Morgunblaðið - 28.01.1996, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1996
MORQUNBLAÐIÐ
m ■ Bnw unm
Norræna ráðherranefndin
Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjórna norrænu ríkjannna. Skrifstofa
nefndarinnar, sem staðsett er í Kaupmannahöfn, auglýsir nú eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
Fjármáia- og rekstrardeild
- Deildarsérfræðingur í bókhaldsdeild
Deildarsérfræðingurinn hefur umsjón með greið-
slum og eftirlit með fjárhagsstöðu Norrænu ráð-
herranefndarinnar, tekur þátt í gerð fjárhags-
áætlana fyrir norrænar stofnanir og verkefni, sér
um húsnæðismál Norrænu ráðherranefhdarinnar,
innkaup og tryggingar, samskipti við ríkisendur-
skoðun og yfirmenn þróunarverkefna á fjár-
málasviðinu. Reynsla ffá þróunar- og nýsköpunar-
starfi á sviði fjármála og rekstrar telst til tekna.
Ráðningartími hefst eftir samkomulagi.
- Deildarfulltrúi
Deildarfulltrúi annast almenn ritarastörf fyrir
skrifstofústjóra og deildarsérfræðinga, auk þess að
sinna bókfærslu og útborgunum. Umsækjandi þarf
að hafa starfsreynslu úr bókhaldi eða fjármáladeild
og vera vanur vinnu við Excel, Word og svipuð
forrit. Þá telst til þekking á ýmsum bókfærslufor-
ritum til tekna. Umsækjandinn skal vera hjálp-
samur og geta unnið bæði sjálfstætt og undir álagi.
Ráðningartími hefst eftir samkomulagi.
Skrifstofa framkvæmdastjórans
- starfsmaður fyrir norrænt samstarf um málefni
Norðurskautssvæðisins.
Hann skal fylgja eftir ffamkvæmdaáætlun Norrænu ráð-
herranefndarinna um málefni Norðurskautsins. Starfs-
maðurinn sér um að ýta samstarfsverkefnum úr vör,
fylgjast með gangi þeirra og þróa leiðir til sameiginle-
grar fjármögnunar einstakra verkefna. Krafist er
þekkingar á Norðurskautssvæðinu og alþjóðlegu sam-
starfi ásamt reynslu af stjómun verkefha.
Ráðningartími hefst eftir samkomulagi.
Tvær stöður fulltrúa
- á einni þriggja eftirtalinna skrifstofa: F1 (menningar-,
menntamál og rannsóknir), F2 (umhverfismál, við-
skipta- og iðnaðarmál) eða F3 (atvinnumál, félags- og
heilbrigðismál). I starfinu felast ýmis skrifstofustörf,
m.a. að fylgja eftir gerðum samningum og jaftivel að
hafa umsjón með afgreiðslu styrkja. Starfið krefst
samvinnu, bæði innan skrifstofunnar og við aðila utan
hennar. Krafist er reynslu í tölvunotkun og enskukunn-
áttu.
Ráðningartími hefst eftir samkomulagi.
Upplýsingar um allar stöðurnar:
Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára. Umsækjendur þurfa að hafa góða fræðilega menntun og margra ára starf-
sreynslu hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Skrifleg og munnleg fæmi í dönsku, norsku eða sænsku er forsenda
fyrir ráðningu. Kunnátta í fleiri tungumálum telst til tekna. Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar vill stuðla að
jafnri kynjaskiptingu og hvetur því bæði karla og konur til að sækja um störfin. Opinberir starfsmenn eiga rétt á leyfi
frá störfum sem ráðningartímabilinu nemur.
Nánari skriflegar upplýsingar um ofannefndar stöður og umsóknareyðublöð er eingöngu hœgt að panta
skriflega. Koma skal greinilega fram, um hvaða stöðu er sótt. Þá munu vera gefin upp nöfn á fólki, sem
getur sagt nánar frá hverju starfi fyrir sig. Umsóknarfrestur rennur út 16.febrúar 1996.
Nordiska ministerrádet, Postbox 3035, DK-1021 Köpenhavn K, Danmörku.
Bréfsími 00 45 33 96 02 02 eða 00 45 33 96 02 16.
Bílanaust hf., sem er innflutningsfyrirtæki
með vandaðar vörur fyrir bíleigendur og við-
gerðarmenn, óskar eftir að ráða kraftmikinn
aðstoðarmann í innkaupadeild.
Starfið felst í mjög fjölbreyttum verkefnum,
s.s. samskiptum við erlenda birgja, umsjón
með pöntunum, erlendum bréfaskrifum o.fl.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi séu með
verslunarpróf eða samsvarandi menntun,
hafi góða enskukunnáttu, séu tölvuvanir og
tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og
geri kröfur um árangur.
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar
nk. Ráðning verður fljótlega.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eingöngu á skrifstofu Liðsauka, sem er
opin kl. 9-14.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki eht
Skólavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
Afgreiðslu-
og skrifstofustarf
FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI austarlega á
höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða
starfsmann til afgreiðslu- og skrifstofustarfa
í söludeild.
STARFIÐ felst m.a. í afgreiðslu pantana,
útskrift reikninga og fylgibréfa og uppgjöri.
LEITAÐ ER AÐ samviskusömum og heiðar-
legum starfsmanni, sem hefur öðlast innsýn
í almenn skrifstofustörf. Vinnutími er aðra
vikuna kl. 7.20-15.20 og hina vikuna kl.
9.00-18.00. Viðkomandi verður að geta byrj-
að sem fyrst.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með 31. jan-
úar 1996.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14.
Lidsauki
Skólavörðustíg 1 a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
Laus störf
Viltu skipta um starf eða ert tilbúin(n) að
hefja störf strax eftir helgi?
Eftirfarandi eru laus störf sem e.t.v. gætu
hentað þér!
Tölvufyrirtæki (024).Störf við forritun, þjón-
ustu og uppsetningu neta. Þekking á Oracle
gagnagrunnum, AS/400 eða Concorde. Við
leitum að kerfis- eða tölvunarfræðingum.
Verslunarstjórn (060). Þekkt byggingarvöru-
verslun á höfuðborgarsvæðinu. Krafist er
góðrar reynslu af verslunarstjórn. Gott fram-
tíðarstarf fyrir lipran og ákveðinn mann.
Sölustjóri (064). Rótgróin heildverslun sem
sífellt er að vaxa er að leita eftir sölustjóra.
Upplagt fyrir unga menn sem vilja standa sig.
Störf úti á landi (054). Hraðfrystihús á lands-
byggðinni óskar eftir að ráða yfirviðhalds-
stjóra og skrifstofumann. Kjörið tækifæri fyr-
ir hjón sem vilja fara út á land.
Lagerstjóri (055). Heildverslun í Reykjavík
með fjölbreytt vöruúrval vantar lagerstjóra.
Gott starf í góðu starfsumhverfi.
Sölumaður (047). Fyrirtæki sem selur stýri-
búnað fyrir iðntölvur, íhluti o.fl. Leitum að
rafvirkja/rafiðnfræðingi eða vélfræðingi með
þekkingu á stýribúnaði.
Ferðaskrifstofa (045). Hlutastarf etir há-
degi. Nauðsynlegt er að viðkomandi þekki
vel til starfa á ferðaskrifstofu. Framtíðarstarf.
Fjölmiðlafyrirtæki. (050) Starf í fjárreiðu-
deild. Krafist er bókhaldsþekkingar, góðrar
ensku- og tölvukunnáttu.
Þjónustufyrirtæki - Hafnarfirði. (063) Starf
í móttöku við ritvinnslu, skjalavistun og al-
hliða skrifstofustörf. Áhersla er lögð á lipurð
og þægilega framkomu.
Tryggingafélag (045). Starf við söluráðgjöf.
Mikilvægt starf, sem hentar sjálfstæðum og
áræðnum einstaklingum. Vinnutími er sveigj-
anlegur og laun eru í samræmi við árangur.
Þjónustufyrirtæki (039). Innflutningsskjala-
gerð, sendiferðir í toll og banka, almenn
skrifstofustörf.
Húsgagnaverslun (041). Skemmtilegt sölu-
og skrifstofustarf ífallegu umhverfi. Tok-bók-
haldskerfi. Vinnutími kl. 9-18 virka daga.
Helgarvinna er samkomulag.
Fjölmiðlafyrirtæki (049). Krefjandi starf á
forstjóraskrifstofu. Fjölbreytt starf sem
krefst góðra skipulagshæfileika, samskipta-
hæfni og góðrar tungumála- og tölvukunn-
áttu.
Ferðaskrifstofa (065). Starf fjármálafulltrúa
sem annast m.a. uppgjör og tilboðsgerð.
Viðskiptamenntun er æskileg. Starfsreynsla
og tungumálakunnátta er skilyrði.
Fjármálafyrirtæki (029). Færsla bókhalds,
s.s. innsláttur, afstemmingar og uppgjör til
endurskoðenda. Viðskiptamenntun skilyrði.
Ferðaþjónusta (042). Hlutastarf frá kl.
14-17 við bréfaskriftir á erlendum tungumál-
um. Góð ritvinnslu- og tungumálakunnátta
er skilyrði. Einnig aðstoð við almenn skrif-
stofustörf.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
ofangreindum númerum. Ef þú átt eldri um-
sókn en frá 1. júní 1995 þarf að endurnýja
eða staðfesta hana. Umsóknarfrestur er til
og með 3. febrúar nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 581 3666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir