum tengdar því
er hún gætti okkar er við vorum
yngri bæði hér á landi og í Banda-
ríkjunum. Hún var bæði góð og
elskuleg við okkur systkinin. Með
ákveðni sinni hafði hún fulla stjórn
á okkur „óþekktarormunum" þrátt
fyrir að hún væri komin yfir átt-
rætt er hún gætti okkar sem sýnir
vel þann mikla innri styrk sem hún
bjó yfir mest alla ævi. Við munum
varðveita minningu elskulegrar
langömmu okkar um aldur og ævi
og þökkum henni samverustundirn-
ar. Þykir okkur viðeigandi að minn-
ast hennar með tveimur erindum
úr Passíusálmunum eftir frænda
hennar, Hallgrím Pétursson:
Helgum guðs börnum herrans hold
helgað bæði jörð og mold,
gröfin því er vort svefnhús sætt,
svo má ei granda reiðin hætt.
Svo að lifa, ég sofni hægt,
svo'að deyja, að kvöl sé bægt,
svo að greftrast sem guðs barn hér,
gefðu, sætasti Jesú, mér.
María Erla Marelsdóttir,
Sigurður Einar Marelsson,
Geir Arnar Marelsson.
Minningarkort
Flugbjörgunarsveitarinnar
í Reykjavík
Símar 552 5851 og 569 4250