Morgunblaðið - 28.01.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1996 B 5
Chun og Roh sakaðír um
blóðbaðið í Kwangju
SAKSÓKNARI í Suður-Kóreu hef-
ur gefið út formlega ákæru á hend-
ur Roh Tae-woo og Chun Doo
Hwan, fyrrverandi forsetum lands-
ins fyrir að bera ábyrgð á fjölda-
morðum suður-kóreska hersins á
lýðræðissinnum í Kwangju árið
1980. Var þetta sú síðasta í röð
ákæra í tengslum við valdaránið
1979 sem kom þeim til valda. Þá
hafa verið gefnar út spillingar-
ákærur á hendur Roh og Chun en
þeir eru ákærðir fyrir að hafa stofn-
að mútusjóði sem námu hundruðum
milljóna dala.
Harkalegar aðgerðir lögreglu og
hers gegn uppreisnarmönnum í
borginni Kwangju er einn ömurleg-
asti kaflinn í sögu landsins og leynd
hefur umlukið málið árum saman.
í ákæruskjalinu segir að Chun hafí
verið aðalmaðurinn að baki aðgerð-
um lögreglu en Roh hafi leikið aðal-
hlutverkið í þeim „glæp að traðka
á stjórnarskránni" með ofbeldis-
verkum. Eru þeir sakaðir um að
hafa rofið þing, staðið fyrir hand-
tökum stjórnmálamanna, ofsótt
blaðamenn, kveðið baráttu lýðræð-
issinna í kútinn áf hörku og endur-
skoðað stjórnarskrána.
Opinberlega er sagt að 200
manns hafí látið lífið í Kwangju
en íbúar borgarinnar fullyrða að
þeir hafi verið allt að 1.000. Átök-
in í borginni brutust út daginn eft-
ir að herinn, undir stjórn Chun,
setti á herlög í Suður-Kóreu í maí
1980 í kjölfar valdaráns Chuns
árinu áður.
Auk Chun og Roh eru sex fyrrum
yfirmenn í suður-kóreska hernum
ákærðir. Þrír hafa þegar verið
handteknir, þeirra á meðal fyrrver-
andi yfirmaður herráðsins Hwang
Yung-si og tveir foringjar í hernum
sem síðar sneru sér að stjórnmál-
um.
Ofbeldi og ógnanir
í umferðinni
London. Reuter.
MILLJÓNIR breskra ökumanna
hafa orðið fórnarlömb „vega-
bræði“, m.ö.o. ofbeldis í umferð-
inni, að því er fram kemur í nýrri
skýrslu um málið. Hún leiðir í ljós
að ökumenn réðust á um 250.000
manns á síðasta ári og skemmdar-
verk voru unnin á bílum 250.000
manna til viðbótar.
Tvær milljónir manna, einn af
hveijum sex ökumönnum í Bret-
landi, voru neyddir út í vegakant
eða út af vegi, vegna framferðis
illskeyttra ökumanna á síðasta
ári. „Það lætur nærri að þrír af
hverjum fjórum ökumönnum hafi
einhvern tímann verið fórnarlömb
„vegabræði“,“ segir talsmaður
Lex-bílasölu og -leigunnar í Bret-
landi, sem gerði skýrsluna.
í henni er ástandið sagt verst
í umferðarhnútunum í London og
úthverfum borgarinnar. Rætt var
við 1.229 ökumenn og kom þá í
ljós að tíundi hver ökumaður hafði
lent í því að annar ökumaður
hafði farið út úr bíl sínum og
ógnað þeim.
Skýrsluhöfundar segja að ein
aðalástæða þess að menn séu svo
illskeyttir, í umferðinni sé sú að
gífurleg streita safnist upp og
bijótist fram þegar menn lendi í
umferðaröngþveiti. Fólk sem
verði að komast leiðar sinnar fýr-
ir tiltekinn tíma en komist hvergi,
láti örvæntingu sína og reiði bitna
á samborgurum. Þá sagðist
fimmti hver bílstjóri, flestir karl-
menn, jafnan bijóta reglur um
hámarkshraða.
Skýrslan var birt á sama tíma
og mikil umræða er í Bretlandi
um hvernig draga megi úr notkun
einkabíla og auka almennings-
samgöngur. Þátttakendur í könn-
uninni sem skýrslan byggist á
fullyrtu að ástandið á götum og
vegum yrði að versna mikið áður
en þeir ákvæðu að leggja bílum
sínum og ferðast frekar með lest
eða strætisvagni.
KYNNINGARMIÐSTOÐ
EVRÓPURANNSÓKNA
RANNÍS
Sj ávarútvegsrannsóknir
Landbúnaðar- og fiskveiðiáætlun ESB
Kynningarfundur á vegum Kynningarmiðstöðvar
Evrópurannsókna verður haldinn mánudaginn
29. janúar í Borgartúni 6 kl. 15.30.
Landbúnaðar- og fiskveiðiáætlun ESB er hluti af 4. ramma-
áætluninni um rannsóknir, þróun og nýsköpun. Samkvæmt
EES-samningnum eiga íslenskir aðilar fúllan aðgang að
sjóðum áætlunarinnar.
A fundinum gefst áhugasömum aðilum tækifæri til að kynnast
því hvaða áherslur ESB hefúr á rannsóknum á sviði fiskveiða,
fiskeldis og fiskvinnslu og hvaða tækifæri íslendingar hafa til
samstarfs innan 4. rammaáætlunar ESB um rannsóknir á þessu
sviði.
Dagskrá:
15.30 Hr. Willem Brugge, fulltrúi Evrópusambandsins.
Kynning á rannsóknar- og þróunaráætlun ESB á
sviði fiskveiða, fiskeldis og tengsl þeirra við
fiskveiðistefnu bandalagsins.
16.30 Dr. Ólafur Ástþórsson, Haf rannsóknastofnun.
Yfirlit yfir alþjóðleg rannsóknarverkefni innan
Hafrannsóknastofnunar, m.a. evrópsk
samstarfsverkefni.
17.00 Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs íslands.
Costa del Sol er komin aftur. Heimsferðir bjóða nú í sumar vikulegt leiguflug til
þessarar paradísar Miðjarðarhafsins sem er íslendingum að góðu kunn. Hér hafa átt
sér stað stórkostlegar breytingar á síðustu þremur árum, ströndin hrein, allt pússað og
klárt fyrir nýja innrás íslendinga á staðinn og ásýnd staðarins hefur aldrei verið betri.
í tilefni þess að við bjóðum nú í fyrsta sinn vikulegt flug til Costa del Sol, bjóðum
við 150 sæti á hreint ótnilegu tilboðsverði, sem þú getur notið ef þú bókar strax.
Bókaðu strax, aðeins bessi sæti á sértilboði.
Verð kr.
29.9601 1 LWII?
Flug fram og til baka.
Verð kr.
39.532
Verð pr. mann m.v. hjón með 2 böm 2-11 ára, 20. júní,
2 vikur, La Nogalera.
39.860
Verð kr.
2 í stúdióíbúð í viku, 20. júní, La Nogalera.
Vikulegt leiguflug
frá 30. maí til 26. september.
Skattar innifaldir í verði, ekki forfallagjald kr. 1.200 Austurstræti 17, 2. hæð. Simi 562 4600.
/■ L2 . mm
kHElM SY ERÐIRJ