Morgunblaðið - 10.01.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 45
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Öllloforð
Atlanta stóðust
Frá Jóni Friðjónssyni:
VEGNA fréttar á íþróttasíðu
( Morgunblaðsins á laugardaginn
| vill undirritaður koma því á fram-
. færi að það er ekki rétt hjá Jó-
I hanni Guðjónssyni formanni hand-
knattleiksdeildar Aftureldingar að
loforð Atlanta um flug með leik-
menn og stuðningsmenn UMFA á
Evrópuleikinn í Drammen seinna
í mánuðinum hafi ekki staðist og
verið bara orðin tóm.
Undirritaður hafði milligöngu
. um viðræður við Atlanta og strax
' og þessi hugmynd kom upp var
( ljóst að forráðamenn Alanta vildu
( allt til þess gera að þetta væri
hægt, en hið rétta er að allan tím-
ann vissum við Aftureldingarmenn
að samningar stóðu yfir um leigu
fyrir vélarnar og því gat brugðið
til beggja vona, en öll loforð Atl-
anta b'yggðust á því að vélarnar
yrðu á lausu þessa helgi, það er
20. til 21. janúar. Við fengum að
( fylgjast með því dag frá degi
I hvernig málin þróuðust þannig að
ekkert átti að koma okkur á óvart
I í þessu efni.
Miklar líkur voru á því að
Júmbó-þota félagsins yrði til stað-
ar umrædda helgi þar sem hún var
væntanleg til landsins 16. janúar,
en ef ekki þá var til vara Tri-Star
vél félagsins, en hún var staðsett
á Englandi og ætluðu Atlantamenn
að sækja hana til að geta flogið
með Aftureldingu og stuðnings-
menn hennar til Noregs. Þetta
ætlaði Flugfélagið Atlanta að gera
undir kostnaðarverði og styrkja
þannig handknattleiksdeild Aftur-
eldingar.
Það kom svo í ljós 3. janúar sl.
að samningar um leigu fyrir vélar-
arnar hefðu tekist og því gat ekki
orðið af þessu flugi. Það er því
ekki rétt hjá Jóhanni að Atlanta
hafi verið búið að gefa okkur
ákveðin loforð um þetta flug,
menn þar reyndu hins vegar allt
sem þeir gátu til að leysa málið
og voru búnir að kanna að fá stóra
vél frá erlendu flugfélagi til að
fara þessa ferð fyrir okkur, þótt
sá kostur hefði orðið eitthvað dýr-
ari, en það gekk ekki eftir. Atl-
anta sveik því engin loforð og er
ekki við þá að sakast þótt ekki
hafi orðið af þessu flugi og ferðin
verið farin með leiguvél frá Flug-
leiðum.
JÓN FRIÐJÓNSSON,
Hlíðartúni 2, Mosfellsbæ.
Að fljóta sofandi
að feigðarósi
i
i
i
Frá Astþóri Magnússyni:
í UMFJÖLLUN Morgunblaðsins
síðastliðinn sunnudag um bókina
„Hver vegur að heiman" eftir Guð-
mund Árna Stefánsson lýsir Guð-
mundur Heiðar Frímannsson bók-
menntagagnrýnandi því yfir að
viðtal við mig á síðum þesarar
* góðu bókar hafi fælt lesendur frá
i henni.
j Gagnrýnandinn kvartar yfir því
að hálft viðtalið við mig séu hug-
leiðingar um heimsmálin sem hann
segir að hefði í mesta lagi átt að
vera einhver „stutt moðsuða" á
einni blaðsíðu. Líklegast tilheyrir
bókmenntagagnrýnandi Morgun-
blaðsins þeim hópi fólks sem flýtur
sofandi að feigðarósi. Fjöldi sér-
I fræðinga um allan heim hefur lýst
því yfir í ritum og máli að heimur-
inn standi nú gagnvart einhvetjum
I mestu vandamálum sögunnar sem
jafnvel gætu orsakað endalok sið-
menningar og útrýmingu mann-
kyns verði ekki gripið til stórtækra
björgunarátaka.
Því miður eru heimsmálin í svo
miklu óefni, að erfitt er að koma
því fyrir í einhverri „moðsuðu" á
einni blaðsíðu. Einnig er ekki van-
þörf á að nota nokkur vel valin
orð til vakningar, því bókmennta-
i gagnrýnandi Morgunblaðsins er
ekki einn um að vera sofandi á
verðinum og göslast áfram blindur
sem kettlingur í vísitölukapphlaupi
smáborgaranna. Hins vegar fer
þeim farþegum feigðarflugsins
fjölgandi sem hafa vaknað til lífs-
ins, eins og ég sjálfur, og sem láta
sér ekki á sama standa um tví-
skinnung og sofandahátt þeirra
sem eru við stjórvölinn í flestum
ríkjum heims. A síðustu mánuðum
hafa á tólfta hundrað íslendinga
gerst félagar í samtökunum Friður
2000 sem vinnur að því að upplýsa
allan almenning um þessi mál og
koma á alheimsátaki til friðar í
heiminum.
Gagnrýni Guðmundar Heiðars á
bókina er svo óljóst skrifuð, að
mér er ekki ljóst hvort það er
umfjöllunin um heimsmálin, ég
sem persóna, uppsetning bókarhöf-
undar eða eitthvað annað sem á
að hafa fælt lesendur frá bókinni.
Mér er hins vegar ljúft að tjá gagn-
lýnandanum að fjöldi fólks hefur
lýst við mig mikilli ánægju með
þessa bók og umfjöllun mína um
heimsmálin á þessum fáeinu síðum
sem þar buðust til að vekja svefn-
genglana. Ég hef því keypt tölu-
vert upplag af bókinni í þeim til-
gangi að gefa hana nýjum félags-
mönnum Friðar 2000.
Að lokum vil ég minna Guðmund
Heiðar á þetta gamalkunna ljóð:
En þú sem undan ævi straumi,
flýtur sofandi að feigðarósi,
lastaðu ei laxinn sem leitar móti,
straumi sterklega og stiklar fossa.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðar 2000.
Leikendur: Guðrún S. Gísladóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Arnar Jónsson,
Lilja G. Þorvaldsdóttir, Helgi Skúlason.
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
SÍMI 551 1200
’prrAum
3lendur vfir s vornámskeiðin. Barnadansar, samLæmis<teosar
Jassleikskólinn, kántrýdansar, stepp. rokk....þú temur - »,ö kennum.
Kennslustaöir: Engjateigur 1, Frostaskjól, Genöuberg, Fjörgyn Grafarvogi og Stjörnuheimiliö Garöabæ.
í dag kl. 17.00,
kynning fyrir foreldra
á jassleikskólanum og
barnadonsum.
Kl. 20.30 ókeypis
danstími fyrir pör, hjón
og góöa vini.