Morgunblaðið - 10.01.1996, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 47
ÍDAG
BRIPS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
„Standa sex hjörtu virki-
lega?“
Norður/suður voru nokk-
uð sáttir við að taka 800 í
fimm laufum dobluðum.
Þeir höfðu náð góðri vörn.
En kannski gátu þeir gert
betur? Þetta varí sjöundu
umferð Reykjavíkurmótsins
í sveitakeppni.
Austur gefur; Norður/
suður á hættu.
Norður
♦ KF98
? G8632
♦ Á1054
♦
Vestur
♦ 65
V Á105
♦ KDG973
♦ 64
Suður
♦ Á74
▼ KD974
♦ 6
♦ KG109
Austur
♦ G1032
V -
♦ 82
♦ ÁK87532
Vestur Norður Austur Suður
- 3 lauf Pass
3 tiglar Dobl 3 spaðar 4 hjörtu
Pass Pass 5 lauf Dobl
Pass Pass Pass
Eftir laufdrottningu út
tryggði vömin sér sex slagi:
þijá á spaða, einn á tígul og
tvo á tromp. Nokkuð gott,
en 1430 í sex hjörtum er þó
mun betra.
En eiga sex hjörtu að
vinnast með bestu vöm?
Skoðum málið: Tígulkóngur
er eðlilegt útspil. Sagnhafi
drepur og spilar trompi á
kóng. Nú getur tvennt gerst:
1) Vestur drepur og spilar
meira hjarta. Sagnhafi
trompar þá þtjú lauf í borði.
Hann ferðast einu sinni heim
á spaðaás og tvisvar með
tígulstungu. Síðan tekur
hann síðasta trompið af
vestri og þvingar austur um
leið í svörtu litunum. Tólf
slagir.
2) Vestur dúkkar. Nú má
suður ekki spila meira
trompi. Hann stingur lauf,
fer heim á spaðaás, stingur
lauf, aftur heim með tígui-
trompun og stingur lauf í
þriðja sinn. Spilar svo hjarta-
gosa úr borði. Þá nær hann
upp sömu þvinguninni.
„Já, sex hjörtu vinnast
víst alltaf."
Pennavinir
SAUTJÁN ára finnsk stúlka
með margvísleg áhugamál:
Tiina Tuononen,
Kuorcuaarantie 113,
83700 Polvijiirvi,
Finland.
FJÓRTÁN ára Ghanapiltur
með margvísleg áhugamál:
Ernest K. Obeng,
P.O. Box 297,
Nkawkaw E/R,
Ghana.
FJÓRTÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á íþróttum, tón-
list o.m.fl.:
Annette Östrand,
Várstigen 2,
77571 Krylbo,
Sweden.
ÞRJÁTÍU og fimm ára
norsk kona vill eignast ís-
lenskar pennavinkonur.
Áhugamálin snúa að hann-
yrðum o.fl.:
Kjersti Onarheim Rabbe,
Teig 23,
4200 Sauda,
Norge.
ÞRETTÁN ára Ghanapiltur
með margvísleg áhugamál:
Awagp Francis,
P.O. Box 82,
Nkawkaw E/R,
Ghana.
ÞRETTÁN ára Gambíupilt-
ur með áhuga á íþróttum
o.fl.:
Ousainou Jatla,
c/o Buba Sanyang,
Immigration Post,
Banjul Airport,
Gambia.
Arnað heilla
OffÁRA afmæli. Átta-
OÍJtíu og fimm ára er í
dag, 10. janúar, Kristín
Sveinsdóttir, Maríubakka
22, Reykjavík. Hún og eig-
inmaður hennar, Lúðvík
Reimarsson, bjóða vinum
og vandamönnum í kaffi
laugardaginn 13. janúar
milli kl. 16-19 í safnaðar-
heimiii Breiðholtskirkju í
Mjódd.
JT O Á RA afmæli. Fimm-
íJV/tugur er í dag Ómar
Hl. Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri, Ásbúð 31,
Garðabæ. Hann og eigin-
kona hans, Sesselja
Hauksdóttir, taka á móti
gestum um borð í ms. Ár-
nesi, er liggur við Ægisgarð
íReykjavik, föstudaginn 12.
janúar milli kl. 18 og 20.
Með morgunkaffinu
HVAR fann ég hana?
Eg opnaði bara tisku-
blað og úps! Þar var hún.
JÆJA herrar mínir. Einhver ykkar hlýtur að vita
hversvegna við erum saman komnir hér i dag?
COSPER
HÖGNIHREKKYÍSI
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
STJÖRNUSPÁ
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Vertu ekki með hugann við
það liðna. Horfðu fram á við,
og nýttu þér þau tækifæri
sem bjóðast til að styrkja
stöðu þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt góðar viðræður um
viðskipti, sem opna þér nýjar
leiðir til að auka tekjumar
ef þú heldur rétt á spöðunum.
Tvíburar
(21.mai-20.júni)
Reyndu að koma í veg fyrir
deilur við félaga eða ástvin
um peninga. Þú ættir að
þiggja spennandi heimboð í
kvöld.
Krabbi
(21. júni — 22. júli)
Eitthvað kemur þér mjög
skemmtilega á óvart árdegis,
og þú leggur hart að þér í
vinnunni í dag. Slakaðu á
með ástvini í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eyddu ekki peningum í kaup
á einhveiju, sem þú hefur
ekkert gagn af. Þú ættir
frekar að fjárfesta fyrir
framtíðina.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef þú tekur daginn snemma
kemur þú miklu í verk og
getur fagnað góðum árangri.
Fjárhagurinn fer ört batn-
andi.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér tekst að setja niður deilur
við þrasgjarnan ættingja ef
þú sýnir þolinmæði og um-
burðarlyndi. Reyndu að halda
ró þinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Félagslífið á vel við þig og
þú nýtur mikilla vinsælda.
Farðu varlega í að lána öðr-
um peninga. Bjóddu heim
vini í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Sýndu þolinmæði við inn-
kaupin í dag, og vandaðu
valið á því sem, þú kaupir.
Vinur kemur með ábendingu
sem nýtist þér í vinnunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vertu ekki fyrir vonbrigðum
ef fyrirhuguðum fundi verður
frestað, því frestunin kemur
sér vel og árangur verður
góður.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Láttu ekki efasemdir draga
úr þér kjark í vinnunni. Ef
þú einbeitir þér nærð þú mjög
góðum árangri við lausn á
erfiðu verkefni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert með hugann við pen-
ingamálin í dag. Láttu þau
ekki valda þér áhyggjum, því
úrbóta er að vænta mjög
fljótlega.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni visindalegra staðreynda.
4. flokki 1992 - 9. útdráttur
4. flokki 1994 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis-
stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
C^h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins:
Hæfileikar þínir
nýtast þér vel íleit að
fjárhagslegu öryggi.
KRINGLUNNI
Sími 568 1925
Engin læti strákar!
Wtsalan
hefst á morgun,
fimmtudag, kl. 10.00
HANZ