Morgunblaðið - 10.01.1996, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996
IDAG
MORGUNBLAÐIÐ
Lægsta verðið til Karíbahafsins frá íslandi
Sértilboð til Cancun
2 vikur - 22. janúar
kr. 59.930
Beint
Tryggðu þér glæsilegt kynningartilboð á nýjum íeiSuflug
gististað í Cancun, Laguna Verde Suites, sem við
kynnum nú í fyrsta sinn á frábæru verði. Fallegur gististaður með
öllum aðbúnaði; sjónvarp, sími, loftkæling og frábær staðsetning
við frægasta golfvöllinn í Cancun. Frábær aðbúnaður, ótrúlegt úrval
veitinga- og skemmtistaða, glæsilegir golfvellir, siglingar, köfun,
tennis, pýramýdar, kynnisferðir og íslensk fararstjórn Heimsferða
tryggja þér yndislega dvöl í paradís.
Um er að ræða síðustu 10 sætin í þessa brottför - bókaðu strax.
Verð kr.
59.930
Verð m.v. hjón með bam, 2 vikur, 22. jan.
Skattar innifaldir, ekki forfallagjald kr. 1.200.
Verðkr.
69.950
Verð m.v. 2 í herbergi, Laguna Verde, 2 vikur, 22. jan.
Skattar innifaldir, ekki forfallagjald kr. 1.200.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Leiðinleg
Þjóðarsál
KONA hringdi til Velvak-
anda og kvartaði yfir því
hversu leiðinleg Þjóðarsálin
á Rás 1 í Ríkisútvarpinu
væri orðin. Hún segir sama
fólkið hringja sí og æ,
kvartandi og kveinandi í
útvarpið og fínnst henni að
kominn sé tími til að breyta
forminu á þessum þætti.
Bílar í
lausagangi
menga
FAÐIR hringdi til Velvak-
anda og sagði farir sínar
ekki sléttar. Hann sagði
frá því að er hann kom til
að sækja barn sinn á dag-
heimilið Arnarborg í
Reykjavík hafi þar verið
fyrir staddur bíll á vegum
borgarinnar og einhveijir
menn að sinna störfum
sínum. Bíllinn var hafður
í gangi á meðan menn
voru þar við vinnu sína,
en af bílum í iausagangi
hlýst hin mesta mengun.
Móðir barnsins bað bíl-
stjórann að drepa á bílnum
á meðan þeir væru að
vinna, en hann brást hinn
versti við og sinnti því í
engu.
Getur það verið að fólk
sé ómeðvitað um þá meng-
un sem hlýst af því þegar
bílar ganga í lausagangi?
Þá fínnst foreldrum
bamsins að starfsmenn
borgarinnar ættu ekki að
bregðast svona illa við
þótt fólk geri athugasemd-
ir við vinnulag þeirra.
Faðir
Forsetaefni?
Á nýársdag í hátíðarmessu
í Bústaðakirkju predikaði
dr. Páll Skúlason prófess-
or. Ræðan var mjög góð,
hann fékk mjög góða hlust-
un. Gaman væri ef Morg-
unblaðið gæti fengið að
birta þessa predikun.
Kannski er þarna á ferð-
inni verðandi forseti okkar.
Ásdís Sigfúsdóttir,
Hörðalandi 8, Reykjavík.
Tapað/fundið
Gullkeðja fannst
GULLKEÐJA fannst í
Fossvogskirkjugarði í suð-
vesturhominu, 30. desem-
ber sl. Eigandi getur vitjað
keðjunnar í síma 564 3321.
BíIIyklar
töpuðust
ÞRÍR lyklar á kippu sem
er kristalskúla með Rauða
kross merki, töpuðust, lík-
lega á Grettisgötu við horn
Klapparstígs eða á Klapp-
arstíg sl. miðvikudag.
Lyklarnir em Honda-bíl-
lykill og tveir húslyklar.
Hafi einhver fundið kipp-
una er hann beðinn að hafa
samband við óskilamuna-
deild lögreglunnar.
Lyklakippa
tapaðist
LYKLAKIPPA í svartri,
fléttaðri leðuról tapaðist á
Þorláksmessu. Tveir assa-
lyklar eru á kippunni og
einn lás-lykill. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma
553 1121 eða 588 1650.
Armbandsúr
tapaðist
REYMOND Weil-stálúr
tapaðist í desember á leið-
inni frá Lækjartorgi að
Hlemmi. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma
560 8793 mánudaga til
föstudaga. Fundarlaun.
Úr fannst
KVENMANNSÚR fannst
milli jóla og nýárs í Espi-
gerði. Eigandi getur vitjað
úrsins í s. 568 5606.
Úr tapaðist
GAMALT upptrekkt gullúr
á leðuról tapaðist sl. laug-
ardag. Það gæti hafa týnst
í leið 6 frá Bústaðavegi að
Hlemmi eða þaðan og niður
á Laugaveg. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
568 6461.
Kvenúr fannst
KVENÚR með plastarm-
bandi fannst í Stakkahlíð
snemma í desember. Eig-
andi getur vitjað úrsins í
s. 551 6363.
Svalur
er týndur
SVALUR týndist frá Mel-
gerði í Reykjavík seint í
haust. Ef einhver hefur
upplýsingar um hann er
hann beðinn um að hringja
í síma 553 8563.
Farsi
SKAK
Umsjðn Margeir
Pctursson
Hvítur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á þýska
meistaramótinu í ár. Arno
Zude (2.405) hafði hvítt
og átti leik, en stórmeistar-
inn Matthías Wahls
(2.550) var með svart.
18. Hxf6! - Dc5 (Uppgjöf,
en 18. - Bxf6 19. Rd5 -
dd8 20. Rc6 var engu
betra) 19. Rb3 og svartur
gafst upp því hann tapar
manni.
Keppendur á mótinu
voru 46 talsins og tefldu
þeir níu umferðir eftir
svissnesku kerfi. Fimm
urðu efstir og jafnir
með 6 72 vinning, Arno
Zude, sem kom mest á
óvart, Roman Slobódj-
an, nýbakaður heims-
meistari unglinga (tók
við af Helga Ás Grét-
arssyni) og stórmeistar-
arnir Philip Schlosser,
Christopher Lutz og
Matthías Wahls. Þeir
tefldu úrslitamót og þá
sigraði Lutz með 3 v. af 4
mögulegum, Zude og Wahl
hlutu 2 v., en Slobodjan og
Schlosser 172 hvor.
Önnur umferðin á Skák-
þingi Reykjavíkur verður
tefld í kvöld í félagsheimili
TR, Faxafeni 12.
Yíkveiji skrifar...
GLÖGGT er gestsaugað, er
gjaman sagt, þegar útlend-
ingar benda mönnum á eitthvað
óvenjulegt í fari fólks, sem menn
taka vart eftir vegna þess að það
er hluti af hversdagsleikanum.
Nýlega ræddi Víkveiji við Spán-
vetja, sem fór inn í útsölu ÁTVR í
Kringlunni til þess að kaupa hvít-
vínsflösku.
Spánvetjinn varð verulega hissa
á að koma þangað inn. Honum
fannst allt andrúmsloft þar inni
þrúgandi og stofnanalegt og svo
einkennilegt að hann hafði orð á
því. Starfsfólkið stóð allt og fylgd-
ist með viðskiptavinunum, rétt eins
og það væri að þjófkenna það að
því er honum fannst. Það bar t.d.
ekki við að bjóða aðstoð sína, held-
ur var þarna að því er honum fannst
í einhvers konar eftirlitshlutverki.
xxx
EGAR Víkvetji fór að íhuga
þessi örð Spánveijans, sem
vanur er, þegar hann kemur inn í
búð þar sem vín eru seld, að fá að
smakka á vörunni og ræðir þá við
kaupmanninn um hvað sé bezt, var
eins og lykist upp fyrir honum sann-
leikur um þessa sem aðrar verzlan-
ir ÁTVR. Það er eitthvað að þama
inni.
Spytji menn starfsfólk um vínin
sem eru á boðstólum, koma menn
yfirleitt að tómum kofunum og er
þá jafnan bent á mann, sem starfar
í Kringlunni, er af erlendu bergi
brotinn og virðist hafa gott vit á
vörunni, sem boðið er upp á. Auðvit-
að á þetta fólk, sem þarna vinnur,
að vita allt um bragð, sætleika og
aðra eiginleika vörunnar og hafa
svör á reiðum höndum, þegar kúnn-
inn spyr. Það er jú ekki boðið upp
á smökkun.
Það er leitt til þess að vita að
menn skuli þurfa að heyra frá út-
lendingum hversu gallað form er á
þessum verzlunum. Miðað við verð-
ið á vöranni ætti að vera unnt að
veita fyrsta flokks þjónustu við-
skiptavinum, sem vilja kaupa sér
vín með matnum.
xxx
VÍKVERJI skrapp síðastliðinn
sunnudag inn í Þórsmörk og
viti menn, þar var unnt að aka sem
á sumardegi væri. Það er í meira
lagi óvenjulegt að unnt sé að aka
þangað 7. janúar án þess að aka
nokkmm sinnum í gegnum skafl.
Varla var unnt að tala um ísskarir
á vöðum ánna og raunar var lofthit-
inn á staðum um 7 C inni í Staf-
holtsgjá.
Þar er nú kannski varasamt að
vera í slíkri þíðu, sem þá var, því
að nokkrum sinnum sá Víkveiji
gríðarstór grýlukerti falla niður í
gjána. Þá þarf raunar ekki að spyija
að leikslokum fyrir þann, sem fyrir
slíku kerti yrði. Því er nauðsynlegt
að menn fari varlega í að heim-
sækja slíkar náttúruperlur á þess-
um árstíma.